Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Qupperneq 25
„Þetta var alveg ótrúlega gaman,
við vorum að spila vel allan tímann
og það var mun meiri heildarbrag-
ur á liðinu en í fyrra,“ segir Einar
Jónsson, þjálfari kvennaliðs Fram
í handbolta, en Safamýrarstúlkur
fögnuðu sínum öðrum bikarmeist-
aratitli í röð með öruggum sigri
á erkifjendunum úr Val, 25–22.
Framstúlkur komust snemma fjór-
um mörkum yfir, 8–4, þökk sé frá-
bærum varnarleik og stórleik Írisar
Bjarkar Símonardóttur í markinu.
Þetta bil náði Valur aldrei að brúa.
Munurinn var einnig fjögur mörk í
hálfleik, 13–9. Í seinni hálfleik náði
Valur mest að minnka forskotið í
eitt mark, 20–19, en þá komu þrjú
mörk í röð frá Fram, staðan 23–19,
og björninn unninn.
Reyndi að bera árin saman
Fram og Valur mættust einnig í
bikar úrslitum í fyrra en þar hafði
Fram sigur með ótrúlegu sigur-
marki. Línukonan Pavla Nevarilova
blakaði þá boltanum í markið þegar
tíu sekúndur voru eftir. Í ár var Fram
einfaldlega töluvert sterkara en Ís-
landsmeistarar Vals. „Mér fannst við
miklu meira sannfærandi en í fyrra,“
segir Einar. „Við vorum betri allan
leikinn og Valsstelpurnar komust
aldrei í takt við leikinn,“ segir hann
en sá hann einhvern mun á stelp-
unum í þessari viku og þeirri sem
leiddi að bikarúrslitunum í fyrra?
„Nei, þetta var mjög svipað. Á
hverjum degi í þessari viku var ég
að velta fyrir mér hvernig tilfinn-
ingin væri. Eftir æfinguna á fimmtu-
daginn leið mér að ég held svipað
og í fyrra. Við lögðum samt vikuna
upp alveg eins. Maður var alltaf að
reyna bera að tilfinninguna saman
við hvernig manni leið í fyrra. Það
er samt ekkert hægt þegar maður er
búinn að gleyma því,“ segir Einar og
hlær við.
Hann var þó ánægður með stelp-
urnar í leiknum og hvernig þær
sýndu ró allan tímann. „Í fyrra var
þetta mikið taugastríð. Þar vorum
við að spila frábærlega í 45 mín-
útur en eftir það fór allt í baklás og
við skoruðum bara eitt mark síð-
asta korterið. Í ár voru leikmennirn-
ir mínir mun yfirvegaðri og héldu ró
sinni sama hvað gekk á. Við vorum
að gera mistök og fá á okkur mik-
ið af vítum en sama hvað gekk á þá
gleymdu stelpurnar því bara strax.“
Á pappírnum eru þetta
Fram og Valur
Það vantaði ekki leikmennina til að
stíga upp hjá Fram í gær en sóknar-
lega átti Stella Sigurðardóttir stórleik
og skoraði átta mörk. Sigurbjörg Jó-
hannsdóttir var einnig flott sem og
leikstjórnandinn Karen Knútsdótt-
ir. Þá fór Íris Björk Símonardóttir á
kostum og varði 23 skot. „Ég vil líka
nefna Önnu Maríu Guðmundsdótt-
ur,“ segir Einar. „Hún spilaði bara
varnarleikinn og stjórnaði hon-
um frábærlega. Það er kannski ekki
endilega eitthvað sem allir taka eftir.“
Nú hefst endaspretturinn að Ís-
landsmeistaratitlinum en 12. mars
mætast Fram og Valur í leik sem
verður líklega upp á efsta sætið í
deildinni og þar af leiðandi heima-
vallarrétt út úrslitakeppnina. „Það
má samt ekki gleyma Stjörnunni í
þessari umræðu og svo verður eitt
lið til viðbótar í úrslitakeppninni. Ef
maður horfir samt á pappírana þá
verða þetta Fram og Valur. Við verð-
um bara að nota þennan bikarsigur
til að hvetja okkur áfram. Alla vega
ekki letja okkur,“ segir Einar sem
hefur margoft lent í öðru sæti með
Framliðið og fagnar því hverjum titli
vel.
