Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 11. apríl 2011 Mánudagur
Tannvernd barna verði hluti af almenna heilbrigðiskerfinu:
Mýkri Framsókn boðuð
Framsóknarflokkurinn vill að tann-
vernd barna verði hluti af almenna
heilbrigðiskerfinu. Þetta kemur fram
í ályktun flokksins um heilbrigðismál.
Þar kemur einnig fram að á Íslandi
eigi allir að hafa aðgang að fullkomn-
asta heilbrigðiskerfi sem völ sé á og
mikilvægt sé að tryggja jafnan aðgang
að því óháð búsetu og efnum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
nýendurkjörinn formaður flokks-
ins, segir Framsóknarflokkinn hafa
lært það af þrengingum undanfarin
misseri að setja mýkri málin á odd-
inn: „Ég lagði mikla áherslu á þetta,
meðal annars í setningarræðu minni,
að flokkurinn þyrfti að færa sig aftur í
mjúku málin. Þó að áhersla sé alltaf á
atvinnumálin þá væri það til lítils ef
menn gleyma lykilatriðunum sem fel-
ast í velferð fólksins sem byggir land-
ið.“
DV sagði frá því að á síðasta ári hafi
verið rúmar 296 milljónir í afgang af
fjárveitingum tannlækninga á sama
tíma og tannlæknar á neyðarvakt vitn-
uðu um skelfilega tannheilsu barna
efnalítilla fjölskyldna.
„Það er alvarlegt mál að börn þeirra
tekjuminni njóta ekki sömu heilbrigð-
isþjónustu og þeirra efnameiri,“ seg-
ir Sigmundur Davíð sem segir það
skjóta skökku við því heilbrigðiskerfið
eigi að þjóna öllum óháð efnum.
„Við vitum af börnum þeirra sem
tekjuminni eru sem njóta ekki sömu
þjónustu og önnur börn og það er
skelfilegt. Það að taka einn hluta heil-
brigðisþjónustunnar út fyrir kerfið
finnst okkur að auki órökrétt. Ég tala
nú ekki um þegar þetta eru oft og tíð-
um mjög dýrar aðgerðir en nauðsyn-
legar. Miðað við prinsippin sem menn
hafa um heilbrigðisþjónustu fyrir alla
þá uppfyllir þetta bæði skilyrðin. Þetta
er kostnaður sem tekjuminna fólk á
erfitt með að bera og hins vegar er erf-
itt að færa rök fyrir því að tennur sér-
staklega séu eitthvað síður mikilvægt
en annað er varðar heilsu barna.“
kristjana@dv.is
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Hlaupasokkar
• Minnka verki og þyngsl í kálfum
• Minni hætta á blöðrumyndun
• Draga úr bjúgsöfnun
Breska efnahagsbrotadeildin (Ser-
ious Fraud Office, SFO) yfirheyrði
Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóra Kaupþings, og Magnús
Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra
Kaupþings í Lúxemborg, í Lúxem-
borg í þarsíðustu viku, samkvæmt
heimildum DV. Í tengslum við rann-
sókn bresku efnahagsbrotadeild-
arinnar voru framkvæmdar fimm
húsleitir í Lúxemborg. Ein af hús-
leitunum var framkvæmd á heim-
ili Hreiðars Más og önnur á heim-
ili Magnúsar, samkvæmt heimildum
DV. Auk þess sem fullyrða má að
leitað hafi verið í Banque Havilland,
sem áður hét Kaupþing í Lúxemborg.
DV hafði samband við Hreiðar Má
á föstudag til að spyrja hann um mál-
ið og hvort breska efnahagsbrota-
deildin hefði yfirheyrt hann vegna
málefna Kaupþings. Hreiðar Már
vildi hins vegar ekki tjá sig um málið:
„Ég hef ekki áhuga á að tjá mig.“
Á sama tíma stóð embætti sér-
staks saksóknara, Ólafs Haukssonar,
fyrir umfangsmikilli húsleit í höfuð-
stöðvum Banque Havilland í Lúx-
emborg. Í samtali við DV fyrir helgi
sagði Ólafur að húsleitin, sem stóð
yfir í viku – frá þriðjudegi til þriðju-
dags, hefði gengið vel og að lagt hefði
verið hald á talsvert magn gagna.
„Þetta gekk afar vel, jafnvel framar
vonum.“
Rannsókn SFO og sérstaks sak-
sóknara tengjast þó ekki beint og átti
embætti Ólafs ekki aðild að rassíu
SFO. Þá voru SFO og sérstakur sak-
sóknari ekki að rannsaka sömu mál-
in í Lúxemborg að þessu sinni.
Áframhald á rassíunni í London
Rassía SFO í Lúxemborg er áfram-
hald á rassíu efnahagsbrotadeildar-
innar og embættis sérstaks saksókn-
ara sem hófst í London og Reykjavík
í síðasta mánuði. Þá voru Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Kaupþings, Ármann Þor-
valdsson, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þing Singer & Friedlander í London,
og bræðurnir og fjárfestarnir Vin-
cent og Robert Tchenguiz hand-
teknir og yfirheyrðir. Tólf húsleitir
voru gerðar og níu voru handteknir í
London og Reykjavík.
