Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 7. febrúar 2011 Mánudagur Rio missir af landsleik og nágrannaslag n Laugardagurinn var ömurlegur fyrir Manchester United því liðið tapaði ekki bara sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni gegn botnliði Úlfanna heldur meiddist Rio Ferdinand einn- ig á kálfa. Eftir tapið greindi Sir Alex Ferguson frá því að Ferdin- and yrði frá í „nokkrar vikur.“ Tíðindin eru ekki heldur góð fyrir landsliðsþjálfara Englands, Fabio Capello, því Rio, sem hefur verið frábær á leiktíð- inni, missir af æfingaleik Englands gegn Danmörku á miðvikudaginn. Hann verður heldur ekki orðinn klár fyrir nágrannaslaginn gegn Manchester City um næstu helgi. Kubica stórslasaður n Pólverjinn Robert Kubica sem ekur fyrir Lotus Renault í Formúlu 1 slasaðist alvarlega í bílslysi í gær. Hann velti Skoda Fabia bifreið sinni á miklum hraða og endaði á steinvegg. Ku- bica var á leið í keppni í Su- per2000-hluta Rally Ronde di Andora-keppninnar þegar atvikið átti sér stað. Náði aðstoðaröku- maður hans að skríða út úr flak- inu en klippa þurfti Kubica út og fljúga með hann í þyrlu á næsta sjúkrahús. Er Kubica illa haldinn og fyrstu fregnir bentu til þess að hann væri margbrotinn. Pacquiao kveður WBC n Ofurhnefaleikastjarnan Manny Pacquiao ætlar að láta af hendi WBC-heimsmeistaratitil sinn í hnefaleikum án bardaga en hann náði í þann titil með sigri á Mexíkó- anum Antonio Margarito í nóv- ember. Ástæð- an er sú að Pacquiao ætlar ekki oftar að berjast við menn sem eru þyngri en veltivigtin leyfir, 147 pund. Bardaginn gegn Margarito var takmarkaður við 150 pund og munaði 17 pundum á köppun- um tveimur. Pacquiao hafði sigur á stigum en var gífurlega illa far- inn eftir bardagann þar sem högg Margaritos voru svo þung. Arsenal horfir til Given n Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er loks talinn ætla að leysa mestu vandræðastöðu liðsins í sumar, markvarðarstöðuna. Breskir miðlar héldu því fram í gær að hann ætlaði ekki að taka sénsinn enn eina ferð- ina og láta hinn unga Wojciech Szcsesny verja mark liðsins næsta tímabil þrátt fyrir að hann muni eflaust gera það út yfirstandandi tímabil. Horfir Wenger nú til Shay Given sem fær að dúsa á bekknum hjá Manchester City. Given hefur verið einn albesti markvörður úrvals- deildarinnar í mörg ár og heldur Wenger að hann gæti fengið hann á sjö milljónir punda. Molar Fyrstu meistararnir krýndir Keflavík varð meistari í fyrsta Fótbolta.net-mótinu en það lagði ÍBV í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum um helgina. Andri Ólafsson kom ÍBV yfir með vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Haraldur Freyr Guðmundsson jafnaði metin í seinni hálfleik. Í vítaspyrnukeppninni hafði Keflavík betur, 4–3, en sigurinn innsiglaði Grétar Ólafur Hjartarson. ÍA tók þriðja sætið í mótinu með sigri á HK í leiknum um bronsið, 3–0, og Grindavík vann Stjörnuna í leiknum um fimmta sætið, einn- ig í vítaspyrnukeppni. Leikurinn um sjöunda sætið fer fram á þriðjudaginn en þar mætast Íslandsmeistarar Breiðabliks og bikarmeistarar FH. Fram komst ekki áfram Kvennalið Fram í handbolta er úr leik í Evrópukeppni bikarhafa en það tapaði tvívegis fyrir þýska liðinu Bloomberg-Lippe í Safamýrinni um helgina, samanlagt 56–53. Bloomberg-Lippe