Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Qupperneq 14
Þolinmóður
starfsmaður
n Lofið að þessu sinni fær Seglagerðin
Ægir. „Ég fór í Seglagerðina með felli-
hýsi í huga og hafði margar og mis-
munandi spurningar sem ég þurfti
svör við. Það var einn maður að vinna
og hann veitti mér afbragðsþjónustu.
Hann sinnti mér strax og var afar
þolinmóður þrátt fyrir spurn-
ingaflóð mitt. Hann var mjög
liðlegur og svaraði faglega
og heiðarlega. Svona þjón-
ustu vill maður fá þeg-
ar maður er að hugsa
um eitthvað jafn dýrt
og fellihýsi,“ segir við-
skiptavinurinn ánægði.
Vörn gegn
sjúkdómum
Andoxunarefni er samheiti yfir nátt-
úruleg efni sem vernda líkamann
gegn sindurefnum sem geta skaðað
lifandi frumur, veikt ónæmiskerfið
og leitt til sjúkdóma eins og hjarta-
sjúkdóma og krabbameins. And-
oxunarefnin fáum við úr ávöxtum,
grænmeti, korni, baunum, hnetum
og jurtum. Þetta kemur fram á
biovorur.is en þar segir að einnig séu
nokkrar jurtir sem hafi eiginleika
andoxunarefna. Til andoxunarefna
teljast til dæmis A-vítamín, beta-kar-
otín og önnur karotín, flavanoids, C-
og E-vítamín, selen og zink. Annað
öflugt andoxunarefni er hormónið
melatonín. Hér höfum við enn meiri
ástæðu til að borða grænmeti og
ávexti.
Engin aðstoð
n Intersport í Smáralindinni fær last-
ið að þessu sinni. Viðskiptavinur fór
þangað inn fyrir stuttu og þurfti fljót-
lega á aðstoð starfsmanna að halda.
„Það voru tveir starfsmenn í búðinni
en þeir voru báðir í símanum. Ég
var eini viðskiptavinurinn í búðinni
og það var greinilegt að
þeir sáu mig þar sem ég
stóð og horfði til þeirra.
Hvorugur þeirra hætti
þó að tala í símann.
Þegar ég hafði staðið í
nokkrar mínútur og beð-
ið eftir þeim ákvað ég að fara.
Þeir misstu af viðskiptum
mínum þar.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
LOF&LAST
Frystirinn besti vinur hagsýnna Hag-
kvæmt getur verið að kaupa niðursuðuvörur í stórum, fjölskyldu-
vænum dósum eins og segir í sparnaðarráði á matarkarfan.is.
Þetta eigi sérstaklega við á heimilum þar sem marga maga þurfi
að metta. Þar segir einnig að frystirinn sé í raun besti vinur þeirra
hagsýnu því ef eldað er mikið má alltaf geyma afgang í frystinum
og nýta síðar. Stór niðursuðudós verði því að snjöllum matarinn-
kaupum hjá þeim sem kunna að frysta og það sé ekki flókið, bara
skipta upp í skammta og setja á ís.
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 28. febrúar 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 221,9 kr. Verð á lítra 226,9 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 221,6 kr. Verð á lítra 226,5 kr.
Verð á lítra 222,9 kr. Verð á lítra 226,8 kr.
Verð á lítra 221,5 kr. Verð á lítra 226,4 kr.
Verð á lítra 221,6 kr. Verð á lítra 226,5 kr.
Verð á lítra 221,9 kr. Verð á lítra 226,8 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Akureyri
Melabraut
Algengt verð
Það hefur orðið hugarfarsbreytinga
hjá okkur og nú er það ekki bara
skrýtna fólkið sem hjólar. Enda er
bensínlítrinn í 222 krónum.
Íslendingar eru feitari en nokkru
sinni fyrr, mengun í heiminum er
vaxandi vandamál og bensínlítrinn
er kominn í 222 krónur. Vegna þessa
íhuga nú margir að taka fram reið-
hjólin sem legið hafa í skúrum og
geymslum og safnað ryki. DV hefur
tekið saman kosti þess að nota reið-
hjólið sem ferðamáta en þeir eru
margvíslegir. Eins var skoðað verð á
hjólum og tiheyrandi öryggisbúnaði
í nokkrum verslunum.
Hjól sem farartæki
„Það er auðveldlega hægt að hjóla
átta mánuði á ári,“ segir Albert Jak-
obsson, formaður Hjólreiðafélags
Reykjavíkur. Hann segir að fjór-
ir mánuðir ársins, yfir hávetrartím-
ann, séu varhugaverðir vegna myrk-
urs, roks og snjós en þó sé stór hópur
fólks sem ferðast á hjólum allan árs-
ins hring.
Að sögn Alberts er hægt að skipta
hjólum í fjóra flokka; fjallahjól, götu-
hjól, blendinga og kommúterhjól.
