Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 28. febrúar 2011 Mánudagur Jóhanna Vala Höskuldsdóttir og Eva Rún Snorradóttir: SKIPST Á ÖRBYLGJUOFNUM Í HJÓNAVÍGSLUNNI „Það er frábært að vera orðnar frúr,“ segir Eva Rún Snorradóttir um hjónavígslu hennar og Jóhönnu Völu Höskuldsdóttur sem fór óvænt fram á barnum Barböru á Lauga- vegi 22 í síðustu viku. Gestir á Bar- böru voru komnir á skemmtikvöld (kannski frekar: tónleika og upp- ákomu viðburðinn Skyndilega greip mig óstjórnlega löngun, sem fór fram í fimmta sinn á Barböru. Á kvöldun- um er lögð áhersla á hinsegin póli- tík og kvennatónlist) sem tók óvænta stefnu þegar skemmtiatriði (gjörn- ingur frekar) endað með hjónavígslu þeirra tveggja. Séra Auður Eir Vil- hjálmsdóttir gaf stúlkurnar saman við mikil fagnaðarlæti gesta staðar- ins. Frúrnar tvær settu vígsluna upp sem gjörning þar sem áherslan á það hversu gagnkynhneigð stofn- un hjónabandið er. „Við vildum draga það fram að hjónaband er líka samningur og við hétum hvor ann- arri því að veittur yrði farsæll skiln- aður færi það svo að hjónaband- ið yrði óhamingjusamt,“ segir Eva. „Við giftum okkur í einlægni þótt at- höfnin hafi farið fram með þessum hætti,“ segir Eva og segir að þær tvær hafi vaknað upp morguninn eftir með frelsistilfinningu. „Eins mót- sagnakennt og það nú er,“ bætir Eva við og hlær. Í kjölfar heitanna skiptust bræð- ur frúnna á örbylgjuofnum og inn- sigluðu þannig hjónabandið sem viðskiptasamning og vakti það mikla kátínu meðal gestanna í þess- ari óvæntu en gleðilegu hjónavígslu. kristjana@dv.is Séra Auður Eir gaf frúrnar saman Eva Rún og Vala giftu sig á skemmti- staðnum Barböru í síðustu viku. Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir er á leiðinni til Íslands. Hún segir frá því á Facebook-síðunni sinni að hún sé búin að pakka búslóðinni í gám sem sé á leiðinni til Íslands með skipi. Þóra hefur verið búsett í Noregi undanfarið en þar hefur hún starfað sem fjölmiðlamaður líkt og hún gerði á Íslandi en flestir muna eftir henni úr Kastljósinu. „[E]r á leiðinni til landsins en mín framtíðarplön eru aldrei for gúd,“ segir hún síðan á Facebook-síðunni sinni og bætir síðan við: „Ég tek einn dag í einu.“ Þóra á leiðinni heim Urður Hákonardóttir, fyrrverandi söngkona Gus Gus, er búin að vera dugleg í upptökuveri upp á síðkastið og hefur lagt hart að sér við að taka upp nýja tónlist. Samkvæmt heimildum DV munu aðdáendur Urðar ekki þurfa að bíða lengi eftir að heyra afrakstur þeirrar vinnu hennar. Urður var söngkona Gus Gus á árunum 2001–2007 og vakti verðskuldaða athygli. Hún hefur þó ekki alveg sagt skilið við fyrrverandi samstarfsmenn í Gus Gus, því Birgir Þórarinsson og Magnús Guðmundsson hafa báðir unnið með henni að tónlist síðan. Urður í upptökuveri S igríður Dagbjört Ásgeirsdótt- ir var kosin ungfrú Reykjavík um helgina og líður vel eft- ir sigurinn. Hún hefur haft í nógu að snúast síðustu vikurnar því meðan hún bjó sig undir keppnina sinnti hún líka formennsku í Nem- endamóti Verzlunarskóla Íslands. „Jú, það hefur verið alveg brjálað að gera hjá mér síðustu vikurnar. Við frumsýndum Drauminn þann 3. febrúar og æfingar fyrir Ungfrú Reykjavík hafa verið á hverju kvöldi fram að keppninni.“ Fæ ekki 10 í öllu Sigríður er á lokaönn á viðskipta- fræðibraut Verzlunarskólans og er sögð hörkudugleg námskona. Hún stefnir á nám í lögfræði í Háskóla Ís- lands eftir útskriftina. „Ég þori nú ekki að segja að ég fái 10 í öllu eins og stendur í viðtali við mig á vísi.is en ég reyni nú samt að standa mig vel,“ segir Sigríður og hlær. En hvers vegna ákvað hún að taka þátt í fegurðarsamkeppni? „Vin- kona mín skráði mig í keppnina. Hún hafði tekið þátt í henni áður og sagði að þetta væri alveg málið fyrir mig og það reyndist rétt. Að taka þátt í þess- ari keppni var skemmtilegt og þetta var frábær upplifun sem fór fram úr öllum væntingum. Það er þá helst félagsskapurinn og hversu miklum tökum ég náði á sjálfsöryggi og fram- komu.“ Ekki erfitt að koma fram á nærfötunum Hún segist aðspurð ekki hafa átt í vandræðum með að koma fram á nærfötunum og gefur lítið fyrir að það atriði sé fremur umdeilt í keppn- inni, en margar fyrrverandi fegurð- ardrottningar hafa gefið út að þeim finnist það of langt gengið. „Mér fannst ekki erfitt að koma fram á nærfötunum. Við erum einfaldlega í því sem Debenhams hafði hug á að kynna sem voru meðal annars sund- bolir og nærfatnaður og eftir keppn- ina hef ég lært að hafa fulla trú á sjálfri mér. Ég læt mér fátt um finnast ef einhverjir vilja gagnrýna mig.“ Undirbúninginn segir Sigríður hafa verið mikinn og helst falist í æf- ingum í framkomu fyrir keppnina. Sjálf hafi hún breytt eigin mataræði og reynt að stunda líkamsrækt þeg- ar henni gafst færi á. „Ég fékk mér jógúrt, ávexti og grænmeti og svona. Ég leyfði mér nú alveg að borða það sem mig langaði í kvöldmat og þetta var ekkert rosalega strangt. Ég reyndi síðan mitt besta í ræktinni en tók þessu eins og áður sagði ekki of al- varlega.“ n Ekkert mál að koma fram á nærfötunum n Full sjálftrausts eftir keppnina n Formaður Nemendamóts Verzlunarskólans n Góður námsmaður og stefnir á lögfræði eftir stúdentspróf Ungfrú Reykjavík, Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir: Full sjálftrausts Krýnd Ný fegurðardrottning krýnd. Í öðru sæti varð Eyrún Anna Tryggvadóttir og í þriðja sæti varð Hjördís Hjörleifsdóttir. Lilja Ragna Róbertsdóttir fékk flest atkvæði í símakosningu. Halldóra Arnardóttir var kosin vinsælasta stúlkan. MYNDIR BJÖRN BLÖNDAL Ekki erfitt að koma fram á nærfötunum Sigríður Dagbjört gefur lítið fyrir þá umræðu að það sé ósmekklegt að keppendur komi fram á nærfötun- um. „Ég læt mér fátt um finnast ef einhverjir vilja gagnrýna mig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.