Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2011, Síða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 4. apríl 2011 Mánudagur
Viðskiptajöfurinn Mohamed Al Fa-
yed sem á enska úrvalsdeildarliðið
Fulham sló ekki beint í gegn fyrir
leik liðsins gegn Blackpool í ensku
úrvalsdeildinni í gær. Fyrir leikinn,
eins og vitað var að yrði, afhjúp-
aði Al Fayed styttu af poppgoðinu
Michael Jackson fyrir utan Craven
Cottage, heimavöll Fulham.
Al Fayed var náinn vinur söngv-
arans heimsþekkta og reisti þessa
styttu í minningu góðvinar síns.
Upphaflega átti styttan að standa í
Harrods-versluninni sem Al Fayed
átti en hana seldi hann í fyrra fyrir
einn milljarð punda.
Þessi ákvörðun Al Fayeds hefur
eðlilega vakið upp reiði hjá sumum
stuðningsmönnum Fulham. Jack-
son var ekki yfirlýstur stuðnings-
maður liðsins en hann mætti aðeins
á einn leik árið 1999. Styttan stend-
ur nálægt styttu af Johnny Haynes,
mikilli goðsögn innan Fulham sem
lést fyrir tveimur árum.
Mohamed Al Fayed hefur sjald-
an verið þekktur fyrir að liggja á
skoðunum sínum og brást reiður
við þegar hann var spurður hvort
þetta væri ekki afskaplega sérstök
ákvörðun.
„Af hverju er þetta svona skrýtið?
Fótboltaunnendur elska þetta. Ef
einhverjir heimskir stuðningsmenn
liðsins skilja ekki þessa gjöf og
kunna ekki að meta hana geta þeir
farið til helvítis,“ svaraði Al Fayed
reiður. „Ég vil ekki að fólk sem kann
ekki að meta þessa styttu styðji lið-
ið. Ef þeir skilja ekki svona gjöf og
trúa ekki á hana mega þeir bara
fara og styðja Chelsea. Þeir mega
bara fara hvert sem er á meðan þeir
styðja ekki mitt félag. Þessi stytta
mun gera það að verkum að fólk úti
um allt Bretland vill koma og skoða
hana og af því eigum við að vera
stoltir,“ segir auðjöfurinn Mohamed
Al Fayed.
tomas@dv.is
Úrslit
Wayne Rooney sýndi allar sínar bestu,
og hluta af sínum verstu hliðum, þeg-
ar Manchester United bauð upp á enn
eina ótrúlega endurkomu í ensku úr-
valsdeildinni um helgina. Nú var liðið
2–0 undir gegn West Ham í hálfleik en
þrenna á þrettán mínútum frá Wayne
Rooney, hans fimmta fyrir liðið, kom
United í forystu áður en Javier Hern-
andez innsiglaði sigurinn, 4–2. Þriðja
mark Rooneys sem tryggði honum
boltann í leiknum til eignar var hans
101. í ensku úrvalsdeildinni. Það var
því við hæfi að hann byði upp á leik
sem hægt væri að nota sem kennslu-
dæmi í faginu: Rooney 101.
Heitt í hamsi
Það var nákvæmlega ekkert sem
benti til þess í hálfleik að Manchester
United myndi takast að koma til baka
gegn West Ham. En með tilfærslu á
Ryan Giggs niður í hægri bakvörðinn
og innkomu Javier Hernandez í fram-
línuna ásamt Rooney fóru hlutirnir
að gerast. Þrátt fyrir rólegan fyrri hálf-
leik átti Rooney þó fjölmargar ótrú-
legar sendingar. Flestar rötuðu beint
á lappirnar á Antonio Valencia sem
gerði grín að Wayne Bridge trekk í
trekk, en ekki tókst rauðu djöflunum
að skora.
Á 65. mínútu hófst svo sýnikennsl-
an. Wayne Rooney minnkaði mun-
inn með marki beint úr aukaspyrnu
og sýndi þar spyrnuhæfileika sína.
Spyrnan var frá hægri, betur sett fyrir
vinstri fótar mann en Rooney lyfti
knettinum yfir vegginn og í netið.
