Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Blaðsíða 20
20 | Fókus 2. febrúar 2011 Miðvikudagur Ber er hver að baki... The Fighter segir sögu bandaríska hnefaleikakappans Mickys Ward (Mark Wahlberg) sem varð afar óvænt heimsmeistari í léttveltivigt árið 2000. Leið Micky að titlinum var svo sannarlega þyrnum stráð en lengi vel virtist hann ekki hafa það sem til þurfti. Það hafði bróðir hans aftur á móti, Dicky Edlund (Christ- an Bale), sem var atvinnumaður í hnefaleikum á sínum yngri árum. Dicky er hetjan í hverfinu í Boston þar sem þeir búa fyrir að hafa rotað Shane Mosley á sínum tíma. Micky lifir í skugga bróður síns sem er orð- inn krakkfíkill og á heildina litið al- gjör aumingi. Mamma Mickeys og fjölskylda eru að gera út af við hann en eftir leiðinlegt tap hætti hann að leyfa bróður sínum að þjálfa sig. Á endanum sér hann framtíð sína ekki án bróður síns enda veit hann hversu miklum hæfileikum hann er gæddur þrátt fyrir fíknina. Það er alveg ástæða fyrir því að Christian Bale, Amy Adams sem leik- ur kærustu Mickeys og Melissa Leo sem leikur móður hans eru öll til- nefnd til óskarsverðlauna. Myndin er afburða vel leikin og hefur hvítu hyski í úthverfi Boston sjaldan verið gerð jafngóð skil. Mark Wahlberg er einnig flottur í hlutverki Mickeys. Myndinni er frábærlega leikstýrt og þessari sönnu sögu er afburða vel komið til skila á hvíta tjaldið. Mað- ur finnur til ótrúlegrar samkenndar með Micky og Charlene í baráttunni gegn fjölskyldunni en skilur einn- ig um leið að þó svo Micky þoli ekki hvernig komið er fyrir bróður sínum getur hann ekki án hans verið. Bardagaatriðin eru afskaplega vel tekin upp og öll myndataka til fyrir- myndar. Þó þetta sé Disney-mynd með ánægjulegum endi er hún alls ekkert hallelúja-kjaftæði út í gegn. Undirritaður er veikur fyrir myndum sem byggðar eru á sannri sögu, hvað þá með íþróttaívafi, en með það ryk í augum get ég lofað hverjum sem er frábærri mynd. Tómas Þór Þórðarson 55.700.000 til menningarmála frá Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar: 85 af 215 fengu styrk frá borginni Menningar- og ferðamálaráð Reykja- víkurborgar samþykkti fyrir nokkru styrkveitingar til 85 af þeim 215 sem sóttu um styrk að þessu sinni hjá ráð- inu. Alls voru það 55.700.000 krónur sem skiptust á milli umsækjendanna 85. Hæsta styrkinn, að upphæð 5 milljónir kóna, fékk Heimili kvik- myndanna sem var sett á fót í gamla Regnboganum síðastliðið haust og opnaði Bíó Paradís. Þá var Caput út- nefndur Tónlistarhópur Reykjavík- urborgar og hlaut 2 milljóna króna styrk. Caput-hópurinn var stofnaður árið 1987 af ungum tónlistarmönnum í þeim tilgangi að flytja nýja íslenska tónlist. Stærð hópsins hefur alltaf ver- ið sveigjanleg, frá einleikara, dúóum, tríóum og allt upp í sinfóníettu í fullri stærð. Aðrir sem hlutu styrk voru meðal annars: n Nýlistasafnið – 4,4 m.kr. n Norrænir músíkdagar – 2,5 m.kr. n Möguleikhúsið – 2,2 m.kr. n Vesturport – 2,0 m.kr. n Jazzhátíð í Reykjavík – 1,8 m.kr. n Nýsköpunarsjóður tónlistar – Musi- ca Nova – 1,7 m.kr. n Havarí, Kammersveit Reykjavíkur, Kling og Bang gallerí, Listasafn Sigur- jóns Ólafssonar og Stórsveit Reykjavík- ur – 1,5 m.kr. n Lókal leiklistarhátíð – 1,4 m.kr. n Reykjavík Dance Festival – 1,2 m.kr n Gallerí Ágúst, Shalala ehf – 1 m.kr. Koma svo! Dicky er krakkfíkill en veit sitthvað um hnefaleika. Les bureaux de Dieu Skrifstofa Guðs IMDb 6,4 Leikstjóri: Claire Simon Handrit: Natalia Rodríguez, Claire Simon, Nadège Trébal Leikarar: Anne Alvaro, Nathalie Baye, Michel Boujenah Bíómynd Erpur EyvindarsonV ið fylgjumst með teymi fé- lagsfræðinga sem aðstoðar borgarbúa á allan möguleg- an hátt á göngudeild nokk- urri. Myndin byggir á raunveruleg- um sögum sem var safnað saman frá fjölda slíkra miðstöðva félags- fræðinga víðsvegar um borgina. Stíll- inn er einfaldlega keyrður áfram af kameru sem rúllar þrotlaust og við erum því eins og fluga á vegg meðan vandamál eru rædd og leyst. Skrifstofa guðs er réttnefni á slíka mynd þar sem hér eru teknar stór- ar ákvarðanir um örlög, fæðingu og dauða einstaklinga í miklu magni. Hér er í raun um heimildarmynd að ræða sem sökum