„Núna eru alla vega komnir tveir
titlar af mörgum mögulegum. Maður
er búinn að vera ansi oft í öðru sæti
og þetta eru auðvitað gjörólíkar til-
finningar. Það er svo miklu skemmti-
legra að vinna,“ segir Einar Jónsson,
þjálfari bikarmeistara Fram.
Sport | 25Mánudagur 28. febrúar 2011
Eyðimerkurganga Arsenal heldur áfram:
48 ára bið Birmingham á enda
Birmingham er deildarbikarmeist-
ari á Englandi eftir frábæran sigur á
Arsenal, 2–1, í gær. Nikola Zigic kom
Birmingham yfir með skallamarki
í fyrri hálfleik og hann hefði átt að
bæta við marki stuttu seinna. Í það
skiptið sá þó hinn nítján ári gamli
markvörður Arsenal, Wojciech
Szczesny, við honum. Birmingham
var illa refsað fyrir það því Robin van
Persie jafnaði metin eftir glæsilegan
undirbúning Andrei Arshavins.
Í seinni hálfleik réð Arsenal lög-
um og lofum og gerði harða hríð
að marki Birmingham. Þar var Ben
Foster þó eins og klettur í markinu og
varði allt sem á það kom. Það skipti
engu hvort Arsenal reyndi langskot
eða að spila sig í gegn, allt varði Ben
Foster. Hann var síðan eftir leikinn
valinn maður leiksins í annað skiptið
á þremur árum en þá viðurkenningu
fékk hann einnig þegar Manchester
United lagði Tottenham fyrir tveim-
ur árum.
Dagurinn breyttist þó í hátíð fyrir
Birmingham þegar liðið skoraði sig-
urmarkið á lokamínútu leiksins. Nik-
ola Zigic náði þá laflausum skalla að
marki Arsenal sem Wojciech Szczes-
ny hefði átt að grípa auðveldlega.
Miðvörðurinn Laurent Koscielny
reyndi þó að sparka boltanum burt
og við það fipaðist Szczensy. Hann
missti boltann úr höndunum, beint
á Obafemi Martins sem skoraði sig-
urmarkið.
Allt ætlaði um koll að keyra þeg-
ar flautað var til leiksloka enda hafði
Birmingham ekki unnið titil í 48 ár
áður en kom að leiknum í gær. Birm-
ingham fær nú keppnisrétt í Evrópu-
deildinni í haust en án sigurs í deild-
arbikarnum hefði liðið aldrei komist
í Evrópukeppnina í ár. Eyðimerkur-
ganga Arsenal heldur því áfram en
sex áru eru liðin frá því Wenger vann
síðast bikar með liðinu. Arsenal er þó
í baráttu á þremur öðrum vígstöðv-
um. tomas@dv.is
Úrslit
EIMSKIPSBIKARINN
KARLAR
Valur - Akureyri 26-24
Mörk Vals: Anton Rúnarsson 5, Orri Freyr
Gíslason 5, Sturla Ásgeirsson 5, Valdimar
Fannar Þórsson 4, Finnur Ingi Stefánsson 4,
Ernir Hrafn Arnarson 3.
Varin skot: Hlynur Morthens 15
Mörk Akureyrar: Bjarni Fritzson 7, Oddur
Gretarsson 7, Guðmundur Hólmar Helgason
4, Heimir Örn Árnason 3, Hörður Fannar
Sigþórsson 2, Daníel Örn Einarsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 17
KONUR
Fram - Valur 25-22
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 8, Sigur-
björg Jóhannsdóttir 5, Karen Knútsdóttir
4, Pavla Nevarilova 3, Birna Berg Haralds-
dóttir 2, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Guðrún Þóra
Hálfdánardóttir 1.
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 22.
Mörk Vals: Anett Köble 8(7 víti), Anna
Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Kristín
Guðmundsdóttir 3, Karólína Gunnarsdóttir
2, Hildigunnur Einarsdóttir 2, Hrafnhildur
Ósk Skúladóttir 2, Íris Ásta Pétursdóttir 1,
Rebekka Rut Skúladóttir 1.
