Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Blaðsíða 21
Jóhann fæddist í Keflavík og ólst þar upp fyrstu árin en flutti með foreldrum sínum og systkinum
til Reykjavíkur 1956 og hefur átt þar
heima síðan. Hann var í Miðbæjar-
skólanum og Austurbæjarskóla á
barnaskólaaldri og stundaði síðan
nám við Vogaskólann og lauk þaðan
gagnfræðaprófi.
Jóhann fór ungur til sjós en hann
byrjaði 1968 á fiskibátum, var fyrst á
Leifi heppna, netabát frá Færeyjum
sem var á netum við Grænland. Hann
var síðan háseti Látrarastar frá Pat-
reksfirði.
Jóhann hóf störf hjá Eimskipafé-
laginu 1967 og var á skipum félags-
ins á árunum 1970–2007, fyrst sem
háseti en síðar bátsmaður. Jóhann
hefur starfað við skipaafgreiðslu Eim-
skips við Sundahöfn frá því hann kom
í land.
Jóhann sat í trúnaðarráði Sjó-
mannafélags Reykjavíkur. Hann er
mikill áhugamaður um öryggismál
sjómanna, hefur skrifað fjölda greina
um það málefni í dagblöð og tíma-
rit og gefið þrjá verðlaunabikara fyrir
öryggismál. Hann hefur sinnt félags-
störfum á vegum Sjálfstæðisflokksins
og Borgaraflokksins og verið í fram-
boði fyrir Sjálfstæðisflokkinn til Al-
þingis og borgarstjórnar.
Fjölskylda
Eiginkona Jóhanns er Viktoría Hólm
Gunnarsdóttir, f. 4.4. 1935, fyrrv.
starfsstúlka á Röntgendeild Landspít-
alans í Fossvogi. Hún er dóttir Gunn-
ars S. Hólm, fyrrv. húsgagnasmiðs
og Guðbjargar Þorvarðardóttur hús-
móður.
Börn Jóhanns frá fyrra hjónabandi
eru Jóhann Birgir, f. 4.10. 1972, búsett-
ur í Danmörku; Hinrik, f. 7.2. 1975,
verkamaður, búsettur í Reykjavík; Val-
gerður Helga, f. 6.1. 1982, húsmóðir í
Danmörku.
Jóhann á tvö alsystkini og þrjú
hálfsystkini, sammæðra.
Foreldrar Jóhanns voru Símon
Lilaa, f. 25.6. 1925, d. 31.1. 2007,
verkamaður í Reykjavík, og k.h., Björg
Svava Gunnlaugsdóttir, f. 18.9. 1927,
d. 7.2. 2009, kaupmaður.
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði | 21Mánudagur 11. apríl 2011
Til hamingju!
Afmæli 11. apríl
Til hamingju!
Afmæli 12. apríl
30 ára
Brad Sykes Frakkastíg 12, Reykjavík
Aneta Lemanska Faxabraut 27g, Reykjanesbæ
Edyta Ewa Stoltman Daggarvöllum 4b,
Hafnarfirði
Aleksandra Maria Anton Fellsmúla 4,
Reykjavík
Svanur Pétursson Álftamýri 44, Reykjavík
Þórir Egilsson Njarðvíkurbraut 2, Reykjanesbæ
Ómar Ström Hjallavegi 50, Reykjavík
Sif Rós Ragnarsdóttir Galtalind 5, Kópavogi
Björgvin Óskar Sigurjónsson Litla-Hofi,
Öræfum
Rakel Jónasdóttir Hjallavegi 42, Reykjavík
Jóhann Gunnlaugsson Geldingaholti 3,
Varmahlíð
Halldór Sigurðsson Þverholti 5, Mosfellsbæ
Sigmundur Heiðar Magnússon Karlagötu
19, Reykjavík
Sunna Dís Ingibjargardóttir Hjallavegi 68,
Reykjavík
40 ára
