Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Page 13
og öfgaþjóðernishyggju hafi vakn-
að fyrir um það bil tíu árum, á sama
tíma og hann lærði að nota internet-
ið. Á netinu las hann nýnasista- og
rasistasíður og var það til þess að
hann fékk róttækar skoðanir á að-
skilnaði hvítra frá öðrum kynstofn-
um. Ég fór að lesa þessar síður og
smám saman opnuðust augu mín
fyrir því sem er að gerast. Þetta gerð-
ist svona hægt og rólega, á nokkrum
árum. Við tölum alltaf um að fólk sé
„racially awakened“, sem þýðir að
hvítt fólk þarf að vakna upp, vera
meðvitað um eigin kynstofn og það
hef ég verið í sirka fimm ár eða svo,“
segir Skúli um hvert markmið sitt og
skoðanabræðra sinna sé. Þrátt fyr-
ir að Skúli segist ekki hata aðra kyn-
þætti þá fékk blaðamaður miður fal-
leg svör sem ekki verða höfð eftir á
prenti, þegar hann innti eftir útskýr-
ingum á niðrandi nöfnum sem not-
uð eru yfir aðra kynþætti. Skúli seg-
ir þetta snúast fyrst og fremst um
hvaða merkingu hver og einn leggi í
tiltekin orð.
Vopnað frelsi
Kirkjudeildin sem Skúli tilheyrir trú-
ir að hinir hvítu séu æðri öðrum.
Hann vill ekki meina að það séu fleiri
hér á landi sem eru meðlimir þess-
arar kirkju en sjálfur hefur hann ver-
ið vígður til prests af æðstu stjórn-
endum kirkjunnar í Bandaríkjunum.
Það þýðir hann honum sé leyfilegt
að tjá sig um málefni kirkjunnar og
trúna en það er hinum venjulega
meðlim ekki leyfilegt. Hann hef-
ur stofnað kirkju hér á landi undir
merkjum Sköpunarhreyfingarinn-
ar, en á heimasíðu kirkjunnar, sem
Skúli hefur sett upp, er fólk hvatt til
þess að eiga skotvopn. Sjálfur seg-
ist hann að „sjálfsögðu“ eiga byssu.
„ Já, hvað heldurðu! Að bera vopn er
merki um frjálsan mann. En ég geng
að sjálfsögðu ekki um með hana
dags daglega, enda er það ólöglegt á
Íslandi.“
Má bara umgangast hvíta
Skúli segist alls ekki vera á móti öðr-
um kynþáttum en samkvæmt trú
sinni sé honum beinlínis bannað að
umgangast fólk af öðrum kynþátt-
um. „Vandamálið er þessir svoköll-
uðu and-rasistar og þeir sem standa
bak við áætlunina um að útrýma
hvíta kynstofninum. Aðrir kynþættir
eru ekkert vandamál, þeir gera það
sem við leyfum þeim að gera í okk-
ar löndum.“ Þegar blaðamaður spyr
Skúla hvort hann telji einhverja vera
markvisst að reyna að „útrýma hvíta
kynstofninum“ hlær hann og segir
svo vera. „Þetta er eins og svo margt
sem er augljóst, það þarf að benda
fólki á það sem er beint fyrir framan
nefið á því.“
gyðingum, svo dæmi séu nefnd. Nokkr-
ir aðrir Facebook-notendur eru virk-
ir í því að taka undir skoðanir hennar
og birta myndbönd um sömu mál. Því
má ætla að Sigríður Bryndís tilheyri fá-
mennum en háværum hópi fólks sem
styður kynþáttahyggju.
Hún hefur tekið þátt í stjórnmála-
starfi með formlegum hætti og skipaði
meðal annars 7. sæti á lista Frjálslynda
flokksins í Suðurkjördæmi fyrir síðustu
Alþingiskosningar. Sigríður Bryndís
sagði við fréttastofu Stöðvar 2 í haust að
þjóðernissinnar útilokuðu ekki fram-
boð.
Aðeins það sem koma skal
„Mantran“ sem Sigríður Bryndís las
inn á myndband sem sett var á Yo-
uTube er ekki íslensk heldur þýðing á
erlendri „möntru“ rasista og þjóðern-
issinna. Myndbandið vakti strax mikil
og hörð viðbrögð almennings á Íslandi.
„Það var verið að leita að manneskju
sem væri til í að lesa upp þetta ljóð á
Íslandi. Þegar vinur minn ympraði á
þessu við mig þá ákvað ég að slá til. En
myndbandið er bara prufa og alls ekki
fullgert. Við ætlum að laga textann og
þýðinguna og setja nýja og endurbætta
„möntru“ í umferð fljótlega. Sigríður
segir að sams konar myndbönd séu í
gangi í mörgum öðrum löndum.
