Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Blaðsíða 22
22 | Úttekt 24. janúar 2011 Mánudagur Þ eir eru ófáir valdamiklu mennirnir sem hafa safnast til feðra sinna með vofeiflegum hætti og má með sanni segja að völdin sem þeir kannski þráðu og öðluðust hafi kostað þá lífið. Forsetar og stjórnmálamenn víða um lönd hafa gjarna verið eftirsókn- arverð skotmörk manna sem ekki hafa gengið heilir til skógar andlega, öfgahópa og þeirra sem hafa verið á öndverðum meiði við gildi og skoð- anir þeirra. Nýjasta dæmið um slíkt átti sér stað 8. janúar í Arizona í Banda- ríkjunum þegar bandarísku þing- konunni Gabrielle Giffords var sýnt banatilræði. Áhöld eru um hvað það var sem rak tilræðismanninn, Jared Lee Loughner, til verksins, sem kostaði sex manns lífið, en at- vikið beindi sjónum fólks að stjórn- málaumræðunni í Bandaríkjunum sem margir telja orðna helst til öfga- kennda. Gab rielle Giffords lifði til- ræðið af. John F. myrtur Einn frægasti valdamaður sem féll fyrir hendi launmorðingja var án efa John F. Kennedy, forseti Bandaríkj- anna. Kennedy var ráðinn af dögum í Dallas í Texas 22. nóvember 1963 en þar var hann í þeim erindagjörð- um að lægja öldurnar í samskipt- um tveggja andstæðra fylkinga inn- an demókrataflokksins. Kennedy var skotinn í bakið og höfuðið og var úr- skurðaður látinn klukkan eitt eftir há- degi, réttum hálftíma eftir tilræðið. Mikil dulúð hefur ávallt umleikið dauða Kennedys og lítill skortur er á samsæriskenningum sem hafa ver- ið reifaðar í bókum, kvikmyndum og fleiru. Lee Harvey Oswald sem var hand- tekinn fyrir morðið og síðar ákærður lýsti sig saklausan af því og fullyrti að hann væri blóraböggull. Ekki gafst tækifæri til að rétta yfir Oswald því tveimur dögum síðar var hann liðið lík. Hann var ráðinn af dögum af Jack Ruby sem var ákærður fyrir morð- ið á honum og sakfelldur. Jack Ruby áfrýjaði dómnum og dó úr krabba- meini á meðan hann beið nýrra rétt- arhalda. John F. Kennedy var yngstur þeirra Bandaríkjaforseta sem ráðnir hafa verið af dögum. Myrtur af bókstafstrúarmönnum Anwar Sadat, þriðji forseti Egypta- lands, var myrtur af bókstafstrúar- mönnum 6. október 1981. Anwar Sadat hafði tilheyrt hópi sem steypti af stóli ætt Muhammads Alis í Eg- ypsku byltingunni árið 1952 og var náinn Gamal Abder Nasser forseta og tók síðar við embætti af honum. Þannig var mál með vexti að síð- ustu ár Sadats í forsetastóli ein- kenndust af ólgu og háværum ásök- unum um spillingu innan vébanda fjölskyldu Sadats. Einnig hafði hann bakað sér óvild íslamista vegna samkomu- lags sem hann hafði gert við Ísraels- menn varðandi Sínaískagann. Egypsk yfirvöld höfðu, í febrú- ar 1981, fengið veður af yfirvof- andi aðgerðum samtaka sem köll- uðu sig El-Jihad og í september sama ár fyrirskipaði Sadat handtöku 1.500 manna og kenndi í þeim hópi margra grasa. En yfirvöld höfðu ekki erindi sem erfiði því að sá sem ráð- inn hafði verið til að ráða Sadat af dögum slapp fyrir horn. Um mánuði síðar var haldin sig- urhátíð í Kaíró til að fagna afrekum Egypta í Yom Kippur-stríðinu 1973. Ekkert virtist skorta á öryggi Anwars Sadats; herþotur flugu yfir mann- fjöldanum og hertrukk hafði verið lagt beint fyrir framan forsetastúk- una, en allt kom fyrir ekki. Sadat stóð í stúkunni til að með- taka hylli fjöldans þegar tilræðis- maðurinn, Khalid Islambouli, liðs- foringi í egypska