Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 20
20 | Fókus 28. febrúar 2011 Mánudagur Grínhópurinn Mið-Ísland heldur uppistandskvöld: Grín er grunnþjónusta „Grín er grunnþjónusta í nútíma- samfélaginu sem allir eiga að hafa aðgang að,“ segir uppistandarinn Ari Eldjárn einn meðlima í grín- hópnum Mið-Íslandi. Hópurinn heldur fyrsta uppistandskvöldið sitt á árinu miðvikudaginn 2. mars.  Í fyrsta skipti í langan tíma verð- ur hópurinn fullskipaður og munu uppistandararnir Ari Eldjárn, Berg- ur Ebbi Benediktsson, Halldór Hall- dórsson og Jóhann Alfreð Kristins- son allir koma fram. „Við verðum á okkar heimavelli sem er Þjóðleik- húskjallarinn. Við ætlum okkur að vera þar reglulega með uppistand, einu sinni í byrjun hvers mánaðar og langar til að skapa þar stemningu eins og í Comedy Store í London,“ segir Ari. Björn Bragi Arnarsson er kynn- ir kvöldsins og Sólmundur Hólm er sérstakur gestur kvöldsins. „Sól- mundur hefur slegið í gegn að und- anförnu og hann Björn Bragi sem hefur kynnt fyrir okkur áður og er fær MC eða Master of Ceremony. Hann er einkar laginn í því að halda utan um stemningu eins og þessa og vakti mikla lukku í síðasta skipti.“ Sætafjöldi er takmarkaður og miðar eru seldir í forsölu á net- inu. Takmörkuð miðasala verður á staðnum.  Skemmtunin hefst stundvíslega klukkan 20.30 miðvikudagskvöldið 2. mars. Sýningin er tveir klukkutím- ar með einu hléi. kristjana@dv.is Mið-Ísland Í fyrsta skipti í langan tíma verður hópurinn fullskipaður og munu uppistandararnir allir koma fram. Skólaljóð efst á metsölulista Skólaljóð með safni íslenskra ljóða myndskreytt af Halldóri Péturssyni trónir efst á metsölulista Eymundsson og greinilegt að fólk ber sterkar taugar til þessarar bókar sem líklega hefur mótað ljóðasmekk ungra skólabarna í tugi ára. Johnny Depp og Rango Johnny Depp ljáir kameljóninu Rango rödd sína. Barna- og fjöl- skyldumyndin Rango verður frum- sýnd í þessari viku í kvikmynda- húsum á Íslandi en myndin fjallar um kameljón sem dreymir um líf hetju. Rango þarf að taka á honum stóra sínum og leika slíka hetju með kostulegum afleiðingum þegar hann álpast inn í bæ þar bófar ráða ríkjum. Af fingrum fram í Salnum Margir muna sjálfsagt eftir þátt- um Jóns Ólafssonar tónlistar- manns, Af fingrum fram, sem voru á dagskrá RÚV í þrjá vetur. Þættirnir nutu mikilla vinsælda og nú mun Jón sitja við flygilinn og fara í gegnum sjóð íslenskra dægurlaga með gestum sínum í Salnum í Kópavogi miðvikudag- inn 2.mars og fimmtudaginn 3. mars. Í hvert sinn verður Jón með einn aðalgest og fyrsta kvöldið í Salnum fær hann poppstjörnuna Pál Óskar til sín. Afhommun Hannesar Út er komin bókin Afhommun Hannesar eftir Óðinn Hilmisson. Þetta er hans fyrsta bók og inni- heldur bæði sögur og ljóð. Bókin er myndskreytt af Gunnari Júlíussyni. Sagan um Hannes vekur sérstaka athygli en hún fjallar um ungan dreng sem verður fyrir aðkasti fyrir að vera prýddur eiginleikum sem samfélagið ætlar oft samkynhneigð- um mönnum. Eiginleikum svo sem hjartahlýju og næmni. J æja, þá er þessi nokkurn veg- inn árvissi ærslaleikur kom- inn á fjalir Borgarleikhússins. Að þessu sinni er það um tut- tugu ára gamall flækjuleikur eftir Bretann Ray Cooney sem Leik- félagsmenn hafa dottið niðrá og Gísli Rúnar Jónsson hinn óþreyt- andi þýðir og „staðfærir“. Formúl- an kemur ekki á óvart: íslensk heiti og staðarnöfn eru sett í stað þeirra ensku; misjafnlega snið- ugum og viðeigandi vísunum í ís- lenskan samtíma stráð hingað og þangað inn í samtöl og tilsvör; á einhvern hátt er andinn í leiknum þó alveg jafn enskur fyrir því. Það er ekki laust við að maður hafi séð eitthvað svipað áður – jafnvel úr smiðju Gísla Rúnars. Í texta Cooneys gerist leikurinn í námunda við Thatcher-stjórn- ina; einn af sveinum hennar hef- ur ákveðið að eyða kvöldinu við framhjáhald á hótelherbergi úti í bæ í stað þess að