Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 24. janúar 2011 Mánudagur
Hlín í
núinu
Hlín Einarsdóttir, ritstjóri bleikt.is,
segist hafa gefist upp á að reyna að
stjórna öllu í lífi sínu. Hún segist hafa
uppgötvað kenningar Eckhart Tolle um
máttinn í núinu, og segist hafa tileinkað
sér þær kenningar. „Það er kraftaverk í
núinu,“ skrifar hún í nýlegum ritstjórnar-
pistli. Hún segist einnig hafa lagt stund
á hugleiðslu til að komast nær núinu
og burt frá áhyggjunum sem hún hafði
barist við. „Hugurinn, eins stórkostlegt
tæki og hann getur verið, getur líka verið
óþolandi,“ skrifar hún, en hún virðist
hafa fundið núið.
Bóndadagsgjafir
Fjölmiðlakonan Þorbjörg Marinós-
dóttir, oftast kölluð Tobba Marinós,
virtist ekki vera í neinum vandræðum
með að finna bóndadagsgjöf handa
kærastanum sínum, baggalútnum og
borgarfulltrúanum Karli Sigurðssyni.
Að minnsta kosti ekki miðað við
ráðleggingarnar sem hún gaf öðrum
íslenskum konum á bloggsvæðinu
sínu síðastliðinn föstudag. „Ekki hafa
áhyggjur – notaðu hádegið til að redda
því,“ skrifaði hún og stakk upp á nuddi,
rauðvíni og ostum, eða hálsmeni frá
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna.
P
étur Kristján Guðmunds-
son lamaðist í hræðilegu
slysi í Austurríki um áramót-
in. Hann varð fyrir mænu-
skaða og er í dag lamaður fyrir neðan
mitti. Slysið olli ekki bara mænu-
skaða heldur blæddi inn á heila Pét-
urs og annað lunga hans féll saman.
Pétur ætlar ekki að láta neitt stöðva
sig og segir að hann þurfi aðeins að
laga sig að breyttum aðstæðum til að
ná sömu markmiðum og hann hafði
áður.
Fulla ferð áfram
Pétur og kærasta hans, Anna Ósk
Stefánsdóttir, hafa mikil áform hvað
framtíðina áhrærir og ætla ekki að
láta neitt stöðva sig. Þau hafa spenn-
andi kvikmyndaverkefni í bígerð auk
þess sem þau stefna að því að eignast
skútu, sem þau ætla að búa í. Ævin-
týraþorsti Péturs og Önnu er enn til
staðar þrátt fyrir breyttar aðstæður.
„Við vorum alveg búin að ákveða
að núna í apríl ætluðum við að fara
á skemmtibátanámskeið og fá sigl-
ingaleyfi,“ segir Anna Ósk. „Okk-
ur langar svo að kaupa okkur skútu,
ekki dýra, bara netta skútu og ferðast
um heiminn og búa einhvers staðar.
Þar sem hafið fer með okkur.“ Hún
segir þetta ennþá vera planið. „Við
ætlum að halda áfram að gera það
sem okkur langar að gera. Þetta er
bara tímaspursmál. Við gerum þetta
kannski ekki í apríl.“
Með margt á prjónunum
„Við ætluðum bara að fara í „road-
trip“ og fara á flotta staði og taka upp
flotta mynd á nýjan hátt,“ segir Anna
um önnur plön sem hún og Kristján
hafa. Þau vinna núna að kvikmynda-
verkefni sem hún segir að sé eitthvað
sem Kristján hefur brennandi áhuga
á.
Pétur er nú í endurhæfingu þar
sem hann lærir hvernig hann á að
vera sjálfstæður og hvernig hann geti
athafnað sig í hjólastól. Hann býr
þessa dagana á endurhæfingardeild-
in á Grensási „Ef þú ert með tvítugan
líkama þá er þetta allt annað,“ sagði
hann í Kastljósi í vikunni og er þess
fullviss að hann geti lifað sjálfstæðu
lífi í hjólastól.
n Slasaðist lífshættulega í Austurríki en lætur ekkert stöðva sig
n Ætlaði með kærustunni á skemmtibátanámskeið í apríl
n Draumurinn að eignast skútu og ferðast um heiminn„ Ævintýraþorsti
Péturs og Önnu er
enn til staðar þrátt fyrir
breyttar aðstæður.
Ánægð Áform þeirra Péturs og
Önnu breytast ekkert, það eru
bara aðstæðurnar sem breytast.
„ÞETTA ER BARA
TÍMASPURSMÁL“
Rakel Mjöll Leifsdóttir vekur athygli:
Á sviðinu í samfesting
frá Royal Extreme
Rakel Mjöll Leifsdóttir vakti verðskuld-
aða athygli í Söngvakeppi Sjónvarps-
ins á laugardagskvöld, þrátt fyrir að lag
hennar hafi ekki komist áfram í úrslit
keppninnar. Hún vakti bæði athygli
fyrir vel sungið lag, sem hún átti sjálf
textann að, og fyrir glæsilegan klæðn-
að. Á sviðinu klæddist hún hlébarða-
mynstruðum samfestingi frá hönnuð-
inum Unu Hlín Kristjánsdóttur, sem á
og rekur Royal Extreme.
Rakel Mjöll er söngkona í hljóm-
sveitinni Útidúr og elektró-dans-
hljómsveitinni Sykur. Í fyrrahaust
gaf hún út plötuna „This Mess We‘ve
Made“ með hljómsveit sinni Útidúr.
Hún ólst upp í Kaliforníu en flutti ung
að árum í Hafnarfjörðinn með fjöl-
skyldu sinni. Á menntaskólaárunum
flutti hún svo í miðbæinn þar sem
hún gekk í Kvennaskólann í Reykja-
vík. Rakel keppti tvívegis í söngva-
keppni framhaldsskólanna á meðan
hún var við nám í Kvennaskólanum.
Í annað skiptið söng hún þar frum-
samið lag. Hún stundar nú söngnám
í FÍH.
Rakel er ekki eini fjölskyldumeð-
limurinn sem er fær á listasviðinu því
amma hennar er leikkonan Guðrún
Ásmundsdóttir og föðurbróðir hennar
er Ragnar Kjartansson listamaður.
Ekkja Sigurjóns Brink hefur tek-
ið ákvörðun um að taka ekki lag
hans í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins úr keppninni. Tilkynnt var um
þetta í útsendingu á öðru und-
ankvöldi söngvakeppninnar um
helgina. Var þar sagt að vinir Sig-
urjóns myndu taka að sér flutn-
ing lagsins en hann hafði sjálfur
ætlað að flytja það. Sigurjón varð
bráðkvaddur í síðustu viku eftir
að hafa fengið heilablóðfall. Lag-
ið, sem heitir Aftur heim, verður
flutt næstkomandi laugardag.
Vinir syngja lagið
Á sviðinu Rakel Mjöll
var glæsileg á sviðinu í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
síðastliðið laugardagskvöld.