Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Blaðsíða 21
Hermann fæddist á Húsavík en ólst upp á Laugum í Reykjadal. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1972, Fil.kand.-prófi í félagsfræði, fé- lagsmannfræði og þjóðhagfræði við Háskólann í Gautaborg 1980, prófum í uppeldis- og kennslufræði við KHÍ 1989 og doktorsprófi í félagsfræði við Háskólann í Gautaborg 1996. Her- mann hefur ritstýrt og gefið út nokkr- ar bækur og skrifað fjölda greina. Hann var í rannsóknarleyfi við Háskólann í Gautaborg 1994, var Fulbright-gistifræðimaður við Wis- consinháskóla í Madison 1997, gisti- fræðimaður í boði Háskólans í Essex á Englandi 2000 til 2001 og háskólann í Berkeley í Kaliforníu 2008 til 2009. Hermann er dósent í félagsfræði við framhaldsnámsdeild heilbrigðisvís- indasviðs Háskólans á Akureyri, vara- formaður Jafnréttisráðs HA og vara- maður háskólakennara í háskólaráði. Hermann stundaði sveitastörf á unglingsárunum, í Skagafirði og Reykjadal, var byggingaverkamaður á Laugum í nokkur sumur og í New York 1969, starfsmaður við Kísiliðj- una við Mývatn þrjú sumur, var gjald- keri Norðurverks við Laxárvirkjun og veiðivörður víð Laxá 1972, starfs- maður við Kleppsspítala 1974–1975, starfsmaður við Sumarhótelið á Laug- um 1976 og starfsmaður á stofnunum fyrir þroskahefta í nágrenni Gauta- borgar 1977 og 1978. Hermann var forfallakennari við Héraðsskólann á Laugum 1976, stundakennari við MA 1988, kenndi við VMA 1986-95, lektor í félagsfræði við HA 1987–97 og er dósent þar frá ársbyrjun 1997. Hann sinnti náms- ráðgjöf við MA 1986–88, við VMA 1986–88 og kenndi á vegum verka- lýðsfélagsins Einingar og Akureyrar- bæjar 1990–93. Hermann sat í Rannsóknarnáms- ráði félagsfræðideildar Háskólans í Gautaborg 1981–84, var formaður Fé- lags starfsfólks við HA 1991–92, sat í kennslumálanefnd HA 1992–93, var formaður samninganefndar Félags háskólakennara á Akureyri 1992–93, formaður tölvunefndar HA 1997– 2000, hefur verið formaður dóm- nefndar um lektorshæfi og dósent- hæfni, fulltrúi kennara í háskólaráði, varaforseti háskólaráðs HA, auk þess sem hann hefur gegnt fjölda annarra stjórnunar- og trúnaðarstarfa fyrir HA. Hermann var deildarforseti Heil- brigðisdeildar Háskólans á Akureyri frá 2005 til 2009. Hermann sat í stjórn Félags ís- lenskra námsmanna í Gautaborg og nágrenni 1977–78, var fulltrúi SÍNE í Gautaborg 1977–78, sat í trúnaðar- ráði stúdentagarðsins í Gautaborg frá 1977–78, sat í stjórn Félag félags- fræðinga í Gautaborg 1986–87, sat í framkvæmdaráði Samfylkingarinnar á Norðurlandi eystra 1999–2000, og var varaformaður Samfylkingarinn- ar á Norðurlandi eystra 2000 til 2001 og formaður kjördæmisráðs 2001 til 2005. Hermann var skoðunarmaður bæjarreikninga á Akureyri frá 2001 til 2009. Hermann er varaformaður Sögufélags Eyfirðinga. Fjölskylda Kona Hermanns frá 1992 er Karín María Sveinbjörnsdóttir, f. 12.10. 