Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Qupperneq 10
10 | Fréttir 24. janúar 2011 Mánudagur
Milestone hélt áfram að lána pen-
inga út úr tryggingafélaginu Sjóvá
eftir að Fjármálaeftirlitið byrjaði að
skoða fjárhagsstöðu félagsins á fyrri
hluta árs 2008. Stærsta gatið í eigna-
safni Sjóvár, sem Milestone skildi
eftir án þess að félagið uppfyllti skil-
yrði um lágmarksgjaldþol trygginga-
félaga, var tilkomið vegna lánveit-
inga út úr tryggingafélaginu upp á
um 26 milljarða króna í febrúar 2008.
Auk þess lánaði félagið svo nærri 900
milljónir króna til eignarhaldsfélags-
ins Racon Holding II AB í lok júní
2008. Þessar lánveitingar voru til að
endurfjármagna lán vegna annarra
fjárfestinga Milestone og tengdra fé-
laga, meðal annars á Íslandi, Svíþjóð
og í Makaó í Asíu. Helstu stjórnend-
ur Milestone, eiganda Sjóvár, voru
Guðmundur Ólason og Karl Wern-
ersson.
Þessar lánveitingar urðu með-
al annars til þess að eftir hrunið um
haustið 2008 vantaði nærri 11 millj-
arða króna í eignasafn Sjóvár, svo-
kallaðan bótasjóð, til að félagið gæti
staðið við vátryggingaskuldbinding-
ar sínar gagnvart viðskiptavinum
tryggingafélagsins. Félagið uppfyllti
því ekki lágmarksskilyrði um gjald-
þol og því þurfti Fjármálaeftirlitið að
grípa inn í rekstur tryggingafélags-
ins. Fjármáleftirlitið gaf stjórnend-
um Milestone og Sjóvár að minnsta
kosti fjórum sinnum frest til að laga
eignastöðu félagsins frá því í október
2008 og þar til í apríl 2009 en allt kom
fyrir ekki: Milestone einfaldlega átti
ekki til þá peninga sem vantaði upp
á og gat ekki heldur fengið lánaða
peninga til að bæta stöðu félagsins.
Tap ríkisins af Sjóvá
Afskipti Fjármálaeftirlitsins báru því
ekki tilætlaðan árangur og íslenska
ríkið lagði Sjóvá til 12 milljarða króna
sumarið 2009 til að bjarga því frá
gjaldþroti. Skilanefnd Glitnis hafði
yfirtekið tryggingafélagið nokkrum
mánuðum áður. Glitnir og Íslands-
banki lögðu félaginu sömuleiðis til
fjóra milljarða á þessum tíma. Eftir
þetta inngrip í rekstur Sjóvár átti fé-
lagið Eignasafn Seðlabanka Íslands
73 prósenta hlut í tryggingafélaginu.
Þar með voru eigendur og stjórn-
endur Milestone, aðallega Karl
Wernersson og Guðmundur Óla-
son, búnir að missa yfirráð sín yfir
Sjóvá og skildu eftir það stórt gat í
eignasafni þess að íslenska ríkið –
skattgreiðendur – þurftu að leggja
umrædda milljarða inn í félagið til
að vernda hagsmuni viðskiptavina
félagsins. Þetta er meðal þess sem
kemur fram í svari frá fjármálaráðu-
neytinu við fyrirspurn DV um ástæð-
una fyrir því að peningar voru lagðir
inn í Sjóvá á þessum tíma. Í svarinu
segir meðal annars: „Með hliðsjón
af þessu er rétt að benda á að ef rík-
ið hefði ekki gripið inn í fjárhags-
stöðu Sjóvár hefðu gríðarlega háar
upphæðir legið í ógreiddum bót-
um til bótaþega Sjóvár og kaupend-
ur trygginga hjá Sjóvá hefðu verið
ótryggðir.“
Sala Seðlabanka Íslands á rúm-
lega 52 prósenta hlut í Sjóvá í síðustu
viku til Stefnis, verðbréfasjóðs Arion
banka, fyrir 4,9 milljarða króna vakti
mikla athygli. Meðal þess sem vakti
athygli við söluna var sú staðreynd
að kaupverðið þýddi að íslenska rík-
ið myndi tapa umtalsverðum fjár-
munum á inngripum sínum í rekst-
ur Sjóvár. Ef rúmlega 52 prósenta
hlutur í Sjóvá er 4,9 milljarða virði
þýðir það að allt hlutafé félagsins er
ekki tíu milljarða króna virði en rík-
ið lagði tryggingafélaginu til 12 millj-
arða og eignaðist eftir það aðeins
tæpa 3/4 hluta í því. Ríkið ætti því,
samkvæmt þessum verðhugmynd-
um, að tapa nokkrum milljörðum
króna á björgun Sjóvár.