Rannsókn SFO beinist að
minnsta kosti öðrum þræði að
hundraða milljarða króna lánveit-
ingum Kaupþings til Roberts og
Vincents – aðallega Roberts – en við
bankahrunið haustið 2008 numu
skuldir þeirra bræðra við Kaupþing
um 320 milljörðum króna. Meðal
þess sem er til rannsóknar er rúm-
lega 120 milljarða króna yfirdrátt-
arlán sem Kaupþing veitti Robert
nokkrum mánuðum fyrir banka-
hrunið 2008. Hluti af rannsókn-
inni snýst um það hvort hluti þess
fjármagns sem safnaðist í gegnum
Edge-innlánsreikninga Kaupþings
hafi með einum eða öðrum hætti
runnið til móðurbankans á Íslandi
og þaðan til Roberts.
Þurftu að ræða við Magnús
og Hreiðar Má
Þar sem Hreiðar Már og Magnús eru
búsettir í Lúxemborg en ekki á Eng-
landi gat SFO ekki handtekið þá og
yfirheyrt í rassíunni í London í síð-
asta mánuði, samkvæmt heimildum
DV. Þess vegna þurfti SFO að fara til
Lúxemborgar til að ræða við þá.
Embætti sérstaks saksóknara
þurfti hins vegar ekki að ræða við þá
Hreiðar Má og Magnús í Lúxemborg
þar sem embættið hafði þegar rætt
við þá. Hreiðar Már og Magnús voru
meðal þeirra fyrrverandi stjórn-
enda Kaupþings sem voru hand-
teknir, hnepptir í gæsluvarðhald
og yfirheyrðir af embætti sérstaks
saksóknara í maí í fyrra. Þess í stað
ræddi embætti sérstaks saksóknara
við fjölmarga erlenda ríkisborgara í
Lúxemborg sem tengjast þeim mál-
um sem embættið rannsakar um
þessar mundir.
Öfugt við embætti sérstaks sak-
sóknara hafði SFO ekki rætt við
Hreiðar Má og Magnús um málin
sem eru til rannsóknar. Með þessum
yfirheyrslum SFO hefur efnahags-
brotadeildin yfirheyrt alla helstu
stjórnendur Kaupþings vegna þeirra
mála sem til rannsóknar eru.
Starfi SFO og embættis sérstaks
saksóknara í Lúxemborg lauk í lok
síðustu viku.
Hreiðar og Magnús
yfirHeyrðir í Lúx
n Hreiðar Már og Magnús yfirheyrðir í Lúxemborg n Breska efnahags-
brotadeildin yfirheyrði þá n Kaupþingsrassían sem hófst í London og
Reykjavík hélt áfram n Leitað á heimilum Hreiðars og Magnúsar í Lúx„Ég hef ekki áhuga
á að tjá mig.Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Yfirheyrðir í Lúxemborg Breska efnahagsbrotadeildin, SFO, yfir-
heyrði Hreiðar Má Sigurðsson og Magnús Guðmundsson í Lúxemborg
í þarsíðustu viku. Magnús sést á leið úr yfirheyrslu hjá sérstökum
saksóknara í fyrra. Leitað var á heimilum þeirra beggja.
Banaslys í
Langadal
Banaslys varð í Langadal skammt
vestan við veginn til Vopnafjarðar á
sunnudag. Lögreglunni á Egilsstöð-
um var tilkynnt um slysið laust fyrir
klukkan sjö að morgni en um var að
ræða fólksbifreið með tveimur karl-
mönnum í. Um átta leytið var annar
mannanna úrskurðaður látinn en
hinn var minna slasaður. Rannsókn
málsins er í höndum rannsóknar-
deildar lögreglunnar á Eskifirði í sam-
vinnu við lögregluna á Egilsstöðum.
Kveikt í bílum
í Njarðvík
Grunur leikur á að kveikt hafi
verið í tveimur bílum sem stóðu
við Fitjabraut í Njarðvík á sunnu-
dagsmorgun. Slökkviliðið á Suð-
urnesjum var kallað á vettvang
um klukkan átta að morgni en
um var að ræða gamla bíla sem
báðir voru númerslausir. Í fyrstu
var talið að kviknað hefði í hús-
næði en sem betur fer náði eld-
urinn ekki að breiðast út. Báðir
bílarnir eru taldir ónýtir eftir
eldsvoðann.
Fíkniefnamál
í Fjarðabyggð
Lögreglan á Eskifirði hefur hald-
lagt umtalsvert magn fíkniefna að
undanförnu í allnokkrum aðgerð-
um. Um er að ræða marijúana og
amfetamín auk áhalda og tóla til
neyslu. Í tilkynningu sem lögreglan
á Eskifirði sendi frá sér á sunnudag
vegna málsins kemur fram að fjórir
einstaklingar hafi verið kærðir fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna og
átta verið handteknir í tengslum
við málin. Þá er þegar búið að fara
í þrjár húsleitir auk þess sem leitað
var í bifreiðum í tengslum við rann-
sókn málanna. Öll komu þau upp í
Fjarðabyggð. Málin eru öll upplýst
og til meðferðar hjá ákæruvaldinu.
Framsóknarflokkurinn verður mjúkur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir
Framsóknarflokkinn hafa dregið lærdóm af
kreppunni. Framsóknarflokkurinn verði að
verða mjúkur flokkur.