Varin Skot: Sunneva Einarsdóttir 8, Guðný
Jenný Ásmundsdóttir 2.
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Aston Villa - Blackburn 4-2
1-0 Ashley Young (49. víti), 2-0 Grant Hanley
(62. sm), 3-0 Stewart Downing (64.), 3-1
Nikola Kalinic (81.), 4-2 Ashley Young (82.).
Rautt spjald: Ryan Nelsen, Blackburn (90.).
Everton - Sunderland 2-0
1-0 Jermaine Beckford (8.), 2-0 Jermaine
Beckford (39.).
Newcastle - Bolton 1-1
1-0 Kevin Nolan (13.), 1-1 Daniel Sturridge
(38.).
Rautt spjald: Ryan Taylor, Newcastle (‚54)
Wigan - Man. United 0-4
0-1 Javier Hernández (17.), 0-2 Javier
Hernández (74.), 0-3 Wayne Rooney (84.),
0-4 Fábio (87.).
Úlfarnir - Blackpool 4-0
1-0 Matt Jarvis (3.), 2-0 Jamie O‘Hara (51.),
3-0 Sylvan Ebanks-Blake (79.), 4-0 Sylvan
Ebanks-Blake (90.).
RAUTT: DJ Campbell, Blackpool (42.).
West Ham - Liverpool 3-1
1-0 Scott Parker (22.), 2-0 Demba Ba (44.),
2-1 Glen Johnson (83.), 3-1 Carlton Cole
(90.+1).
Man. City - Fulham 1-1
1-0 Mario Balotelli (26.), 1-1 Damien Duff
(48.).
Staðan
Lið L U J T M St
1 Man. Utd 27 17 9 1 61:25 60
2 Arsenal 27 17 5 5 57:27 56
3 Man. City 28 14 8 6 44:25 50
4 Tottenham 27 13 8 6 38:31 47
5 Chelsea 26 13 6 7 46:22 45
6 Liverpool 28 11 6 11 36:35 39
7 Bolton 28 9 10 9 39:38 37
8 Sunderland 28 9 10 9 33:35 37
9 Newcastle 28 9 9 10 43:39 36
10 Everton 27 7 12 8 35:36 33
11 Stoke City 27 10 3 14 31:34 33
12 Aston Villa 28 8 9 11 35:47 33
13 Fulham 28 6 14 8 29:29 32
14 Blackburn 28 9 5 14 35:46 32
15 Blackpool 28 9 5 14 42:55 32
16 Birmingham 26 6 12 8 25:35 30
17 Wolves 28 8 4 16 31:46 28
18 West Ham 28 6 10 12 33:49 28
19 WBA 27 7 7 13 35:52 28
20 Wigan 28 5 12 11 27:49 27
Enska B-deildin
Swansea - Leeds 3-0
Barnsley - Norwich 0-2
Bristol C. - Scunthorpe 2-0
Crystal Palace - Reading 3-3
Ívar Ingimarsson var í byrjunarliði Reading
en var tekinn af velli á 68. mínútu.
Doncaster - Watford 1-1
Hull - Cardiff 0-2
Ipswich - Portsmouth 0-2
Hermann Hreiðarsson stóð vaktina
allan tímann í vörn Portsmouth.
Leicester - Coventry 1-1
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði
Coventry og spilaði allan leikinn.
Middlesbrough - QPR 0-3
Heiðar Helguson var í byrjunarliði QPR og
skoraði tvö flott mörk.
Millwall - Nott. Forest 0-0
Preston 1 - 2 Burnley 1-2
Sheff. United - Derby 0-1
Hetjan Obafemi
Martins skoraði
sigurmarkið fyrir
Birmingham.
MyND REUTERS
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
n Fram bikarmeistari kvenna eftir öruggan 25–22 sigur á Val
n Frábær varnarleikur lagði grunninn að sigrinum n Töluvert
skemmtilegra að vinna, segir Einar Jónsson, þjálfari Fram
Tveir í röð hjá Fram
Aftur meistarar
Framstelpurnar fögnuðu
sama titli í fyrra.
Fagnað innilega Einar Jónsson, þjálfari
Fram, faðmar aðstoðarkonu sína, Guðríði
Guðjónsdóttur, enda sigurinn í höfn.