1951, framhaldsskólakennari. Hún er dóttir Sveinbjörns Kristjánssonar, f. 23.11. 1923, búsetts í Hafnarfirði, og Sylvíu Kristjánsson, f. 25.3. 1924, d. 27.10. 2000. Dóttir Hermanns og Karínar er Sylvía Ósk Hermannsdóttir, 24.10. 1994, framhaldsskólanemi. Kjörsonur Hermanns frá fyrra hjónabandi er Arnar Freyr S. Her- mannsson, f. 28.4. 1985. Börn Karínar frá fyrra hjónabandi eru Árni Þór Erlendsson, f. 15.5. 1976, starfar við tölvunar- og kerfisþjón- ustu, en kona hans er Hildur Elísabet Ingadóttir, f. 8.8. 1975, bankastarfs- maður; Harpa Ýr Erlendsdóttir, f. 9.2. 1978, iðjuþjálfi. Systkini Hermanns: Friðrik Ágúst Óskarsson, f. 13.5. 1949, stórkaup- maður, búsettur í Mosfellsbæ; Knút- ur Óskarsson, f. 23.2. 1952, fram- kvæmdastjóri, búsettur í Mosfellsbæ; Una María Óskarsdóttir, f. 19.9. 1962, uppeldis- og menntunarfræðing- ur, bæjarfulltrúi í Kópavogi, búsett í Kópavogi. Foreldrar Hermanns eru Óskar Ágústsson, f. 8.11. 1920, íþróttakenn- ari, og k.h., Elín Friðriksdóttir, f. 8.8. 1923, húsmæðrakennari. Þau voru lengst af búsett á Laugum en eru nú búsett í Kópavogi. Ætt Óskar er sonur Ágústs, b. á Sauðholti í Holtum í Rangárvallasýslu Jónssonar. Móðir Óskars var María, systir Sig- urjóns bólstrara, afa Ingólfs Margeirs- sonar rithöfundar. María var dóttir Jóhanns, b. í Ósgröf á Landi, bróður Jónasar, langafa rithöfundanna Svövu og Jökuls Jakobsbarna. Jóhann var sonur Jóns, b. í Mörk á Landi Finn- bogasonar af Reynifellsætt. Móð- ir Maríu var Sigríður Eiríksdóttir, frá Stokkseyri Höskuldssonar, b. á Kirkjulæk Eiríkssonar, af Víkings- lækjarætt. Elín er dóttir Friðriks Kristjáns, b. að Sunnuhvoli í Blönduhlíð Hall- grímssonar, b. þar Friðrikssonar. Móðir Elínar var Una Sigurðar- dóttir, á Blönduósi Davíðssonar. Hermann er að heiman, ásamt fjölskyldu sinni. Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Mánudagur 7. febrúar 2011 Til hamingju! Afmæli 7. febrúar Til hamingju! Afmæli 8. febrúar 30 ára „ Thomas Banakas Rauðarárstíg 1, Reykjavík „ Auður Ösp Ólafsdóttir Mjóuhlíð 14, Reykjavík „ Guðni Jóhann Traustason Blómsturvöllum 14, Neskaupstað „ Guðbrandur Þór Bjarnason Efstahrauni 22, Grindavík „ Magnús Þór Gunnarsson Vatnsnesvegi 23, Reykjanesbæ „ Kristinn Sigurberg Traustason Strandgötu 29a, Eskifirði „ Konráð Örn Skúlason Birkimel 8a, Reykjavík „ Jón Gunnlaugur Stefánsson Kjalarsíðu 12f, Akureyri „ Jakob Guðlaugsson Silfurbraut 36, Höfn í Hornafirði 40 ára „ Gwyn Hlíf Suson Salinas Þorláksgeisla 9, Reykjavík „ Klara Eiríka Finnbogadóttir Breiðuvík 16, Reykjavík „ Ásdís Guðrún Jónsdóttir Lækjarbraut 12, Hellu „ Jóna Dóra Eyfjörð Þórsdóttir Núpasíðu 10a, Akureyri „ María Guðrún Sveinsdóttir Einhamri 2, Akranesi „ Lingþór Jósepsson Tryggvagötu 16, Selfossi „ Margrét Blöndal Garðavegi 7, Reykjanesbæ 50 ára „ Patricia Segura Valdes Skipasundi 4, Reykjavík „ Þóra Sigurðardóttir Maríubaugi 