Bjarni taldi ríkið ekki bera skaða
Þessi nýjustu tíðindi af Sjóvá þýða
því að íslenska ríkið mun ekki fá til
baka alla þá fjármuni sem lagðir
voru fram til að bjarga félaginu frá
því að verða gjaldþrota. Tap Sjóvár
vegna áhættusamra fjárfestinga hér-
lendis og erlendis mun því að öllum
líkindum lenda á íslenskum skatt-
borgurum.
Þegar DV byrjaði að segja frá
Vafningsmálinu, lánveitingum Sjó-
vár og Glitnis til félagsins, og að-
komu Bjarna Benediktssonar, núver-
andi formanns Sjálfstæðisflokksins,
að málinu, í desember 2009, fullyrti
DV að íslenskur almenningur þyrfti
að bera milljarðatap af fjárveitingu
ríkisins til Sjóvár. Sagði blaðið að
hver Íslendingur þyrfti að greiða
um 10 þúsund krónur út af björgun
Sjóvár, þegar litið var til þess að Sjó-
vá hefði tapað 3 milljörðum króna á
fjárfestingunni í Makaó sem Bjarni
tengdist í gegnum eignarhaldsfélag-
ið Vafning.
Á þeim tíma var ekki vitað hversu
mikið tap íslenskra skattgreiðenda
yrði af Sjóvá þar sem ekki lá ljóst fyrir
hversu mikið fengist fyrir eignarhlut-
inn í Sjóvá og fetti Bjarni Benedikts-
son fingur út í það að blaðið hefði
fullyrt að almenningur myndi tapa á
björgun Sjóvár. Hann sagði: „Hvenær
lagði ríkið fram peninga sem það fær
ekki til baka? Væntanlega mun ríkið
ekki bera neinn skaða af þessu. Þegar
þú segir að ríkið tapi þeim peningum
þá verður það að vera komið í ljós að
ríkið fái þá peningana ekki til baka.“
Nú liggur hins vegar fyrir að tap
ríkisins og þar með skattgreiðenda
af björgun Sjóvár nemur að minnsta
kosti nokkrum milljörðum króna.
Áhættufjárfestingar Milestone og Sjó-
vár og tengdra félaga lenda því á ís-
lensku þjóðinni vegna þess að um
Raunasaga Sjóvár
2007
31. desember Milestone er ógjaldfært félag sem getur ekki tryggt sér
fjármögnun eða staðið við skuldbindingar (Skýrsla Ernst og Young).
Vátryggingaskuld Sjóvár nemur 23 milljörðum króna.
2008
28. janúar Morgan Stanley gjaldfellir 14. milljarða króna lán Þáttar
International sem Milestone er í ábyrgðum fyrir
7. febrúar Milestone selur væntanlegum hluthöfum í Vafningi hluti í félaginu
8. febrúar Eignarhaldsfélagið Vafningur kaupir fasteignafélag
í Makaó af dótturfélagi Sjóvár fyrir 5,2 milljarða
8. febrúar Eignarhaldsfélagið Vafningur kaupir breskan
fjárfestingasjóð, KCAJ, af dótturfélagi Sjóvár fyrir 5,4 milljarða
8. febrúar Bjarni Benediktsson fær umboð frá föður sínum og
frænda til að veðsetja hlutabréf BNT, Hafsilfurs og Hrómundar í Vafningi hjá
Glitni vegna lána frá bankanum
29. febrúar Vafningur gerir tvo lánasamninga við Sjóvá í erlendum myntum
upp á samtals 21 milljarð króna
29. febrúar Vafningur gerir tvo lánasamninga við Glitni banka. Líklegt er að
Bjarni hafi veðsett Vafningsbréfin út af þessum lánum
29. febrúar Racon Holding AB fær lán frá Sjóvá upp á rúmlega 41 milljón
evra, eða rúmlega 4 milljarða króna
29. febrúar Racon Holding AB fær lán frá Sjóvá upp á tæplega 850 milljónir
króna
29. febrúar Þáttur International lánar Sjóvá einn milljarð króna
Fyrri hluti árs FME hefur athugun á fjárhag Sjóvár
30. júní Racon Holding AB fær 629 milljóna króna lán frá Sjóvá
30. júní Racon Holding AB fær 250 milljóna króna lán frá Sjóvá
September – október 7 prósenta hlutur Þáttar International í
Glitni verður að engu með falli bankans
27. október Fjármálaeftirlitið sendir Sjóvá bréf um að félagið
þurfi að uppfylla skilyrði um gjaldþol tryggingafélaga fyrir
árslok
31. desember Tap Milestone nemur rúmlega 30 milljörðum króna
2009
1. janúar – 3. mars Frestur Sjóvár til uppfylla skilyrði um
gjaldþol tvíframlegdur af FME
3. mars Sjóvá fær frekari frest frá Fjármálaeftirlitinu til 1. apríl
til að uppfylla skilyrði um gjaldþol
16. mars Skilanefnd Glitnis yfirtekur Moderna og dótturfélög þess á Íslandi,
meðal annars Sjóvá
14. maí Morgunblaðið greinir frá því að Sjóvá uppfylli ekki lágmarksskilyrði
um gjaldþol og að minnst 10 milljarða vanti í eignasafn félagsins.