Beata Mieczyslawa Dziubinska Grundargerði
4d, Akureyri
Tomasz Marek Szpada Hafnarbraut 11,
Kópavogi
Elín Árnadóttir Stuðlabergi 48, Hafnarfirði
Steinunn Jóna Sævaldsdóttir Kjarnagötu
14, Akureyri
Sigríður Helga Ágústsdóttir Lyngrima 9,
Reykjavík
Óskar Svanur Barkarson Yrsufelli 15,
Reykjavík
Inga Sigrún Jónsdóttir Kringlunni 25,
Reykjavík
Inga Marín Óskarsdóttir Eyjabakka 11,
Reykjavík
Marteinn Sveinsson Veghúsum 31, Reykjavík
Lilja Jóna Halldórsdóttir Sæbakka 13, Nes-
kaupstað
Sólveig Skaftadóttir Eyjabakka 16, Reykjavík
50 ára
Adam Kozber Spóahólum 8, Reykjavík
Jadwiga Jolanta Najda Vindakór 3, Kópavogi
Sigurlaug Hrönn Valgarðsdóttir Dalatúni
15, Sauðárkróki
Jón Halldórsson Vatnsstíg 11, Reykjavík
Bryndís Ólafsdóttir Helgubraut 10, Kópavogi
Hrönn Harðardóttir Básenda 5, Reykjavík
Smári Eiríksson Selvogsgötu 16a, Hafnarfirði
Þorsteinn A. Pétursson Brúnási 3, Garðabæ
60 ára
Guðmundur Magnússon Kvistalandi 3,
Reykjavík
Ingvar Örn Hafsteinsson Fannarfelli 12,
Reykjavík
Páll Björgvinsson Skógarseli 21, Reykjavík
Skæringur Sigurjónsson Reynigrund 35,
Kópavogi
Ermenga Stefanía Björnsdóttir Kambaseli
28, Reykjavík
Inga Sólnes Sólvallagötu 7a, Reykjavík
Kristján P. Sigurðsson Strandgötu 37, Akureyri
Ingibjörg Bjarnason Flyðrugranda 6, Reykjavík
70 ára
Helgi Magnússon Hafnartúni 20, Siglufirði
Hilmar Jónsson Sóleyjarima 9, Reykjavík
Guðrún Guðmundsdóttir Mávahrauni 8,
Hafnarfirði
Oddur Lýðsson Árnason Einholti 13, Akureyri
Aðalheiður L. Sigurðardóttir Austurbrún
2, Reykjavík
Anna Lísa Jóhannesdóttir Drekavöllum 18,
Hafnarfirði
Víkingur Sveinsson Þverholti 15, Reykjanesbæ
Ingjaldur Indriðason Sautjándajúnítorgi 3,
Garðabæ
75 ára
Sveinn Guðnason Birkiteigi 4d, Reykjanesbæ
Kristjana Ísleifsdóttir Hólavangi 1, Hellu
80 ára
Sigurður Kristinn Jónsson Óðinsvöllum 3,
Reykjanesbæ
Björn J. Guðmundsson Hólabraut, Laugum
Skúli Sigurgrímsson Kársnesbraut 99,
Kópavogi
Þórunn Pálsdóttir Klifagötu 10, Kópaskeri
85 ára
Fríða Pétursdóttir Miðstræti 11, Bolungarvík
Kristín M. Möller Hrísmóum 1, Garðabæ
Björn Gústafsson Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi
95 ára
Guðmundur Guðmundsson Gullsmára 5,
Kópavogi
30 ára
Pathumma Ásgeirsson Þernunesi 13, Garðabæ
Krzysztof Karpinski Engjaseli 52, Reykjavík
Jón Gunnar Magnússon Löngumýri 12,
Garðabæ
Harpa Dögg Sigurðardóttir Grundargerði
2f, Akureyri
Finnur Ragnarsson Rauðalæk 18, Reykjavík
Benedikt Bóas Hinriksson Rauðavaði 25,
Reykjavík
Helga Margrét Schram Hrauntungu 24,
Kópavogi
Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir Hlíðarvegi
52, Kópavogi
Sólrún Ingvadóttir Vesturgötu 75, Reykjavík
Hulda Dóra Eysteinsdóttir Norðurgarði 13,
