Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Qupperneq 3
Fréttir | 3Mánudagur 7. febrúar 2011
KvótaKerfið í
ógnarjafnvægi
fyrir rúmri viku þar sem hún sagði
meðal annars: „Grímulaus valda-
klíka LÍU skirrist ekki við að þvinga
Samtök atvinnulífsins til að taka
alla kjarasamninga í landinu í gísl-
ingu til að tryggja áframhaldandi
forræði þeirra á auðlindinni í sjón-
um. Landssamband íslenskra út-
vegsmanna, sem eru um 8 prósent
fyrirtækja innan SA, reynir með
mjög óskammfeilnum þvingunar-
aðgerðum að koma í veg fyrir að 92
prósent, eða um 55 þúsund mans
hjá fyrirtækjum innan SA, fái nýjan
kjarasamning og frið á vinnumark-
aði. Þetta háttalag verður einfaldlega
ekki liðið og SA verður að snúa aft-
ur að samningaborðinu, án hótana
eða skilyrða um mál sem ekkert er-
indi eiga í kjaraviðræður aðila vinnu-
markaðarins.“
Skerst í odda
Á það er að líta að Jón Bjarnason
lagði frumvarp um róttækar breyt-
ingar á stjórn fiskveiðia fyrir ríkis-
stjórnina fyrir um tveimur mánuð-
um. Samráðherrum Jóns, meðal
annars Steingrími J. Sigfússyni, for-
manni VG, þótti ótímabært að opin-
bera samþykktar tillögur ríkisstjórn-
arinnar í svo viðkvæmu máli á þeim
tímapunkti. Innan úr röðum stjórn-
arliða heyrðust raddir um að ríkis-
stjórnin vildi síður „rugga bátnum“
meðan Ice save-málið væri ekki í
höfn.
„Hitt sem menn spurðu eðlilega
um voru tengsl þessa frumvarps
við stóra verkefnið um heildarend-
urskoðun á fiskveiðilöggjöfinni og
hvort þetta yrði ekki með einhverjum
hætti að fara saman. Er ekki skyn-
samlegt að ná þessu fram einhvern
veginn saman, líka mögulegri kvóta-
aukningu sem menn eru spenntir
fyrir,“ sagði Steingrímur í viðtali við
DV um áramótin síðustu.
Eftir ræðu Jóhönnu Sigurðardótt-
ur á flokksráðsfundi Samfylkingar-
innar fyrir rúmri viku má ljóst vera
að Jón á bandamenn í röðum beggja
stjórnarflokkanna um gagngerar
breytingar á fiskveiðistjórnunarkerf-
inu. „Nú er komið að ögurstundu,
sem snýst um hvort jafnaðarmönn-
um á Íslandi auðnist að halda und-
irtökunum og brjóta á bak aftur, að
fámenn valdaklíka íhalsdsafla og
sægreifa á Íslandi eigi áfram Ísland,“
sagði Jóhanna orðrétt við lítinn fögn-
uð LÍÚ og SA.
Gefst ekki upp fyrir valdi stórútgerðarinnar Jón Gestur Sveinbjörnsson og fjöldi
annarra strandveiðimanna benda á meinbugi kvótakerfisins og telja það stjórnarskrárbrot
að leyfa ekki veiðar utan kvóta á vannýttum tegundum.
Ákvörðun formanns, varaformanns
og sjö annarra þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins um að styðja núver-
andi gerð Icesave-samningsins hefur
framkallað harkalegar deilur innan
flokksins sem ekki sér fyrir endann
á. Einstök félög innan flokksins hafa
ályktað gegn afstöðu þingmannanna,
nokkrir hafa sagt sig úr flokknum og
enn fleiri krefjast þess að landsfundi
verði flýtt. Stjórnir Sambands ungra
sjálfstæðismanna, SUS, og Heimdall-
ar hafa ályktað gegn Bjarna Bene-
diktssyni formanni, Ólöfu Nordal
varaformanni og öðrum sem studdu
Icesave-frumvarp fjármálaráðherra
til þriðju og síðustu umræðu. Sagði
þar, að með afstöðu fulltrúa flokksins
í fjárlaganefnd, Kristjáns Þórs Júlíus-
sonar, Ásbjörns Óttarssonar og Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur, væri
stuðningi lýst við frumvarp ríkis-
stjórnarinnar. Engin tilraun væri hins
vegar gerð til þess að útskýra hvers
vegna íslenskir skattgreiðendur ættu
nú að bera ábyrgð á innlánum Breta
og Hollendinga. „Stjórn SUS telur
tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
í fjárlaganefnd vera fullkomin svik
við þá stefnu Sjálfstæðisflokksins
sem samþykkt var á landsfundi 2010
um að hafna beri löglausum kröfum
Breta og Hollendinga í Icesave-mál-
inu,“ segir í ályktun sambandsins.
