Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Síða 17
Erlent | 17Mánudagur 24. janúar 2011
Bólivíumenn biðla til Sameinuðu þjóðanna um að leyfa fólki að tyggja kóka-lauf:
Hluti af sjálfsmynd Bólivíu
Stjórnvöld í Norður- og Suður-
Kóreu hafa samþykkt að hefja við-
ræður innan skamms til að reyna
að draga úr hernaðarlegri spennu
sem ríkt hefur á Kóreuskaganum
að undanförnu. Nú þegar hefur
verið samþykkt að varnarmálaráð-
herrar landanna beri saman bækur
sínar, en slíkur fundur milli varn-
armálaráðherra ríkjanna hefur
ekki átt sér stað síðan árið 2007. Í
raun hefur verið lítið um bein sam-
skipti milli nágrannaríkjanna síð-
an Norður-Kóreumenn gengu á
dyr í sex ríkja viðræðum um kjarn-
orkuáætlun Norður-Kóreu, en það
gerðist árið 2009. Í þeim viðræðum
tóku þátt, ásamt Kóreuríkjunum,
Bandaríkin, Rússland, Japan og
Kína. Vonast er til þess að viðræður
Kóreuríkjanna geti orðið undanfari
þess að sex ríkja viðræðurnar verði
teknar upp aftur, en síðan upp úr
þeim slitnaði hafa Norður-Kóreu-
menn sprengt kjarnorkusprengju í
tilraunaskyni í mikilli andstöðu al-
þjóðasamfélagsins alls.
Þrýstingur frá Bandaríkjunum
og Kína
Talið er að ákvörðun stjórnvalda Kór-
euríkjanna sé bein afleiðing leið-
togafundar Baracks Obama, forseta
Bandaríkjanna, og Hu Jintao, forseta
Kína, sem fram fór í Washington í síð-
ustu viku. Á fundinum lét Obama vita
af þeirri stefnu Bandaríkjanna, að þau
neyddust til að senda herafla á Kór-
euskaga, ef Kína skærist ekki í leikinn
og hvetti Norður-Kóreumenn til við-
ræðna. Stjórnmálaskýrendur í Wash-
ington segja að Obama hafi tekist að
sannfæra Hu Jintao um mikilvægi
þess að Kína tæki harðari afstöðu til
málefna Norður-Kóreu. Kínverjar eru
jafnan taldir til einu bandamanna
Norður-Kóreu, auk þess sem Norður-
Kórea nýtur talsverðrar efnahagsað-
stoðar frá kínverskum stjórnvöldum.
Sendi bréf til Seoul
Varnarmálaráðherra Norður-Kóreu,
Kim Yong-Chun, sendi bréf til Seoul
fyrir helgi sem var stílað á varnarmála-
ráðherra Suður-Kóreu, Kim Kwan-Jin.
Norðurkóreska ríkisfréttasjónvarp-
ið greindi frá þessu fyrir helgi. Ná-
grannaríkin eru komin að „krossgöt-
um stríðs og friðar,“ segir í bréfinu.
„Við erum nú í kjörstöðu til að ræða
hernaðarmál þannig að varanlegar
lausnir á ágreiningsefnum megi finn-
ast,“ segir ennfremur og að Norður-
Kóreumenn vildu koma á framfæri
skoðun sinni á Cheonan-atvikinu og
árásinni á Yeonpyeong-eyju. Talið er
að Norður-Kóreumenn muni þar með
biðjast opinberlega afsökunar á atvik-
unum tveimur, en Suður-Kóreumenn
segja að afsökunarbeiðni sé grunnfor-
senda friðarviðræðnanna.
Svara kalli
stórveldanna
n Yfirvöld í Norður- og Suður-Kóreu hafa staðfest að varnarmálaráðherrar
ríkjanna muni bera saman bækur sínar n Slíkur fundur hefur ekki átt sér stað
síðan 2007 n Bein afleiðing leiðtogafundar Baracks Obama og Hu Jintao
Obama og Hu á leiðtogafundinum
í síðustu viku Þeir ræddu meðal annars
hvernig tryggja mætti frið á Kóreuskaga.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„Við erum nú í kjör-
stöðu til að ræða
hernaðarmál þannig
að varanlegar lausnir á
ágreiningsefnum megi
finnast.