73, Reykjavík „ Sigurpáll Sigurbjörnsson Berjavöllum 4, Hafnarfirði „ Elsa Gunnarsdóttir Ásavegi 27, Vestmannaeyjum „ Áslaug Kristinsdóttir Blöndubakka 5, Reykjavík „ Trausti Þór Ósvaldsson Ekrusmára 8, Kópavogi „ Vilborg Guðnadóttir Rjúpufelli 46, Reykjavík „ Elín Huld Halldórsdóttir Lyngbrekku 18, Kópavogi „ Þórólfur Kristján Sverrisson Hátúni 21, Eskifirði „ Ágúst Viðar Árnason Öldugranda 3, Reykjavík „ Þorkell Jónsson Jónsgeisla 19, Reykjavík 60 ára „ Yeudakiya Vitkouskaya Skarðshlíð 33c, Akureyri „ Bernhard Henning Kerkau Laxárbakka, Akranesi „ Kristín Jónsdóttir Sefgörðum 12, Seltjarnarnesi „ Þórhildur Jónsdóttir Aðallandi 9, Reykjavík „ Sævar Friðrik Sveinsson Kristnibraut 67, Reykjavík „ Þórunn Sveinsdóttir Brekkustíg 27, Reykjanesbæ „ Rósa Guðný Jónsdóttir Brautarholti 2, Reykjavík „ Hallgrímur Guðmundsson Helluhóli 7, Hell- issandi „ Hlíf Anna Dagfinnsdóttir Hraunbæ 18, Reykjavík „ Margrét Rannveig Jónsdóttir Dalatanga 11, Mosfellsbæ „ Magnús R. Sigurðsson Hnjúki, Blönduósi „ Þórey Kristín Guðbjartsdóttir Fífudal 8, Reykjanesbæ „ Loftur Jóhannsson Salthömrum 5, Reykjavík „ Auðun Sæmundsson Tunguvegi 20, Reykjavík „ Ægir Jónsson Klapparbergi 29, Reykjavík „ Benedikt Ásgeirsson Sendiráði Moskva, Reykjavík „ Fjóla Runólfsdóttir Gunnarsstöðum 3, Þórshöfn „ Bjarni Sigurðsson Kristnibraut 85, Reykjavík „ Guðlaug Margrét Jónsdóttir Strjúgsstöðum, Blönduósi 70 ára „ Ágúst Ingólfsson Þrastarlundi 4, Garðabæ „ Nanna Kristín Bjarnadóttir Brekkugötu 38, Akureyri „ Marinus Schmitz Vesturbergi 18, Reykjavík „ Valgerður Elsa Pétursdóttir Krókahrauni 4, Hafnarfirði „ Steinunn Guðbjörg Lórenzdóttir Hraunbraut 16, Kópavogi „ Gíslína Kristjánsdóttir Birkihæð 10, Garðabæ „ Sigþór Koch Jóhannsson Vesturgötu 53, Reykjavík „ Anna Sigríður Hróðmarsdóttir Nökkvavogi 42, Reykjavík „ Ólafur Karlsson Akraseli 14, Reykjavík 75 ára „ Erla Sigrún Lúðvíksdóttir Strandvegi 12, Garðabæ „ Sigurður Haraldsson Grófargili, Varmahlíð „ Hjördís H. Kröyer Hraunvangi 1, Hafnarfirði „ Sigríður Björnsdóttir Fitjamýri, Hvolsvelli 80 ára „ Michael Thomas Gaskell Austurvegi 5, Seyðisfirði „ Sigurður Þorsteinsson Bjarnahóli 2, Höfn í Hornafirði „ Þórhallur Þ. Jónsson Kópavogsbraut 111, Kópavogi „ Hulda Jófríður Óskarsdóttir Goðheimum 8, Reykjavík 85 ára „ Ástbjartur Sæmundsson Álfhólsvegi 85, Kópavogi „ Sigurborg Ágústsdóttir Birkimel 10a, Reykjavík „ Sverrir Arnkelsson Álfheimum 52, Reykjavík „ Helga Sólveig Jensdóttir Víðilundi 24, Akureyri „ Sverrir Jónatansson Grænumýri 6, Seltjarnarnesi „ Magdalena Thoroddsen Aflagranda 40, Reykjavík „ Hallgrímur Þórðarson Heiðarvegi 56, Vest- mannaeyjum 30 ára „ Anika Baecker Vaðnesi, Selfossi „ Tomasz Robert Jagielsk Þórhólsgötu 1a, Neskaupstað „ Agnieszka Stella Pauli Sómatúni 5, Akureyri „ Jaroslaw Szudrowicz Eskivöllum 19, Hafn- arfirði „ Gunnar Tryggvason Aflagranda 21, Reykjavík „ Gunnar