Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 2
Rúmlega 48 milljarða króna lán
Landsbanka Íslands til eignar-
haldsfélagsins Styttu í aðdraganda
bankahrunsins haustið 2008 var
ákvarðað nákvæmlega út frá skuld-
um eignarhaldsfélagsins Fons við
bankann. Í viðskiptunum seldi
Fons, sem var í eigu Pálma Har-
aldssonar fjárfestis, tæplega 30 pró-
senta eignarhlut í bresku matvöru-
verslanakeðjunni Iceland til Styttu,
sem var í eigu Stoða og þriggja lyk-
ilstarfsmanna Iceland-keðjunnar
Malcolms Walkers, Andrews Prit-
chards og Tarsems Dhaliwal, fyr-
ir tæpa áttatíu milljarða króna. Um
50 milljarðar komu frá Landsbank-
anum. Eftirstöðvarnar af láninu fyr-
ir Iceland komu frá Glitni. Tilgangur
viðskiptanna og verðmat á Iceland-
keðjunni virðist meðal annars hafa
verið að búa þannig um hnútana að
eignarhaldsfélagið Fons og tengd fé-
lög í eigu Pálma Haraldssonar gætu
greitt upp skuldir sínar við Lands-
bankann og Glitni.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í tölvupóstum á milli starfs-
manna Landsbanka Íslands og
starfsmanna Stoða, áður FL Group,
og starfsmanna Glitnis sem DV hef-
ur undir höndum. Tölvusamskiptin
áttu sér stað í september árið 2008,
skömmu fyrir íslenska bankahrun-
ið. Samskiptin sýna vel þau nánu
tengsl sem voru á milli Landsbank-
ans og Baugstengdra aðila, meðal
annars Stoða og Fons, í árunum fyr-
ir íslenska bankahrunið.
Tilkynnt um 100 milljarða
viðskipti
Um miðjan ágúst 2008 var greint frá
því í fjölmiðlum á Íslandi að Pálmi
Haraldsson hefði síðustu mánuðina
þar á undan selt hlutabréf fyrir sam-
tals um 100 milljarða króna. Stærsti
hluti þessarar sölu voru umrædd
viðskipti með hlutabréf í Iceland-
keðjunni. Þegar Pálmi var spurður af
hverju hann hefði átt í þessum um-
fangsmiklu viðskiptum sagði hann
að fyrir því hafi verið tvær ástæður:
Hann hafi viljað selja og kaupand-
inn hafi viljað kaupa. Pálmi þvertók
einnig fyrir að vera í peningavand-
ræðum og vísaði til þess að eigið fé
Fons væri 40 milljarðar króna.
Inntakið í fréttum af sölunni þá
var á þá leið að Fons hefði hagn-
ast um 75 milljarða króna á því að
selja hlutabréfin í Iceland-keðjunni.
Pálmi kom þá fram í fjölmiðlum og
sagði: „Þetta er sennilega Íslands-
met í hagnaði.“ Ekkert var rætt um
það þá að eitt af markmiðum við-
skiptanna hefði verið að grynnka á
skuldum Fons við Glitni og Lands-
bankann. Viðskiptin með Iceland-
bréfin voru því kynnt á þann hátt
að þau hefðu verið á hreinum við-
skiptalegum forsendum.
Söluverðið hið sama
og skuldir Fons
Í tölvupóstunum frá því í septem-
ber 2008 kemur hins vegar annað
upp úr dúrnum. Samkvæmt þeim
teiknaði fyrirtækjasvið Landsbanka
Íslands viðskiptin upp og byggði
ætlaðar lánveitingar sínar til Styttu
alfarið á því hversu mikið Fons
skuldaði Landsbankanum. Hægt
var að hengja hvaða verðmiða sem
var á hlutabréfin í Iceland-keðjunni
þar sem félagið var óskráð félag –
ekki skráð á markaði. Þess vegna var
hægt að byggja verðmatið á hluta-
bréfum Fons í Iceland á því hversu
mikið Fons skuldaði bankanum. Þó
skal tekið fram að söluverðið á bréf-
unum er ekki galið þegar litið er á
ætlað markaðsvirði Iceland-keðj-
unnar í dag. Malcolm Walker, einn
af stofnendum Iceland, hefur gert
skilanefnd bankans tilboð í félagið
upp á milljarð punda, tæplega 190
milljarða króna.
Þessi hugsun á bak við viðskiptin
sést í tölvupósti sem Einar Kristján
Jónsson, lögfræðingur í útlánaþjón-
ustu Landsbankans, sendi til Jóns
Sigurðssonar, forstjóra FL Group,
Bernhards Bogasonar, lögmanns
hjá FL Group, Viðars Þorkelssonar,
forstjóra Landic Property, og fleiri
aðila þann 10. september 2008.
Í tölvupóstinum sagði Einar að
Landsbankinn væri búinn að út-
búa lánasamningana vegna Styttu-
viðskiptanna og bað auk þess um
ábyrgð frá Glitni vegna hins hluta
lánafyrirgreiðslunnar til Styttu.
