Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 17
Erlent | 17Mánudagur 7. febrúar 2011
Nýtt ár er gengið í garð í Kína:
Kínverjar fagna kanínunni
Hundruð þúsunda söfnuðust saman
við Viktoríu-höfn í Hong Kong á laug-
ardag til að fagna nýju ári, en Kínverj-
ar fagna nú ári kanínunnar sem hófst
3. febrúar. Flugeldar skipa veigamik-
inn sess í hátíðarhöldunum, en Kín-
verjar hafa verið brautryðjendur í
flugeldasprengingum frá alda öðli.
Flugeldarnir gegna líka veigamiklu
hlutverki meðal Kínverja, en þeir eru
taldir hrekja á brott illa anda og skapa
þar með hreint borð fyrir nýja árið
sem nú er gengið í garð.
Kanínan er fjórða dýrið í röðinni af
12 sem eru í kínverska dýrahringnum.
Kanínan tekur við af tígrisdýrinu og
segja stjörnuspekingar það vera kær-
komna tilbreytingu. Kanínan er talin
boða þægindi og rólegheit auk þess
sem rómantík á það til að blómstra.
Gott er að hefja sambönd á ári kanín-
unnar sem og að ganga í hjónaband. Tilkomumiklir flugeldar Fáir kunna betur á flugelda en Kínverjar. MYND REUTERS
Húsfélag hinnar sögufrægu Dakota-
byggingar í New York hefur verið sak-
að um kynþáttafordóma. Íbúðabygg-
ingin er sennilega þekktust fyrir að
hafa verið heimili Johns Lennons á
meðan hann bjó í New York á 8. áratug
síðustu aldar. Hún er einnig ein eftir-
sóttasta íbúðabygging borgarinnar og
er það hægara sagt en gert að verða sér
úti um íbúð í henni. Þegar íbúð losn-
ar þurfa áhugasamir að senda inn um-
sókn til húsfélags byggingarinnar sem
tekur það að sér að velja hæfasta um-
sækjandann. Er umsóknarferlið svo
strangt að það er ekki óalgengt að hús-
félagið láti íbúðir frekar standa tóm-
ar, en að veita óæskilegum nágrönn-
um kost á því að kaupa þær. Nú hefur
Alphonse Fletcher, vellauðugur, þel-
dökkur hlutabréfamiðlari, sakað hús-
félagið um kynþáttafordóma.
Taka hvíta fram yfir
Fletcher hefur reyndar búið í Dakota-
byggingunni í 20 ár en um nokkurra
ára skeið hefur hann sóst eftir því að
kaupa íbúðina við hlið hans eigin
íbúðar. Þegar Fletcher flutti inn fyr-
ir 20 árum var hann einhleypur en er
nú giftur og sífellt stækkar fjölskylda
hans – því vill hann einfaldlega stækka
við sig. Fletcher hefur nú farið í mál
við húsfélagið, sem hann segir að mis-
muni öllum þeim sem eru einfaldlega
ekki hvítir á hörund. Fletcher sjálfur
var reyndar formaður húsfélagsins um
nokkurra ára skeið, og ætti hann því að
hafa reynslu af hvers kyns mismunun
– hafi hún átt sér stað. Meðal þeirra
sem hefur verið neitað um að fjárfesta
í íbúð í Dakota eru Billy Joel, Melanie
Griffith og söngkonan Cher.
Robertu Flack mismunað
Sem dæmi um kynþáttamismunun
af hálfu húsfélagsins nefnir Fletcher
dæmi þeldökku söngkonunnar Ro-
bertu Flack, sem er þekktust fyrir lag-
ið „Killing Me Softly“. Fletcher segir
að húsfélagið hafi kerfisbundið reynt
að niðurlægja Flack þegar baðkar-
ið í íbúð hennar brotnaði. Hún hafi
sótt um að fá baðkarið lagað en í stað-
inn mætt litlu öðru en kynþáttaníði,
að sögn Fletchers. Þá er Flack einn-
ig hundaeigandi eins og margir aðr-
ir íbúar Dakota- byggingarinnar. Flack
hefur hins vegar verið meinað að taka
hund sinn með í lyftu byggingarinnar,
allt síðan hún flutti inn á 8. áratugn-
um. Það sama gildir hins vegar ekki
um aðra hundaeigendur, sem valsa
um með hunda sína beint inn í lyftuna.
