Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2011, Page 25
Sport | 25Mánudagur 7. febrúar 2011
Úrslit
Á leið á toppinn Vefsíða Sky Sports fjallar ítarlega um
íslenska landsliðsframherjann Kolbein Sigþórsson í dálki þar sem
farið er yfir mestu efni Evrópu. Er leikmönnum þar gefin einkunn frá
einum og upp í tíu fyrir hinar ýmsu hliðar leiksins en Kolbeinn fær ekki
undir sjö í neinum lið. Fær hann níu af tíu í skotum og tíu af tíu í hversu
langt hann getur komist. Þegar stigin eru talin saman fær hann 62 af
80 mögulegum en fái leikmenn 61–70 stig þykja þeir „vera á leiðinni
á toppinn.“ Kolbeinn var aftur á skotskónum fyrir AZ Alkmaar um
helgina en hann skoraði eina mark liðsins í 2–1 tapi gegn Excelsior.
KR með tvö lið í Höllinni KR-ingar eiga möguleika á því
að vinna bikarmeistaratitil KKÍ í bæði karla- og kvennaflokki en bæði lið
félagsins komust í úrslitaleikinn um helgina. Karlaliðið lagði Tindastól í
DHL-höllinni auðveldlega, 81–67, en stelpurnar unnu Hamar með fimm
stigum, 65–60. KR varð því fyrsta liðið til þess að vinna Hamar í kvenna-
flokki í ár. Í frétt á vefsíðunni karfan.is kemur fram að þetta er í fjórða
skiptið í sögunni sem sami þjálfarinn fer með bæði karla- og kvennalið
félags í úrslit. Sá síðasti til að hampa bikarnum með báðum kynjum sama
árið var goðsögnin Einar Bollason. Þjálfari KR er Hrafn Kristjánsson.
Enska úrvalsdeildin
Aston Villa - Fulham 2-2
1-0 John Pantsil (12. sm), 1-1 Andy
Johnson (52.), 2-1 Kyle Walker (72.), 2-2 Clint
Dempsey (78.).
Everton - Blackpool 5-3
1-0 Louis Saha (20.), 1-1 Alex Baptiste (36.),
2-1 Louis Saha (46.), 2-2 Jason Puncheon
(62.), 2-3 Charlie Adam (63.), 3-3 Louis Saha
(75.), 4-3 Jermaine Beckford (80.), 5-3 Louis
Saha (83.).
Man. City - WBA 3-0
1-0 Carlos Tevez (16. víti), 2-0 Carlos Tevez
(22.), 3-0 Carlos Tevez (39. víti).
Newcastle - Arsenal 4-4
0-1 Theo Walcott (1.), 0-2 Johan Djorou (3.),
0-3 Robin van Persie (9.), 0-4 Robin van
Persie (25.), 1-4 Joey Barton (67. víti), 2-4
Leon Best (75.), 3-4 Joey Barton (82. víti),
4-4 Ismael Chiek Tioté (86.)
n Abou Diaby, Arsenal (49.).
Tottenham - Bolton 2-1
1-0 Rafael van der Vaart (5. víti), 1-1 Daniel
Sturridge (54.), 2-1 Niko Kranjcar (90.+2).
Wigan - Blackburn 4-3
0-1 Jason Roberts (22.), 1-1 James McCarthy
(35.), 2-1 Hugo Rodallega (50.), 3-1 James
McCarthy (55.), 3-2 Christopher Samba
(58.), 4-2 Ben Watson (64. víti ), 4-3 David
Dunn (81. víti)
Úlfarnir - Man. United 2-1
0-1 Nani (3.), 1-1 G. Elokobi (10.), 2-1 K. Doyle
(40.)
West Ham - Birmingham 0-1
0-1 Nikola Zigic (64.).
Chelsea - Liverpool 0-1
0-1 Raul Meireles (69.).
Staðan
Lið L U J T M St
1. Man. Utd 25 15 9 1 55:24 54
2. Arsenal 25 15 5 5 54:27 50
3. Man. City 26 14 7 5 42:22 49
4. Chelsea 25 13 5 7 46:22 44
5. Tottenham 25 12 8 5 35:27 44
6. Liverpool 26 11 5 10 34:31 38
7. Sunderland 26 9 10 7 32:31 37
8. Bolton 26 8 9 9 36:37 33
9. Stoke City 25 10 3 12 31:32 33
10. Newcastle 25 8 7 10 40:38 31
11. Blackburn 26 9 4 13 34:42 31
12. Fulham 26 6 12 8 28:28 30
13. Everton 25 6 12 7 33:34 30
14. Aston Villa 26 7 8 11 30:45 29
15. Blackpool 25 8 4 13 38:49 28
16. Birmingham 24 5 12 7 24:33 27
17. WBA 25 7 5 13 31:48 26
18. Wigan 26 5 11 10 26:44 26
19. Wolves 25 7 3 15 26:43 24
20. West Ham 26 5 9 12 27:45 24
Enska B-deildin
Burnley - Norwich 2-1
Crystal Palace - Middlesbrough 1-0
Ipswich - Sheff. United 3-0
Leeds - Coventry 1-0
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði
Coventry og lék allan leikinn.
