Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Page 12
12 | Fréttir 28. febrúar 2011 Mánudagur
Blaðamannaverðlaunin voru afhent
um helgina. Blaðamannaverðlaun
ársins fékk Kristinn Hrafnsson fyr-
ir fréttir um þyrluárás í Bagdad og
störf á vegum WikiLeaks. Verðlaun
fyrir rannsóknarblaðamennsku fékk
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, blaða-
maður á DV, fyrir skrif um kynferðis-
brotamál. Athygli vakti að verðlaun
fyrir bestu umfjöllun fóru sameigin-
lega til Fréttastofu RÚV, Fréttastofu
Stöðvar 2, og ritstjórnar Morgun-
blaðsins fyrir umfjöllun um eldgosin.
Brynjar Gauti Sveinsson fékk verð-
laun fyrir „mynd ársins“.
Ingibjörg Dögg elti upp lausa
enda og velti við steinum
Í rökstuðningi dómnefndar mátti
lesa að verðlaunin hlaut Ingibjörg
Dögg fyrir áleitna og vandaða um-
fjöllun um kynferðisbrotamál og for-
ystu um skrif á þessu sviði, svo sem
um biskupsmálið og önnur meint
kynferðisbrot innan kirkju og trúfé-
laga. Ingibjörg Dögg er sögð hafa náð
að sameina mikilvæga kosti vand-
aðrar rannsóknarblaðamennsku
um viðkvæm mál. Annars vegar hafi
hún fjallað um viðfangsefni sín af
vandvirkni og sýnt viðmælendum þá
virðingu sem leiðir til trúnaðar milli
blaðamanns og heimildarmanna.
Hins vegar hafi hún fylgt eftir málum
til enda, elt uppi lausa enda og velt
við þeim steinum sem þurfti til að fá
botn í málin.
Vegna fréttaflutnings Ingibjargar
komust ný mál og mál sem um ára-
bil hafa legið í þagnargildi upp á yf-
irborðið.
Myndbandið vakti heimsathygli
Kristinn Hrafnsson RÚV/WikiLeaks
uppskar blaðamannaverðlaun ársins
fyrir úrvinnslu á myndbandi um þyrlu-
árás í Bagdad sem hann vann ásamt
Inga R. Ingasyni. Myndbandið vakti
heimsathygli og varpaði ljósi á eðli nú-
tímahernaðar og örlög fórnarlamba.
Verðlaunin fékk hann ekki eingöngu
fyrir störf sín hjá RÚV heldur einnig
fyrir störf hans sem fulltrúi Wiki Leaks
við að koma mikilvægum upplýsing-
um á framfæri til almennings.
Eyjafjallajökull, hjartauppskurður
og vandræði kirkjunnar
Við sama tækifæri voru á árlegri sýn-
ingu Blaðaljósmyndarafélags Íslands
veitt verðlaun fyrir bestu ljósmyndir
ársins í átta flokkum og tvenn verðlaun
fyrir myndskeið ársins.
Brynjar Gauti Sveinsson var verð-
launaður fyrir fréttamynd ársins, Krist-
inn Ingvarsson fékk verðlaun í þrem-
ur flokkum, fyrir íþróttamynd ársins,
portrett ársins og myndröð ársins af
hjartauppskurði sem vakti mikla at-
hygli í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins. Óskar Páll Elfarsson fyrir tíma-
ritamynd ársins, Vilhelm Gunnarsson
fyrir umhverfismynd ársins, Rakel
Pálsdóttir fyrir „daglegt líf“-mynd
ársins og Gunnar V. Andrésson fyrir
fréttamynd ársins af biskupi Íslands og
Geir Waage að ræðast við á biskups-
stofu um vandræði kirkjunnar.
n Blaðamannaverðlaun voru afhent um helgina n Einnig veitt verðlaun fyrir bestu ljósmyndir
ársins n Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hjá DV fékk verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku
n Fréttamynd ársins sýnir biskup Íslands og Geir Waage ræða um vandræði kirkjunnar
BLAÐAMANNA-
VERÐLAUNIN 2010
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Eyjafjallajökull í fókus Brynjar
Sveinsson á mynd ársins af kálfum
í öskufalli undir Eyjafjöllum.
Gunnar V. Andrésson fékk verðlaun
fyrir fréttamynd ársins Biskup Íslands,
Karl Sigurbjörnsson, og Geir Waage ræðast
við á biskupsstofu um vandræði kirkjunnar.
Myndaröð ársins – hjartauppskurður
Kristinn Ingvarsson var verðlaunaður fyrir
einstaklega vandaða vinnu. En hann fylgdist
með hjartaflutningi í Gautaborg þar sem
Kjartan Birgisson fékk nýtt hjarta.
Blaðamannaverðlaun Hér sjást verðlaunahafarnir allir saman. Frá vinstri: Sigríður Hagalín Björns-
dóttir, Pétur Blöndal, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Kristinn Hrafnsson og Kristján Már Unnarsson.
Ljósmyndir og myndskeið ársins Hér sjást allir verðlaunahafarnir saman. Brynjar
Gauti hlaut viðurkenningu fyrir fréttamynd ársins.
Rannsóknarblaðamaður ársins Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir á DV var verðlaunuð fyrir sérlega
vandaða umfjöllun um kynferðisbrotamál og forystu um skrif á þessu sviði, til dæmis biskupsmálið.