Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Qupperneq 14
Viðgerð með
bros á vör
n Lofið að þessu sinni fær verslunin
Dogma í Smáralind og á Laugavegi.
Ánægður viðskiptavinur hafði þetta
að segja um þjónustuna sem hann
fékk þar: „Ég fór í búðina með
beltissylgjuna mína sem ég
hafði keypt fyrir nokkrum
árum. Það þurfti að gera við
hana og starfsmenn
Dogma gerðu það án
kostnaðar og með bros
á vör. Þarna er gott fólk
í góðu skapi.“
Höldum höndun-
um hreinum
Sparnaður getur birst í ýmsum
myndum en í miðri kreppu skjóta
alls staðar upp hugmyndir að
góðum sparnaðarráðum. Eitt slíkt
ráð má finna á matarkarfan.is en
þar segir að hreinlæti geti sparað
okkur pening. Með því að huga vel
að handþvotti og þá sérstaklega eftir
salernisferðir og fyrir matargerð
komum við í veg fyrir að veirur og
bakteríur komist í líkamann og sýki
hann af flensu eða öðrum pestum.
Það sparar lyfjakaup og fækkar
veikindadögum frá vinnu. Auk þess
segir að það auki lífsgæði verulega að
þurfa ekki að liggja í veikindum.
Fita, sinar og
brjósk
n Lastið fær Kjötkompaníið á Grens-
ásvegi en DV fékk eftirfarandi sent frá
konu sem keypti hakk þar ekki alls
fyrir löngu. „Hakkið sem ég keypti var
næstum því óætt en í því var mikið af
sinum, fitu og væntanlega brjóski því
það var hart undir tönn.
Það var líka mjög fölt á
litinn og eiginlega í alla
staði ómögulegt. Ég
notaði það í lasagna í
matarboð svo ekki gat
ég skilað því. Búðin þarf veru-
lega að skoða hakkið sitt.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Fylgjumst með húshitanum Íslensk heimili nota
árlega að meðaltali 4 til 5 tonn af heitu vatni á hvern fermetra
húsnæðis. Um 90 prósent af notkuninni eru vegna húshitunar og
afganginn notum við til annarra hluta eins og að fara í bað eða sturtu,
þrífa heimilið og vaska upp. Á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur má
finna ráð til að minnka heitavatnsnotkunina og lækka orkureikninginn
en þar segir að meðal annars sé sparnaður í því að láta fagmann stilla
hitakerfið. Auk þess sé æskilegt að hafa innihitamæla til að fylgjast
með hitastiginu.
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 4. apríl 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 235,8 kr. Verð á lítra 239,7 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 235,3 kr. Verð á lítra 239,2 kr.
Verð á lítra 236,8 kr. Verð á lítra 239,7 kr.
Verð á lítra 235,2 kr. Verð á lítra 239,1 kr.
Verð á lítra 235,3 kr. Verð á lítra 239,2 kr.
Verð á lítra 235,8 kr. Verð á lítra 239,7 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Akureyri
Melabraut
Algengt verð
N1
Fólksbíladekk
175/65r14
Starfire 9.900 krónur
Michelin 15.900 krónur
Jeppadekk
235/65r17
Dean 33.900 krónur
Michelin 44.900 krónur
Umfelgun
alskipting
Fólksbíll 6.430 krónur
Jeppi 8.850 krónur
Sólning
Fólksbíladekk
175/65r14
KingStar 10.900 krónur
Hankook 12.300 krónur
Jeppadekk
235/65r17
NanKand 28.900 krónur
Mastercraft 37.400 krónur
Umfelgun
alskipting
Stál 6.270 krónur
Ál 6.780 krónur
Pitstop
Fólksbíladekk
175/65r14
Interstate Touring 11.610 krónur*
Michelin 12.788 krónur*
Jeppadekk
235/65r17
Interstate Sport 28.700 krónur*
Michelin 34.200 krónur*
* 10 prósenta staðgreiðsluafsláttur
Umfelgun
alskipting
Fólksbíll stál 5.641 krónur
Jeppi ál 7.613 krónur
Bílabúð Benna
Fólksbíladekk
175/65r14
Accelera 9.892 krónur*
Toyo 10.791 krónur*
Jeppadekk
235/65r17
Accelera 23.391 krónur*
Toyo 31.491 krónur*
* 10 prósenta staðgreiðsluafsláttur
Umfelgun
Fólksbíll 5.996 krónur
Jeppi 7.997 krónur
Max1
Fólksbíladekk
175/65r14
Sailun 10.980 krónur
Nokia H 14.668 krónur
Jeppadekk
235/65r17 (heilsársdekk)
Nokia WR G2 37.379 krónur
Umfelgun
Fólksbíll 6.240 krónur
Jeppi 8.961 krónur
Um miðjan mánuðinn eiga allir
að vera búnir að skipta út nagla-
dekkjunum og af því tilefni gerði
DV könnun á verði á nýjum sum-
ardekkjum hjá nokkrum af helstu
dekkjaverkstæðunum. Kom í ljós
að töluverður verðmunur er á
dekkjum frá stóru þekktu framleið-
endunum og þeim sem eru ekki
eins þekkt. Einnig var leitað ráða
hjá Stefáni Ásgrímssyni, ritstjóra
blaðs Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, og hann spurður hvað hafa
þurfi í huga þegar ný dekk séu
keypt.
