Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Page 15
Breytt úttektartímabil Valitor hefur breytt almennu úttektar-
tímabili á Visa-kortum. Fram til þessa hefur tímabilið verið frá 18. eins mánaðar til
17. þess næsta, en framvegis verður það frá 22. til 21. Greint er frá þessu á heimasíðu
Neytendasamtakanna en þar er einnig tekið fram að breytingarnar séu heimilar og
í samræmi við skilmála svo lengi sem korthöfum sé tilkynnt um þær með réttum
hætti. Vilji korthafi ekki una þessum breytingum getur hann sagt upp kortasamn-
ingi og krafist hlutfallslegrar endurgreiðslu árgjalds. Sé kortið notað eftir að nýir
skilmálar taka gildi er hins vegar litið svo á að korthafi samþykki skilmálana.
Fyrirtækið telur að breytingar þessar hafi hverfandi áhrif á korthafa.
Skyndilausnir í megrun Fólk leitar oft eftir skyndilausnum þegar
kemur að því að grenna sig þar sem það vill sjá árangur strax. Skyndilausnir geta hins
vegar oft reynst óæskilegar en ein slíkra lausna felst í að neyta fitu- og prótínríkra
matvæla sem innihalda lítið af kolvetnum. Á vef Matvælastofnunar er fjallað um slíka
megrunarkúra og má þar finna pistil um það helsta sem einkennir Atkins-kúrinn og aðra
kolvetnissnauða og fitu- og prótínríka megrunarkúra. Þar er ekki leitast við að svara
spurningunni hvort slíkir kúrar séu áhættunnar virði en þó er tekið fram að það séu
margir ókostir sem fylgi því að neyta matar sem ríkur er af fitu og prótínum en snauður af
kolvetnum. Hver og einn verður hins vegar að svara því fyrir sig hvort þessir kúrar henti.
Neytendur | 15Miðvikudagur 2. febrúar 2011
n Hjördís Ágústsdóttir gerði leigusamning við leigjendur sína n Hún vildi ekki framlengja samn-
inginn en þrátt fyrir það hafa leigjendurnir hvorki flutt út né greitt leigu n Hefur lítinn sem eng-
an rétt til að endurheimta hús sitt n Undrast reglurnar og finnst vegið að sér sem leigusala
LOSNAR EKKI VIÐ
LEIGJENDURNA
Leigusamningur Hjördísar Ágústs-
dóttur við leigjendur rann út í nóvem-
ber. Þrátt fyrir það er fjölskyldan, sex
manns, enn búsett í húsinu. Hjördís
hefur ekki fengið greidda leigu síðan
í október og stendur nú ráðalaus yfir
stöðunni. Hjördís hafði leigt Akranes-
kaupstað húsið sitt í nokkurn tíma en
fyrir rúmu ári var þeim samningi sagt
upp. Í kjölfarið hafði fólkið sem bjó í
húsinu samband við hana og spurði
hvort hún mundi vilja gera áfram-
haldandi leigusamning við þau. „Ég
hafði samband við bæjarskrifstofur og
spurðist fyrir um hvernig fólkið hefði
staðið í skilum og fékk þau svör að það
hefði alltaf verið í lagi. Ég ákvað því að
leyfa þeim að búa þar áfram og gerði
leigusamning upp á ár við þau,“ segir
hún.
Vandamál með leiguna
Hjördís segir að samningurinn hafi
tekið gildi þann 1. nóvember 2009
en hún hafi ekki rukkað þau um
fyrsta mánuðinn. Það hafi þó allt-
af verið vandamál með leiguna. „Ég
var að fá um það bil 70 til 80 þúsund
krónur en leigan hljóðaði upp á 110
þúsund krónur. Ég hef aldrei farið
fram á að þau greiði vexti af því en
þetta kom mér samt illa þar sem ég
þarf að borga af lánum af húsinu,“
segir hún.
Sækir um útburð
Í nóvember rann samningurinn út og
hafði Hjördís ekki í hyggju að fram-
lengja hann. Staðan er hins vegar sú
að fjölskyldan er ekki enn farin úr hús-
inu. „Ég hef engan rétt. Ég get ekki far-
ið inn í mitt eigið hús því þar er fólk
sem á ekki að vera þar. Ef ég færi þar
inn gætu þau kært mig fyrir innbrot,“
útskýrir hún. Það eina sem hún get-
ur gert til að koma þeim út löglega er
að senda þeim bréf í ábyrgðarpósti
sem hún og gerði. Þar fór hún fram
á að fjölskyldan yrði farin úr húsinu í
síðasta lagi 14. janúar. Það hefur ekki
gengið eftir og það eina í stöðunni er
því að fá lögfræðing í málið og sækja
um útburð. Það getur hins vegar tekið
marga mánuði.