Hvolsvelli
Guðmundur Árni Hannesson Berjavöllum
2, Hafnarfirði
Kenya Kristín Emilíudóttir Stangarhyl 1a,
Reykjavík
40 ára
Lilja Þorkelsdóttir Viðarrima 50, Reykjavík
Sigfús Snæfells Magnússon Vesturtúni 27a,
Álftanesi
Finnur Bjarki Tryggvason Stóragerði 10,
Hvolsvelli
Bjarni Hrafnsson Hjallavegi 4, Reykjavík
Ragnheiður Sóley Stefánsdóttir Vallarbraut
8, Seltjarnarnesi
Sigurður Viðar Heimisson Miðtúni, Dalvík
Egill Erlendsson Háagerði 51, Reykjavík
50 ára
Vilborg Jónsdóttir Klyfjaseli 22, Reykjavík
Guðný Jónsdóttir Miðhúsum 26, Reykjavík
Guðrún Elín Konráðsdóttir Laufrima 12a,
Reykjavík
Björgvin Arnar Björgvinsson Hólabraut 9,
Reykjanesbæ
Ása Blöndahl Magnúsdóttir Straumsölum
6, Kópavogi
Þröstur Gunnlaugsson Nestúni 7a, Stykk-
ishólmi
Guðrún Helgadóttir Flétturima 9, Reykjavík
Agnar Snædahl Gylfason Laugarásvegi 52,
Reykjavík
Petrea Helga Kristjánsdóttir Hlíðarbraut
24, Blönduósi
Sigurður Einarsson Hellubæ, Reykholt í
Borgarfirði
Halldóra N. Björnsdóttir Arnartanga 4, Mos-
fellsbæ
60 ára
Erla Ingibjörg Sigurðardóttir Bústaðavegi
51, Reykjavík
Dagbjört Theodórsdóttir Dalalandi 7,
Reykjavík
Áslaug Ólafsdóttir Miðbraut 6, Hrísey
Kristvin Ómar Jónsson Hrafnakletti 2, Borgar-
nesi
Helga Haraldsdóttir Furuási 2, Garðabæ
Halldóra Gísladóttir Huldubraut 36, Kópavogi
Ólafur Haukur Óskarsson Hagamel 14,
Akranesi
María L. Brynjólfsdóttir Skipalóni 22,
Hafnarfirði
70 ára
Fanney Þórðardóttir Lindasíðu 13, Akureyri
Sigríður Þorvaldsdóttir Austurströnd 8, Sel-
tjarnarnesi
Sigríður Bergsteinsdóttir Baugstjörn 24,
Selfossi
Sigfríð Ólöf Sigurðardóttir Háaleitisbraut
48, Reykjavík
Ingvi Þórðarson Lerkilundi 10, Akureyri
75 ára
Þóranna Kristín Hjálmarsdóttir Víðimýri 8,
Sauðárkróki
Sigurbjörg Guðvarðardóttir Suðurhólum
35c, Reykjavík
Hrefna Friðriksdóttir Lönguhlíð 17, Akureyri
Kristinn H. Kristjánsson Fálkahöfða 8, Mos-
fellsbæ
80 ára
Hrefna Aðalsteinsdóttir Eyrarflöt 6, Akranesi
Jóna M. Sigurðardóttir Ljósheimum 20,
Reykjavík
Guðni Guðjónsson Heiðarlundi 15, Garðabæ
Erla Austfjörð Víðilundi 8e, Akureyri
Una Hólmfríður Kristjánsdóttir Nónási 3,
Raufarhöfn
Ólöf Ágústsdóttir Kóngsbakka 3, Reykjavík
Andrés Adolfsson Einarsnesi 36, Reykjavík
Eggert S. Magnússon Strikinu 12, Garðabæ
Kristján R. Sigurðsson Efstahrauni 3,
Grindavík
85 ára
Oddný Guðnadóttir Hörðalandi 12, Reykjavík
Vigdís Júlíanna Björnsdóttir Strandgötu
89, Eskifirði
Sigrún Karólína Pálsdóttir Vallarbraut 10,
Reykjanesbæ
Guðbrandur Eiríksson Austurvegi 5, Grindavík
90 ára
Jóna Sigurðardóttir Dalbraut 14, Reykjavík
Hlíf fæddist á Laugarvatni og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni
1928–30.
