Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 7. febrúar 2011 Mánudagur
Strandveiðimenn eru nánast úrkula
vonar um að Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
aflétti aflamarki af tilteknum van-
nýttum fisktegundum eins og ufsa.
Þeir hafa efasemdir um að heimilt
sé að kvótasetja fisktegundir sem
síðan eru ekki nýttar, enda stang-
ist það á við atvinnufrelsisákvæði
stjórnarskrárinnar.
Jón Bjarnason jók við skötulsel-
skvótann á yfirstandandi fiskveiði-
ári og því næsta án þess að úthluta
kvótanum svo sem ráð er fyrir gert.
Þess í stað leigir ríkið út kvótann á
föstu verði. Þegar kvóta var úthlut-
að í fyrrasumar ákvað Jón að kvóta-
setja ekki úthafsrækju vegna þess að
handhafar rækjukvótans hafa ekki
nýtt kvótann nema að hluta til mörg
undanfarin ár. Þetta vakti mikla reiði
kvótahafa og innan Landssambands
íslenskra útvegsmanna. Rammi hf. á
Siglufirði ákvað að stefna ríkinu fyr-
ir að gefa ekki út úthafsrækjukvóta,
en Hafrannsóknastofnunin hafði
lagt til að kvótinn yrði 7.000 tonn á
yfirstandandi fiskveiðiári. Málið var
þingfest í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í lok nóvember og stóð til að það
fengi flýtimeðferð.
Verður Jóni stefnt aftur?
Strandveiðimenn íhuga nú að
stefna sjávarútvegsráðherra vegna
hins gagnstæða, að hafa ufsa und-
ir aflamarki, en handhafar kvótans
hafa ekkert hirt um að fullnýta hann
undanfarin ár frekar en veiðiheim-
ildirnar í úthafsrækjunnni.
„Þetta hefur verið mikið bar-
áttumál okkar í vetur enda sjálf-
sagt réttlætismál og töldum við
okkur hafa stuðning Jóns Bjarna-
sonar sjávar útvegsráðherra í mál-
inu. Ef við fengjum að veiða van-
nýttan ufsann utan kvóta gætum
við hafið veiðar í mars, en strand-
veiðarnar byrja svo í maí eins og
lög gera ráð fyrir,” segir Jón Gestur
Sveinbjörnsson, en hann er einn
helsti baráttumaður fyrir rýmk-
un atvinnuréttinda fyrir strand-
veiðimann. „Þetta gefur okkur síð-
an færi á að halda áfram veiðum í
september og október og þá færi
þetta að verða lífvænlegt.“
Málatilbúnaður strandveiði-
manna gegn kvótasetningu á ufsa
og öðrum vannýttum tegundum
byggir í stuttu máli á því að sjáv-
arútvegsráðherra verði að hafa
skýra heimild til þess í lögum að
kvótasetja nytjastofna, þar sem
kvótasetningin takmarki atvinnu-
frelsi manna. Samkvæmt stjórn-
arskránni má ekki takmarka at-
vinnufrelsi nema fyrir því liggi
almannahagsmunir og skal það
gert með lögum sem Alþingi setur.
Almannahagsmunir og
sérhagsmunir
Ofnýting nytjastofna hafsins getur
augljóslega varðað almannahags-
muni enda voru veiðar upphaflega
takmarkaðar með aðferðum kvóta-
kerfisins með það fyrir augum að
koma í veg fyrir ofveiði og ósjálf-
bærar fiskveiðar. Strandveiðimenn
líta svo á að sjávarútvegsráðherra
hafi af þessum sökum heimild til
að kvótasetja fisktegundir en verði
af framangreindum ástæðum að
gæta þess að kvótasetja aldrei teg-
undir nema þeim sé hætta búin
sökum ofveiði.
