Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2011, Page 8
8 | Fréttir 11. apríl 2011 Mánudagur
www.turbochef.com
S: 567-8888
Er snöggur
Ekki þörf á loftræstingu
Eldar góðan mat
Tekur lítið pláss
Alltaf tilbúinn til eldunar
Einfaldur í notkun
Ódýr í rekstri
Borgar sig fljótt upp
OFN engum öðrum líkur !
Þrír lögfræðingar telja að skil
greining Landsbankans á Björg
ólfi Thor Björgólfssyni, fjárfesti og
stærsta hluthafa Landsbankans í
gegnum eignarhaldsfélagið Sam
son, sem ótengdum aðila á árun
um fyrir hrun hafi farið þvert gegn
lögum um fjármálafyrirtæki. Þetta
kemur fram í lögfræðiáliti frá því í
febrúar síðastliðinn sem lögmenn
irnir Jóhannes Bjarni Björnsson,
Jóna Björk Helgadóttir og Grímur
Sigurðsson hafa unnið fyrir nokkra
af fyrrverandi hluthöfum Lands
bankans. Hluthafarnir skoða rétt
arstöðu sína vegna mögulegs
skaðabótamáls gegn Björgólfi Thor
út af málinu.
Telja hluthafarnir að Björgólf
ur Thor hafi verið ranglega skil
greindur sem ótengdur aðili gagn
vart bankanum vegna þess að
óbeint eignarhald hans í honum
hafi verið meira en 20 prósent af
heildarhlutafé bankans. Þeir telja
að þessi meinta ranga skilgreining
á Björgólfi Thor hafi meðal annars
haft þær afleiðingar að lánveiting
ar til Björgólfs Thors hafi ekki þurft
að fara fyrir stjórn bankans áður en
gengið var frá þeim. Þá hafa hlut
hafarnir sent Fjármálaeftirlitinu
lögfræðiálitið sem og slitastjórn
Landsbankans. Bíða þeir nú eft
ir því hvort slitastjórnin muni sjálf
standa fyrir umræddum málaferl
um gegn Björgólfi Thor, samkvæmt
heimildum DV.
Snýst um Givenshire og Hersi
DV hefur fjallað ítarlega um eign
arhaldsfélögin Givenshire og Hersi
og aðkomu þeirra að eignarhaldinu
á Samson. Í fyrra greindi DV frá því
að hópur nánustu samstarfsmanna
Björgólfs Thors hjá fjárfestingar
félaginu Novator hefði á fyrri hluta
árs eignast fimm prósenta hlut í
eignarhaldsfélaginu Given shire,
félagi Björgólfs sem hélt utan um
hlut hans í Samson. Sú staðreynd
að þessi samstarfsmenn Björgólfs
Thors áttu hlut í Given shire gerði
það að verkum að óbeint eignar
hald hans í Landsbankanum fór
niður fyrir 20 prósent.
Í síðustu viku greindi DV svo
frá því að eignarhaldsfélagið Hers
ir, sem var í eigu samstarfsmanna
Björgólfs Thors hjá Samson, hefði
keypt eins prósents hlut í Samson
í lok árs 2005 með lánveitingu frá
Samson. Greindi DV frá því að í
báðum tilvikum hefði ástæða við
skiptanna verið sú að búa þannig
um hnútana að óbeint eignarhald
Björgólfs Thors í Landsbankanum
færi niður fyrir 20 prósent.
