Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Qupperneq 4
Fjölþrepa bakbrettið • Teygir á hrygg og bakvöðvum • Minnkar vöðvaspennu • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Verð: 7.950 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Fjárfestirinn Steingrímur Werners- son, kenndur við gjaldþrota félag- ið Mile stone, byggði óvenjuglæsilegt einbýlishús í Árlandi í Fossvogi rétt fyrir hrun. Íburðurinn er slíkur að það hlýtur að teljast eitt dýrasta einbýl- ishús á landinu. Iðnaðarmaður sem vann í húsinu orðar það þannig að það hafi verið „… ævintýralegt að sjá hvernig maðurinn hagaði sér þarna.“ DV sagði frá því á mánudag að hús- ið væri svo ríkulega útbúið að þar væri meðal annars að finna tvær sundlaug- ar. Þar af er önnur sérstaklega útbú- in öldusundlaug í kjallaranum, sem átti að gera íbúum hússins kleift að synda á móti straumnum, í orðsins fyllstu merkingu, án þess þó að færast mikið úr stað. Öldulaugin mun hafa verið keypt hjá Poulsen. Auk þess er sem fyrr segir önnur sundlaug, eða risastór heitur pottur, í húsinu. Þá lét Steingrímur útbúa sérstakt slökunar- herbergi með fossi sem rennur niður vegg flísalagðan með náttúrusteini. Herbergið er útbúið fyrir jóga og aðra slökun, þar sem hlusta má á róandi niðinn í fossinum renna niður vegg- inn. Nautsleður á baðherbergi Svo virðist sem Steingrímur hafi ver- ið staðráðinn í því að byggja eitt allra íburðarmesta einbýlishúsið í Reykja- vík og fullyrða kunnugir að hús Stein- gríms í Árlandinu slái húsum flestra annarra útrásarvíkinga við þegar kemur að glæsileika og íburði. Ekki er um neina smásmíði að ræða því húsið er alls 584 fermetrar að stærð og stendur á risastórri einbýlis- húsalóð neðst í Fossvoginum. Brunabótamat hússins er um 147 milljónir króna. DV hefur eftir áreið- anlegum heimildum að eitt af fimm baðherbergjum í húsinu sé leðurklætt í hólf og gólf með flísum úr nautsleðri. Fullyrt er að sturtuhaus í baðherberg- inu kosti á aðra milljón króna. Þess ber að geta að fjórar sturtur eru í hús- inu. Í einu baðherberginu, sem ætlað er fyrir börnin, var listakona fengin til að gera skrautlegt listaverk úr mósaík- flísum á veggi. Í stóru rými í húsinu lét Steingrím- ur útbúa bíósal, með að lágmarki 10 stólum og fullkomnu sýningarkerfi. Sviðin jörð Steingrímur var einn af eigendum fjár- festingarfélagsins Milestone sem nú er gjaldþrota. Kröfur í þrotabúið nema tugum milljarða króna, svo ljóst er að gjaldþrot félagsins er eitt það stærsta í Íslandssögunni. Segja má að Miles- tone hafi skilið eftir sig sviðna jörð því að félagið keypti meðal annars trygg- ingafélagið Sjóvá og veiktist staða þess gríðarlega í eigendatíð Mile stone. Það skýrist meðal annars af því að félög tengd eigendunum fengu milljarða lánaða út úr bótasjóði Sjóvár, þar af lánaði tryggingafélagið 15,7 milljarða króna út úr sjóðnum á einum degi í febrúar 2008. Heildartap vegna lánveitinga Sjó- vár til þessara aðila nam rúmum 18 milljörðum króna árið 2008 og voru eignir tryggingafélagsins færðar niður um þessa upphæð í ársreikningum fé- lagsins árið 2009. Lánveitingar úr bótasjóðnum til Milestone-manna leiddu til þess að íslenska ríkið þurfti að bjarga Sjóvá. Kostnaður íslenskra skattgreiðenda af því verður að öllum líkindum á bilinu 3–4 milljarðar króna. Þrátt fyrir að skattgreiðendur sitji uppi með tapið er Steingrímur sjálf- ur hins vegar ekki persónulega gjald- þrota og á ennþá hið risastóra og rán- dýra einbýlishús í Fossvoginum. Íbúð fyrir þjónustufólk Þrátt fyrir að komið væri fram á sum- arið 2008 og óveðursskýin væru farin að hrannast upp í íslensku efnahags- lífi hélt Steingrímur áfram að byggja húsið eins og ekkert hefði í skorist. Hann flutti inn í einbýlishúsið ásamt eiginkonu sinni, jafnvel þótt það væri óklárað. Af íburðinum að dæma má telja víst að Steingrímur og fjölskylda hafi ætlað að lifa lúxus-lífi í húsinu, sem langflesta Íslendinga gæti vart dreymt um. Í kjallara hússins var til að mynda útbúin tveggja herbergja íbúð, ætluð þjónustufólki fjölskyld- unnar. Iðnaðarmenn sem komu að bygg- ingu hússins lýsa því að Steingrím- ur hafi látið útbúa sérstaka koníaks- stofu með sérhönnuðu glergólfi, þar sem átti að setja leðurstóla til þess að skapa rétt andrúmsloft. Tölvu- og rafkerfi í slíku húsi er það tæknilegt að heilt herbergi þarf undir rafmagnstöflur og stjórnkerfi. Meðal annars er kallkerfi á milli her- bergja. Svo