Þennan skilning sækja strand-
veiðimenn í þriðju grein laga um
stjórn fiskveiða, en þar stendur orð-
rétt: „Sjávarútvegsráðherra skal, að
fengnum tillögum Hafrannsókna-
stofnunarinnar, ákveða með reglu-
gerð þann heildarafla sem veiða
má á ákveðnu tímabili eða vertíð úr
þeim einstökum nytjastofnum við Ís-
land sem nauðsynlegt er talið að tak-
marka veiðar á.“
Með hliðsjón af auknum skötu-
selskvóta, sem sjávarútvegsráðherra
ákvað að leigður yrði út af ríkinu, sem
og ákvörðun hans um að kvótasetja
ekki vannýttan úthafsrækjustofn-
inn á yfirstandandi fiskveiðiári töldu
strandveiðimenn að Jón Bjarnason
væri reiðubúinn að ganga lengra en
hafa beðið átekta. Reyndar er nú svo
komið að varla er sporð að fá leigðan
á markaði, sem reynst hefur mörg-
um útgerðum mjög þungbært vegna
skorts á kvóta fyrir meðaflategundir
eins og ufsa, löngu og keilu.
Fórnarlömb harkalegra deilna
Í síðustu viku fengu strandveiði-
menn ótvíræð svör frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu um að varla yrði af því
að kvótinn yrði afnuminn á ufsa eða
öðrum tegundum. Engu yrði um
þokað á yfirstandandi fiskveiðiári,
enda teldu menn þar á bæ ekki laga-
heimildir fyrir slíkum breytingum.
Hugsanlegt væri þó að fara eins að
á næsta fiskveiðiári og gert var með
úthafsrækjuna á yfirstandandi fisk-
veiðiári, en það nær frá september-
byrjun til ágústloka ári síðar. En þetta
er þó aðeins talinn fræðilegur mögu-
leiki en erfiður enda málið viðkvæmt
þegar hugað væri að gagngerri end-
urskoðun fiskveiðistjórnunakerfis-
ins.
Aukin veiðiskylda, sem lögð hef-
ur verið á kvótahafa, hefur dregið úr
framboði á leigumarkaði. Það hefur
að sínu leyti skapað vaxandi vanda
meðal þeirra sem neyðast til að leigja
til sín veiðiheimildir í meðaflateg-
undum eins og löngu, keilu, ufsa og
fleiri tegundum. Nær ekkert fram-
boð er af þessum tegundum en það
þrýstir upp leiguverðinu. Þetta þyk-
ir kvótalausum strandveiðimönn-
um og útgerðum sem búa við skort
á veiðiheimildum súrt í broti á sama
tíma og sumar tegundir eru augljós-
lega vannýttar.
Engar skjótar lausnir
Í fljótu bragði virðist vandinn sá að
Jón Bjarnason hafi ekki lagaheimild-
ir né umboð samherja í ríkisstjórn-
inni til þess að grípa til ráðstafana
sem gætu valdið ófriði innan sjávar-
útvegsins og aukið samskiptavand-
ann við Landssamband íslenskra
útvegsmanna og Samtök atvinnu-
lífsins, sem hafa hótað að gera enga
kjarasamninga láti stjórnvöld verða
af því að breyta kvótakerfinu í óþökk
stórútgerðarinnar. Yfirlýsingar SA á
dögunum í þessa veru urðu reyndar
tilefni til frægra ummæla Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra á
flokksráðsfundi Samfylkingarinnar
„ Í síðustu viku
fengu strandveiði-
menn ótvíræð svör frá
sjávarútvegsráðuneytinu
um að varla yrði af því
að kvótinn yrði afnuminn
á ufsa eða öðrum
tegundum.
KvótaKerfið í
ógnarjafnvægi
n Strandveiðimenn úrkula vonar um breytingar n Ógnarjafnvægi
ríkir milli útvegsmanna og stjórnvalda um frekari tilslakanir í þágu
strandveiða n Frumvarp Jóns Bjarnasonar um róttækar breytingar
neðarlega í bunka ríkisstjórnarinnar n Hótanir ganga á víxl
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
Í eldlínu hagsmunaátaka Bæði kvótahafar og hinir sem telja sig afskipta og óréttlæti
beitta í kvótakerfinu sækja að Jóni Bjarnasyni sjávarútvegsráðherra, einnig með málshöfð-
unum. Mynd Sigtryggur Ari
Launin og kvótakerfið Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, og útgerðarmenn mótmæltu harðlega þegar Jóhanna Sigurðardóttir
fullyrti í ræðu að atvinnurekendur hefðu tekið kjarasamninga í gíslingu í þágu útgerðarmanna. Með þeim á myndinni er Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, en hann tók undir orð Jóhönnu. Mynd rÓBErt rEyniSSon