Bergur Runólfsson Heiðarvegi 20, Vestmannaeyjum „ Guðmundur Ómarsson Snægili 2, Akureyri „ Þórður Ófeigsson Gautavík 20, Reykjavík 40 ára „ Eggert Ingólfur Herbertsson Hólmaflöt 1, Akranesi „ Hrannar Már Hallkelsson Álaþingi 16, Kópavogi „ Þorsteinn Jónsson Hrísateigi 24, Reykjavík „ Hjalti Sigurbergur Hjaltason Tungusíðu 1, Akureyri „ Guðrún Jóhannsdóttir Þóristúni 9, Selfossi „ Sólveig Ólöf Gunnarsdóttir Rekagranda 8, Reykjavík „ Júlíus Símon Pálsson Lyngholti 8, Ísafirði „ Elín Margrét Stefánsdóttir Fellshlíð, Akureyri „ Stefanía Guðjónsdóttir Rauðavaði 17, Reykjavík „ Heiðar Einarsson Ásaþingi 4, Kópavogi „ Böðvar Sveinsson Ásvallagötu 3, Reykjavík 50 ára „ Evelyn Manzo Enriquez Háaleitisbraut 24, Reykjavík „ Slawomir Piotr Pietras Snorrabraut 22, Reykjavík „ Georg Páll Kristinsson Bylgjubyggð 1, Ólafsfirði „ Þorkell Cyrusson Stekkjarhvammi 10, Búðardal „ Bóas Ævarsson Dalbraut 9, Dalvík „ Sólveig Baldursdóttir Holtsgötu 12, Hafn- arfirði „ Björn Friðrik Svavarsson Kvistholti, Sauð- árkróki „ Óðinn Ari Guðmundsson Kirkjubæjarbraut 5, Vestmannaeyjum „ Halldóra Sigurjónsdóttir Orrahólum 5, Reykjavík „ Jónas Þór Hallgrímsson Sólbrekku 24, Húsavík „ Kristján K. Haraldsson Leynisbraut 11, Grindavík „ Brynjólfur Karlsson Hólmvaði 36, Reykjavík „ Þórunn Pálmadóttir Bæjarhvammi 1, Hafn- arfirði „ Ingibjörg Rögnvaldsdóttir Meistaravöllum 5, Reykjavík „ Haukur Hauksson Mávahlíð 9, Reykjavík „ Sólveig Margeirsdóttir Jórufelli 8, Reykjavík „ Anna Salka Knútsdóttir Logafold 67, Reykjavík 60 ára „ Steingrímur S Eiríksson Kringlunni 69, Reykjavík „ Guðrún Jacobsen Garðhúsum 12, Reykjavík „ Friðgerður Maríasdóttir Steinholtsvegi 3, Eskifirði „ Geir Jón Grettisson Fiskakvísl 14, Reykjavík 70 ára „ Guðbjörg Sigrún Oliversdóttir Fannarfelli 8, Reykjavík „ Ólöf Svava Halldórsdóttir Stóru-Drageyri Felli, Borgarnesi „ Katla Magnúsdóttir Austurströnd 2, Sel- tjarnarnesi „ Helga Sveinsdóttir Grandavegi 7, Reykjavík „ Anný Elsa Ólafsdóttir Hjallaseli 55, Reykjavík „ Örlygur Kristmundsson Gullsmára 7, Kópavogi 75 ára „ Bergmundur Ögmundsson Mýrarholti 12, Ólafsvík „ Hörður Lorange Suðurbraut 10, Hafnarfirði „ Sesselja S. Hjaltested Grundargerði 8, Reykjavík „ Jóhanna G. Guðbrandsdóttir Vesturbergi 93, Reykjavík „ Málmfríður Pálsdóttir Ketilsbraut 18, Húsavík 80 ára „ Hrafnhildur Halldórsdóttir Lyngmóum 5, Garðabæ „ Hlín Guðjónsdóttir Þverbrekku 4, Kópavogi „ Gunnlaugur Guðmundsson Haðalandi 17, Reykjavík „ Pétur Pétursson Efstaleiti 10, Reykjavík „ Tómas Þórhallsson Sléttuvegi 23, Reykjavík „ Ásdís Skarphéðinsdóttir Gunnólfsgötu 6, Ólafsfirði „ Haukur Jónsson Krummahólum 4, Reykjavík Haraldur fæddist á Hrappsstöð-um í Glæsibæjarhreppi og ólst þar upp til tíu ára aldurs en flutti þá til Akureyrar. Hann hlaut almenna barna- og unglingafræðslu. Haraldur hóf störf hjá KEA 1934, fyrst sem sendisveinn en stundaði síð- an