Aðspurður hvernig hjól fólk ætti að
kaupa sem hyggst nota það sem far-
artæki innanbæjar, segist hann mæla
með blendingshjólum eða kommút-
erhjólum. Það séu hjól þar sem hugs-
unin er að þér líði vel, sitjir upprétt-
ur og með brettum. Hann mælir ekki
með fjalla- og götuhjólum fyrir fólk
sem vill kaupa sér farartæki.
Henta ekki innanbæjar
Albert segir að mikið hafi verið um
að seljendur mæli með fjallahjólum
og hafi selt fólki þau til innanbæjar-
notkunar. „Fjallahjólin eru ekki þægi-
leg hjól og eru hugsuð sem keppn-
ishjól. Þau henta einfaldega verr til
að komast á milli staða innanbæjar.
Þetta er þó aðeins farið að skána og
seljendur farnir að átta sig á að venju-
legt fólk hefur aðrar þarfir en keppnis-
fólk,“ segir hann og bætir við að hann
myndi aldrei taka götuhjólið sitt og
ferðast um Reykjavík á því. Það sé með
örmjóum dekkjum sem sé afar kostn-
aðarsamt að skipta um. Hann bendir
einnig á að Danir, sem eru duglegir
að hjóla, noti mest megnis kommút-
erhjólin. „Maður sér þar gömlu góðu
hjólin því fólk vill sitja venjulega og
hafa bögglabera og bretti.“
Hugarfarsbreyting
Albert segir að það hafi orðið gífur-
leg fjölgun í hópi þeirra sem ferðast
um á hjólum síðustu árin. Hjólastígar
hafi verið lagðir í kringum 1986 og þá
var enginn á hjóli. „Ég var einn á þess-
um stígum og var bara talinn skrýtinn.
Það hefur orðið hugarfarsbreytinga hjá
okkur og nú er það ekki bara skrýtna
fólkið sem hjólar. Enda er bensínlít-
rinn í 222 krónum, “ segir hann.
Bæta hreinsun á hjólastígum
„Það er eitt sem ég vil gjarnan að
komi fram og það er í sambandi við
ruðninga á hjólastígum. Þetta er ei-
lífðarvandamál hjá okkur, það er að
segja hreinsun stíga og ruðningur.
Þetta gerir það að verkum að þeir
sem reyna að fara eftir tilmælum
borgarráðs, um að hjóla meira og
nota bílinn minna, mjög erfitt fyrir.
Við erum svo kraftlítil á hjólunum að
þegar það er smá snjór á gangstétt-
um eða stígunum, þá komumst við
ekki áfram,“ segir hann. Huga þurfi
að þessu ef við eigum að gera fólki
kleift að komast á milli áfangastaða
á hjólum. Hann segir það jafn mik-
ilvægt og að halda götunum auðum
en þetta sé ekki gert nógu vel og ekki
með réttu hugarfari.
Kostnaður hjóla
Haft var samband við nokkrar reið-
hjólaverslanir og verð á hjólum
kannað. Beðið var um að mæla með
hjóli fyrir venjulega manneskju sem
ætlar sér að nýta hjólið sem farartæki
innanbæjar. Mælt var með hjólunum
hér að neðan en hægt er að kaupa
dýrari hjól með meiri og vandaðri
búnaði. Tekið skal fram að hægt er
að kaupa reiðhjól víðar, en verslan-
irnar sem hér um ræðir sérhæfa sig í
reiðhjólum og veita þjónustu eftir að
hjólin hafa verið keypt.
n Íslendingar eru að verða meðvitaðri um ágæti reiðhjólsins sem farartækis
n Það er auðveldlega hægt að hjóla átta mánuði á ári n Ýmislegt þarf að hafa í
huga þegar hjólið er valið n Öryggisbúnaður er hluti af kostnaði við kaupin
Taktu fram hjólið
og sparaðu stórfé
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is GÁP
MONGOOSE CROSSWAY
Verð 76.900 krónur
Hjálmur 6.900 - 10.000 krónur
Glitvesti 1.900 krónur
Örninn
TRECK 7100
Verð 69.900 krónur
Hjálmur 5.900 krónur
Glitvesti 1.990 krónur
Markið
SCOTT SPORTSTER
Verð 75.900 krónur
Hjálmur 4.900 - 8.900 krónur
Glitvesti 1.290 krónur
Hjólasprettur
FOCUS
Verð 89.000 krónur
Hjálmur 5.900 krónur
Glitvesti 1.490 krónur
n Öryggisbúnaður hjólreiðafólks er mikilvægur og má þar nefna fyrst af öllu ljósin.
Ljós skulu vera að framan og aftan auk glitaugna á hliðum. Gott er að hjólreiðamenn
séu einnig í almennilegum glitvestum. Svo er það hjálmurinn sem vart þarf að nefna.
Nýjung í aukabúnaði eru hjólagleraugu sem vernda augu hjólreiðamanns fyrir vindi
og flugum.
Reiðhjólin sem verslanirnar mæltu með
Reiðhjólamenning Með
breyttu hugarfari gætu
Íslendingar tileinkað sér
reiðhjólamenningu. MYND PHOTOS.COM