Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 14
Fólki getur fundist það óyfirstígan-
legt verkefni að bæta mataræði sitt
og mörgum fallast líklega hendur
við þá tilhugsun. Anna Sigríður Ól-
afsdóttir, dósent í næringarfræði
við menntavísindasvið Háskóla
Íslands, segir að það þurfi ekki að
vera raunin. „Við þurfum í raun-
inni alls ekki að kollvarpa okkar
fyrri venjum til að ná hollari mat-
arvenjum,“ segir hún. Það þurfi
ekki að vera erfitt og oft þurfi ein-
ungis pínulítil skref til að ná fram
mjög miklum breytingum. „Í raun-
inni þarf sjaldnast að breyta um
heldur einungis að lagfæra venjur.“
Það sem við þurfum að hafa
í huga er að reyna að borða fjöl-
breyttari fæðu sem minnkar um
leið mettaða fitu og viðbættan syk-
ur. „Ef maður skoðar hvað Íslend-
ingar eru almennt að borða þá
erum við á ágætu róli með fituna
hvað hlutfallið varðar en borð-
um helst til mikið af mettaðri fitu.
Við borðum heldur ekki of mikið
af kolvetnum eins og stundum er
haldið fram en erum þó að borða
röng kolvetni,“ segir Anna Sigríður
og bætir við að við innbyrðum of
mikið af viðbættum sykri og okk-
ur skorti trefjagjafana. Hún segir
að það sé kjarninn sem við þurfum
að snúa við. Við þurfum að auka
neyslu okkar á ávöxtum, grænmeti
og trefjum en nauðsynlegt sé að ná
öllum fæðuflokkum. Það sé grund-
vallaratriði sem við náum ekki allt-
af. Anna Sigríður setti saman holl-
an, fjölbreyttan og næringarríkan
matseðil.
Þjónustulund
n Bílamálun Sigursveins á Hyrj-
arhöfða 4 í Reykjavík fær hólið að
þessu sinni. Afar ánægður viðskipta-
vinur vill koma á framfæri hve góða
þjónustu bíleigendur fá þar. „Ég
fór þangað með bílinn minn vegna
tjóns en það þurfti að laga húdd-
ið að framan og stuðarann. Það var
ekki nóg með að þeir gerðu við það
heldur sprautuðu þeir allan stuðar-
ann auk frambretta sem voru orðin
ljót og mislit. Þetta gerðu þeir
án þess að taka aukagjald
fyrir. Eins bauð starfsmaður-
inn mér að koma fljótlega og
láta laga ljós án mikils
kostnaðar. Hann fór
miklu lengra í þjón-
ustulundinni en hann
þurfti,“ segir viðskipta-
vinurinn.
Fylgjumst með
smurolíu bílsins
Það er algengara að bifreiðaeig-
endur trúi því að ekki sé lengur
nauðsynlegt að fylgjast með stöðu
smurolíunnar í vél bílsins. Félag
íslenskra bifreiðaeigenda leiðréttir
þann misskilning á heimasíðu sinni.
Þar segir að fólk telji að vélar og olíur
séu orðnar það góðar að ekki þurfi
að skipta jafn oft um olíu. Eins að
bílar séu hættir að brenna olíunni
og óhætt sé jafnvel að keyra tíu til
fimmtán þúsund kílómetra áður
en farið er með bílinn í smurningu
og olíuskipti. Þar segir einnig að oft
megi rekja þennan misskilning til
sölumanna sem segja kaupendum
þessi ósannindi. Það gerist æ oftar
að bílar bræði úr sér og eyðileggist
vegna þess en það hefur mikil fjárút-
lát í för með sér. Bílaeigendur eru því
hvattir til að fylgjast með olíunni á
bílnum og fara með hann reglulega í
smurningu og olíuskipti.
Baðst ekki
afsökunar
n Lastið fær Miðbæjar hársnyrtistof-
an vegna uppákomu sem varð þar.
Viðskiptavinur varð fyrir því óláni að
sitja í stólnum þegar skammhlaup
varð í hárþurrku, sem var verið að
nota til að þurrka á honum hárið,
með tilheyrandi hvelli. Viðskiptavin-
inum – rétt eins og hárgreiðslustúlk-
unni – brá við skammhlaupið og
kipptist hann til. „Hárgreiðslustúlk-
an fór rakleiðis að tala við samstarfs-
konu sína og spurði
aldrei hvort allt væri í
lagi með viðskiptavin-
inn sem sat í áfalli í
stólnum. Það var ekki
á neinum tímapunkti
sem hún baðst afsökunar á
þessum óþægindum fyrir
viðskiptavininn.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
LOF&LAST
Ekki úrskurðað í tölvumúsarmálinu Á neytendasíðum
DV á miðvikudaginn síðasta kom fram að Neytendstofa hefði úrskurðað í máli
neytanda sem leitaði til stofunnar. Þetta er rangt. Það var kærunefnd lausafjár-
og þjónustukaupa sem úrskurðaði í málinu og leiðréttist það hér með. Í fréttinni
var sagt frá konu sem keypti tölvumús en vegna mistaka greiddi hún um helming
þeirrar upphæðar sem varan átti að kosta. Fyrirtækið vildi ekki að viðskiptin stæðu
og leitað var til Neytendastofu sem sendi málið til kærunefndarinnar. Nefndin
komst að þeirri niðurstöðu að þar sem fyrirtækið hefði samþykkt að taka við
vörunni aftur og endurgreiða kaupanda yrði málið látið niður falla.