trúnaðarsamtal- anna er best unnin í svona endur- gerð með leikurum og handriti. Við fylgjumst með endalausum trúnað- arsamtölum og stanslausum vanda- málum. Það er skrifað upp á getn- aðarvarnir fyrir unglinga í kílóavís og lyfseðla í metratali. Ófrískar píur meta fóstureyðingar, daginn eftir pill- ur, smokkar slitna og pilluinntökur gleymast. Heimilisofbeldi kemur inn á borð hjá félagsfræðingunum og þvinguð hjónabönd einnig. Maður hlýtur að dást að því nauð- synlega starfi sem hér er unnið meira af hugsjón en skyldu eins og oftast er í þessum geira. Nær sleitulaus vinnan er slitin í sundur af örstutt- um hvíldum, sígópásum, teygjum, sprelli og lágstemmdu lúðurstefi. Myndin byrjar frábærlega með viðtali við unga stelpu sem er ætt- uð frá Alsír þar sem er tekið töluvert öðruvísi á því þegar stúlkur komast á kynþroskaaldurinn. Ekki oft sem slíkt sést á hvítu tjaldi í þessari dýpt. Annað mjög gott atriði er með fók- us á vændiskonu frá Búlgaríu. Hún stundar mikið af kynlífi en einung- is óvarin mök með manninum sem hún elskar og verður ófrísk í hvert einasta skipti. Hún er ein af fjölmörg- um góðum týpum sem myndin hefur upp á að bjóða. Félagsfræðingarnir eru allir verulega þægilegir í viðmóti en klárlega mismunandi í meðförum sínum á vandamálunum. Myndin er frábærlega vel leik- in og gerð og umræðurnar eru mjög raunsannar enda byggðar á reynslu. En eftir ákveðinn tíma er þetta orð- in ein allsherjarhalarófa af einhverri eggjastokka- og leggangageðveiki sem ótrúlegt en satt verður hund- leiðinlegt til lengdar. Það er enginn að biðja um springandi bíla og flug- eðlur en mikið væri nú gott að hafa einhvern þráð í þessu sem er nátt- úrulega vandmeðfarið sökum forms- ins. Þeir hörðustu endast ekki lengur en níu mánuði í leginu og eftir einn og hálfan í þessu er maður alveg kominn með gott. Erpur Eyvindarson Eggjastokkageðveiki Skrifstofa Guðs „Er réttnefni á slíka mynd þar sem hér eru teknar stórar ákvarðanir um örlög, fæðingu og dauða einstaklinga í miklu magni.“ Síðasta sýning Möguleikhúsið sýnir síðustu sýningu á barnaleikritinu Langafi prakkari sem byggt er á sögum Sigrúnar Eld- járn í Menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi laugardaginn 5. febrúar klukkan 14.00. Leikritið er byggt á bókum Sig- rúnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Með aðalhlutverk fara Pétur Eggerz og Aino Freyja Järvelä. Miða- verð er 1.500 krónur. Berjast fyrir vin Vinir og félagar Davíðs Arnar Arn- arsonar, ungs manns sem glímir við illvígt krabbamein á lokastigi, halda styrktartónleika á Faktorý Bar á mið- vikudagskvöld. Á tónleikunum spila Johnny Stronghands, Brother Grass, Illgresi, Johnny and the Rest og Lay Low. Í fréttatilkynningu frá vinum og aðstandendum Davíðs er biðlað til allra þeirra sem þekkja hann að leggja sitt af mörkum þar sem barátta hans við sjúkdóminn muni standa sem hæst á næstu vikum og mánuðum. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Davíðs Arnar. Húsið er opnað klukkan 20.30 og aðgangseyrir er 1.500 krónur. CAPUT Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2011. Shakespeare í Sambíóunum Fimmtudaginn 3. febrúar verður Lér konungur Shakespeares sýndur í Sambíóunum Kringlunni í beinni útsendingu frá Donmar Ware- house-leikhúsinu í London. Það er Derek Jacobi, einn fremsti Shake- speare-leikari Breta, sem fer með hlutverk Lés konungs í þessari sýn- ingu sem var frumsýnd í desember við afbragðs undirtektir gagnrýn- enda. Jacobi, sem er nú sjötíu og tveggja ára, hefur á löngum ferli leikið fjölmörg burðarhlutverk í leikritum Shakespeares og fleiri skálda. Einkum var túlkun hans á Hamlet rómuð sem og meðferð hans á Kládíusi Danakonungi í kvikmynd Kenneths Branagh eftir Hamlet. Ætla má að þessi útsend- ing veki hér sérstaka athygli þar sem hún gefur íslenskum áhorf- endum tækifæri til að bera túlkun Jacobis og hinna bresku lista- manna, sem að sýningunni koma, saman við sýningu Þjóðleikhússins á Lé konungi. The Fighter IMDb 8,2 Leikstjóri: David O. Russell Leikarar: Mark Wahlberg, Christian Bale, Amy Adams, Melissa Leo. 115 mínútur Bíómynd Tómas Þór Þórðarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.