vann fyrri leikinn með tveimur mörkum, 26–24, en hafði mest tíu marka forskot, 11–1. Í seinni leiknum, á laugardaginn, hafði Fram betur í hálfleik, 15–13, en of mörg sóknarmistök gerðu út um vonir Safamýrar- stúlkna. Á laugardaginn voru þær Karen Knútsdóttir og Stella Sigurðardóttir markahæstar með átta mörk hvor. „Svona áfangi hefur mikið að segja fyr- ir svona lítið bæjarfélag. Þetta gleð- ur klárlega einhverja,“ segir Benedikt Guðmundsson, þjálfari 1. deildar liðs Þórs Þorlákshafnar í körfuboltanum. Þór vann um helgina sinn fjórtánda leik í röð í 1. deildinni þegar liðið lagði Val á heimavelli. Með hagstæðum úr- slitum í öðrum leikjum var það ljóst að Þór væri komið upp í Iceland Ex- press-deildina í þriðja skiptið. Bene- dikt hefur náð undraverðum árangri með Þórsliðið sem hefur ekki tapað leik í deildinni. DV sló á þráðinn til hans og spurði hvernig honum hefði verið inn- anbrjósts þegar lokaflautið gall. „Ég vissi ekkert um stöðuna í hinum leikj- unum og hélt því að við þyrftum að ná í alla vega einn sigur til viðbótar. Síðan heyrði ég að Þór Akureyri hefði tapað og þá væri þetta komið. Ég fagnaði samt ekkert eins og óður maður þegar loka- flautið kom,“ segir Benedikt. Hafði alltaf trú á árangri „Ég er bara rosalega ánægður fyrir hönd strákanna, fólksins sem er að mæta á leikina, stjórnarinnar og allra. Þetta er flottur áfangi fyrir liðið,“ segir Benedikt en óraði hann fyrir taplausu tímabili þegar hann tók við liðinu í fyrrasumar. „Nei, maður sér svoleiðis ekkert fyrir sér. Við erum samt búnir að vera nokk- uð einbeittir að vinna þessa leiki og við ætlum ekkert að slaka á núna. Það eru fjórir leikir eftir og þá ætlum við að vinna líka. Við erum með þunnan hóp sem má lítið við meiðslum,“ segir hann. „Ég hafði samt alltaf trú á að við gætum farið upp. Við erum með sterk- an heimavöll og gríðarlega flotta stuðn- ingsmannasveit. Ég vissi um leið og ég tók við að við hefðum það sem þurfti til að gera eitthvað í vetur. Ég var samt ekki að sjá fram á að vera taplausir í febrú- ar. OKkar var spáð þriðja sæti en það þarf allt að ganga upp til að svona ár- angur náist. Heppnin þarf líka að vera með þér,“ segir Benedikt en stuðnings- mannasveitin, Græni drekinn, hefur fylgt liðinu út um allt og komið því yfir erfiðustu hjallana. „Þessir strákar eru frábærir. Ég held að eini leikurinn sem þeir mættu ekki á hafi verið gegn Hetti á Egilsstöðum. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir lið að hafa svona öfluga stuðningsmenn. Það þekki ég úr KR þar sem Miðjan var. Það eru algjör forréttindi fyrir mig að hafa haft bæði Græna drekann og Miðjuna á bak við mig. Þetta eru klárlega tvær bestu stuðningsmannasveitirnar á landinu.“ Mikill vilji Þórsliðið er borið uppi af ungum heimamönnum á aldrinum 16–22 en í kringum þá eru tveir sterkir útlending- ar sem Benedikt segir hafa hjálpað lið- inu mikið. „Þeir hafa verið alveg þvílíkt duglegir og æfa hér allan daginn. Það er frábært fyrir ungu strákana að sjá svona atvinnumenn æfa allan daginn og hafa til að leiða sig áfram í dugnaðinum. Að vera með svona atvinnumenn er gulls ígildi,“ segir Benedikt sem hefur á löng- um þjálfaraferli sínum fengið til lands- ins alls kyns týpur af erlendum leik- mönnum. „Hingað hafa komið menn sem nenna ekkert að æfa en