virðist sem Steingrími og fjölskyldu hafi verið umhugað um ör- yggi sitt, því sérhannað öryggiskerfi með fjölda myndavéla er í húsinu og í kringum það. Steingrímur hefur ekki vanmetið þörfina á öryggisgæslu, því einbýlishús hans hefur orðið fyr- ir barðinu á skemmdarverkamanni sem kallar sig SkapOfsa, en sá sletti rauðri málningu á veggi hússins sum- arið 2009. Sjálfur býr Steingrímur nú í London og neitar að tala við blaða- menn. Árið 2009 flutti Steingrímur snekkju í sinni eigu, af gerðinni Sea- line S24, úr landi með gámaflutninga- skipi. Verðmæti snekkjunnar er talið vera á fimmta tug milljóna króna. n Milestone-maðurinn Steingrímur Wernersson byggði eitt dýrasta einbýlishús landsins n Öldusundlaug í kjallaranum n Baðherbergi með nautsleðri n Íbúð fyrir þjónustufólk n Foss í slökunarherbegi n Skattgreiðendur borga tapið Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is Með öldusundlaug og íbúð fyrir þjóna Árland Steingrímur Wernersson byggði eitt dýrasta einbýlishús á landinu. Þrátt fyrir að skattgreiðendur þurfi að borga milljarða í tengslum við fjárfestingar sem félag hans bar ábyrgð á er hann ekki gjaldþrota og á húsið ennþá. Steingrímur Wernersson Er búsettur í London og talar ekki við blaðamenn. 4 | Fréttir 2. febrúar 2011 Miðvikudagur Hannes í mál við fjármálaráðu- neytið Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri Fl Group, hefur höfðað skaðabótamál á hendur fjármála- ráðuneytinu á grundvelli meintrar ólögmætrar kyrrsetningar sem skatt- rannsóknarstjóri fór fram á í byrjun síðasta árs. Kyrrsetningarinnar var óskað vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum FL Group. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja- víkur á þriðjudag. Skattrannsóknarstjóri óskaði á sama tíma kyrrsetningar eigna Skarpéðins Berg Steinarssonar, fyrr- verandi stjórnarformanns FL Group, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra. Hæstiréttur komst að þeirri niður- stöðu að ekki hefði verið lagaheim- ild fyrir kyrrsetningu eigna þeirra og hefur Skarphéðinn Berg þegar höfð- að skaðabótamál á hendur Ríkis- sjóði Íslands vegna málsins. Jóel á leið til Íslands Jóel Einarsson, drengurinn sem fæddist með hjálp staðgöngumóður á Indlandi fyrir jól, er loksins á leið heim til Íslands. Í frétt Bylgjunnar á þriðjudag kom fram að foreldrar hans, Helga Sveinsdóttir og Einar Færseth, hefðu flogið frá Indlandi á mánudagskvöld áleiðis til Þýska- lands. Þau dvelja þar þessa stund- ina og ætla að gera næstu daga en óvíst er hvenær þau koma heim til Íslands. Foreldrarnir fengu brottfar- arleyfi frá Indlandi eftir að íslensk stjórnvöld gáfu út vegabréf fyrir Jóel á fimmtudaginn í síðustu viku. Ríkislögreglustjóra er kunnugt um rasistasamtök: Ekkert eftirlit með rasistum Lögreglunni er kunnugt um rasista- félög á Íslandi en hún er ekki með sérstakt eftirlit vegna þeirra. Einnig er lögreglunni kunnugt um nokkrar vefsíður þar sem haldið er úti áróðri gegn útlendingum og kynþáttahatri. Eins og fram kom í umfjöllun DV um rasisma á dögunum eru að minnsta kosti tvenn rasistasamtök starfandi á Íslandi í dag. Bæði eru tengd alþjóðlegu neti rasistasamtaka og hafa þau verið bendluð við morð og aðra hatursglæpi. Guðmundur Guðjónsson, yf- irlögregluþjónn hjá ríkislögreglu- stjóra, segir aðspurður að lögreglan hafi ekki sérstakt eftirlit með þessum samtökum en henni sé þó kunnugt um þau. Svo virðist sem fámennur en hávær hópur öfgaþjóðernissinna starfi hér á landi. Blóð og heiður eru alþjóðleg samtök sem heita á ensku Blood and Honor. Samtökin hafa tekið þátt í hrottafengnum og ofbeld- isfullum aðgerðum erlendis og hafa þá yfirleitt gert það undir nafninu Combat18. Íslensku samtökin eru hluti af þessum alþjóðlegu samtök- um sem setja Ísland á lista yfir lönd þar sem samtökin eru starfandi. Ekki er vitað til þess að hatursglæpir hafi verið framdir hér á landi en það er hins vegar raunin í öðrum löndum Evrópu. Í umfjöllun DV um daginn var rætt við fólk sem lýsti því opinber- lega yfir að það aðhylltist rasisma og berðist gegn fjölmenningu. Meðal annars var rætt við mann sem sagðist ekki vera á móti fólki af öðrum kyn- þáttum, en guð bannaði honum hins vegar að umgangast fólkið. hanna@dv.is Ekkert eftirlit Ekki er vitað til þess að hatursglæpir hafi verið framdir hér á landi, en það er hins vegar raunin í öðrum löndum Evrópu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.