„Sælir. Meðfylgjandi eru loka ein-
tök samninganna. Annar í 8 mynt-
um upp á 48,120mj. og sá samning-
ur ber vexti frá 15. ágúst 2008. Hinn
uppá 2,005mj. og sá samningur ber
vexti frá 1. september.“ Athygli vek-
ur að verið var að ganga frá þess-
um lánasamningum á þessum tíma,
tæpum mánuði eftir að búið var að
greina frá viðskiptunum í fjölmiðl-
um.
Svo sagði Einar, eftir að hafa út-
listað uppbyggingu lánasamnings-
ins og vægi einstakra gjaldmiðla í
honum: „Lánsfjárhæðin á 48,12mj.
láninu er miðuð við núverandi fjár-
hæðir á lánum Fons miðað við geng-
ið 15. ágúst 2008.“ Af þessu sést að
Stytta yfirtók í reynd aðeins hluta-
bréf Fons í Iceland-keðjunni og tók
á sama tíma yfir lán Fons í Lands-
bankanum og hjá Glitni. Segja má
að forsendur viðskiptanna hafi verið
aðeins aðrar en Pálmi hélt fram þeg-
ar hann sagði að tvær ástæður hefðu
verið fyrir sölunni á hlutabréfunum:
Áhugi hans á að selja og áhugi kaup-
endanna á að kaupa.
Tveir milljarðar vegna
Iceland Express
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis er fjallað um umrædda lán-
veitingu til Styttu og vísað í fund
lánanefndar Landsbankans frá 24.
september 2008 þar sem lánveiting-
in var tekin fyrir. Í fundargerðinni
segir, og staðfestir það þann skiln-
ing sem fram kom í tölvupósti Ein-
ars Kristjáns að nota ætti lánið frá
Landsbankanum til að greiða upp
skuldir Fons við bankann: „Lánamál
afgreidd milli funda (JÞG) Stytta
ehf. (ÁM) – 50 ma.kr. PIK lán til 2ja
ára á Reibor + 3,25%/Libor + 4,50%
auk 0,25% lántökugjalds. Andvirði
ráðstafast alfarið til uppgreiðslu á
lánum Fons hf., Sikker ehf. (yfir-
tökufélag Securitas) og fleiri aðila
í LÍ. Til tryggingar er 29,7% hlutur
í Iceland Foods og hlutabréf að nv.
405.717.327 kr. í Landic Property hf.
Verðmæti hlutabréfanna í Iceland í
sölunni er um 40,5 millj. GBP (66
ma.kr.) og Landic á u.þ.b. 5,7 ma.kr.
2 | Fréttir 28. febrúar 2011 Mánudagur
„Þetta er senni-
lega Íslandsmet
í hagnaði.
Blekkingarnar með
Iceland-bréf Fons
n Tölvupóstar sýna að tilgangurinn með Styttuviðskiptunum í ágúst 2008 var að
greiða niður skuldir Fons við Landsbankann og Glitni n Viðskiptin voru kynnt sem
Íslandsmet í hagnaði n Tilgangur viðskiptanna var þó annar en greint var frá
n Verðmatið á Iceland-bréfum Fons byggði á skuldastöðu Fons við Landsbankann
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Að frumkvæði Stoða Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, var einn þeirra sem Landsbankinn
hafði með í ráðum þegar rætt var um lánafyrirgreiðsluna til Styttu. Jón Ásgeir Jóhannesson,
stjórnarformaður félagsins, sést hér til hliðar við hann. Viðskiptin voru að frumkvæði Stoða.
Stytta í rannsóknarskýrslunni
„Áhættuskuldbindingar október 2008: 60 milljarðar króna. Stytta ehf. var stofnað til
að halda utan um kaup félagsins á 22,5% hlut í Iceland Foods Group Ltd. af Fons hf. í
júlí 2008. Eigendur Styttu ehf. voru Stoðir hf. (áður FL Group hf.) með 36,4% eignarhlut
og þrír helstu stjórnendur Iceland Foods Group Ltd. með samtals 63,6% hlut, Malcolm
Walker, Andrew Pritchard og Tarsem Dhaliwal. Stjórnarformaður og prókúruhafi
félagsins var Bernhard Nils Bogason. Á tímabilinu 1. janúar 2007 til 30. september 2008
hækkuðu skuldir Styttu ehf. um 60,0 milljarða króna. Í evrum hækkuðu skuldbindingar
félagsins um 412,3 milljónir:
Nýjar lánveitingar samkvæmt ákvörðun lánanefnda námu 55,7 milljörðum króna á
tímabilinu. Andvirðinu var ráðstafað til kaupa á verðbréfum. Til tryggingar láninu voru
hlutir Styttu ehf. og Stoða hf. í Iceland Foods Group Ltd., samtals 29,7% að verðmæti 66
milljarðar króna, og hlutir Stoða hf. í Landic Property hf., verðmæti 5,7 milljarðar króna.
Heildarverðmæti trygginga þegar lánið var greitt út var metið á um 71,7 milljarða króna.“