Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Side 3
Fréttir | 3Mánudagur 24. janúar 2011
„Ef erlend ríki eru að senda aðila
landa á milli til þess að hafa áhrif
á framvindu mála og blanda sér í
mótmælaaðgerðir þá er það auð-
vitað mjög alvarlegur hlutur,“ seg-
ir Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra aðspurður um breska
njósnarann Mark Kennedy sem
kom til Íslands árið 2006 og starf-
aði undir fölsku flaggi með um-
hverfisverndarhreyfingunni Sa-
ving Iceland. Saving Iceland hefur
sent frá sér yfirlýsingu vegna máls-
ins þar sem spurt er hvort ís-
lensk lögregluyfirvöld hafi vitað
af njósnunum. Birgitta Jónsdóttir,
þingkona Hreyfingarinnar, krafð-
ist rannsóknar á njósnum Marks
Kennedys hér á landi, í Silfri Egils
á sunnudaginn.
Óljóst er hvort íslensk lögreglu-
yfirvöld hafi verið upplýst um veru
hans hér og hvort þau hafi fengið
upplýsingar um íslenska umhverf-
isverndarsinna í gegnum hann.
Njósnarar bresku lögreglunnar
sem fylgjast með náttúruverndars-
innum um alla Evrópu hafa fengið
grænt ljós frá lögregluyfirvöldum
til að stunda kynlíf með þeim sem
þeir njósna um. Þetta kom fram í
breska dagblaðinu Guardian um
helgina.
Grafalvarlegt mál
Mál Kennedys teygir anga sína
um alla Evrópu en Hunko Andrej,
þingmaður Die Linke í Þýskalandi,
hefur sent bréf til Ögmundar Jón-
assonar vegna málsins þar sem
hann leggur til að gögn í rannsókn
málsins verði samnýtt að einhverju
leyti. Lítur hann málið alvarlegum
augum og segir það ógna frjálsu fé-
lagastarfi í álfunni allri.
„Ég hef óskað eftir því að fá
upplýsingar um það hvort það
hvort fyrir liggi vitneskja um ferðir
og aðkomu þessa manns að mót-
mælum hér á landi, og á næstu
dögum mun ég fara yfir þetta með
lögreglunni,“ segir Ögmundur Jón-
asson innanríkisráðherra þeg-
ar hann er spurður hvort íslensk
lögregluyfirvöld hafi haft vitn-
eskju um veru bresks leyniþjón-
ustumanns á meðal mótmælenda
við Kárahnjúka. Hann segir þó að
ekkert hafi komið fram í málinu
sem bendi til þess að Kennedy hafi
verið hér á landi með vitneskju ís-
lenskra lögregluyfirvalda.
Agent Provocateur
Ögmundur segist líta svo á að
Kennedy hafi ekki einungis starfað
sem njósnari: „Samkvæmt þeim
frásögnum sem vísað er í erlend-
is frá, þá erum við ekki bara að
tala um njósnara heldur það sem
á ensku er kallað próvokatorar –
menn sem að blanda sér inn í að-
gerðir til að hafa áhrif á gang mála
– þannig að þetta er náttúrulega
mjög alvarlegt mál.“
Af lýsingum í Guardian að
dæma mun Kennedy hafa verið
virkur í aðgerðum mótmælenda
og á stundum hvatt aðra til harðari
aðgerða. Lögreglumenn sem koma
sér fyrir í hreyfingum mótmælenda
og hvetja mótmælendur til ólög-
legra aðgerða eru þekktir undir
heitinu „Agent Provocateur.“ Lengi
hefur því verið haldið fram að slík-
ir lögreglumenn starfi innan mót-
mælendahreyfinga í Evrópu en erf-
itt hefur reynst að sannreyna slíkt.
Hafi Kennedy beitt sér með þessum
hætti á Íslandi eins og margt bendir
til er það grafalvarlegt mál að mati
innanríkisráðherra.