Leicester - Barnsley 4-1
Millwall - Docanster 1-0
Nott. Forest - Watford 1-0
Portsmouth - Derby 1-1
Hermann Hreiðarsson var í byrjunarliði
Portsmouth og lék allan leikinn.
Preston - Bristol 0-4
Scunthorpe - Hull 1-5
Staðan
Lið L U J T M St
1. QPR 30 16 11 3 49:18 59
2. Nottingham F. 28 14 10 4 39:23 52
3. Cardiff 29 15 6 8 48:35 51
4. Norwich 30 14 9 7 47:38 51
5. Swansea 30 15 5 10 37:27 50
6. Leeds 30 13 10 7 55:47 49
7. Millwall 30 12 9 9 39:30 45
8. Leicester 30 13 6 11 46:47 45
9. Watford 28 12 7 9 53:41 43
10. Burnley 29 11 10 8 43:36 43
11. Reading 29 10 12 7 43:31 42
12. Hull 30 10 12 8 36:33 42
13. Barnsley 30 11 7 12 36:44 40
14. Ipswich 28 11 4 13 35:37 37
15. Doncaster 28 10 7 11 41:46 37
16. Coventry 30 10 6 14 33:37 36
17. Derby 29 10 5 14 41:42 35
18. Bristol City 30 9 8 13 35:44 35
19. Middlesbro 29 9 6 14 33:37 33
20. Portsmouth 29 8 8 13 39:46 32
21. Cr. Palace 30 8 7 15 28:48 31
22. Sheffield Utd 29 7 6 16 26:47 27
23. Scunthorpe 27 7 3 17 27:51 24
24. Preston 28 5 6 17 29:53 21
Japanir vita ekki í hvorn fótinn þeir
eiga að stíga eftir að upp komst um
viðamikið svindl þrettán súmó-
glímukappa. Hefur japanska súm-
óglímusambandið, JSA, ákveðið
að blása af næstu meistarakeppni
sem átti að fara fram í byrjun mars.
Þetta er í fyrsta skiptið síðan 1946
sem meistarakeppnin er blásin af
en ástæðan þá var öllu eðlilegri en
nú. Leikvangurinn var þá í rúst eftir
seinni heimsstyrjöldina.
Þrettán glímukappar eru und-
ir smásjá lögreglunnar fyrir að hag-
ræða bardögum. Upp komst um
svindlið þegar farsímar þeirra voru
gerðir upptækir af lögreglunni í
tengslum við annað hneykslismál.
Þessir sömu kappar voru þá að veðja
ólöglega um úrslit hafnaboltaleikja í
samvinnu við japönsku mafíuna.
Í farsímunum fundust texta-
skilaboð þar sem glímukapparnir
lýstu því hvernig þeir myndu sækja
á næsta andstæðing sinn og hvort
og hvernig hann myndi falla til jarð-
ar. Fyrir hagræðingu glímanna voru
menn að skiptast á hundrað þúsund-
um jena en 100.000 jen samsvara
147.000 krónum.a
Málið er litið gríðarlega alvarleg-
um augum í Japan því súmóglíma er
ekki einungis íþrótt þar í landi held-
ur er hún hluti af menningu og sögu
þjóðarinnar. Forseti JSA var klökkur
þegar hann tilkynnti að meistara-
mótið í næsta mánuði færi ekki fram
en forsætisráðherra landsins, Naoto
Kan, var öllu harðorðari: „Þetta er
ekki bara hneyksli innan íþróttarinn-
ar heldur eru þessir menn að svíkja
fólkið í landinu.“ tomas@dv.is
Risahneyksli í japönsku súmóglímunni:
Sverir svindlarar
Bregðast fólkinu Japanir taka súmóglímu gífurlega alvarlega. MyND REUTERS
Liverpool er komið í sjötta sæti ensku
úrvalsdeildarinnar eftir frábæran sig-
ur á Chelsea, 1–0, á Stamford Bridge í
gær. Sigurmarkið skoraði Raul Meirel-
es á 69. mínútu. Sigurinn var ekki síð-
ur sætur fyrir Liverpool þar sem Fern-
ando Torres var í byrjunarliði Chelsea
í sínum fyrsta leik með þeim bláu. Tor-
res gat ekkert í leiknum á meðan Liver-
pool hélt sig við skipulagið og skoraði
eina mark leiksins. Sigurinn var Liver-
pool gríðarlega þýðingarmikill því lið-
ið er nú aðeins sex stigum frá Chel-
sea og Tottenham sem sitja í fjórða
og fimmta sæti úrvalsdeildarinnar.