Jafnframt heimilisstörfum vann
Hlíf hjá Rannsóknastofnun fiskiðnað-
arins 1959-86.
Hlíf spilar enn bridge vikulega.
Þá hannar hún enn prjónaflíkur sem
hafa verið mjög vinsælar undanfarin
ár.
Fjölskylda
Hlíf giftist 7.5. 1931 Guðmundi Gísla-
syni, f. 22.5. 1900, d. 12.8. 1955, kenn-
ara á Laugarvatni og síðar skólastjóra
Héraðsskólans á Reykjum í Hrúta-
firði. Foreldrar Guðmundar voru Gísli
Þórðarson, f. 17.7. 1841, d. 3.7. 1924,
bóndi á Ölfusvatni í Grafningi, og
s.k.h., Guðlaug Þorsteinsdóttir, f. 5.11.
1864, d. í janúar 1955, húsfreyja.
Börn Hlífar og Guðmundar eru
Böðvar, f. 22.2. 1932, fyrrv. bókari í
Seðlabankanum, búsettur í Hafnar-
firði, kvæntur Helgu Þóru Jakobsdótt-
ur verslunarmanni og eiga þau fjögur
börn; Gísli Ölvir, f. 24.6. 1935, d. 9.7.
1958, smíðakennari í Reykjavík; Guð-
laug Edda, f. 21.1. 1937, húsmóðir í
Garðabæ, ekkja eftir Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra, og eru
börn þeirra þrjú; Inga Lára, f. 16.3.
1938, fyrrv. skrifstofustjóri hjá Rann-
sóknaráði ríkisins, gift Ingva Þor-
steinssyni náttúrufræðingi og eiga
þau eina dóttur.
Systkini Hlífar eru Ragnheiður,
f. 7.11. 1899, d. 10.9. 2000, húsfreyja
á Minni-Borg í Grímsnesi; Sigríður
Guðný, f. 1901, lést vikugömul; Magn-
ús, f. 18.6. 1902, d. 12.11. 1971, hrepp-
stjóri og bóndi í Miðdal í Laugardal;
Arnheiður, f. 14.7. 1904, d. 27.3. 2000,
húsfreyja á Efri-Brú í Grímsnesi; Lauf-
ey, f. 24.11. 1905, d. 6.11. 1974, hús-
freyja á Búrfelli í Grímsnesi; Hrefna,
f. 26.11. 1906, d. 8.7. 1976, húsfreyja
á Laugardalshólum í Laugardal;
Magnea Guðrún, f. 20.3. 1908, d. 22.5.
1977, skólastjórafrú í Ólafsvík og síð-
ar í Reykjavík; Sigríður, f. 29.8. 1912, d.
19.4. 1990, húsfreyja í Miðdalskoti í
Laugardal; Lára, f. 25.8. 1913, d. 12.7.
2010, húsmóðir í Reykjavík; Auður
Brynþóra, f. 13.7. 1915, d. 19.12. 2002,
húsmóðir í Reykjavík; Anna Bergljót,
f. 19.6. 1917, d. 2.12. 1989, húsmóðir á
Laugarvatni; Svanlaug, f. 24.12. 1918,
húsmóðir í Reykjavík.
Fóstursystir Hlífar er Áslaug Stef-
ánsdóttir, f. 18.6. 1928, dóttir Ragn-
heiðar Böðvarsdóttur.
Foreldrar Hlífar: Böðvar Magn-
ússon, f. 25.12. 1877, d. 18.10. 1966,
bóndi og hreppstjóri á Laugarvatni,
og k.h., Ingunn Eyjólfsdóttir, f. 2.8.