Pattstaða
„Mér finnst bara ótrúlegt að ég, sem
eigandi hússins, hafi engan rétt. Ég
þarf að greiða af lánunum og borga
fasteignagjöld en ég get ekki feng-
ið húsið mitt aftur. Þrátt fyrir að það
sé enginn gildandi leigusamningur,“
segir hún og bætir við að hún fái ekki
frystingu á lánum á meðan. Nú hafi
hún fengið sér lögfræðing sem hún
segir að sé ekki ódýrt. Auk þess get-
ur útburðarbeiðni verið lengi á leið-
inni í gegnum kerfið og segist Hjör-
dís hafa heyrt að það geti tekið allt
að sex mánuði. „Á meðan ég stend í
þessu mun bankinn líklega hirða af
mér húsið. Þetta er bara algjör patt-
staða.“
Vill leigja öðrum
Hún segist ekki vera að þessu til að
heimta peninga af leigjendunum þó
þeir skuldi henni um hálfa milljón nú
þegar. Hún er ekki vongóð um að fá
peninginn sem kæmi henni þó vel því
hún hefur ekki getað greitt af sínum
íbúðarlánum vegna þessa. „Mig langar
bara að eiga húsið mitt og halda áfram
að leigja það. En fyrst verð ég að losna
við þau.“
Hún segir það einnig ótrúlegt að
hún geti ekki haft samband við lögregl-
una og látið vita að það sé fólk í húsinu
sem hún losnar ekki við. Að það þurfi
að fara þessa leið. „Ég hef alltaf verið
heiðarleg við hana og ég sagði henni
að ég myndi senda henni þetta bréf.
Það er svo sem hægt að segja að ég eigi
líka sök á þessu þar sem ég hefði aldrei
átt að láta þetta ganga svona langt og
svona lengi.“
Fóru fram á flýtimeðferð
Lögfræðingur Hjördísar, Ármann Ár-
mannsson, staðfestir sögu Hjördísar
og segir að beiðni um aðfaragerð hafi
verið send Héraðsdómi Vesturlands.
„Umbjóðandi minn hefur farið fram
á útburð. Þetta er eina úrræðið sem
hún hefur þar sem samningi er lokið
en fólkið neitar að fara.“
Hann segist ekki vita hversu lang-
an tíma þetta muni taka en bætir við
að hann hafi farið fram á flýtimeð-
ferð þar sem um mikið hagsmunamál
sé að ræða. Ef krafan verður tekin til
greina hjá sýslumanni og samþykkt
þarf Hjördís að leita ásjónar lögregl-
unnar þar sem útburður sé ekki fram-
kvæmdur nema með aðstoð lögreglu
eða sýslumanns.
„Flyt ekki á götuna í febrúar“
„Ég held að hún þurfi nú fyrst að
segja upp skriflega. Auk þess er ég
hér með sex manna fjölskyldu og ég
flyt ekki út á götu með þau í febrú-
ar,“ segir leigjandinn. Hann segir að
þetta snúist fyrst og fremst um fjár-
mál og að hann hafi ekki viljað ræða
við Hjördísi því hún hafi séð til þess
að fjölskyldan fái ekki leigt annars
staðar í bænum. „Ég talaði við hana
fyrir nokkru og sagði henni að ég
væri fjárhagslega illa stödd því ég sé
öryrki og á bótum. Ég reyndi að pota
inn peningum eins og ég gat og hún
vissi það alveg. Ég get ekki gert meira
en það,“ segir hún.
Aðspurð hvort hún hugsi sér að
flytja úr húsinu segir hún að fulltrúi
sýslumanns hafi sagt að þegar samn-
ingar renni út taki við ótímabundinn
samningur en sá renni ekki út fyrr en
leigjendur flytji. „Ég er búin að tala
við bæjaryfirvöld og þau eru ekki með
neitt húsnæði til leigu. Það er heldur
ekkert um leiguhúsnæði á almennum
leigumarkaði. Því miður, annars væri
ég fyrir löngu farin héðan.“ segir hún
að lokum.
Á heimasíðu Húseigendafélagsins er
að finna húsaleigumola sem Sigurður
Helgi Guðjónsson, formaður félagsins,
tók nýlega saman. „Húseigendafélagið
gerir leigusamninga og veitir ráð og
upplýsingar og kannar skilvísi leigjenda.
Þá aðstoðar félagið leigusala þegar
vanskil og aðrar vanefndir verða. Þessi
þjónusta er efirsótt af þeim sem vilja
hafa leigumálin á hreinu,“ er meðal
þess sem þar segir. Um útburð og rétt
leigusala segir:
Útburðarbeiðni
n Líði rýmingarfresturinn án þess að
leigjandi rými eða leiti samninga, er
leigusali knúinn til að fara í útburðarmál.
Það er gert með útburðarbeiðni til
héraðsdóms. Leigjandi er boðaður fyrir
dóminn og fær kost á að koma fram með
sjónarmið sín og varnir. Oftar en ekki er
ekki mætt af hálfu leigjanda. Yfirleitt er
fátt um varnir í útburðarmálum vegna
leiguvanskila. Skortur á peningum og
greiðslugetu og greiðsluvilja eru ekki
lögmætar varnir.
Úrskurður um útburð
n Næst er málið tekið til úrskurðar
um útburð og málskostnað. Sé hann
leigusala í vil er farið með hann til
sýslumanns sem framfylgir honum ef
leigjandi lætur ekki segjast. Útburðurinn
er á ábyrgð og kostnað leigusala en
hann eignast yfirleitt aðfararhæfa
endurkröfu á leigjanda, þ.e. hann getur
fengið gert fjárnám til tryggingar henni.
Góð ráðGunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Ég get ekki farið
inn í mitt eigið hús
því þar er fólk sem á ekk-
ert að vera þar.
Hjördís Ágústsdóttir Leigjendurnir vilja ekki fara
þrátt fyrir að leigusamningur hafi runnið út í nóvember.