Draumurinn um Meistaradeildarsæti
er því sannarlega á lífi en vonir Chel-
sea um að verja Englandsmeistaratit-
ilinn eru líklega úr sögunni.
Vonbrigði hjá Torres
Fyrir leikinn heilsaði Fernando Tor-
res upp á alla félaga sína í Liverpool-
liðinu og kyssti meira að segja Raul
Meireles. Koss sem hvatti Portúgal-
ann greinilega til dáða. Daniel Agg-
er, danski miðvörðinn í liði Liver-
pool, sendi Torres þó skýr skilaboð
með vænu olnbogaskoti um miðjan
fyrri hálfleikinn en Daninn slapp með
skrekkinn. Torres komst í dauðafæri
eftir þrjátíu og fimm mínútur en Jam-
ie Carragher bjargaði með glæsilegri
tæklingu.
Það var eins og Carlo Ancelotti
hefði lagt meira upp úr því að láta
Torres byrja leikinn en að reyna leggja
Liverpool að velli. Chelsea var langt
frá því að spila sinn bolta og komst
varla í færi. Eftir að Torres var tekinn
af velli á 65. mínútu fór sóknarleikur-
inn að skána. Til að bæta gráu ofan á
svart fyrir Torres þurfti hann að horfa
upp á manninn sem hann kyssti svo
sætt fyrir leikinn, Raul Meireles, skora
sigurmarkið eftir klúður hjá Petr Cech
aðeins fjórum mínútum síðar. Þetta
var fjórða mark Meireles í síðustu
fimm leikjum en hann hefur algjör-
lega blómstrað undir stórn Kenny
Dalglish.
Vorum ekki nógu góðir
,,Liverpool varðist vel og við fundum
engin svæði til að spila í,“ sagði sár-
svekktur Carlo Ancelotti, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, eftir tapið. ,,Við spiluð-
um ekki nægilega vel. Frammistaða
okkar var einfaldlega ekki nægilega
góð til að vinna þennan leik,“ sagði Ít-
alinn stuttorður um skelfilega frammi-
stöðu Chelsea en þeir bláu hafa að
öllum líkindum kvatt Englandsmeist-
aratitilinn með tapinu.
Gleðin var öllu meiri hjá Liver-
pool-mönnum en Jamie Carragher,
miðvörður Liverpool, talaði þó vel um
Fernando Torres í viðtali á Sky Sports
eftir leikinn. ,,Fernando er einn besti
framherji í heiminum í dag. Hann á
eftir að gera vel fyrir Chelsea en hann
er ekki í okkar liði. Við höfum oft spil-
að á móti leikmönnum sem fóru eins
og Robbie Fowler þegar hann fór til
Leeds. Það er sárt en svona er þetta,“
sagði Carragher.
Kenny Dalglish er nú búinn að
halda hreinu í síðustu fjórum leikjum
með Liverpool en þeir hafa allir unn-
ist. Var hann því spurður að því hvort
hann yrði ekki áfram stjóri á næsta ári
en hann átti upphaflega bara að taka
við út tímabilið.
,,Ég hef bara áhyggjur af næsta leik
gegn Wigan næstu helgi,“ sagði Dal-
glish og vildi engu svara um það. Við
erum á fínu róli núna. Búnir að halda
hreinu í síðustu fjórum leikjum og
spila vel. Þetta er samt langt frá því
að vera búið. Nú þurfum við bara að
halda þessu áfram,“ sagði Kenny Dal-
glish.
n Liverpool vann Chelsea í stórleik helgarinnar í enska boltanum
n Raul Meireles hetja Liverpool n Vond frumraun Fernando Torres
Toppdagur án Torres
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Slæm byrjun Torres lék í 65 mínútur og átti vondan dag.
Frábær sigur Liverpool
er komið í baráttuna um
Meistaradeildarsæti.