Spánverjar hafa lýst því yfir að þeir ætli
sér að styðja Bólivíumenn í baráttu
þeirra til að aflétta alþjóðlegu banni
við því að tyggja kóka-lauf. Samkvæmt
tilskipun Sameinuðu þjóðanna um
eiturlyf frá árinu 1961 er löndum gert
að útrýma þessum sið – sem löngum
hefur tíðkast í Suður-Ameríku. Forseti
Bólivíu, Evo Morales, er einn helsti
stuðningsmaður kóka-laufsins, en
auk þess að vera forseti er hann einnig
formaður félags kóka-laufsbænda þar
í landi. Í Bólivíu er laufið notað í hinar
ýmsu vörur meðal annars tannkrem,
gosdrykki, líkjöra, hveiti og te.
Utanríkisráðherra Bólivíu, David
Choquehuanca, er um þessar mund-
ir á ferð um Evrópu til afla stuðning
kóka-laufinu til handa en Bólivíu-
menn hafa farið þess á leit við Samein-
uðu þjóðirnar að kóka-lauf verði gert
löglegt, og þar með tekið úr tilskipun-
inni frá 1961. Choquehuanca hefur
þegar orðið talsvert ágengt í för sinni
um Evrópu. Hann átti fund með utan-
ríkisráðherra Spánar, Trinidad Jimen-
ez, sem lofaði því að Spánverjar beittu
sér fyrir því að málamiðlun næðist í
viðleitni Bólivíumanna. Í næstu viku
mun Choquehuanca halda för sinni
áfram og mun reyna að sannfæra
stjórnvöld í Belgíu, Frakklandi, Sví-
þjóð og Bretlandi um að ganga til liðs
við Spánverja.
Bólivía er þriðji stærsti framleið-
andi kóka-laufa í heiminum á eft-
ir Kólumbíu og Perú. Morales forseti
segir að það sé hluti af sjálfsmynd
og menningu þjóðarinnar að tyggja
kóka-lauf, enda hafi hið „helga“ lauf
verið tuggið þar um slóðir í rúmlega
3.000 ár. bjorn@dv.is
Suu Kyi á netið
Friðarverðlaunahafi Nóbels árið
1991 Aung San Suu Kyi hefur ákveð-
ið að hefja baráttu sína fyrir lýðræði
í Mjanmar á netinu. Í nóvember
var Suu Kyi veitt frelsi eftir að hafa
verið í stofufangelsi í sjö ár, en alls
hefur hún eytt 15 af síðustu 20 árum
í stofufangelsi. Á meðan hún var í
stofufangelsi mátti hún lítið sem
ekkert hafa samskipti við umheim-
inn en nú ætlar hún að nýta sér
nýtilkomið frelsi til að breiða út bar-
áttuna fyrir lýðræði, meðal annars
á veraldarvefnum. Áður en herfor-
ingjastjórnin í Mjanmar bannaði
stjórnmálaflokk Suu Kyi, hafði hann
sigrað í kosningum árið 1990 með
yfirburðum og hlaut þá 81 prósent
þingsæta.
Þing kemur sam-
an í Afganistan
Hamid Karzai, forseti Afganistan,
hefur nú brugðist við alþjóðlegum
þrýstingi og kallað til fyrsta þing-
fundar ársins í Afganistan. Karzai
ætlaði sér að fresta þingfundinum
um einn mánuð, en hann hefur
skipað sérstaka rannsóknarnefnd til
að fá úr því skorið hvot brögð hafi
verið í tafli þegar kosið var til þings
í Afganistan í september síðast-
liðnum. Eftir margra klukkustunda
viðræður í forsetahöllinni í Kabúl
um helgina, þar sem Karzai hitti
fyrir leiðtoga allra þingflokka, ákvað
hann að draga til baka ákvörðun
sína um að fresta þingfundum enn
og aftur. Þingið mun að óbreyttu
koma saman á miðvikudag.
Mótmælendur
falla í Albaníu
Þrír mótmælendur féllu í átökum við
lögreglu í kjölfar mikilla mótmæla í
Tirana, höfuðborg Albaníu, í síðustu
viku. Mikil ólga hefur ríkt í Albaníu
undanfarna mánuði, en þar deila
stjórnarandstæðingar í Sósíalista-
flokknum hart á ríkisstjórnina, en
hún er skipuð demókrötum. Átök
blossuðu upp á föstudag, eftir að
varaforsætisráðherrann, Ilir Meta,
sást í sjónvarpsupptöku þiggja mút-
ur fyrir að veita verktaka samning
um framkvæmdir á vegum ríkisins.
Hann sagði af sér í kjölfarið. Næstu
kosningar í Albaníu eiga ekki að fara
fram fyrr en árið 2013, en nú þykir
líklegt að þær verði haldnar fyrr.
Með kóka-lauf í hendi
Evo Morales, forseti Bólivíu.
Tekist í hendur Ágætlega fór á með
forsetunum, Barack Obama og Hu Jintao.