Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Side 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 24. janúar 2011 Mánudagur
Hækka boðið í Adam
n Liverpool ætlar sér að landa
skoska miðjumanninum Charlie
Adam frá Blackpool áður en jan-
úarglugginn
lokast. Black-
pool hló að 4.5
milljóna punda
tilboði Liver-
pool í Adam í
síðustu viku en
Skotinn hefur
verið hreint
magnaður á
tímabilinu. Segja bresk blöð að
Liverpool muni nú hækka tilboð
sitt. Stjóri Blackpool, Ian Hollow-
ay, sagði að Adam væri 46 millj-
óna punda virði en hann sagði þá
fjárhæð vera peninginn sem liðið
tapaði félli það úr deildinni. Auk
Charlie Adams virðist Úrúgvæinn
Luis Suarez einnig nálgast Liver-
pool með hverri mínútunni.
Mourinho bestur
í heimi
n Pep Guardiola, þjálfari Barce-
lona, hrósaði Jose Mourinho, þjálf-
ara erkifjendanna í Real Madrid,
mikið á blaða-
mannafundi
eftir sigur liðs-
ins gegn Racing
Santander um
helgina. Bar-
celona var þá
komið með sjö
stiga forskot á
Real sem átti þá
eftir leik sinn í gær gegn Mallorca.
„Þegar maður er að berjast við lið
eins og Real Madrid er ekkert full-
víst,“ svaraði hann aðspurður um
hvort Spánartitilinn væri í hendi.
„Á morgun verður Real aftur fjór-
um stigum á eftir okkur því það er
með besta þjálfara heims og mjög
gott lið,“ sagði Pep.
Vill brautina burt
n Borgarstjóri Melbourne í Ástr-
alíu, Robert Doyle, vill að borgin
hætti að halda Formúlu-keppnir
eftir árið 2015
þegar leyfið
rennur út. Segir
hann kostnað-
inn við hverja
keppni orðinn
óbærilegan og
komi þetta allt
niður á skatt-
greiðendum.
„Árið 1996 þegar hver keppnis-
helgi var eins og fjögurra daga
keppni og styrktaraðilarnir mun
duglegri að dæla peningum í þetta
þuftum við samt að borga 1,7
milljón dollara á milli. Á síðasta
ári var þessi greiðsla komin upp
í 50 milljónir. Hvar haldið þið að
þetta endi?“ spyr borgarstjórinn.
Engin yfirtaka
á United
n Enski risinn Manchester United
var fljótur að bregðast við þeim
fregnum sem bárust í gær að yfir-
taka á félaginu
væri yfirvofandi.
Mail on Sunday
greindi frá því
að Quatar Hold-
ing ætlaði að
gera 1,5 billjóna
punda yfirtöku-
tilboð. „Það
hefur enginn
komið að máli við okkur með það
í huga að kaupa félagið. Sá hinn
sami verður ekki velkominn því
félagið er ekki til sölu,“ sagði tals-
maður Manchester United í gær.
Því var bætt við að fréttin í blaðinu
væri algjörlega röng.
Molar
Jón Daði til AGF Hinn bráðefniliegi Jón Daði
Böðvarsson, leikmaður knattspyrnuliðs Selfoss, hefur
gert lánssamning við danska liðið AGF sem gildir fram
í apríl. Hann mun spila með liðinu í næstefstu deild
en AGF er í ágætis stöðu til að koma sér enn og aftur
upp á meðal þeirra bestu. Jón Daði mun spila með
Selfoss í 1. deildinni hér heima í sumar en vilji AGF kaupa
vængmanninn eldfjóta getur það gert það eftir tímabilið
í haust.
Stjarnan lagði FH Stjarnan úr Garðabæ
gerði sér lítið fyrir og lagði bikarmeistara FH í Fótbolti.
net-mótinu um helgina. Fótbolti.net-mótið er ný keppni
sem samnefndur vefmiðill heldur fyrir lið utan Reykjavíkur.
Hörður Árnason kom Stjörnunni yfir eftir fimmtán mínútna
leik en Hólmar Örn Rúnarsson jafnaði fyrir Hafnfirðingana
fimm mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Það var síðan Halldór
Orri Björnsson sem skoraði sigurmarkið á 73. mínútu með
langskoti af 25 metra færi.
Strákunum okkar í íslenska lands-
liðinu í handbolta mistókst að
koma sér í kjörstöðu varðandi sæti
í undanúrslitum um helgina þegar
liðið tapaði sínum fyrsta leik á mót-
inu. Ísland steinlá gegn Þýskalandi,
26–23, þar sem sóknarleikur liðsins
var með eindæmum slakur og skor-
aði liðið ekki í tólf mínútur í seinni
hálfleik. Íslandi hafði unnið fimm
síðustu viðureignir sínar gegn
Þýskalandi og hefði sú sjötta kom-
ið liðinu í algjöra lykilstöðu í riðl-
inum. Þess í stað fer liðið Krýsuvík-
urleiðina enn eina ferðina. Til þess
að komast í undanúrslita þarf Ís-
land að ná þremur stigum af fjórum
mögulegum gegn stórliðum Spánar
og Frakklands. Bæði lið hafa sýnt
frábær tilþrif á mótinu en þar er
valinn maður í hverju rúmi. Ef Ís-
lendingar héldu að Þjóðverjar væru
með góða vörn og flottan markvörð
þá er hægt að margfalda það með
tveimur, alla vega þegar kemur að
Evrópu-, heims- og Ólympíumeist-
urum Frakka.