hernum, en einnig meðlimur íslamskrar sellu innan vébanda hersins, steig fram og kast- aði þremur handsprengjum að Sad- at. Aðeins ein sprengjan sprakk, en félagar Islamboulis höfðu hreiðrað um sig í hertrukknum og létu kúlun- um rigna yfir Sadat. Árásin stóð yfir í tvær mínútur og þegar upp var staðið lágu ell- efu manns í valnum, þeirra á með- al sendiherra Kúbu. Á meðal þeirra sem særðust var varnarmálaráð- herra Írlands, James Tully. Árásin kom öryggissveitum í opna skjöldu en innan skamms náðu þær tökum á ástandinu. Tveir tilræðismannanna féllu og hinir voru handteknir. Islambouli var síð- ar ákærður og sakfelldur. Hann var tekinn af lífi í apríl 1982. Benazir Bhutto Það var skammgóður vermir fyrir Benazir Bhutto, forsætisráðherra Pakistan, þegar hún snéri heim frá Dúbaí, eftir hartnær tíu ára sjálf- skipaða útlegð. Benazir Bhutto hafði í tvígang verið skipuð forsæt- isráðherra í Pakistan, 1988 í tuttugu mánuði og frá 1993–1996, en í bæði skiptin gert að víkja vegna meintrar spillingar. Þann 18. október 2007 snéri Ben- azir heim eftir að hafa náð sam- komulagi við Pervez Musharraf, for- seta Pakistan, um að henni yrði veitt friðhelgi og allar ákærur á hendur henni yrðu felldar niður. Hún var helsti frambjóðandi stjórnarand- stöðunnar í þingkosningum 2008 og var ráðin af dögum 27. desember, tveimur vikum fyrir kosningarn- ar, þegar hún yfirgaf kosningafund PPP-flokksins í Rawalpindi, en þar hafði hún blásið stuðningsmönnum flokksins baráttu í brjóst með eld- heitri ræðu. Til að geta veifað stuðnings- mönnum sínum ákvað Benazir að standa í topplúgu brynvarinnar bif- reiðar sinnar. Fyrr en varði var skot- hríð beint að henni og í sömu andrá voru sprengjur sprengdar með þeim afleiðingum að um tuttugu manns féllu. Benazir særðist alvarlega og var drifin með hasti á sjúkrahús, en var úrskurðuð látin klukkan rúm- lega sex um kvöldið. Einhver áhöld voru um dánar- orsök Benazir Bhutto en innan- ríkisráðherra Pakistan lýsti því yfir að hún hefði látist vegna höfuð- áverka sem hún hlaut þegar högg- bylgja vegna sprenginganna varð þess valdandi að höfuð hennar skall harka lega í topplúgubríkina. Áður hafði talsmaður sjúkra- hússins lýst því yfir að Benazir hefði fengið sprengjubrot í höfuðið og þau hefðu dregið hana til dauða. Háttsettur yfirmaður al-Kaída, Mustafa Abu al-Yazid, lýsti yfir ábyrgð á tilræðinu og sagði að Ben- azir Bhutto hefði verið „dýrmætasta eign Bandaríkjanna“. „Ekki deyja, elskan“ Vafalítið hafa fá launmorð verið jafn afdrifarík og morðið á austurríska erkihertoganum, og krónprinsi keis- aradæmisins Austurríkis-Ungverja- lands, Franz Ferdinand, í júní 1914. Franz Ferdinand var talsmaður aukinnar sjálfstjórnar allra þjóð- arbrota innan keisaradæmisins og þess að unnið yrði að bættum hag þeirra. Einnig mæltist hann til þess að stigið yrði varlega til jarðar gagn- vart Serbíu og varaði við því að feil- spor í samskiptum við Serba gæti reitt rússneska björninn til reiði sem myndi færa ógæfu yfir keisaradæm- ið. Afstaða Franz olli því að oftar en einu sinni lenti hann í átökum við Francis Conrad von Hötzen dorf greifa, sem var yfir starfsmanna- haldi hers keisaradæmisins og ku hafa mælt með stríði gegn Serbum strax árið 1906 og nánast linnulaust þaðan í frá til ársins 1914. Sunnudaginn 28. júní 1914 sóttu Franz og Sophie, kona hans, Sara- jevo í Bosníu og Hersegóvínu