Lánin sem tekin voru út úr félaginu, meðal annars til Vafnings,
hafa skilið félagið eftir illa statt.
16. maí Morgunblaðið greinir frá því að Fjármálaeftirlitið hafi
sent Sjóvár-málið til ákæruvalds
8. júlí Fjármálaráðuneytið greinir frá því að ríkið þurfi að
leggja Sjóvá til 12 milljarða króna til að tryggingafélagið uppfylli skilyrði um
gjaldþol. Sjóvá er bjargað frá gjaldþroti
Júní – nóvember Sérstakur saksóknari spyr eigendur og
stjórnendur Sjóvár ítarlega um bótasjóð Sjóvár, meðal annars
viðskipti Vafnings
15. desember Bjarni Benediktsson segir í samtali við DV að
líklega muni íslenska ríkið fá til baka þá fjármuni sem lagðir voru inn í Sjóvá til
að bjarga félaginu frá þroti
2010
Janúar Sjóvá sett í söluferli hjá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka
Janúar Skilanefnd Glitnis yfirtekur Vafning, nú Földung, vegna skulda
félagsins við bankann
25. janúar Þáttur International úrskurðað gjaldþrota
22. nóvember Heiðar Már Guðjónsson og meðfjárfestar hans hætta við að
kaupa Sjóvá
2011
19. janúar Eignasafn Seðlabanka Íslands selur verðbréfa-
sjóðnum Stefni, sem er í eigu Arion banka, rúmlega 52
prósenta hlut í Sjóvá fyrir 4,9 milljarða króna. Ljóst er að
íslenska ríkið þarf að afskrifa hluta þeirra fjármuna sem settir voru inn í Sjóvá
árið 2009 til að bjarga félaginu frá þroti
„Væntanlega mun
ríkið ekki bera
neinn skaða af þessu.
n Milestone hélt áfram að lána út úr Sjóvá eftir að FME byrjaði að skoða félagið 2008 n Um 26 milljarðar
fóru út úr félaginu í febrúar 2008 n Vafningsfléttan var tryggingafélaginu dýrkeypt n Bjarni sagði ríkið
væntanlega ekki bera skaða af björgun Sjóvár n Sala ríkisins á Sjóvá leiðir af sér milljarða króna tap
Lánað út úr Sjóvá
eftir rannsókn FME
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
var ræða fjárfestingar með peninga
tryggingafélags sem hið opinbera sá
sér nauðugan einn kost að bjarga.
Þetta var gert til að vernda hagsmuni
viðskiptavina tryggingafélagsins og
vegna þess mat hins opinbera var að
kostnaður almennings af gjaldþroti
Sjóvár hefði orðið mun meiri.
Milljarðatap út af Sjóvá Íslenskur
almenningur tapar milljörðum króna út af
björgun tryggingafélagsins. Félagið varð
nánast gjaldþrota út af áhættufjárfest-
ingum Milestone og tengdra félaga. Karl
Wernersson var aðaleigandi Milestone og
Sjóvár. Guðmundur Ólason stýrði Milestone
og Þór Sigfússon stýrði Sjóvá.