Tveir frábærir markverðir
Frakkar sýndu sjaldgæft kæruleysi í
leik sínum gegn Spáni í A-riðli sem
endaði með jafntefli, 28–28. Frakk-
ar höfðu yfir með sex mörkum, 27–
21, þegar sjö mínútur voru eftir.
Þessu kæruleysi svöruðu Frakkar
svo strax í fyrsta leik milliriðils þar
sem þeir tóku Ungverja með tólf
mörkum, 32–20. Í riðlinum lögðu
þeir einnig Þjóðverja að velli með
sjö marka mun, 30–23, en sá sig-
ur hefði auðveldlega getað orðið
stærri. Í þeim leik var oft pínlegt að
horfa á þýska liðið reyna að berjast í
gegnum frönsku vörnina og auðvit-
að markvörðinn, Thierry Omeyer.
Omeyer hefur lengi verið Þránd-
ur í Götu íslenska liðsins og auð-
vitað allra liða sem reyna að troða
boltanum framhjá honum. Það
velkist enginn í vafa um að þarna er
að finna besta markvörð samtím-
ans og líklega allra tíma. Til að bæta
gráu ofan á svart fyrir andstæðinga
Frakka er varamarkvörður liðsins,
Daouda Karaboue, búinn að eiga
flott mót og er með bestu hlut-
fallsmarkvörsluna á mótinu. Þar
er Omayer fimmti og Björgvin Páll
Gústavsson tíundi. Það er ekki nóg
með að franska vörnin sé líklega sú
besta í heimi, liðið er einnig með
tvo frábæra markverði.
Nýjar stjörnur Frakka
Fyrir mótið var talið að meiðsl í
franska hópnum gætu sett strik í
reikninginn hjá liðinu. Hinn magn-
aði Daniel Narcisse er meiddur en
það hefur ekki komið að sök. Jer-
ome Fernandez, sem hefur spilað
rétthentur í hægri skyttunni und-
anfarin ár, er kominn í sína upp-
áhaldsstöðu vinstra megin, Kara-
batic er að vanda á miðjunni og ný
stjarna er fædd í hægri skyttunni.
Nú loksins eru Frakkar komnir með
frábæra örvhenta skyttu sem heit-
ir Xavier Barachet. Barachet, sem
leikur með Chamberry í Frakk-
landi, er ekki sá hávaxnasti í brans-
anum en hann er frábær gegnum-
brotsmaður og með mögnuð skot.
Hann er ekki búinn að skora mik-
ið, aðeins nítján mörk, en hann er
með 84 prósenta nýtingu auk þess
sem hann er búinn að gefa ellefu
stoðsendingar.
Annar leikmaður sem fær nú
meiri spiltíma er rétthent skytta
að nafni William Accambray sem
leikur með stórliði Montpellier í
Frakklandi. Accambray er mikill
lurkur, nánast tveir metrar á hæð
og hundrað kíló. Hann er þó snar í
snúningum og með mikinn stökk-
kraft, frábær skytta. Hann er bú-
inn að skora tuttugu mörk á mót-
inu með tæplega sjötíu prósenta
nýtingu en hann hefur einnig gott
auga fyrir línuspili. Það er því eng-
inn skortur í franska liðinu og virð-
ist ný kynslóð vera að koma upp,
tilbúin til að halda sigurgöngunni
áfram.
Spænski varnarmúrinn
Spánn, sem Ísland mætir í dag,
mánudag, hefur leikið mun betur
en búist var við á mótinu. Spán-
verjar hafa verið í smálægð und-
anfarið en eru nú að koma sterk-
ir til baka. Þeir unnu Þýskaland
í riðlakeppninni með frábærum
lokakafla og náðu jafntefli gegn
Frakklandi, aftur með frábærum
lokakafla. Spánverjar eru með gott
varnarlið, sérstaklega fyrir miðju
þar sem hinn tröllvaxni Garabaya
ræður ferðinni. Verður íslenska
liðið því að forðast að sækja inn
á miðjuna eins og gerðist svo oft
gegn Þýskalandi.
Eins og Frakkar eru Spánverj-
ar vel mannaðir þegar kemur að
markvörðum. Jose Hombrados og
Arpad Sterbik standa vaktina þar.
Hombrados er með níundu bestu
hlutfallsmarkvörsluna á mótinu og
Arpad Sterbik getur verið djöful-
legur þegar hann kemst í gang. Ól-
afur Stefánsson þekkir þá þó vel en
Hombrados og Sterbik verja mark
Ciudad Real á Spáni.
Sóknarlega er spænska lið-
ið nokkuð einhæft og ætti því ís-
lenska vörnin að geta lokað á sókn-
arlotur Spánverjanna. Ekki þó með
sömu frammistöðu og gegn Þýska-
landi. Þegar Spánn datt í gang
gegn Frakklandi og Þýskalandi var
það vörn, markvörslu og hraða-
upphlaupum að þakka. Verður Ís-
lenska liðið því að vera fljótt til
baka og klára sóknirnar með skot-
um því annars gæti farið illa.
Tvær risahindranir
n Ísland mætir Spáni og Frakklandi í milliriðli n Þrjú stig af fjórum duga í undanúrslit
n Frábær vörn og markverðir í báðum liðum n Frakkar með nýjar stjörnur
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Garabaya Tröllið í spænsku vörninni
vinstra megin á myndinni.
Nýja stjarnan Xavier Barachet hefur verið frábær í liði Frakka.
Verða að vinna Leikurinn gegn Spáni er
gríðarlega mikilvægur.