heim. Þar sem þau óku um göturnar í grandaleysi var skyndilega kastað að þeim handsprengju. Bílstjóra hjón- anna tókst að forðast sprengjuna sem sprakk drjúgan spöl fyrir aft- an bifreið þeirra. Tilræðismaður- inn, Gavrilo Princip 19 ára meðlim- ur byltingarhreyfingarinnar Svarta höndin sem samanstóð að mestu af Serbum, varð frá að hverfa án þess að hafa tekist ætlunarverk sitt. Síðar um daginn átti heldur betur eftir að hlaupa á snærið hjá Princip því þegar hjónin voru á leið til dval- arstaðar síns eftir að hafa farið í heimsókn á spítala gerði bílstjórinn þau mistök að aka inn í ranga götu. Þar kom Princip auga á bráð sína á ný og beið ekki boðanna. Á meðan bílstjórinn var önnum kafinn við að snúa bifreiðinni náði Princip að skjóta Sophie í kviðinn og Franz í hóstarbláæðina. Lokaorð sín sagði Franz við konu sína: „Ekki deyja, elskan. Lifðu barnanna vegna.“ En Sophie varð samferða manni sínum í dauðann. Í kjölfar morðsins lýsti keisara- dæmið yfir stríði á hendur Serbíu sem leiddi til þess að þjóðir hlið- hollar Serbum, og bandalagsþjóðir Austurríkis-Ungverjalands lýstu yfir stríði á hendur hver annarri og fyrri heimsstyrjöldin varð staðreynd. Maður friðar felldur Þó að Mahatma Gandhi, Mohand- as Karamchand Gandhi, hafi ver- ið stjórnmálamaður er hans gjarna fyrst og fremst minnst sem manns friðar og fyrirgefningar. Hann var einn helsti stjórnmálaleiðtogi og hugmyndasmiður Indlands þegar landið barðist fyrir sjálfstæði. Hann var einlægur andstæðingur ofbeldis og talið er að viðhorf hans og heim- speki þar að lútandi hafi dregið þungt hlass í frelsisbaráttu Indverja og orðið innblástur fjölda friðar- og mannréttindahreyfinga víðs vegar um heiminn. Á meðal þeirra aðferða sem hann mælti með í baráttunni gegn harðstjórn var friðsamleg borgara- leg óhlýðni sem hann sjálfur beitti í Suður-Afríku eftir að honum var fleygt úr lest eftir að hafa neitað að færa sig af fyrsta farrými á það þriðja, þrátt fyrir að vera með gildan fyrsta farrýmis miða. Eftir að hann n Valdamiklir einstaklingar verða gjarna skotmark öfga- eða öfundar- manna n Ófáir Bandaríkjaforsetar hafa orðið skotspónn launmorðingja n Völd og frægð eru oft ávísun á skyndilegan og óeðlilegan dauðdaga VÖLD OG VOVEIFLEGUR DAUÐDAGI „Lokaorð sín sagði Franz við konu sína: „Ekki deyja elskan. Lifðu barnanna vegna.“ En Sophie var samferða manni sínum í dauðann. Abraham Lincoln 14. apríl 1865 Banamaður John Wilkes Booth James A. Garfield 2. júlí 1881 Banamaður Charles J. Guiteau William McKinley 6. september 1901 Banamaður Leon Czolgosz John F. Kennedy 22. nóvember 1963 Banamaður Lee Harvey Oswald Myrtir Bandaríkjaforsetar Misheppnuð tilræði Andrew Jackson 30. janúar 1835 Tilræðismaður: Richard Lawrence Theodore Roosevelt 13. október 1912 Tilræðismaður: John F. Schrank Franklin D. Roosevelt 15. febrúar 1933 Tilræðismaður: Giuseppe Zangara Harry S. Truman 1. nóvember 1950 Tilræðismenn: Oscar Collazo og Griselio Torresola Richard Nixon 22. febrúar 1974 Tilræðismaður: Samuel Byck Gerald Ford 5. september 1975 Tilræðismaður: Lynette Fromme 22. september 1975 Tilræðismaður: Sara Jane Moore Leiðtogi stjórnarandstöðunnar Benazir Bhutto var ráðinn bani skömmu eftir heimkomuna til Pakistan. Gabrielle Giffords Misheppnað bana- tilræði við hana vakti upp harða umræðu í Bandaríkjunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.