Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 6
„Það er ekkert sem bendir til þess nú að eldgos sé væntanlegt, en það væri beinlínis hagræðing sannleik- ans að útiloka það,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, jarðvísindamaður hjá Veðri ehf. Snarpir jarðskjálftar urðu við Kleifarvatn á sunnudag sem fjöl- margir íbúar höfuðborgarsvæðisins fundu fyrir. Sá stærsti varð klukk- an 17.27 á sunnudag en skjálftinn mældist 4,2 á Richter. Á sunnudags- morgun urðu tveir skjálftar, annars vegar 3,7 á Richter og hins vegar 4. Sigurður segir að ekkert komi á óvart við þessa atburði. Virkt eldgosasvæði „Við megum ekki gleyma því að Suð- urlandsskjálftarnir sem byrjuðu 17. júní árið 2000 hafa bæði losað spennu og byggt upp spennu ann- ars staðar. Suðurlandskjálftarnir hegðuðu sér eins og menn áttu von á. Byrjuðu austur í sveitum og hafa síðan verið að færa sig smám sam- an til vesturs,“ segir Sigurður. Hann segir að því komi það ekki á óvart að jarðskorpan sé að aðlaga sig breyttu spennustigi. „Á hinn bóginn megum við alls ekki gleyma því að Reykja- nesskaginn er virkt eldgosasvæði og hefur þar að auki gosið á söguleg- um tíma, sennilega síðast á 14. eða 15. öld,“ segir Sigurður og vísar til hraunsins sem menn þekkja suður af álverinu í Straumsvík, svokallað Kap- elluhraun. Siglum inn í tímabil eldgosa Sigurður segir að hraunið hafi runnið úr gíg í námunda við Sveifluhálsana sem eru í raun á því svæði sem nú skelfur. Hann bendir því á að menn þurfi vissulega að fylgjast vel með öllum jarðskorpuhreyfingum á þessu svæði, sérstaklega dýpi skjálftanna og óróa, til að átta sig á hvort kvika sé þarna á ferðinni. „Það er margt sem bendir til að við séum að sigla inn í eldgosatímabil hér á landi og þegar maður sér uppbrot jarðskorpunnar á þessu svæði með þeim hætti sem við sjáum nú, það er tiltölulega stóra skjálfta ofarlega í skorpunni, opnast oft glufur sem auðvelda kvikunni að komast til yfirborðs,“ segir Sigurður. Hann bendir á að í grunninn sé málið það að þessir skjálftar teng- ist fyrst og fremst landrekinu, suð- urhlutinn er á leið í austsuðaustur- átt og sá nyrðri í vestnorðvesturátt. Jarðskorpan verður að svara þessu landreki og þá með snörpum skjálft- um. „Ég verð þó að viðurkenna að það kæmi mér alls ekki á óvart að innan ekki svo langs tíma gæti far- ið að gjósa á Reykjanesskaganum,“ segir Sigurður. Það yrði þá fyrst og fremst hraungos með lítilli gjósku- framleiðslu og því ættu höfuðborg- arbúar að geta verið rólegir enn um sinn í það minnsta. „Þetta yrði í það minnsta ekkert líkt Eyjafjallagosinu sem valdið hefur miklum vanda á Suðurlandi,“ segir jarðeðlisfræðing- urinn Sigurður að lokum. Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlis- fræðingur á Veðurstofu Íslands, seg- ir ekki hægt að útiloka eldgos í kjöl- far skjálftanna. Hún bendir á að allan samanburð skorti því síðast hafi gos- ið á svæðinu á 14. öld en sem stendur hefur hún ekki áhyggjur. „Við erum ekki farin að sjá neitt sem tengist mögulegu gosi. En svæðið er auðvit- að eldvirkt og því fylgjumst við með því sem er að gerast. Það eru mörg hundruð ár síðan gaus þarna síðast, mig minnir að það hafi síðast verið á 14. öld. Svæðið hefur legið niðri síð- an en gosin þarna geta staðið lengi yfir,“ segir Steinunn. Aðspurð hvort skjálftahrinan valdi henni áhyggjum segir hún að svo sé ekki. „Nei, ekkert sérstaklega. En það er alltaf ýmislegt í kringum það þegar koma svona stórir skjálft- ar. Við vitum ekki alveg nákvæmlega hvað þarna er í gangi,“ segir Steinunn og bætir við að vænta megi fleiri jarð- skjálfta á næstu dögum af svipuðum toga og urðu á sunnudag. 