sinna pólitísk- um skyldum sínum í þinginu. Hér er hann orðinn að ráðherra í stjórn Jóhönnu og hefur komið sér fyr- ir á Hótel Borg. Viðhaldið er ekki lengur ritari Neil Kinnocks, eins og hjá Cooney; nei, það er ritari Sig- mundar Davíðs. Jóhanna með sína sterku pólitísku áru getur kannski gengið fyrir Thatcher, en Sigmund- ur Davíð í stað Neil Kinnocks ... æi, nei, heldur verkar það nú hjákát- lega. En sjálfsagt er ósanngjarnt að vera með slíka smámunasemi. Frumsýningargestirnir á föstu- dagskvöldið voru það alltént ekki; þeir voru flestir auðheyrilega mættir til þess eins að hlæja og létu fátt trufla sig við það. Þó voru það ekki síst hinir pólitísku brand- arar sem fóru vel í públikum, enda sumir beittir, kannski þó enginn sem skotið á seðlabankastjórann (þann fyrrverandi); það hitti beint í mark og salurinn sprakk. Á sviðinu var hart keyrt áfram, á stundum að kunnuglegum ís- lenskum hætti – ekki laust við að gamli gassagangurinn léti á sér kræla, einkum þegar á leikinn leið. En þá voru þræðirnir, sem leik- endur hafa úr að spinna, orðnir í þynnsta lagi frá hendi höfundar; það þarf heilmikið hugmyndaflug til að halda svona delluverki gang- andi og ekki laust við að þar skorti nokkuð á í þessu tilviki. Hjá hinum klassísku meisturum þessa leik- forms, höfundum eins og Feydeau og Labiche, er það gjarnan mis- skilningur og alls kyns ruglingur sem knýr delluna áfram; hér gríp- ur höfundur fremur til þess ráðs að láta persónur sumar vera svo auð- trúa að engu er líkara en jaðri við greindarskerðingu; hinn siðdaufi pólitíkus verður vitaskuld að grípa til allra bragða til að klóra sig út úr þeim vandræðum sem hann er óð- ara búinn að koma sér í, en áhorf- endur þurfa þá um leið að kyngja ýmsu til að haldast við efnið. Guð- jón Davíð Karlsson leikur þennan gaur og er með skegghýjung eins og Ásmundur Daði – var eitthvert sérstakt „point“ með því? Framan af og raunar langt fram eftir leikn- um reynir mest á hann í samleik við nýliðana Hilmar Guðjónsson og Láru Jóhönnu Jónsdóttur, sem gekk að mestu áfallalaust; þau stóðu sig öll vel. Að öðru leyti var frammistaða leikenda allmisjöfn. Sumir misstu sig í ofleik; aðrir héldu sig bet- ur á mottu skýrrar persónusköp- unar. Þar finnst mér helst ástæða að nefna Unni Ösp Stefánsdótt- ur, sem var skemmtilega raffíner- uð sem eiginkona skúrksins; það er gaman að sjá hvað Unnur Ösp færist í aukana í hverju nýju hlut- verki. Rúnar Freyr Gíslason var líka ágætur í hlutverki kokkálsins; Rúnar Freyr hefur sést í svona týp- um áður, en hefur þær fullkomlega á valdi sínu. Og ekki brást Þröstur Leó Gunnarsson sem „líkið“ né sá ókunni meðleikari sem lék Glugg- ann – segi ekki meir til að skemma ekki fyrir þeim fjölmörgu sem eiga örugglega eftir að sjá þetta. Á hinn bóginn var afskaplega lít- ið gaman að „tilþrifum“ þeirra Bergs Þórs Ingólfssonar og Sigurð- ar Sigurjónssonar; þeir léku hótel- þjóna og buðu upp á fátt annað en sömu leiðinda taktana út í gegn. Þar hefði leikstjórinn gjarnan mátt taka í taumana og láta sér detta eitthvað boðlegt í hug. Búningarnir voru fínir og leik- myndin svo sem í góðu lagi líka, þó að Dómkirkjuturninn og Alþingis- húskórórónan sem teygja sig upp yfir veggbrúnina – og eru víst þarna upp á staðfærsluna – minntu full- mikið á tertuskreytingu. Nei, ráðherra Leikfélag Reykjavíkur: Nei, ráðherra eftir Ray Cooney Þýðing og staðfærsla: Gísli Rúnar Jónsson Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson Leikmynd og búningar: Snorri Freyr Hilmarsson Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlist: Baggalútur Leikrit Jón Viðar Jónsson Ekki beinlínis ferskt – en fólkið hlær Vaxandi leikkona Unnur Ösp Stefánsdóttir var skemmtilega raffíneruð sem eiginkona skúrksins; það er gaman að sjá hvað Unnur Ösp færist í aukana í hverju nýju hlutverki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.