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 7. febrúar 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 208,8 kr. Verð á lítra 208,8 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 207,8 kr. Verð á lítra 207,8 kr.
Verð á lítra 210,8 kr. Verð á lítra 209,8 kr.
Verð á lítra 207,5 kr. Verð á lítra 207,5 kr.
Verð á lítra 208,6 kr. Verð á lítra 208,6 kr.
Verð á lítra 207,8 kr. Verð á lítra 207,8 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Höfuðb. svæðið
Melabraut
Algengt verð
Besta og versta mataræðið
n Lítil breyting á mataræði getur fært þig úr óhollustu í hollustu n Hér er matseðill sem gefur frábæra næringu og hæfilega orku
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Morgunmatur
Hafragrautur eða bygggrautur með mjólk út á
Ferskir eða þurrkaðir ávextir og hnetur og fræ út á grautinn
Barnaskeið af lýsi, skolað niður með litlu glasi af hreinum
ávaxtasafa
n Hafragrautur inniheldur vatnsleysanlegar trefjar sem stuðla að lækkun á kólesteróli.
Þar að auki er haframjölið ódýrt og því varla hægt að velja sér hagstæðari morgunmat.
n Með því skella í hann nokkrum þurrkuðum ávöxtum erum við komin með enn hollari
kost og fáum sæta bragðið og næringarefnin um leið. Með fræjum og hnetum bætum við
við góðri fitu, fjölómettuðum fitusýrum og aukum um leið fjölbreytni próteingjafa. Oft er
þetta litli punkturinn yfir i-ið til að ná fjölbreytninni dag frá degi.
n Val á mjólk út á grautinn skiptir ekki höfuðmáli þar sem um lítið magn er að ræða en
yfirleitt skal velja fitulitlar mjólkurvörur til að takmarka mettuðu fituna.
n Þar sem við lifum á norðurhjara veraldar er nauðsynlegt fyrir okkur að fá D-vítamín
einhver staðar frá. D-vítamíngjafarnir eru fáir fyrir utan lýsið og þrátt fyrir neyslu á
feitum fiski endrum og eins þá er það ekki nóg. Feitur fiskur er ekki matur sem við borðum
daglega og því nauðsynlegt að lýsið eða annar D-vítamíngjafi sé hluti af daglegri neyslu.
Fyrir þá sem finnst erfitt að taka lýsi má skola því niður með glasi af hreinum ávaxtasafa.
Bragðmikill safi dregur úr lýsisbragðinu og C-vítamín fæst í leiðinni.
Millibiti að morgni
Ávextir
n Neysla grænmetis og ávaxta minnkar líkurnar á mörgum langvinnum sjúkdómum, svo
sem hjarta- og æðasjúkdómum, ýmsum tegundum krabbameina, sykursýki 2 og offitu.
Hollusta þessarar fæðutegundar er fólgin í miklu magni af til dæmis trefjum, fólansíni,
kalíum, magnesíum, andoxunarefnum eins og C- og E-vítamínum. Þessi efni stuðla öll
að verndandi áhrifum gegn sjúkdómum en áhrifin aukast eftir því sem meira er borðað af
mismunandi ávöxtum og grænmeti. Efni í töfluformi virðast ekki hafa sömu áhrif.
n Ef svengdin er farin að gera vart við sig og morguninn er langur er gott að bæta inn
ávaxtabita. Ef hann er ekki nýttur má geyma hann til hádegis. Grundvallaratriðið hér er
að millibitinn er háður því hvenær morgunmatur var borðaður og hve langt er í hádegis-
matinn. Talað er um að láta líða um það bil 3 til 4 tíma á milli mála. Því er mikilvægt að
finna jafnvægið og vera ekki orðinn illa svangur þegar kemur að mat.
„ Við þurfum í
rauninni alls ekki
að kollvarpa okkar fyrri
venjum til að ná hollari
matarvenjum.
Anna Sigríður Ólafsdóttir Er lektor í
næringarfræði. MYND ODDVAR HJARTARSON
Æskileg samsetning fæðunnar MYND LÝÐHEILSUSTÖÐ