Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Page 4
4 | Fréttir 7. febrúar 2011 Mánudagur
Veðurstofan á varðbergi vegna aukinnar gosvirkni í Bárðarbungu:
Eldgos gæti hafist
„Ef þetta heldur áfram að þróast
svona og skjálftarnir fara að grynn-
ast gæti gosið,“ segir Sigurlaug
Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur á
Veðurstofu Íslands. Aukin skjálfta-
virkni hefur verið í norðvestan-
verðum Vatnajökli að undanförnu.
Aðfaranótt sunnudags og á sunnu-
dagsmorgun urðu tveir jarðskjálft-
ar sunnan við Kistufell, annar 3,3
stig á Richter en hinn 3,1. Í síðustu
viku mældust einnig fjölmargir litlir
skjálftar.
Sigurlaug segir í samtali við DV
að undanfarna mánuði hafi orð-
ið aukin jarðskjálftavirkni í norð-
vestanverðum jöklinum. „Það eru
skjálftahrinur þarna og Bárðar-
bunga er virk eldstöð,“ segir hún og
bætir við að undanfarnar vikur og
mánuði hafi sérstaklega verið horft
til Grímsvatna vegna mögulegs eld-
goss. Eftir hlaup sem varð í Gríms-
vötnum í lok október hafi hins vegar
dregið úr skjálftavirkninni þar sem
annars hafði verið að aukast fyrir
hlaupið. Sigurlaug segir að erfitt sé
að fullyrða um framvindu mála að
svo stöddu. Skjálftarnir séu á miklu
dýpi og alveg eins líklegt að ekkert
gerist.
„Þessir smáskjálftar eru á tölu-
verðu dýpi, kannski tíu kílómetra.
Það eru kvikuinnskot en eins og er
bendir ekki til þess að þetta sé neitt
annað. Það kom svipuð hrina í lok
síðasta árs og þá var jafnvel enn
meiri virkni,“ segir Sigurlaug en tek-
ur fram að það sé alltaf aukin hætta
þegar virkni eykst í virkum eldfjöll-
um. „Það er ekkert annað hægt að
gera en að fylgjast bara vel með,“
segir Sigurlaug að lokum.
einar@dv.is
Verð: 9.750 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Er slakandi og bætir svefn
• Notkun 10-20 mínútur í senn
• Gefur þér aukna orku og vellíðan
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Nálastungudýnan
Aukin virkni Sigurlaug segir lítið hægt að
gera annað en fylgjast með. Þessi mynd var
tekin árið 2004 þegar gaus í Grímsvötnum.
Mynd MAtthEw J. RobERts
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveins-
son greiddi sér nærri 50 milljóna
króna arð út úr félaginu Reykvísk-
ir lögmenn ehf. á árunum 2008 og
2009. Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði félagið gjalþrota þann 19.
janúar.
Endurskoðandi sem DV ræddi
við segir að það sé einkennilegt að
hæstaréttarlögmaður skuli greiða sér
28 milljónir króna í arð út úr einka-
hlutafélagi árið 2008 á sama tíma og
það skuldi 17 milljónir króna í opin-
ber gjöld. Árið 2009 greiddi hann sér
síðan arð upp á 18 milljónir króna
þrátt fyrir að skulda ennþá ógreiddu
opinberu gjöldin frá árinu áður.
Sveinn Andri segist gera skil á sínu
geri skatturinn einhverjar athuga-
semdir.
„Ekki stórar fjárhæðir“
Í ársreikningi félagsins árið 2008
kemur fram að ógreidd opinber gjöld
nemi um 17 milljónum króna. Ári
síðar gefur Sveinn Andri ekki skýr-
ingu á ógreiddum opinberum gjöld-
um líkt og hann hafði gert á árunum
2006 til 2008. Þess í stað eru ógreidd
opinber gjöld skýrð sem skamm-
tímaskuldir árið 2009. Skammtíma-
skuldir félagsins námu fjórum millj-
ónum króna árið 2007, 21 milljón
króna árið 2008 og námu 25 millj-
ónum króna árið 2009. Langstærsti
hluti þessara skammtímaskulda eru
ógreidd opinber gjöld.
Aðspurður um hvort rétt sé að
Reykvískir lögmenn hafi skuldað
meira en 20 milljónir króna í ógreidd
opinber gjöld þegar það fór í gjald-
þrot segir Sveinn Andri: „Ég bara
þori ekki að fara með það. Þetta eru
nú ekki stórar fjárhæðir.“ Aðspurður
um hvers vegna hann hafi greitt sjálf-
um sér nærri 50 milljónir króna í arð
á sama tíma og hann skuldaði veru-
legar upphæðir í opinber gjöld seg-
ir Sveinn Andri: „Eru einhver tengsl
þar á milli? Ef skatturinn gerir ein-
hverjar athugasemdir við það þá
kemur það bara í ljós.“
breytt í sAM 10
Félagið Reykvískir lögmenn hagnað-
ist um 20 milljónir króna árið 2008 og
tíu milljónir króna árið 2009. Sveinn
Andri virðist ekki bókfæra nema lít-
ið brot af tekjum sínum sem laun.