Kynlíf nauðsynlegt
Í Guardian hefur undanfarið verið
fjallað um fleiri njósnara sem hafa
fylgst með umhverfisverndarsinn-
um um alla Evrópu rétt eins og
Mark Kennedy, en ljóst er að hann
var ekki einn um að sofa hjá kon-
um sem hann njósnaði um. Fyrr-
verandi njósnari bresku lögregl-
unnar sagði í samtali við Guardian
á laugardag að það væri í raun von-
laust að njósna um aðgerðasinna
án þess að stunda eitthvað kynlíf.
Vildi hann meina að slíkt myndi
vekja upp grunsemdir. Þá sagði
hann lögregluyfirvöld fullkomlega
meðvituð um þetta þrátt fyrir að
opinberlega væri sagan önnur.
Maðurinn sagði kynlíf bestu
leiðina til þess að koma í veg fyr-
ir að upp komist um tvöfeldnina.
Hann viðurkenndi að hafa – rétt
eins og Mark Kennedy – sofið hjá
að minnsta kosti tveimur konum
til þess að komast yfir upplýsing-
ar. Hann sagði mikinn skilning
ríkja hjá leynilögreglumönnum á
að kynlífið væri sjálfsagður hluti af
starfinu. Þá sagði hann í raun eng-
ar reglur gilda um starfið, og því
hafi menn gert það sem þeir telja
nauðsynlegt til þess að viðhalda
dulargervinu, og til að fylgjast með
mótmælendum.
„Hafi Kennedy beitt
sér með þessum
hætti á Íslandi, eins og
margt bendir til, er það
grafalvarlegt mál að mati
innanríkisráðherra.
LÍTUR NJÓSNIR BRETA
ALVARLEGUM AUGUM
n Innanríkisráðherra mun eiga fund með íslenskum lögregluyfirvöldum n Kynlíf
nauðsynlegt til að komast yfir upplýsingar n Þýskur þingmaður skrifar Ögmundi bréf
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Annar maður Leynilögreglumaðurinn Mark Kennedy safnaði hári, fékk sér húðflúr og
breytti sjálfum sér í aðgerðasinnann Mark Stone.
Alvarlegt mál Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra
segir það háalvarlegt mál hafi
breskur leynilögreglumaður
í dulargervi haft áhrif á
mótmæli hér á landi.Sjóður Sonju fékk tugi
milljóna fyrir listaverk
Gekk ljómandi vel
Í DV árið 2007 voru stutt viðtöl við
Guðmund Birgisson um minningarsjóð
Sonju en þá vildi hann lítið tjá sig
um málefni sjóðsins. „Það gengur
alveg ljómandi vel með sjóðinn. Það er
alltaf verið að úthluta og sjóðurinn er
í ákveðnum farvegi,“ var það eina sem
Guðmundur lét hafa eftir sér þá.
John Ferguson, bandaríski lögmað-
urinn og hinn sjóðsstjóri minningar-
sjóðsins, hafði heldur ekki mikið að
segja um sjóðinn. „Þetta er einkasjóður
og ég get ekki gefið neinar upplýsingar.
Við erum að gera allt sem við eigum að
gera og höfum gefið allt sem við gátum
í ár. Við höfum veitt myndarlega styrki
til þriggja ára og veittum til allra þeirra
sem sóttu um og höfðu rétt á því,“ sagði
Ferguson.
DV hefur gert ítrekaðar tilraunir til
að ná tali af Guðmundi Birgissyni út af
minningarsjóði Sonju og öðrum málum
en það hefur ekki gengið.
um finnist áhugavert að heyra að
verkin hafi verið seld í þessum yf-
irlýsta tilgangi. „Það er í sjálfu sér
stórfrétt að komið sé í ljós að þessi
verk hafi verið seld og í þessum yf-
irlýsta tilgangi. Þá hljóta menn að
spyrja sig nú: Hvar eru peningarnir
og hvernig á að nota þá?,“ segir Að-
alsteinn.
Nær ómögulegt er að ná í Guð-
mund Birgisson og því tókst ekki að
heyra í honum varðandi stöðuna
á sjóðnum, söluverð listaverkanna
og hvernig því hefði verið varið.
Keyrður í þrot Guðmundur á
Núpum var keyrður í þrot í lok
desember. Hann heldur utan um
minningarsjóð Sonju Zorrilla.