Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2011, Qupperneq 25
Sport | 25Miðvikudagur 2. febrúar 2011 Vill festa Muntari n Steve Bruce, knattspyrnustjóri Sunderland, er nokkuð viss um að lánssamningur Sulleys Muntari frá Inter verði gerð- ur varanlegur í sumar. Muntari kom til félags- ins í janúar en Bruce vill gera við hann endan- legan samning eftir tímabilið. „Muntari er frá- bær leikmaður sem ég vonast til að geta haldið. Hann er það góður að það sendir viss skilaboð fáum við hann til að skrifa undir samning. Aldrei áður hef ég séð leikmenn í hans gæðaflokki vera tilbúinn að taka á sig jafnmikla launalækkun og hann gerði með því að koma til okkar. Það er hressandi að sjá,“ segir Bruce. Red Bull sparar yfirlýsingarnar n Heimsmeistarar Red Bull í For- múlu 1 hafa haft nokkuð hægt um sig nú þegar Formúluvertíðin er að fara að stað. Liðin afhjúpa nú bíla sína út um allar trissur og greina frá mark- miðum keppn- istímabilsins. Heimsmeistar- inn Sebastian Vettel segir að ekki verði mikið mál fyrir sig og lið- ið að koma sér í gang því að auðvit- að vilji allir vinna heimsmeistara- titilinn aftur. Bíll Red Bull í fyrra var langbestur en tæknistjóri liðsins, Adrian Newey, sagði að hann óttaðist að eitt annað lið byggi nú yfir sömu tækni og þeir. Hvaða lið það væri vildi hann ekki gefa upp. Loksins, segir Schumi n Mercedes-liðið í Formúlu 1 frum- sýndi nýja keppnisbílinn sinn í gær, MGP W02. Á honum vonast sjöfaldi heimsmeist- arinn Michael Schumacher til að gera betur en í fyrra. „Það er alveg ljóst að hönnun bílsins er undir áhrifum frá Red Bull en það er ekkert skrýtið miðað við árið í fyrra. Ég segi nú bara: Loksins er kominn nýr bíll og við getum farið að prófa okkur áfram. Þetta hefur verið löng bið. Ég er handviss um að á þessum bíl munum við standa oftar á verð- launapallinum. Þá helst í miðjunni auðvitað,“ segir Michael Schuma- cher. Diouf kátur í Glasgow n Senegalinn El-Hadji Diouf gekk í raðir Glasgow Celtic á lokadegi félagaskipta og hann gæti varla verið ánægðari. „Rangers er einn stærsti klúbb- ur heims með mikla sögu. Það verður frábært að klæðast bláu treyjunni og ég mun gera mitt allra besta,“ segir Diouf sem var nálægt því að semja við Celtic áður en hann valdi Rang- ers. Það er auðvitað dauðasynd hjá þeim grænu en liðin mætast ein- mitt í bikarnum um næstu helgi. „Ég veit allt um ríginn á milli þess- ara tveggja liða og ég get einfaldlega ekki beðið eftir að taka þátt í einum „old firm“-leik,“ segir Diouf. Molar Giggs bestur frá upphafi Síðustu daga hefur staðið yfir kosning hjá Manchester United þar sem stuðnings- menn félagsins velja besta leikmann þess frá upphafi. Sigur- vegarinn var Ryan Giggs sem hefur spilað með liðinu alla sína tíð og unnið meðal annars ellefu Englandsmeistaratitla. Röð tíu efstu manna er svohljóðandi: 1. Ryan Giggs, 2. Eric Cantona, 3. George Best, 4. Sir Bobby Charlton, 5. Cristiano Ronaldo, 6. Paul Scholes, 7. David Beckham, 8. Roy Keane, 9. Peter Schmeichel, 10. Wayne Rooney. Sex leikir í úrvalsdeildinni Luis Suarez fær væntanlega eldskírnina með Liverpool í kvöld þegar liðið tekur á móti Stoke í ensku úrvalsdeildinni. Nóg ætti að vera um nýja leikmenn en alls fara sex leikir fram. Birmingham – Manchester City, Blackburn – Tottenham, Blackpool – West Ham, Bolton – Úlfarnir og Fulham – Newcastle eru einnig á dagskrá. Meðal nýrra leikmanna hjá liðunum má benda á Robbie Keane hjá West Ham, Sergei Kirilenko hjá Blackpool og Obafemi Martins hjá Birmingham. Þegar allt virtist stefna í að Eiður Smári Guðjohnsen yrði áfram í her- búðum Stoke kom Mark Hughes honum til bjargar og fékk hann að láni til Fulham. Eiður Smári er því aftur kominn til Lundúna og leik- ur með Fulham út