Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 24. janúar 2011 Mánudagur Minningarsjóður Sonju Zorrilla hefur á síðastliðnum árum selt í kringum tuttugu listaverk hjá upp- boðshöldurunum Christie's í New York og Sotheby's fyrir tugi millj- óna. Samkvæmt heimasíðu upp- boðshaldarans Christie's var síð- asta salan á verki eftir bandaríska listamanninn Mark Tobey sem seldist á 47.500 dollara, ríflega 6,5 milljónir króna, þann 13. nóvem- ber 2008, rúmum mánuði eftir bankahrunið á Íslandi. Sonja vildi að minningarsjóðurinn yrði not- aður til styrkveitinga í þágu mál- efna tengdum börnum á Íslandi og í Bandaríkjunum. Fjárfestirinn Guðmundur Birg- isson, sem yfirleitt er kenndur við bæinn Núp í Ölfusi, er annar þeirra sem var settur yfir minningarsjóð Sonju þegar hann hún féll frá árið 2002. Guðmundur er frændi Sonju. Hinn umsjónarmaðurinn er John Ferguson, lögfræðingur Sonju í Bandaríkjunum. Guðmundur var úrskurðaður gjaldþrota í Héraðs- dómi Suðurlands fyrir tæpum mán- uði og skilur eftir hundruð milljóna skuldir, ef ekki meira. Dularfullur sjóður Hvað varð um eignir minningar- sjóðs Sonju Zorrilla er eitt af þess- um málum í íslenskri þjóðfélags- umræðu sem aldrei hefur fengist neinn botn í þrátt fyrir fjölda til- rauna fjölmiðlamanna til að svara þeirri spurningu. Skrifaður hefur verið fjöldi blaðagreina um sjóð- inn, um hann hefur verið fjallað í bók og gerður um hann fréttaskýr- ingaþáttur í sjónvarpi. Hvorki Guð- mundur né Ferguson hafa hins vegar viljað veita upplýsingar um bolmagn sjóðsins til styrkveitinga, stofnfé hans eða ávöxtunarleiðir. Svör við flestum spurningum sem snerta sjóðinn, sem talið er að hafi verið nokkur hundruð milljóna virði eða jafnvel meira, eru því á huldu enn sem komið er. Tíðindin á heimasíðu Christie's benda hins vegar til að minningar- sjóðurinn hafi verið að selja eignir og því séu fjármunir inni í honum. Heimildarmenn DV segja að áætla megi að Sonja hafi átt eignir upp á um milljarð króna þegar hún lést. Þar af var nokkur hundruð fermetra íbúð á Park Avenue á Manhattan í New York sem var seld eftir andlát hennar fyrir nokkrar milljónir doll- ara. Eitt verk selt á rúmar 20 milljónir Dýrasta listaverkið sem minningar- sjóðurinn hefur selt, af þeim verk- um sem DV hefur fundið út að hafi verið seld, er stytta eftir venesú- elsku skúlptúrlistakonuna Marisol Escobar. Styttan var eitt af þekktari listaverkum í eigu Sonju Zorrilla og prýddi heimili hennar í New York samkvæmt heimildum DV. Styttan sést auk þess í sjónvarpsviðtali sem var tekið við Sonju nokkru áður en hún dó. Hún var því eitt af einkenn- um Sonju ef svo má segja. Sú stytta var seld á uppboði hjá Christie's í New York í maí sumarið 2007 fyr- ir 336 þúsund dollara eða nærri 22 milljónum króna. Verðmat verksins var hins vegar á milli 80 og 120 þús- und dollarar. Verðið á verkunum fer allt frá þessari upphæð og niður í kringum 100 dollara. Af heimasíðu Christie's er ekki annað að sjá en að öll verk- in sem boðin voru upp úr búi Sonju hafi selst. Meðal annarra lista- manna sem áttu verk í búi Sonju voru Richard Anuszkiewicz, Sam Francis og Joseph Lacasse. Verk- in voru langflest boðin upp og seld árið 2004, um tveimur árum eftir að Sonja lést, en einhver þeirra síðar, til að mynda verkið eftir Esco- bar. Söluhagnaðurinn til barna Á heimasíðu Christie's eru listaverkin sem voru í eigu minningarsjóðs Sonju kynnt þannig að upphoðshaldarinn hafi verið mjög ánægður með að geta boðið safn henn- ar upp og að söluandvirði verkanna ætti að renna til þurfandi barna á Ís- landi og í Bandaríkjun- um. „Christie´s er ánægt með að kynna safn Sonju Zorrilla á listaverkum frá tímabili eftir seinna stríð. Hún var lífskúnst- ner sem tók virkan þátt í