Varast skal eftirlíkingar
„Það sem skiptir höfðumáli þeg-
ar kemur að dekkjum er að þau
hrindi frá sér vatni og fljóti ekki
auðveldlega upp. Almennt séð er
best að halda sig við stóru fram-
leiðendurna því þeir hafa haft mest
efni, peningalega og vitsmuna-
lega, til að prófa sig áfram. Fólk
getur verið öruggt með þau,“ segir
Stefán. Hann segir að töluvert flóð
hafi verið af verri dekkjum, sér-
staklega af kínverskum, inn í Evr-
ópu síðust ár. „Þau fara greinilega
batnandi en voru alveg afleit. Það
er ágætt að fólk hafi varann á sér
gagnvart þeim því þau heita voða-
lega svipuðum nöfnum og þau frá
stóru merkjunum. Til dæmis eru
til dekk sem heita Goodride og líta
mjög svipað út og Goodyear. Þetta
eru hálfgerðar eftirhermur,“ segir
hann og bætir við að fólk geti verið
nokkuð öruggt um gæði dekkjanna
ef það kaupir af stóru og þekktu
framleiðendunum. Hann nefnir
til dæmis Michelin, Goodyear og
Nokia. Eins séu Hankook-dekkin
frá Kóreu góð.
Best að eiga sitthvorn
umganginn
Aðspurður hvort hann mæli með
að fólk láti draga naglana úr vetrar-
dekkjum segist hann ekki gera það.
Ástæðan fyrir því sé sú að gúmmí-
blandan í vetrardekkjunum sé allt
önnur en í sumardekkjum. „Vetrar-
dekkin eiga að vera mjúk og eru
þannig gerð að þau halda mýktinni
þó ískalt sé í veðri. Þar með verða
þau enn mýkri þegar hitnar í veðri
og malbikið er heitt í sólinni. Dekk-
ið verður of mjúkt og hemlunar-
eiginleikar þess eru alls ekki nógu
góðir,“ segir Stefán. Þar að auki sé
ekki mikill sparnaður í því þar sem
slitflötur vetrardekkja sé mýkri og
þau endist því ekki eins vel. Stefán
telur þetta því frekar vafasaman
sparnað en segir að best sé að eiga
sitthvorn umganginn og helst þá á
felgum. Séu þau á felgum sé ekki
svo dýrt að skipta og maður geti í
rauninni gert það sjálfur. „Eitt sett
af vetrardekkjum og eitt sett af
sumardekkjum, það er skynsam-
legast.“
Verð og gæði
fara saman
Þetta kosta ný dekk
Í töflunni má sjá verð hjá nokkrum af helstu verslunum sem selja ný dekk og kannað verð
á fólksbíladekkjum annars vegar og jeppadekkjum hins vegar. Beðið var um verð á ódýrari
tegund af dekkjum en einnig á dekkjum frá þekktari og stærri framleiðendum. Að öðru leyti
er ekki tekið tillit til gæða dekkjanna hér í verðsamanburðinum. Verðin sem upp eru gefin eru
smásöluverð og án afsláttar, nema annað sé tekið fram. Ekki var beðið um útsölu- eða til-
boðsverð og því ættu neytendur að fylgjast með auglýsingum um tilboð. Eins skal tekið fram
að verðið miðast við eitt dekk. Það er þó einnig möguleiki að kaupa sér notuð dekk og felgur
og vert er að benda bifreiðaeigendum á þann möguleika. Hér má nefna Dekkjasöluna sem er
umboðssala fyrir notuð dekk og felgur en verðskrá hennar er aðgengileg á heimasíðunni.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Eitt sett af vetrar-
dekkjum og eitt
sett af sumardekkjum,
það er skynsamlegast.
Dekkjaverkstæði Það má búast við örtröð á
dekkjaverkstæðum næstu tvær vikurnar.
MYND: STEFÁN KARLSSON
n DV kannaði verð á sumardekkjum n Það
skiptir miklu máli hver framleiðandi dekkj-
anna er n Fólk þarf að hafa varann á gagn-
vart ódýrum dekkjum