tímabilið. Hann verður svo samningslaus í sumar frá Stoke þar sem hann hefur einfald- lega átt martraðartíma. Eiður Smári gekk í raðir Stoke undir lok félagaskiptagluggans í ág- úst og settu margir spurningamerki við hvað kraftaboltastjórinn Tony Pulis ætlaði að gera við svo léttleik- andi og lipran leikmann. Þær efa- semdir reyndust á rökum reistar því Eiður byrjaði ekki einn leik með Stoke og lék í heildina 67 mínútur eftir að hafa komið fimm sinnum inn á sem varamaður. Fyrir utan varaliðsbolta lék Eiður síðast knattspyrnu í lok október þeg- ar hann kom inn á sem varamaður í þremur leikjum í röð. Á þessum 67 mínútum skoraði hann ekkert mark, gaf ekki stoðsendingu og náði að- eins tveimur skotum að marki. Hjá Fulham ætti Eiður að fá sanngjarnari meðferð en Mark Hug- hes sóttist eftir að fá hann til liðsins í sumar þegar Eiður samdi við Stoke. Hjá Fulham hefur verið mikið rót á framherjunum og hafa þeir skorað afar lítið. Gæti þetta því verið kjörið tækifæri fyrir Eið að sýna sig aftur í ensku úrvalsdeildinni. tomas@dv.is Skrifaði undir við Fulham á lokadegi félagaskipta: Martröð Eiðs á enda Sloppinn Eiður leikur með Fulham út tímabilið. MYND REUTERS FJÁRHÆÐIRNAR UPP ÚR ÖLLU VALDI fyrra þar sem hann skoraði sautján mörk og gaf átta stoðsendingar. Lengi hefur verið karpað um hversu mikið Wayne Rooney kostaði Manchester United þeg- ar allt var tiltekið en þó eru flest- ir sammála um að sú upphæð hafi ekki farið yfir 30 milljónir punda. Rooney var keyptur nítján ára til Manchester United, þá búinn að sanna gildi sitt í úrvalsdeildinni og fara á kostum á Evrópumótinu í Portúgal árið 2004 þar sem hann var, ásamt Ruud van Nistelrooy, næstmarkahæsti leikmaður keppn- innar með fjögur mörk. Andy Carroll er í það minnsta fimm milljónum punda dýrari en Rooney en hefur óumdeilan- lega afrekað töluvert minna. Andy Carroll er orðinn áttundi dýrasti leikmaður sögunnar en Liverpool borgaði meira fyrir hann en Barce- lona greiddi fyrir David Villa. Villa hefur í nokkur ár verið besti fram- herji spænsku úrvalsdeildarinnar og er ríkjandi heims- og Evrópu- meistari með Spáni. Þá er einn besti markvörður sögunnar, Gian- luigi Buffon, einnig fyrir neðan Carroll á listanum. Enskir ótrúlega dýrir Undanfarin ár hefur verðið á ensk- um leikmönnum hækkað upp úr öllu valdi. Virðast þeir afskaplega lítið þurfa að afreka til að hár verð- miði sé settur á þá. Michael Carrick var til dæmis keyptur til Manchest- er United á sautján milljónir punda á sínum tíma, þótt hann sé dæmi um að það að eyða háum fjárhæð- um geti svo sannarlega borgað sig. James Milner var búinn að sanna sig sem hágæða úrvalsdeildarleik- maður hjá Aston Villa en hvort hann standi undir 28 milljóna punda verðmiða verður að koma í ljós. Ekki má svo gleyma Dav- id Bentley sem var keyptur til Tot- tenham á sautján milljónir punda fyrir að hafa verið nokkuð spræk- ur á hægri vængnum hjá Black- burn. Skemmst er frá því að segja að það var flopp. Enskir leikmenn eru í miklum metum á Englandi og hvað þá þegar þeir geta skorað mörk. Alan Shearer kostaði á sín- um tíma fimmtán milljónir punda þegar Newcastle keypti hann frá Blackburn árið 1996 en þá þótti það óraunveruleg upphæð. Wayne Rooney kostaði um 25 milljón- ir átta árum síðar og nú, fimmtán árum eftir söluna sögulegu á Alan Shearer, er maðurinn sem tók við af honum í níunni hjá Newcastle far- inn fyrir tuttugu milljónum meira en goðið sjálft kostaði. „Andy Carroll er orðinn áttundi dýrasti leikmaður sögunnar. Tuttugu milljónum dýrari en átrúnað- argoðið Andy Carroll er mikill aðdáandi Alans Shearer en hann var keyptur til Newcastle á töluvert minni pening en Carroll var seldur á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.