Sjö mínútum síðar skoraði Rooney
svo glæsilegt mark þar sem fyrsta
snerting hans á boltanum var upp
á tíu og afgreiðslan ekki síðri. Ekta
Rooney. Þegar kom svo að því að
koma United yfir úr vítaspyrnu hikaði
Rooney hvergi. Hann sendi Robert
Green í rangt horn, 3–2. Það var þá
sem Rooney sýndi hluta af slæmu
hliðinni. Hann fór og fagnaði fyr-
ir framan sitt fólk en blótaði síðan
í myndavélina þannig að allir sem
horfðu sáu og heyrðu. Eftir leikinn
baðst hann afsökunar á því. „Mér var
heitt í hamsi enda hafði mikið gengið
á í leiknum. Ég biðst innilega afsök-
unar á þessu, orðunum var ekki beint
að neinum sérstökum,“ sagði Rooney
eftir leikinn.
Betri tímar framundan?
Á miðvikudaginn í síðustu viku var lið-
ið ár frá því að Rooney meiddist í úti-
leiknum gegn FC Bayern í meistara-
deildinni. Upp úr því hófst versta ár í
ævi Rooneys, bæði innan vallar sem
utan. Veltu enskir fjölmiðlar því fyrir
sér í síðustu viku hvort ferill Rooneys
væri nú á niðurleið og bentu á tvær
aðrar enskar hetjur, Michael Owen
og Robbie Fowler, sem báðar fóru að
skora minna eftir 25 ára aldurinn.
Rooney svaraði gagnrýnisröddun-
um með stæl gegn West Ham og bauð
upp á allt sem hann hefur yfir að ráða
í sínu vopnabúri. Hann lét þó vera að
fá heimskuleg spjöld eða koma sér í
vandræði fyrir að slá til annarra leik-
manna. Eitthvað sem Sir Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri Manchester
United, prísar sig sælan með.
Draumadagur United
Arsenal virðist ætla gera hvað það get-
ur til að hjálpa Manchester United að
vinna sinn nítjánda Englandsmeist-
aratitil. Arsenal tók á móti Blackburn
um helgina og tókst ekki að skora
mark þrátt fyrir að vaða í færum og
vera einum fleiri í tuttugu mínútur.
Að sama skapi mistókst Chelsea að
koma sér fyrir alvöru í titilbaráttuna
aftur en liðið þurfti að sætta sig við
jafntefli gegn Stoke á útivelli, 1–1.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, var heiðarlegur í svörum
eftir jafntefli gegn Blackburn en liðið
hefur nú aðeins unnið einn af síðustu
sjö leikjum sínum í öllum keppnum.
„Við stóðum okkur illa í dag. Þú kemst
ekkert upp með svona frammistöðu
gegn Blackburn-liðinu sem varð-
ist vel. Við buðum ekki upp á neinar
hraðabreytingar, ógnuðum ekkert og
takturinn í sendingunum var hægur.
Allt sem við ætluðum ekki að gera.
Ég er virkilega vonsvikinn með þetta
og hef einfaldlega áhyggjur af spila-
mennsku okkar í dag,“ sagði Arsene
Wenger.
Rooney 101
n Þrenna á þrettán mínútum bjargaði United n Wayne Rooney bauð upp
á góðu og slæmu hliðarnar n Draumahelgi fyrir Manchester United í deildinni
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Fékk boltann til eignar Rooney
skoraði sína fimmtu þrennu fyrir
Manchester United gegn West Ham.
MynD ReUTeRs
Eigandi Fulham reisir styttu af Michael Jackson fyrir utan völlinn:
„Þá máttu fara til helvítis“
styttan umdeilda Það er eins gott að þér líki styttan því annars máttu allt eins gerast
aðdáandi Chelsea.
enska úrvalsdeildin
West Ham - Man. United 2-4
1-0 Mark Noble (10. víti), 2-0 Mark Noble
(25. víti), 3-0 Wayne Rooney (65.), 2-2
Wayne Rooney (72.), 2-3 Wayne Rooney (78.
víti), 2-4 Javier Hernandez (83.).
