Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Blaðsíða 17
Erlent | 17Mánudagur 11. apríl 2011
•Sérþróað, umhverfisvænt gæðaþvottaefni fyrir íslenskt vatn
•Án efna sem sitja eftir í tauinu
•Nægir að þvo á 40-60°C
•2 kg endist 40 þvotta
•Án fosfata
„Ég býst við að hús, bátar og jafnvel
mannsfætur í strigaskóm muni reka
að ströndum landsins,“ segir banda-
ríski haffræðingurinn Curtis Ebbes-
meyer. Gríðarlegt magn af braki og
rusli sem skolaðist á haf út í kjölfar
flóðbylgjunnar í Japan þann 11. mars
síðastliðinn, stefnir nú hraðbyri að
vesturströnd Bandaríkjanna. Nú þeg-
ar hefur verið tilkynnt um heilu húsin
og skipin sem komin eru lengst á haf
út og rekur í átt til Bandaríkjanna. Eb-
besmeyer, sem stundað hefur rann-
sóknir á sjávarstraumum í árarað-
ir, býst við að eitt ár muni líða þar til
fyrstu hlutirnir skolast á land í Banda-
ríkjunum.
Býst við hinu óvænta
Mörg þúsund lík skoluðust á haf út í
kjölfar flóðbylgjunnar sem reið yfir
Japan í síðasta mánuði. „Ég býst við
hinu óvænta,“ segir Ebbesmeyer í
samtali við breska blaðið Daily Mail.
Fulltrúar bandaríska sjóhersins full-
yrða í samtali við blaðið að þeir hafi
aldrei séð neitt þessu líkt. Vara þeir
við því að brakið geti valdið skipum
á svæðinu miklum vandræðum og í
raun skapað stórhættu. Þá er einnig
óttast að geislavirkur úrgangur muni
berast að ströndum Bandaríkjanna
í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarn-
orkuverinu. „Áhættan er ekki mikil en
hún er til staðar. Magnið yrði væntan-
lega óverulegt og myndi ekki skapa
vandræði,“ segir James Hevezi, yfir-
maður American College of Radio-
logy Commission on Medical Physics.
Slæm áhrif á dýralíf
Yfirvofandi mengun við strendur
Bandaríkjanna er ekki það eina sem
Ebbesmeyer óttast. Hann segir að
sjávarmengun í Kyrrahafinu geti haft
slæmar afleiðingar í för með sér fyrir
dýralíf í hafinu. Hann bendir til dæm-
is á að ungar sjávarskjaldbaka klekj-
ast út í Japan og ferðast yfir Kyrrahafið
til stranda Kaliforníuríkis. Mengunin
geti haft slæmar afleiðingar í för með
sér fyrir stofninn. Ebbesmeyer tekur
það þó fram, að þó að um mikið magn
af rusli sé að ræða, blikni það í sam-
anburði við það magn af úrgangi sem
ratar í hafið á hverju ári.
n Þúsundir tonna af rusli sem skolaðist á haf út í flóðbylgjunni í Japan rekur í átt að Banda-
ríkjunum n Heilu húsin hafa sést á floti n Dýralífi á Kyrrahafi kann að stafa hætta af rusli
Mikið magn rusls rekur
í átt að Bandaríkjunum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is „Þá er einnig óttast að geislavirkur úrgangur
muni berast að ströndum Bandaríkjanna í
kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.
Á leið til Bandaríkjanna Ruslið getur stefnt dýraríki í Kyrrahafi í hættu. MYND REUTERS