1873, d. 27.4. 1969, húsfreyja.
Ætt
Föðursystir Hlífar var Guðrún, móð-
ir Ragnheiðar Jónsdóttur rithöf-
undar, móður Sigrúnar Guðjóns-
dóttur myndlistarmanns. Böðvar
var sonur Magnúsar, b. í Holtsmúla
á Landi Magnússonar, b. á Stokka-
læk, bróður Guðrúnar, langömmu
Hrafnkels Helgasonar yfirlæknis.
Magnús var sonur Guðmundar, b. í
Króktúni Magnússonar, bróður Þor-
steins, langafa Þórhildar Þorleifsdótt-
ur, fyrrv. alþm. og leikhússtjóra, og
Eggerts Haukdal, fyrrv. alþm. Móðir
Guðmundar var Guðrún, langamma
Magnúsar Kjarans, föður Birgis Kjar-
ans alþm., afa Birgis Ármannsson-
ar alþm. Guðrún var dóttir Páls, b.
á Keldum Guðmundssonar, b. á
Keldum Brynjólfssonar, af Víkings-
lækjarætt þeirra Davíðs Oddssonar,
Benedikts Sveinssonar, Jóhönnu Sig-
urðardóttur og Jóns Guðmundssonar
á Reykjum. Móðir Guðrúnar var Þur-
íður Jónsdóttir, systir Önnu Maríu,
langömmu Þorsteins Erlingssonar
skálds. Bróðir Þuríðar var Páll skáldi,
langafi Ásgeirs Ásgeirssonar forseta.
Móðir Böðvars var Arnheiður
Böðvarsdóttir, b. á Reyðarvatni Tóm-
assonar og Guðrúnar Halldórsdótt-
ur, b. í Þorlákshöfn Jónssonar. Móðir
Guðrúnar var Guðbjörg Sigurðardótt-
ir, systir Jóns, afa Jóns forseta. Systir
Guðbjargar var Salvör, amma Tómas-
ar Sæmundssonar Fjölnismanns.
Móðurbróðir Hlífar var Brynjólf-
ur, langafi Víglundar Þorsteinssonar,
fyrrv. forstjóra BM Vallár. Ingunn var
dóttir Eyjólfs, b. á Laugarvatni, bróð-
ur Kolbeins, langafa Unnar, móður
Þórunnar Sigurðardóttur rithöfund-
ar, og Jóns Sigurðssonar, fyrrv. for-
manns Framsóknarflokksins. Eyjólfur
var sonur Eyjólfs, b. á Snorrastöðum í
Laugardal Þorleifssonar og Ragnheið-
ar Bjarnadóttur, b. í Efstadal Jóns-
sonar. Móðir Ragnheiðar var Jórunn
Narfadóttir, systir Andrésar, föður
Magnúsar, alþm. í Syðra-Langholti,
langafa Ásmundar Guðmundsson-
ar biskups og Sigríðar, móður Ólafs
Skúlasonar biskups. Systir Jórunn-
ar var Elísabet, langamma Hannesar
þjóðskjalavarðar, Þorsteins hagstofu-
stjóra og Jóhönnu, móður Óskars
Gíslasonar ljósmyndara og ömmu
Ævars Kvaran leikara. Móðir Ingunn-
ar var Ragnheiður Guðmundsdóttir,
b. í Eyvindartungu, bróður Halldóru,
ömmu Björns Þórðarsonar forsætis-
ráðherra og langömmu Guðrúnar,
móður Ragnars Arnalds, formanns
Heimssýnar. Guðmundur var sonur
Ólafs, b. á Blikastöðum í Mosfellssveit
Guðmundssonar, bróður Ragnheiðar,
langömmu Guðlaugar, ömmu Péturs
Sigurgeirssonar biskups.
Hlíf Böðvarsdóttir
Frá Laugarvatni
Jóhann Páll Símonarson
Starfsmaður hjá Eimskip
102 ára á mánudag
60 ára á mánudag