þessir strákar eru réttum megin við strikið,“ segir hann. En hvað er það sem gerir liðið svona ósigrandi? „Mikill vilji,“ svar- ar Benedikt um hæl. „Menn eru mjög einbeittir, leggja mikið á sig og eru til- búnir að gera það sem þarf til. Þegar ég tók við hurfu nokkrir strákar á braut en þeir sem eftir voru hafa verið tilbúnir í nánast hvað sem eru. Þeir gera allt sem þeir geta og meira til. Dugnaðurinn í liðinu er mikill. Því þó hópurinn sé fámennur er hann góðmennur,“ segir Benedikt. Vistaskiptin viðbrigði Framganga Þorlákshafnar Þórsara á tímabilinu er enn ein rósin í hnappagat Benedikts Guðmundssonar sem hefur afrekað ótrúlega hluti sem þjálfari þrátt fyrir ungan aldur. Hann þjálfaði á sín- um tíma 1982-árganginn hjá KR sem innihélt meðal annars Jón Arnór Stef- ánsson en þeir drengir töpuðu varla leik. Hann var einnig þjálfari U18 ára landsliðs Íslands þegar það lagði ríkj- andi Evrópumeistara Frakka í frægum leik. Með félagsliðum hefur Benedikt gert frábæra hluti. Hann kom ungu Fjölnisliði upp í úrvalsdeildina 2004 og fór með það í úrslitakeppnina þar. Hann tók síðan við uppeldisfélagi sínu, KR, og gerði það að Íslandsmeistara 2007 og 2009. Í fyrra stýrði hann kvennaliði KR og árangurinn sá sami, Íslandsmeistari. Hversu langt Benedikt kemst með Þór vill hann lítið segja. „Ég vil eiginlega bara ekkert hugsa út í það. Það er voðalega erfitt að gera upp á milli. Síðasti sigurinn er oftast sá sætasti og maður stefnir síðan á þann næsta,“ segir hann en hvernig var þá að skipta yfir til Þórlákshafnar úr Vestur- bænum? „Það voru auðvitað viðbrigði. Það er sérstakt að koma úr stórveldi í svona lít- ið bæjarfélag en ef hugurinn er til staðar hjá leikmönnum, og hjartað, þá geta öll lið verið stór. Félögin eru auðvitað bara það fólk sem starfar í kringum þau.“ segir Benedikt. Flutti og fór „all in“ „Þetta var bara þannig tímapunktur hjá mér að ég var tilbúinn að taka þessari áskorun,“ segir Benedikt um ákvörðun- ina um að taka við Þór í fyrrasumar. „Að taka við liði í næstefstu deild og koma því til metorða er alveg jafnspennandi og vera að berjast um titla í efstu deild. Ég sé svo sannarlega ekki eftir komu minni hingað,“ segir hann en Benedikt tók skrefið til fulls og flutti til Þorláks- hafnar. „Já, ég fór bara „all in“. Ég byrjaði á að keyra þetta en svo kom hugmynd frá konunni um að prófa eitthvað nýtt. Við ákváðum því bara að flytja. Þetta er ekki nema hálftíma frá bænum þannig að það er alltaf hægt að skjótast. Við eigum þrjú börn og Þorlákshöfn er yndislegur staður til að vera á með fjölskyldu,“ segir Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn sem mun leika á meðal þeirra bestu á næsta tímabili. n Þór Þorlákshöfn taplaust í 1. deildinni í körfu og komið upp í efstu deild n Enn ein rósin í hnappagat Benedikts Guðmundssonar þjálfara n Skildi við Vesturbæjarstórveldið, flutti til Þorlákshafnar og fór „all in“ n Stuðningsmannasveitin Græni drekinn mætir á alla leiki ó igran i Græni drekinn Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Frábær árangur Allt sem Benedikt snertir verður að gulli. Mynd dAVíð ÞóR GuðlAuGSSon Frábær stuðningsmannasveit Græni drekinn fylgir Þórsurum hvert sem er og lætur vita af sér. Mynd dAVíð ÞóR GuðlAuGSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.