Birmingham - Bolton 2-1
1-0 Kevin Phillips (4.), 2-0 Craig Gardner
(59.), 2-1 Johan Elmander (70.).
everton - Aston Villa 2-2
1-0 Leon Osman (38.), 1-1 Darren Bent (47.),
1-2 Darren Bent (68.), 2-2 Leighton Baines
(83.).
newcastle - Wolves 4-1
1-0 Kevin Nolan (22.), 2-0 Shola Ameobi
(45.), 3-0 Peter Lovenkrands (50.), 3-1
Sylvan Ebanks-Blake (58.), 4-1 Jonas
Gutierrez (90.).
stoke - Chelsea 1-1
1-0 Jonathan Walters (8.), 1-1 Didier Drogba
(33.).
West Brom - Liverpool 2-1
0-1 Martin Skrtel (50.), 1-1 Chris Brunt (62.
víti), 2-1 Chris Brunt (88. víti).
Wigan - Tottenham 0-0
Arsenal - Blackburn 0-0
n Steve Nzonzi, Blackburn (76.).
Fulham - Blackpool 3-0
1-0 Bobby Zamora (22.), 2-0 Bobby Zamora
(27.), 3-0 Dickson Etuhu (71.).
Man. City - sunderland 5-0
1-0 Adam Johnson (8.), 2-0 Carlos Tevez (14.
víti), 3-0 David Silva (63.), 4-0 Patrick Vieira
(67.), 5-0 Yaya Toure (73.)
sTAðAn
Lið L U J T M st
1. Man. Utd 31 19 9 3 68:32 66
2. Arsenal 30 17 8 5 59:29 59
3. Man. City 31 16 8 7 50:27 56
4. Chelsea 30 16 7 7 54:25 55
5. Tottenham 30 13 11 6 41:34 50
6. Liverpool 31 13 6 12 42:38 45
7. Everton 31 9 14 8 42:41 41
8. Bolton 31 10 10 11 43:43 40
9. Newcastle 31 10 9 12 48:46 39
10. Fulham 31 8 14 9 36:33 38
11. Stoke City 31 11 5 15 37:39 38
12. Sunderland 31 9 11 11 33:42 38
13. WBA 31 9 9 13 43:57 36
14. Blackburn 31 9 7 15 39:51 34
15. Birmingham 30 7 13 10 30:42 34
16. Aston Villa 31 8 10 13 39:53 34
17. Blackpool 31 9 6 16 45:63 33
18. West Ham 31 7 11 13 38:53 32
19. Wolves 31 9 5 17 36:53 32
20. Wigan 31 6 13 12 29:51 31
enska Championship-deildin
Leeds - nott. Forest 4-1
Hull - Millwall 0-1
Bristol City - Doncaster 1-0
Burnley - Ipswich 1-2
Cardiff - Derby 4-1
Coventry - Watford 2-1
Aron einar Gunnarsson spilaði allan
leikinn fyrir Coventry.
Crystal Palace - Barnsley 2-1
Middlesbrough - Leicester 3-3
norwich - scunthorpe 6-0
Preston - swansea 2-1
Reading - Portsmouth 2-0
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunn-
arsson spiluðu allan leikinn fyrir Reading en
Hermann Hreiðarsson var tekinn af velli á
78. mínútu hjá Portsmouth.
sTAðAn
Lið L U J T M st
1. QPR 38 21 13 4 60:23 76
2. Norwich 39 19 13 7 68:47 70
3. Cardiff 39 19 9 11 64:47 66
4. Swansea 39 20 6 13 54:38 66
5. Leeds 39 17 13 9 73:61 64
6. Reading 38 15 15 8 62:42 60
7. Nottingham F. 39 15 15 9 49:39 60
8. Millwall 39 15 12 12 52:40 57
9. Burnley 38 15 12 11 54:48 57
10. Watford 39 15 11 13 68:56 56
11. Hull 39 14 14 11 42:39 56
12. Leicester 39 16 8 15 59:59 56
13. Portsmouth 39 15 9 15 50:50 54
14. Bristol City 39 15 8 16 51:54 53
15. Ipswich 39 15 7 17 50:50 52
16. Barnsley 39 12 11 16 45:57 47
17. Coventry 39 12 9 18 43:50 45
18. Middlesbro 38 12 9 17 49:57 45
19. Derby 39 12 8 19 49:57 44
20. Doncaster 39 11 11 17 49:68 44
21. Cr. Palace 39 11 9 19 39:60 42
22. Sheffield Utd 38 9 8 21 34:59 35
23. Preston 38 8 10 20 44:66 34
24. Scunthorpe 39 10 4 25 33:74 34