6 | Fréttir 28. febrúar 2011 Mánudagur Ingibjörg svarar Þóru Kristínu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrr- verandi formaður Samfylkingar og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir það rangt að Alþingi, í ríkisstjórn- artíð Geirs H. Haarde, hafi skuld- bundið íslensku þjóðina til að greiða skuldina vegna Icesave. Þetta sagði Ingibjörg á Facebook-síðu sinni á sunnudag en tilefnið var leiðari Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, ritstjóra Smugunnar, sem hún ritaði nýlega. Í honum sagði Þóra Kristín sem fyrr segir að þingið hafi skuldbundið þjóðina til að greiða Icesave hvað sem mönnum fyndist um lagalega stöðu málsins. „Þess vegna getur íslenska þjóð- in siðferðislega ekki tekið afstöðu til annarra hluta en á hvaða vöxt- um og með hvaða skilmálum þær endurgreiðslur eigi að vera,“ sagði Þóra Kristín í leiðaranum. Nú hefur Ingibjörg Sólrún svarað fyrir þessi ummæli. „Þetta er ekki rétt. Alþingi samþykkti þann 5. des 2008 að ganga til viðræðna um Icesave á til- teknum grundvelli. Þetta var þings- ályktun sem byggðist á mati á stöð- unni á þeim tímapunkti og fól í sér pólitíska skuldbindingu þáverandi stjórnvalda að fara samningaleiðina. Ályktunin skuldbindur þjóðina ekki með neinum hætti að þjóðarrétti.“ Dæmdur fyrir blygðunarbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á föstudag 67 ára karlmann í fjög- urra mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að særa blygðunarsemi nágrannahjóna sinna. Maður- inn var ákærður fyrir að hafa átt við kynfæri sín þar sem hann var fáklæddur fyrir framan glugga á heimili sínu andspænis leikvelli. Maðurinn neitaði því að hafa verið að fróa sér íklæddur fráhnepptri skyrtu fyrir framan börn og full- orðna á leikvellinum. Hann viður- kenndi að hafa hugsanlega „klórað sér í pungnum.“ Málið var tilkynnt þann 16. maí í fyrra. Haft er eftir ákærða í lögregluskýrslu að „þetta væri mjög eðlileg hegðun og að allir gerðu svona. Hann gæti ekki að því gert að einhverjum börnum þætti þetta ógeðslegt. Það kæmi þeim ekki við hvað hann gerði á heimili sínu.“ Í niðurstöðu dómsins segir að hjónin hafi séð ákærða handfjatla kynfæri sín. Var háttsemi hans til þess fallin að særa blygðunarsemi þeirra sem yrðu vitni að henni og kom fram hjá vitnunum að þeim hafi verið stórlega misboðið við at- ferli hans. Var hann því sakfelldur samkvæmt ákæru. Reykjavík Reykjanesbær Stærstu skjálftarnir á sunnudag Kleifarvatn Stærð Tími Staður 4,1 17:27:36 4,8 km NNA af Krýsuvík 3,7 09:05:59 5,1 km NNA af Krýsuvík 3,6 08:20:25 40,8 km ASA af Eldeyjarboða EKKI HÆGT AÐ ÚTILOKA GOS Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is n Jarðskjálftavirkni við Kleifarvatn gefur tilefni til að hafa áhyggjur n Jarðvísindamaður segir margt benda til að við séum að sigla inn í eldgosatímabil n Má búast við fleiri skjálftum Félagsbústaðir stefndu sautján einstaklingum vegna vanskila: Vanskil aukast „Þessi mál snúast um vanskil á húsa- leigu,“ segir Lára Þorsteinsdóttir, fjár- reiðustjóri Félagsbústaða hf. Félagsbústaðir voru áberandi á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur á föstudag því þá voru þingfest mál gegn sautján einstaklingum vegna vanskila á húsaleigu. Í samtali við DV segir Lára að um ótengd mál hafi verið að ræða en sá háttur sé yfirleitt hafð- ur á að málin séu tekin fyrir sama dag- inn. „Þeir taka fyrir nokkur mál í einu og þeim er síðan raðað á sama dag- inn,“ segir Lára og bætir við að flest málin leysist farsællega og í einhverj- um tilfellum náist samkomulag áður en dómur í viðkomandi málum fellur. Félagsbústaðir hf. eru með 2.158 íbúðir á sínum snærum og segir Lára að mjög lítið hlutfall leigjenda lendi í vanskilum. „Það er bara brotabrot,“ segir Lára. Aðspurð hvort hlutfall vanskila hafi farið vaxandi eftir hrun fjármálakerf- isins árið 2008 og fjárhagsvandræði þúsunda einstaklinga í kjölfarið segir Lára að vart hafi verið við smávægi- lega aukningu. „Við höfum ekki orðið vör við aukningu að neinu marki en þó einhverja smávægilega aukningu,“ segir hún. Lára segir að mál hafi yfirleitt ver- ið í löngum farvegi áður en þau koma til kasta dómstóla. „Fólk fær til að byrja með greiðsluáskorun og síðan fer þetta í dálítið langt ferli. Fólk er þá búið að vera að safna skuldum í ein- hvern tíma,“ segir Lára. Sautján einstaklingar Málin voru þing- fest í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag. Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox „Ég verð þó að viðurkenna að það kæmi mér alls ekki á óvart að innan ekki svo langs tíma gæti farið að gjósa á Reykjanesskaganum. Mikil virkni Reykja- nesskaginn er virkt eldgosasvæði og þar gaus síðast á 14. öld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.