Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Side 23
Nærmynd | 23Mánudagur 7. febrúar 2011 ÞAULSÆTINN ÞJÓÐARLEIÐTOGI Stiklað á stóru í valdatíð Hosnis Mubaraks 6. október 1981 Hosni Mubarak tekur við embætti forseta Egyptalands í kjölfar banatilræðis íslamskra öfga- manna gegn Anwar Sadat, forseta landsins. Mubarak er viðurkenndur sem forseti landsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í nóvember og endurkjörinn í október 1987 og október 1993. 26. júní 1995 Vopnaðir menn gera árás á bifreið Mubaraks þegar hann mætir á ráðstefnu Organi za tion of African Unity í höfuðborg Eþíópíu, Addis Ababa. Mubarak sleppur með skrekkinn og snýr heim á leið með hraði. 17. nóvember 1997 Al-Gama‘a al-Islamiya, stærstu herskáu samtök íslamista í Egyptalandi, drepa 58 ferða- menn og fjóra Egypta við forn hof skammt frá Luxor. Sex byssumenn og þrír lögreglumenn falla í valinn. Í kjölfarið sker Mubarak upp herör gegn herskáum samtökum íslamista og hefur haldið þeim niðri allar götur síðan. 5. október 1999 Mubarak hefur sitt fjórða kjörtímabil sem forseti landsins. 22. desember 1999 Egyptaland samþykkir að selja jarðgas til Ísraels í kjölfar áralangra samningaviðræðna. Mars 2005 Götumótmæli Kefaya-hreyfingarinnar laða aðsér hundruð manna víðs vegar í Egyptalandi sem mótmæla því að Mubarak sitji sitt fimmta kjörtímabil og öllum hugmyndum um að Gamal, sonur Mubaraks, taki við af honum. 27. september 2005 Hosni Mubarak er settur í embætti forseta landsins í fimmta skipti. 8. desember 2005 Stjórnmálaflokkurinn Múslímska bræðralagið nær að fjölga sætum sínum á þingi í kjölfar ofbeldisfullra kosninga, en flokkur Mubaraks heldur enn meirihluta. 19. nóvember 2006 Mubarak segist munu axla ábyrgð sína allt til dauðadags. 4. júní 2009 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, talar um „nýja byrjun“ í sambandi Bandaríkjanna og íslamskra landa í ræðu í Kaíró. 26. mars 2010 Fyrrverandi yfirmaður kjarnorkumálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Mohamed ElBaradei, kemur fram opinberlega í Egyptalandi, í fyrsta sinn eftir heimkomuna, og viðrar áhuga sinn á forsetaframboði. 27. mars 2010 Mubarak snýr heim til Egyptalands frá Þýskalandi þar sem hann hafði dvalið í þrjár vikur vegna aðgerðar á gallblöðru. 25. janúar 2011 Að minnsta kosti fjórir eru drepnir í mótmælum gegn ríkisstjórninni víðs vegar í Egyptalandi. 27. janúar 2011 Öryggissveitir skjóta bedúínskan mótmælanda til bana í norðurhluta Egyptalands. Mohamed ElBaradei hefur orð á því að það sé orðið tímabært að Mubarak láti gott heita og láti af forsetaembættinu. 28. janúar 2011 Öryggissveitir skjóta gúmmíkúlum og táragasi að mótmælendum sem kastagrjóti og krefjast afsagnar Mubaraks. Lögreglan heftir netsamkipti í viðleitni til að gera mótmælend- um erfitt fyrir. Mótmæli eru skipulögð víðar en í Kaíró, til dæmis í Alexandríu, Mansoura, Suez og Aswan. 4. febrúar 2011 Í kjölfar ólgu á Tahrir-torgi verður her landsins sýnilegri í Kaíró. Hosni Mubarak segist vera „uppgefinn“ á að vera við völd en neitar að láta undan þrýstingi um að láta af völdum sem myndi steypa Egyptalandi í óreiðu. Það er mat sumra fréttaskýrenda að leynilögregla Egyptalands, og leiguþý hennar, hafi í síðustu viku sýnt sitt rétta andlit og opinberað gagnvart alþjóðasamfélaginu hina ljótu og ótæku hlið egypsks „stöðug- leika“. Þrennt sem Hosni þarf að huga að Því er varasamt að ætla að Hosni Mubarak hyggist gefast upp án átaka, en hann þarf að mati fréttaskýrenda að horfa til þriggja mikilvægra þátta; al- þjóðasamfélagsins með Bandaríkin í fararbroddi, hersins og egypsku þjóð- arinnar og hann hefur þurft að taka erfiða ákvörðun um hvernig best væri að forgangsraða þessum þremur þátt- um. Mubarak er sagður hafa tekið þá ákvörðun að setja þá í fyrrgreinda röð því hann byrjaði á því að reka ríkis- stjórnina, alla á einu bretti, þar á með- al innanríkisráðherrann sem er í litlu uppáhaldi hjá þjóðinni. Ákvörðunin var kannski ekki endilega mikilvæg hvað Egypta snerti, en átti hugsanlega að líta út sem ærlegar og ákafar um- bætur af hálfu Mubaraks í augum Bandaríkjamanna. Mubarak hafði erindi sem erfiði og þrátt fyrir óþolinmæði vina hans í Hvíta húsinu kváðu þeir ekki fastar að orði en svo að mælast til þess að hann léti af embætti í september, sem var nánast blaut tuska í andlit þeirra þús- unda sem kröfðust þess að Mubarak hefði sig á brott hið snarasta. Samvinna við herinn Annað skrefið sem Mubarak tók var að leggja grunninn að samkomulagi um að deila völdum með hernum. Mikil- vægur þáttur í því var skipun varafor- seta og nýs forsætisráðherra. Í embætti varaforseta skipaði Mubarak Omar Suleiman, sem er ekki aðeins fyrrver- andi hershöfðingi heldur býr aukin- heldur yfir viðamikilli þekkingu á efstu lögum hersins. Nýi forsætisráðherrann, Ahmed Shafiq, er sprottinn úr sama jarðvegi og Hosni Mubarak, flughernum, en Ahmed Shafiq var yfirmaður flughers- ins. Þannig hefur Mubarak nánast tryggt sér stuðning eina hópsins sem getur staðið að valdaráni, því svo fremi sem enginn skriðdrekaforingi í Kaíró hafi áhuga á taka völdin er ekki hægt um vik fyrir mótmælendur að um- breyta byltingarvilja sínum í raunveru- legt og þungt högg gagnvart stjórninni. Herinn gaf út tilkynningu um að hann myndi ekki skjóta á óvopnaða mót- mælendur, en hvort hann gengur enn lengra er alls óvíst en ómögulegt er að fullyrða um ákvörðun hersins á ögur- stundu. Hosni Mubarak liggur ekki lífið á enn sem komið er. Fimmtungur þjóð- arinnar lifir undir fátæktarmörkum og það er því takmörkunum háð hve lengi mótmælendur gata gengið um götur Kaíró og annarra borga hrópandi slag- orð gegn honum. Fyrr eða síðar þurfa þeir að hverfa aftur til vinnu – ólíkt for- setanum sjálfum – og því þarf Muba- rak bara að bíða rólegur. Heimildir: Wikipedia.org, bbc.co.uk og reuters.com „Talið er að um 17.000 manns sitji í varðhaldi vegna neyðar- laganna og að fjöldi pólitískra fanga sé um 30.000. Óþreyjufullir Egyptar Mubarak segist vera uppgefinn á að vera forseti en hyggst ekki víkja til hliðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.