Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 4. apríl 2011 Mánudagur
Alvarlegir vankantar á rannsókn lögreglu í ofbeldismáli:
Þorði ekki að bera vitni
Hæstiréttur Íslands hefur sýknað
mann sem hafði áður verið dæmdur
í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja
og hálfs árs fangelsi fyrir sérlega
hrottalega og ófyrirleitna líkamsárás
í janúar 2009.
Maðurinn var sakaður um að hafa
slegið fórnarlamb sitt með hnúajárni
í andlit og í nokkur skipti sparkað í
höfuð hans þar sem hann lá á gólf-
inu, með þeim afleiðingum að hann
hlaut meðal annars nefbrot, tann-
brot, mar, bólgur og skurði á höfði og
beinbrot á fingri.
Talið er að árásin hafi tengst gam-
alli fíkniefnaskuld. Þegar kom að
því að rétta í málinu í Héraðsdómi
Reykjavíkur neitaði fórnarlambið að
bera vitni. Var þá stuðst við skýrslu
lögreglunnar sem tekin var af mann-
inum eftir að hann varð fyrir árás-
inni.
Meintur árásarmaður neitaði
ávallt sök en framburður hans þótti
reikull og bar á misræmi hjá hon-
um. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði
meðal annars: „Við meðferð málsins
fyrir héraðsdómi neitaði vitnið A að
bera um málsatvik. Í forsendum hins
áfrýjaða dóms kemur fram að vitn-
ið hafi að vísu enga skýringu gefið á
þessum umskiptum sínum, en ekk-
ert annað geti komið til greina en
vitnið hafi óttast það sem gæti hlotist
af því að standa við fyrri skýrslugjöf.“
Hæstiréttur gerir einnig alvarleg-
ar athugasemdir við rannsókn lög-
reglunnar á vettvangi. Ber þar helst
að nefna að hún yfirgaf vettvang og
kvaðst hafa skilið hann eftir óvar-
inn allt þar til sá lögreglumaður er
annast átti vettvangsrannsókn kom
þangað nokkrum klukkustundum
síðar. Ekki voru rannsökuð skóför í
blóði á vettvangi og þar sem láðist að
taka af hinum meinta árasarmanni
farsíma eftir að hann var handtek-
inn og settur í fangaklefa er talið að
hann hafi hringt úr honum í vitni
sem hann taldi geta tryggt sér fjar-
vistarsönnun.
Húsnæði
óskast
6 manna reglusöm og skilvís
fjölskylda óskar eftir að taka á leigu
snyrtilega 4-6 herbergja íbúð/einbýli
á höfuðborgarsvæðinu.
Leigutími allt að 3 ár frá 1. júní nk.
Fyrirmyndar umgegni og skilvísum
greiðslum heitið.
Vinsamlegast hafið samband við
Stefán í netfang; stefan3t@simnet.is
eða í síma 897 7971
Sýknaður í Hæstarétti Meintur árásar-
maður var sýknaður eftir að fórnarlambið
þorði ekki að bera vitni.
Í helgarblaði DV var greint frá því að
tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjóns-
son hefði tryggt sér rekstrarsamn-
ing við alþjóðlegu kaffihúsakeðjuna
Starbucks. Þá var einnig greint frá
því að ungstirnið Justin Bieber hefði
haft stutta viðkomu á Íslandi á tón-
leikaferðalagi sínu um Evrópu. Þessa
fréttir voru stórlega ýktar enda um
að ræða aprílgabb DV í ár.
Samkvæmt frétt DV hafði Val-
geir unnið hörðum höndum að því
að koma fjórðu hæð Tryggvagötu 11
í viðunandi horf svo hægt væri að
opna fyrsta útibú Starbucks á Íslandi
sem fyrst. Rétt er að Valgeir hefur
unnið að því að koma fjórðu hæð
Tryggvagötu 11 í gott stand, en hann
hyggst hins vegar opna þar menn-
ingartengdan samkomustað.
Sólþurrkaðar bleiur
Flestir fjölmiðlar reyndu að gabba
landsmenn upp úr skónum í tilefni
af 1. apríl. DV fékk einnig ábendingu
um frumlegt gabb sem forsvarsmenn
leikskólans Tjarnarbæjar á Suður-
eyri stóðu fyrir. Á vef leikskólans var
greint frá því að til stæði að þurrka
allar bleiur áður en þær færu í ruslið.
Ástæðan væri sú að nú þurfi leik-
skólinn að greiða fyrir hvert kíló af
heimilissorpi sem ekki sé hægt að
endurvinna. „Þegar vel viðrar verða
bleiurnar hengdar út á snúrur eða á
girðinguna til þerris. Með því ættum
við að ná að draga úr þyngd bleianna
um helming,“ sagði á vef skólans.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins
greindi frá því að munir frá fyrstu
öldum Íslandsbyggðar hefðu fundist
í nýju gjánni í Almannagjá. Í gjánni
áttu einnig að vera leifar af dýrum
sem heiðnir menn fórnuðu við blót.
Mbl.is var með tvenns konar
aprílgabb. Þar var sagt frá nýjum
hugbúnaði í farsíma sem átti að geta
sparað eldsneytiseyðslu bifreiða um
fimmtung. Fólk átti að skrá síma-
númerið sitt til að fá hugbúnaðinn
sendan í símann. Þá sagði mbl.is
einnig frá því að 50 miðar á tónleika
Eagles væru í boði á 5.000 krónur
stykkið.