afgreiðslustörf við Kjötbúð KEA til 1960. Þá tók hann við starfi kaupfé- lagsstjóra hjá Kaupfélagi verkamanna á Akureyri og gegndi því starfi til 1980 er kaupfélagið var lagt niður. Haraldur var sölustjóri hjá KSÞ á Svalbarðseyri 1981-86. Hann starf- rækti eigin söluskrifstofu um árabil sem seldi unnar og óunnar kjöt- og fiskafurðir til ýmissa fyrirtækja. Har- aldur er enn í fullu starfi og er nú sölu- maður hjá Kjarnafæði. Haraldur hefur tekið virkan þátt í ýmsum félagsstörfum. Hann söng með Karlakórnum Geysi frá 1943, gegndi formennsku í kórnum í tvö ár og söng með gömlum Geysisfélögum þar til fyrir fáeinum árum er sá félags- skapur var lagður af. Þá var hann for- maður Íþróttafélagsins Þórs 1960–80 en félagar Þórs og Geysis hafa sýnt honum margvíslegan heiður. Hann varð fyrsti heiðursfélagi Þórs er hann lét af formennsku og á sjötíu og fimm ára afmæli félagsins var hann fyrstur manna sæmdur æðsta heiðursmerki Þórs, gullkrossinum. Þá hefur hann verið heiðraður af ÍSÍ og ÍBA. Hann er félagi í Frímúrarareglunni og tók um árabil virkan þátt í störfum Alþýðu- flokksins á Akureyri. Fjölskylda Haraldur kvæntist 22.5. 1943 Áslaugu Jónínu Einarsdóttur, f. 1.7. 1921, d. 16.7. 2006, húsmóður og fyrrv. bæj- arfulltrúa. Hún var dóttir Einars Jó- hannssonar, byggingameistara á Akureyri, og Ingibjargar Austfjörð húsmóður. Börn Haralds og Áslaugar Jónínu eru Inga Ólafía, f. 28.11. 1943, búsett á Álftanesi, gift Jóni G. Gunnlaugssyni, f. 19.1. 1943, og eiga þau þrjú börn; Helga Stefanía, f. 7.3. 1949, búsett á Akureyri, gift Kjartani Kolbeinssyni, f. 24.2. 1949, og eiga þau tvö börn; Berg- ljót Ása, f. 21.2. 1952, búsett í Reykja- vík, gift Sveini Guðmundssyni, og eiga þau tvær dætur. Albræður Haralds: Haukur Helga- son, f. 23.5. 1913, d. 1974, húsvörður í Kópavogsskóla, var kvæntur Halldóru Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðingi og eignuðust þau tvo syni; Njáll Helga- son, f. 19.11. 1916, d. 1973, starfsmað- ur Mjólkursamlags KEA, var kvæntur Öldu Einarsdóttur sem einnig er látin og eignuðust þau eina dóttur. Hálfbróðir Haralds, samfeðra, er Kolbeinn Helgason, f. 1.8. 1928, fyrrv. skrifstofustjóri Hrafnistu í Hafnarfirði, nú búsettur á Hrafnistu í Hafnarfirði, kvæntur Sigríði Jónsdóttur, fyrrv. for- stöðukonu og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Haralds voru Helgi Kol- beinsson, f. 17.3. 1876, d. 12.1. 1951, bóndi á Hrappsstöðum í Glæsibæjar- hreppi, og f. k. h., Ólafía Kristjánsdótt- ir, f. 21.6. 1876, d. 31.5. 1924, húsmóð- ir. Móðir Haralds lést er hann var að- eins þriggja ára. Seinni kona Helga var Guðrún Emelía Jónsdóttir og gekk hún þeim bræðrum í móðurstað en hún lést 1984. Haraldur Marinó Helgason Fyrrv. kaupfélagsstjóri á Akureyri Hermann Óskarsson Dósent við Háskólann á Akureyri 90 ára á þriðjudag 60 ára á mánudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.