samkvæmislífinu og hélt heimili á Manhattan, í London, París sem og í heimalandi sínu, Íslandi. Heimili hennar voru samkomustaðir fyrir vini hennar, en meðal þeirra voru Jacqueline Kenne- dy Onassis og John Loeb. Ást hennar á listum gerði að verkum að hún keypti myndir af virtum galleríum í New York og London, auk þess sem hún fékkst sjálf við myndlist. Ágóðinn af sölunni mun renna inn í minn- ingarsjóð hennar sem styrkir þurf- andi börn í Íslandi og í Bandaríkj- unum,“ segir í kynningunni um safn Sonju. Ekki er hins vegar vitað til þess að þeim fjármunum sem fengust fyrir umrædd verk hafi verið varið í þetta málefni. Stórfrétt í sjálfu sér Aðalsteinn Ingólfsson listfræðing- ur var vinur Sonju og deildu þau ómældum áhuga á listum að sögn Aðalsteins. Í viðtali við DV árið 2007 sagði Aðalsteinn að margir vinir Sonju furðuðu sig á því hvað hefði orðið um minningarsjóðinn. Þá sagði Aðalsteinn: „Nú átti Sonja glæsilegt safn listaverka með mörg- um heimsþekktum listamönnum. Samkvæmt erfðaskrá hennar átti að selja verkin og andvirði þeirra átti að renna í minningarsjóðinn til styrktar börnum. Það er ekki bara ég heldur fleiri sem velta því fyr- ir sér hvað hafi orðið um auðæfi hennar og sjóðinn. Það fást engar skýringar á því.“ Eftir að þetta viðtal var tekið við Aðalstein hefur hins vegar kom- ið í ljós að listaverk Sonju hafi ver- ið seld, eða að minnsta kosti hluti þeirra. Aðalsteinn segir nú að hon- Sjóður Sonju fékk tugi milljóna fyrir listaverk Vellauðugur heimsborgari Sonja Wendel Benjamínsson de Zorrilla varð vellauðug á lífsleið sinni og margir vina hennar eru meðal ríkasta fólks veraldar. Hún hafði yfirburðaþekkingu á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum og hagnaðist gífurlega á slíkum viðskiptum. Sonja átti í eldheitu ástarsambandi við gríska skipakónginn Aristotle Onassis, sem síðar giftist Jacqueline Kennedy, og gekk síðar í hjónaband með Argentínumanninum Alberto Zorrilla, myndarlegum ólympíu- og heimsmethafa í sundi og hæfileikaríkum tangódansara. Sonja var sannur heimsborgari en síðustu æviárin bjó hún á Seltjarnarnesinu þar sem hún naut fjallasýnar. Hún lést í mars 2002 og lét eftir sig mikil auðæfi sem hún vildi að rynnu til hjálpar börnum. Minningarsjóður hennar var stofnaður nokkru síðar með það meginhlutverk að styrkja börn á Íslandi og í Bandaríkjunum til náms og heilsu. Með þessu móti vildi hún tryggja að eigur hennar yrðu til góðs. Frá stofnun sjóðsins hefur verið hljótt yfir honum og fjöldi viðmælenda DV undrast hvers vegna sjóðurinn, sem hafi það göfuga markmið að hjálpa börnum, starfi í slíkri kyrrþey. Að minnsta kosti bólar enn ekkert á greiðslum úr honum og litlar sem engar upplýsingar fást um úthlutanir. Nú er hins vegar ljóst að búið er að selja listaverk sem voru í eigu Sonju og rann kaupverðið inn í sjóðinn. n Um 20 af listaverkum Sonju Zorrilla seld hjá upp- boðshaldara í New York n Vinur Sonju segir merki- legt að verkin hafi verið seld n Söluverð verkanna átti að renna til þurfandi barna samkvæmt kynningu n Nánast ekkert vitað um minningarsjóð Sonju Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Þá hljóta menn að spyrja sig nú: Hvar eru peningarnir og hvern- ig á að nota þá? Stórfrétt Aðalsteinn segir að það sé stórfrétt að búið sé að selja listaverk Sonju. Hann spyr sig að því hvar peningarnir séu og í hvað eigi að nota þá. Tobey og Marisol Escobar Meðal þeirra verka sem seld hafa verið frá minningarsjóðnum eru tvö verk eftir bandaríska abstraktlistamanninn Mark Tobey. Hér sést eitt af verkum hans. Styttan, sem var seld út úr búinu árið 2007, er eftir listakonuna Marisol Escobar. Rúmar 20 milljónir króna fengust fyrir verkið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.