Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2011, Side 29
Fólk | 29Mánudagur 28. febrúar 2011 M ichelle Obama kemst lík-lega mjög ofarlega á lista yfir best klæddu konur í sviðsljósinu en hún er þekkt fyr- ir að koma vel fyrir í bæði kjólum þekktra hönnuða jafnt sem og föt- um úr H&M. Forsetafrúin stendur þó ekki ein þegar kemur að fata- valinu. Bandaríska sjónvarpsstöð- in ABC News hefur greint frá því að hárgreiðslumeistarinn Vera Chamb erlin hafi ljóstrað því upp í samtali við bandaríska blaðið Washington Post að einn kúnna sinna, Meredith Koop, 29 ára há- skólastúdent, hafi tekið að sér hlut- verk stílista fyrir Michelle af Ikram Goldman. Talsmaður Hvíta hússins hefur staðfest að Meredith sé „persónu- legur aðstoðarmaður forsetafrúar- innar og meðlimur fastbundinna starfsmanna Hvíta hússins“ með skyldur sem ná lengra en til fata- skáps forsetafrúarinnar. Í svari tals- mannsins við fyrirspurn ABC News kemur þó skýrt fram að Meredith hjálpi til við að velja föt á Michelle. „Skyldur hennar ná meðal annars til ráðlegginga fyrir forsetafrúna við að finna sér föt og að sjá um að kaupa föt fyrir hana, þar á meðal að finna bestu verðin og að kaupa á afsláttarverði ef mögulegt er,“ segir talsmaðurinn. Líklega er það þó ekki nauðsyn- legt fyrir Meredith að finna föt á afslætti fyrir forsetafrú Bandaríkj- anna. FORSETAFRÚIN MEÐ NÝJAN STÍLISTA Michelle Obama fær aðstoð við að vera glæsileg: Flott forsetafrú Michelle Obama þykir vera ótrúlega smekkleg í fatavali. MYND AFP H vað ætlar Justin Bieber, frægasti unglingsstrák-ur heims, að gera á 17 ára afmæli sínu? Hanga með ömmu sinni að sjálfsögðu. „Vonandi verða amma og afi með mér svo að ég geti eytt, þó ekki sé nema smátíma með þeim,“ sagði söngvarinn ungi í viðtali í bandaríska sjónvarpsþættinum Entertainment Tonight. „Amma mín býr til bestu ostakökurnar – kirsuberjaosta- köku. Hún gerði svoleiðis fyrir mig þegar ég varð 13 ára.“ Justin þvertekur fyrir að hann muni halda stórt af- mælispartí í tilefni dagsins og segir þar spila stóran þátt að hann hafi svo lítinn tíma þangað til hann þurfi aftur að fara að vinna. „Ég hef bara einhverja fjóra daga svo ég ætla bara að slaka á, því ég byrja tónleikaröð um allan heim bráðlega – svo ég ætla að vera andlega tilbúinn og bara slappa af,“ segir hann. Stjarnan nýtti tækifærið í viðtalinu til að segja aðdá- endum sínum að lesa ekki of mikið í nýju klippinguna hans. „Ég vaknaði bara upp og sagði: „ég vill þetta ekki lengur“ og fór og klippti mig,“ útskýrði hann í viðtalinu. „Veistu, aðdáendurnir kunna að meta þetta, en þeir meta mig hvað sem öðru líður, út af tónlistinni minni.“ – með ömmu Ætlar að slaka á Ofurstjarna Justin Bieber ætlar ekki að halda stórt partí á afmælisdaginn. Justin Bieber undirbýr 17 ára afmælið: „Hún er sár og reið“ B illy Ray Cyrus hefur sært dóttur sína með því að tala opinskátt um fjölskyldu- málin við bandaríska fjölmiðla. „Miley er miður sín,“ segir heim- ildarmaður bandaríska tímarits- ins People. „Hún er sár og reið.“ En af hverju var Billy Ray að særa dóttur sína svona mikið? Æsku- vinur Billys segir að líklega hafi hann ekki séð neina aðra leið. „Kannski getur hann ekki komið skilaboðum til hennar um hversu mikils virði hann telur fjölskyldu sína vera, og þetta sé hans leið til að koma því áleiðis.“ Billy Ray sagði People fyrr í mánuðinum að hann gerði sér grein fyrir því að ummæli sín væru eldfim en að hann hafi ekki ætlað sér að særa, hann væri bara að reyna að koma fjölskyldunni í lag. Enn sem komið er hefur Mil- ey Cyrus, 18 ára, neitað að tjá sig um ummæli föður síns. Heimild- armaður blaðsins segir að Miley „virðist stressuð, þó að hún reyni að fela það á bak við stöðugt bros“. Ummæli Billys Rays snérust að því að hann teldi dóttur sína vera í hættu vegna þess umhverfis sem hún væri í. Miley er ein skærasta stjarnan í Hollywood um þessar mundir og hefur hún náð ótrú- lega langt þrátt fyrir ungan aldur. Hún sló fyrst í gegn í Disney-sjón- varpsþáttunum Hanna Mont- ana, sem síðar urðu að Disney- kvikmynd. Hún hóf svo söngferil sem hefur tekið ýmsar beygjur en virðist tryggja henni stöðugar vin- sældir. Miley Cyrus felur sig á bak við brosið: Ekki sátt við pabba Heimildir People herma að Miley sé sár, en hún hefur neitað að tjá sig um ummæli föður síns. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.