Vísir sagði frá því að Atlantsolía
sæti uppi með heilan skipsfarm af
bensíni frá Líbíu sem félagið gæti
ekki selt. Atlantsolía ætlaði því að
leyfa íslenskum bifreiðaeigendum að
njóta góðs af og gefa bensínið. Fólk
þurfti að skrá sig til að fá dælulykil
með fríu bensíni.
Fjölmiðar göbbuðu á 1. apríl:
Tvenns konar
aprílgabb DV
„Þegar menn endurreistu bankanna
þótti skynsamlegt að hafa reynda er-
lenda stjórnarmenn í því skyni að
byggja upp traust á erlendum vett-
vangi. Þetta fólk kostar einfaldlega
miklu meira en Íslendingarnir,“ segir
Reynir Karlsson, stjórnarformaður
Kaupskila, eiganda Arion banka.
Á stjórnarfundi sem haldinn var
í Arion banka í lok mars var ákveð-
ið að tvöfalda laun erlendra stjórnar-
manna bankans. Eftir hækkunina hef-
ur stjórnarformaður bankans hærri
laun en bankastjóri Landsbankans og
forsætisráðherra, svo dæmi séu tekin.
Hærri laun en bankastjóri
Tveir útlendingar sitja í stjórn Arion
banka, svíarnir Monica Caneman og
Måns Höglund. Monica er stjórnarfor-
maður bankans en hún var með um
660 þúsund krónur í laun á mánuði
fyrir stjórnarsetu sína í fyrra. Það þýð-
ir að hún verður með ríflega 1,3 millj-
ónir króna á mánuði eftir hækkunina.
Þar með verður hún með hærri laun
en bankastjóri Landsbankans, Stein-
þór Pálsson, sem hefur um 1,1 milljón
króna í laun á mánuði. Þá má geta þess
að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra hefur um milljón krónur á mán-
uði.
Skynsamlegt að
greiða hærri laun
Reynir segir í samtali við DV að ákveð-
ið hafi verið að hækka ekki laun Íslend-
inganna í stjórn bankans. Hann seg-
ir, eins og kemur fram hér að framan,
að dýrara sé að hafa erlent fólk í stjórn
bankans. Um sé að ræða fólk sem hafi
atvinnu af því að sitja í stjórnum fyrir-
tækja víða um heim. Þar séu launin
mun hærri en hér heima. „Þetta fólk
skilur kannski ekki umræðuna um háu
launin hérna heima og það er okkar
mat að það sé ekki skynsamlegt að losa
erlenda stjórnarmenn þegar við þurf-
um helst á því að halda að byggja upp
traust erlendis með öflugu erlendu
bankafólki,“ segir Reynir. Skynsamlegt
sé að greiða fólkinu hærri laun, til þess
að halda í það.
Spurður hvort íslenskir stjórnar-
menn hafi skilning á mikilli hækkun
kollega sinna segist hann telja að svo
sé. Hann segir enn fremur að hafa
verði í huga að það sé miklu meira
mál að sinna stjórnunarstörfum á milli
landa. „Fólkið þarf að setja sig inn í ís-
lenskan raunveruleika; íslenska póli-
tík og andrúmsloftið hér heima,“ segir
hann.
Reiði vegna ofurlauna
Friðbert Traustason, formaður Sam-
taka starfsmanna fjármálafyrirtækja,
lét í samtali við Pressuna hafa eftir sér
að þessi hækkun hefði slæm áhrif á
yfirstandandi kjaraviðræður.
Reynir segist skilja sjónarmið Frið-
berts en segir að ólíku sé saman að
jafna. „Annars vegar er um að ræða
erlenda stjórnarmenn, sem bera sig
saman við erlend laun, en hins vegar
íslenska stjórnarmenn sem bera sig
saman við innlendan veruleika,“ segir
hann.
Mikla athygli vakti á dögunum þeg-
ar í ljós kom að Höskuldur H. Ólafs-
son, bankastjóri Arion banka, hefði
haft 4,3 milljónir í laun á mánuði að
jafnaði í fyrra, miklu hærri laun en
bankastjórar hinna bankanna. Fram
kom að launin hefðu hækkað um tugi
prósenta á skömmum tíma.
Spurður hvort hann skilji þá reiði
sem upp blossaði í samfélaginu þeg-
ar laun bankanstjórans voru ljós segist
hann hafa skilning á þeim sjónarmið-
um. Hann sé ekkert frábrugðinn öðr-
um. „Mér þykja þetta himinhá laun.“
Hann bendir hins vegar á að stjórn-
armenn Kaupskila beri ekki ábyrgð
á launum bankastjórans, heldur ein-
ungis ábyrgð á launum stjórnarmanna
í bankanum auk þess sem þeir fylgist
með því að stjórnin fari að lögum. „Við
megum ekki hafa bein áhrif á það sem
stjórn bankans er að gera,“ segir hann.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Fólkið þarf að
setja sig inn í
íslenskan raunveruleika;
íslenska pólitík og
andrúmsloftið hér heima.
Erlendir stjórnarmenn
með bankastjóralaun
n Erlendir stjórnarmenn Arion banka fá 100% launahækkun n Íslendingar í stjórn hækka ekkert
n Stjórnarformaður eigenda bankans segir erlent fólk dýrt en nauðsynlegt til að byggja upp traust
Dýr stjórnarformaður Monica Caneman
verður með 1,3 milljónir króna í laun á mánuði.
MynD AP4.SE
Útlendingar fá meira borgað
Fulltrúi eigenda bankans segir útlenda
stjórnarmenn dýrari en þá íslensku.
MynD RóbERt REyniSSon