Síðasta heimili Lennons
Reynist ásakanir Fletchers á rökum
reistar getur það haft alvarlegar af-
leiðingar í för með sér fyrir húsfélag
byggingarinnar. Gætu meðlimir hús-
félagsins jafnvel átt á hættu að missa
íbúðir sínar. Dakota-byggingin er sem
áður segir ein eftirsóttasta byggingin í
New York, en hún er staðsett við hlið
Central Park á besta stað á Manhatt-
an. Í desember síðastliðnum voru lið-
in rétt 30 ár frá því að Mark Chapman,
25 ára sturlaður maður, myrti bítilinn
fyrrverandi John Lennon. Chapman
skaut Lennon fjórum sinnum í bakið á
meðan verðandi Íslandsvinurinn Yoko
Ono gat lítið annað gert en að horfa á í
skelfingu sinni.
„Hún hafi sótt um
að fá baðkarið
lagað en í staðinn mætt
litlu öðru en kynþáttaníði.
n Húsfélagið í einni frægustu byggingu New York er sakað um kynþátta-
fordóma n Í byggingunni bjó eitt sinn John Lennon, sem barðist lengi fyrir
réttindum minnihlutahópa n Söngkonan Roberta Flack niðurlægð
HÚSFÉLAG MEÐ
KYNÞÁTTAFORDÓMA
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Dakota-byggingin við Central Park
Var meðal annars notuð við tökur á kvikmynd
Romans Polanskis, Rosemary's Baby.
Myrtur við innganginn Frægasti íbúi
Dakota-byggingarinnar var tvímælalaust
John Lennon. Hann yrði eflaust ósáttur með
ásakanir um kynþáttafordóma á hendur
húsfélaginu.
Flóð í Kuala
Lumpur
Skömmu fyrir helgi hófst úrhellis-
rigning í Kuala Lumpur sem orsak-
aði ein verstu flóð í manna minnum
í landinu. Að minnsta kosti fimm
manns hafa látist í hamförunum en
óttast er að sú tala geti orðið talsvert
hærri. Um 40 þúsund manns þurftu
að flýja heimili sín og gista í sérstök-
um neyðarskýlum sem stjórnvöld
reistu víðsvegar um landið. Alvar-
legust voru flóðin í héraðinu Johor
Baru í suðurhluta landsins en þar
rigndi svo mikið að stjórnvöld þurftu
að loka neyðarskýlunum og flytja
um 30 þúsund manns í norðurhluta
landsins.
Mansal á
Super-Bowl
Á sunnudaginn fór fram í Banda-
ríkjunum stærsti íþróttaviðburð-
ur þar í landi, þegar úrslitaleikur-
inn í amerískum ruðningi fór fram
í Dallas í Texas. Ýmis samtök sem
hafa beitt sér gegn mansali og vændi
hafa vakið athygli á því að í kring-
um þennan úrslitaleik, sem gengur
iðulega undir nafninu „Ofurskálin“,
er mjög mikið um vændi og mansal.
Leikurinn er mikil gósentíð fyrir þá
sem vilja hagnast með því að gera
út á vændi, og er mjög algengt að
þar sé um að ræða ólögráða stúlkur
sem hafa verið hnepptar í kynlífs-
prísund. Í Bandaríkjunum er talið að
um 300 þúsund ólögráða stúlkur sé
neyddar í - eða leiðist út í - vændi á
hverju ári.
Arkitekt hneyksl-
ast á Parísarbúum
Bandaríski arkitektinn Frank Gehry,
sem hefur meðal annars hannað
Guggenheim-safnið í Bilbao, er gjör-
samlega hneykslaður á íbúum Par-
ísar, höfuðborgar Frakklands. Gehry
hafði fengið það verkefni að hanna
risavaxna byggingu sem gekk undir
nafninu Skýið. Gehry hafði lokið
við hönnun sína og allt virtist vera
klárt fyrir framkvæmdir þegar hópur
íbúa í vesturhluta Parísar, þar sem
Skýið átti að rísa, kærði skipulagið
á byggingunni. Nú hafa dómstólar
úrskurðað að ekki megi byggja Skýið
og er Gehry æfur af þeim sökum.
„Það mætti halda að Parísarbúar vilji
setja borg sína í formalín henni til
verndunar. Þetta er fáránlegt.“