Stolt af upprunanum
Sigríður Bryndís segist koma úr ósköp
venjulegri verkamannafjölskyldu, en
hún minnist þess úr æsku þegar fjöl-
skyldumeðlimir hafi talað um að vera
stoltir af uppruna sínum, og hversu
ómengað landið væri fyrir utanaðkom-
andi áhrifum. „Svo kom fjölmenning-
arstefnan og þaggaði niður í flestum.
Það varð tabú að tala um neikvæð áhrif
innflytjenda á okkar menningu. En ég
er eins og ég var og enn eru mjög marg-
ir Íslendingar þjóðhollir þó þeir tali
ekki um það,“ segir hún og á þar við að
margir Íslendingar séu í raun rasistar.
Verður fyrir aðkasti
Sigríður viðurkennir að skoðanir henn-
ar hafi fallið í grýttan jarðveg „Ég hef
orðið fyrir mjög miklu aðkasti en ég
hef líka fengið jákvæð viðbrögð en bara
ekki opinberlega. Fólk þorir ekki fyr-
ir sitt litla líf að segja hvað því finnst, af
ótta við að missa vinnu eða verða fyrir
einelti fjölmenningarsinna. Ef ég segist
vera stolt af því að vera hvít og stolt af
landi og þjóð, þá er umsvifalaust skellt
framan í mig að ég sé nýnasisti og að
ég sé vond. En ég er þjóðernissinni og
tel mig ekki vera vonda manneskju fyr-
ir það.“
Aðspurð hvort hún tengi skoðanir
sínar við Hitler segir hún: „Ég tengi mig
ekki við Hitler. En hann gerði margt gott
fyrir þjóð sína á erfiðum tímum, hann
útrýmdi til dæmis atvinnuleysi og fá-
tækt í Þýskalandi. Hann vildi fá það
besta fram í hverjum einstaklingi og að
hæfileikar hvers og eins fengju að njóta
sín.“ Skoðanir hennar virðast þó sam-
rýmast stefnu nasistaleiðtogans vel.
Hræðilegir hlutir í Evrópu
Sigríður fer heiftarlegum orðum um
fjölmenningarstefnu Evrópu og not-
ar orð á borð við tortímingu og svik-
ara, þegar hún lýsir skoðun sinni. „Öll
lönd í Evrópu sem hafa verið fyllt af
innflytjendum, eru að horfa upp á
tortímingu og borgaralega erfiðleika
og aðeins blind fífl eða andhvítir svik-
arar myndu vilja hið sama fyrir Ís-
land,“ segir Sigríður sem liggur ekki á
skoðunum sínum um hversu hættu-
lega hún telur útlendinga vera gagn-
vart Íslendingum.
Fáni nasista blakti í fyrsta skipti, síð-
an á fjórða áratug síðustu aldar, í mót-
mælunum á Austurvelli í október, og
vakti upp spurningar hjá mörgum hvort
öfgahópar færu vaxandi í því þjóðfé-
lagsástandi sem við búum við. Sigríð-
ur samsinnir því og telur að þjóðernis-
sinnum muni fara fjölgandi hér á landi
á næstu árum. „Íslendingar eiga stærri
arfleið en flestar þjóðir og hana ber
að verja með kjafti og klóm. Fólk er að
átta sig á því að fjölmenningarsamfélag
gengur ekki upp. Það eru ekki öll dýrin
í skóginum vinir, enda væri það á móti
náttúrulögmálum.“
Fréttir | 13Mánudagur 24. janúar 2011
TENGJAST MORÐUM
OG HATURSGLÆPUM„Meðlimir Combat18
hafa tengst fjölda
morða og annarra haturs-
glæpa víðs vegar um heim.
Nýttu tækifærið Nasistafáninn
blakti á Austurvelli í haust þegar fjöldi
fólks kom saman til að mótmæla.
Tveggja barna móðir og öfgaþjóðernissinni
Boðar rasisma með trúboði
n Tveggja barna móðir í þungamiðju íslenskra rasistasamtaka
n Er hluti af alþjóðlegum samtökum rasista sem tengst hafa hatursglæpum
n Segir fjölmenningarstefnuna hafa þaggað niður í þjóðernissinnum
Védís Ótugt Sigríður Bryndís flytur kynþáttaáróður sinn undir nafninu Védís Ótugt.
Skúli Jakobsson Skúli segir markvisst verið að útrýma „hvíta kynstofninum“.
n Íslenskur karlmaður fer ekki í launkofa með að hann sé rasisti n Hann
hefur tengsl við alþjóðleg trúarsamtök sem trúa á hvíta kynstofninn n Hann
hvetur fólk opinberlega til að bera vopn og segir orðið rasisti vera misskilið