Minni áhrif – meiri hávaði
Flokksmenn, sem DV hefur rætt við
og sóttu 500 manna fund í Valhöll síð-
astliðinn laugardag, kannast ekki við
kerfisbundna andstöðu grasrótarinn-
ar gegn forystunni. Hún hafi einfald-
lega komist að þeirri niðurstöðu að
rétt væri að styðja samninginn í nú-
verandi mynd og fyrir því hefði for-
ystan haft sannfæringu. Þótt uppi
væru raddir innan flokksins um að
sækja lengra og fara dómstólaleiðina
væri það óskynsamlegt nema menn
hefðu á reiðum höndum svör við því
hvernig gera ætti upp skuldina ef mál-
ið tapaðist fyrir dómi.
Mestrar andstöðu við ákvörð-
un Bjarna, Ólafar og annarra þing-
manna sem styðja núverandi útgáfu
Ice save-samningsins, gætir á vef-
miðlum AMX, Andríkis og á ritstjórn
Morgunblaðsins. Talið er að harkaleg
viðbrögð, jafnvel ofstækisfull, endur-
spegli þverrandi áhrif og völd þeirra
sem lengst ganga gegn Icesave-samn-
ingnum í núverandi búningi.
Bjarni Benediktsson þykir hafa
styrkt stöðu sína sem formaður
flokksins með óvæntum stuðningi við
Icesave-frumvarpið. Það beri fremur
vott um styrkleika en veikleika hans
sem formanns að geta tekið erfið-
ar ákvarðanir. Núverandi forysta hafi
tekið við flokknum við afar erfiðar
aðstæður eftir langa stjórnarsetu þar
sem fjármálakerfi þjóðarinnar var
hrunið og ekki stóð steinn yfir steini.
Það verði því að teljast vonum fram-
ar að flokkurinn haldi um 35 prósenta
fylgi í skoðanakönnunum.
Vaxandi formaður
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins, ritar um
málið í Fréttablaðið á laugardag-
inn og segir Sjálfstæðisflokkinn hafa
ákveðið að axla ábyrgð og tefli nú
fram betri samningi með því pólitíska
afli sem þurfti til að koma málinu frá.
„Ráðherrarnir eru orðnir að eins kon-
ar fylgifiskum Sjálfstæðisflokksins í
málsmeðferðinni.“
Þorsteinn bætir við að fyrir liggi að
innan flokksins séu öfl andvíg hvers
kyns samningum. Að öllu virtu standi
hins vegar forystan málefnalega vel
að vígi. „Hitt er ljóst að hinn ungi
formaður flokksins hefur með fram-
göngu sinni í þessu máli sýnt að hann
lítur ekki á sig sem fundarstjóra held-
ur leiðtoga,“ segir Þorsteinn og segir
hjásetumenn og andstæðinga samn-
ingsins innan þingflokksins ekki hafa
vaxið af því að vera á móti.
„Talið er að harkaleg
viðbrögð, jafnvel
ofstækisfull, endurspegli
þverrandi áhrif og völd
þeirra sem lengst ganga
gegn Icesave-samningn-
um í núverandi búningi.
innantökur í
Sjálfstæðisflokki
n Icesave veldur uppnámi innan Sjálfstæðisflokksins
n Mesta andstaðan á Morgunblaðinu, AMX og Andríki
Icesave-atkvæði þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins.
Andvígir: Unnur Brá Konráðsdóttir (1)
Sátu hjá: Birgir Ármannsson, Pétur
Blöndal, Guðlaugur Þór Þórðarson og
Sigurður Kári Kristjánsson (4)
Fylgjandi: Bjarni Benediktsson, Árni
Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Einar K. Guð-
finnsson, Ólöf Nordal, Jón Gunnarsson,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Tryggvi Þór
Herbertsson (9)
Fjarverandi: Kristján Þór Júlíusson og
Ragnheiður E. Árnadóttir (2)
icesave-atkvæðin
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johannh@dv.is
Formaður í ólgusjó Bjarni
Benediktsson þykir hafa vaxið
með ákvörðun sinni um að stuðla
að lausn Icesave-deilunnar.
Mynd róbert reynISSon
Fjölmennur fundur Geir H. Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, styður af-
stöðu Bjarna og 8 annarra þingmanna flokksins. Hann var á fundinum í Valhöll á laugardag
ásamt Ingu Jónu Þórðardóttur, eiginkonu sinni. Mynd róbert reynISSon