Þess í stað borgar hann sér stóran
hluta tekna sinna í formi arðs. Til árs-
ins 2008 þurfti að greiða mun minni
skatta en af venjulegum launa-
greiðslum.
Sveinn Andri stofnaði samlags-
félag um síðustu mánaðamót. Árið
2010 seldi hann félagið Reykvíska
lögmenn og var nafni félagsins þá
breytt í eignahaldsfélagið SAM 10. Í
ársreikningi Reykvískra lögmanna
árið 2009 kemur fram að helsta eign
félagsins sé 17 milljón króna fasteign.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort Sveinn
Andri hafi fært fasteignina yfir í nýja
félagið sitt eða skilið hana eftir í hinu
gjaldþrota félagi. Aðspurður um það
hvort að hún hafi verið innifalinn í
söluverðinu segir Sveinn: „Fasteign
félagsins var ekkert inni í þessu fé-
lagi, hún var löngu farin.“
Kemur dV ekki við
„Þetta var bara pínulítið,“ sagði
Sveinn Andri þegar DV.is greindi
fyrst frá málinu á fimmtudaginn. „Ég
stofnaði samlagsfélagið um áramót-
in en var búinn að selja þetta á síð-
asta ári. Af því ég ákvað að skipta í
annað form þá seldi ég félagið,“ bætti
Sveinn Andri við um söluna á SAM
10 ehf. og stofnun Reykvískra lög-
manna slf.
Þegar Sveinn Andri var spurð-
ur að því hvort að það skjóti ekki
skökku við að hæstaréttarlögmaður
skuli stunda vafasamar bókhalds-
aðferðir hjá einkahlutafélagi sínu
svarar hann: „Viltu að ég svari þess-
ari spurningu? Þetta er svona leið-
andi spurning sem er ekkert hægt að
svara. Þetta er bara uppgjör í félaginu
sem gert er í samráði við endurskoð-
anda og ef skatturinn hefur eitthvað
út á það að segja þá bara kemur það
í ljós.“
Sveinn Andri vill ekki upplýsa
um það hver keypti félagið eða fyrir
hvaða upphæð það var selt á: „Það
bara kemur DV ekki við, það er bara
á milli mín og kaupanda.“
TÓK 50 MILLJÓNA ARÐ
ÞRÁTT FYRIR SKULDIR
„Það bara kemur
DV ekki við, það er
bara á milli mín og
kaupanda.
n Félagið úrskurðað gjaldþrota í janúar n sveinn Andri talinn hafa sloppið
við yfir 20 milljónir króna í opinber gjöld n segir gjaldþrotið „smámál“
Ekki stórar fjárhæðir Sveinn
Andri Sveinsson þorir ekki að
fara með það hvað félag í hans
eigu skuldaði í opinber gjöld.
stefnir í verkfall
Samninganefnd bræðslumanna
hefur slitið formlegum viðræðum
við Samtök atvinnulífsins um nýj-
an kjarasamning og ætlar að boða
til atkvæðagreiðslu um verkfall í
fiskimjölsverksmiðjum. Samninga-
nefndir hittust á sunnudag á fundi
með ríkissáttasemjara, en sá fundur
var árangurslaus. Verði verkfallsboð-
un samþykkt, gæti verkfall starfs-
manna hafist snemma í næstu viku.
Vanhæf vegna
tengsla
Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlög-
maður hefur sent forseta Lands-
dóms bréf þar sem hún bendir á
vanhæfi sitt
til að sitja í
Landsdómi.
Hún seg-
ir ákvörðun
sína tilkomna
vegna tengsla
hennar við
Geir H. Haar-
de. Í yfirlýs-
ingu frá Dögg, sem er fyrrverandi
varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og ein af þeim átta sem út-
nefnd voru til að sitja í Landsdómi,
segir meðal annars að þar sem
hún hafi gegnt varaþingmanns-
störfum í tvígang í fjarveru Geirs
H. Haarde fyrrverandi forsætisráð-
herra þurfi Landsdómur að taka
afstöðu til hæfis hennar.
Grunaður um
kynferðisbrot
47 ára gamall bandarískur karlmað-
ur, John Charles Ware, var fyrir helgi
handtekinn grunaður um kynferðis-
brot gegn fjórum ungum drengjum.
Lögreglu grunar að hann hafi mis-
notað einn drengjanna hér á landi.
Á föstudag var Ware handtekinn en
handtakan var hluti af stóru átaki
gegn barnamisnotkun í Bandaríkj-
unum. Ware stýrir velgjörðarsjóði
fjölskyldu sinnar en afi hans, John
Charles, var fylkisstjóri, þingmað-
ur og stjórnarformaður eins stærsta
vatnsveitufyrirtæki landsins.