Hefði átt að vera tengdur aðili
Lögfræðiálit þremenninganna
fjallar að langmestu leyti um eignar
hald þessara samstarfsmanna
Björgólfs Thors á umræddum eign
arhlut í Samson. Í niðurstöðu sinni
segja lögmennirnir þrír meðal ann
ars: „Með því að hlutir Givenshire
og Hersis í Samson annars vegar og
hlutir Valhamars og starfsmanna
Novator í Givenshire hins veg
ar skulu taldir saman við útreikn
ing á óbeinum eignarhlut Björgólfs
Thors í Landsbankanum, fer hlutur
hans í bankanum yfir 20%. Þegar af
þeirri ástæðu verður að telja Björg
ólf Thor hafa haft stöðu tengds aðila
gagnvart Landsbankanum í skiln
ingi laga nr. 161/2002.“
Minnisblað styður
niðurstöðuna
Í lögfræðiálitinu er meðal annars
vitnað til minnisblaðs frá endur
skoðendafyrirtækinu PwC frá því á
seinni hluta árs 2005 þar sem fram
kemur að starfsmenn fyrirtækisins
hafi fundað með Birgi Má Ragnars
syni, framkvæmdastjóra Samson
ar, þar sem rætt var við hann um að
breyta þyrfti skilgreiningu Lands
bankans á tengdum aðilum þar
sem bæði Björgólfur Thor og fað
ir hans og nafni, Björgólfur Guð
mundsson, ættu meira en 20 pró
senta óbeinan eignarhlut. Þess
vegna þyrfti að skilgreina þá báða
sem tengda aðila.
Samkvæmt lögfræðiálitinu, sem
vísar í minnisblað PwC, sagði Birg
ir Már á þessum fundi að til stæði
að breyta eignarhaldinu á Sam
son fyrir árslok 2005. „Hann [Birg
ir, innskot blaðamanns] hafi greint
frá því að það væri fyrirætlað að
breyta eignarhaldinu í Samson fyr
ir árslok 2005, þannig að eignar
hlutur Björgólfs Thors myndi fara
í sama eða lægra hlutfall og það
var í upphafi ársins.“ Jafnframt
segir í lögfræðiálitinu að PwC hafi
gert Birgi grein fyrir því að ef þetta
gerðist ekki þyrfti að breyta skil
greiningu Björgólfs Thors gagnvart
Landsbankanum og gera hann að
tengdum aðila.
Fyrir áramótin 2005 keypti
Hersir svo 1 prósent í Samson sem
gerði það að verkum að ekki þurfti
að breyta skilgreiningunni á Björg
ólfi gagnvart Landsbankanum:
Hann var áfram ótengdur aðili.
Telja hægt að sanna samstarf
Niðurstaða lögfræðiálitsins er
meðal annars að hugsanlega verði
hægt að sýna fram á tengsl milli
eignarhalds starfsmanna Nova
tor í Givenshire, sem átti Samson,
og eignarhalds Hersis í Samson,
meðal annars vegna þessa minnis
blaðs frá PwC. Telja lögmennirnir
að þessi tengsl geti sýnt fram á að
yfirlýst markmið þessara viðskipta
með beinan og óbeinan eignarhlut
í Samson hafi verið að koma eignar
hlut Björgólfs og félaga hans í Sam
son undir 20 prósent.
Um þetta segir í lögfræðiálitinu.
„Þ.e.a.s. þegar litið er til yfirlýstrar
ætlunar Samson (samkvæmt fram
burði framkvæmdastjóra fyrirtækis
ins á fundi með PWC) um að koma
eignarhaldinu í fyrra horf, gagngert
í því skyni að koma Björgólfi Thor
og félögum hans undir 20% óbein
an eignarhlut í Landsbankanum,
sem og augljósra tengsla Hersis
og eigenda þess félags við Björgólf
Thor og hans félög. Ef þessi heild
armynd yrði ekki vefengd með trú
verðugum hætti gæti það að mati
undirritaðra orðið niðurstaða dóm
stóls sem um málið myndi fjalla, að
samstarf yrði talið sannað á grund
velli 2. mgr. 40 gr.a.“
Samkvæmt þessu mati gætu
hluthafarnir sem báðu lögmennina
um að vinna lögfræðimatið því haft
lög að mæla í þeirri afstöðu sinni að
Björgólfur Thor hafi ekki verið skil
greindur rétt gagnvart Landsbank
anum og tilgangur umræddra við
skipta Hersis og Givenshire hafi
verið að koma eignarhlut hans nið
ur fyrir 20 prósent. Þetta gæti styrkt
stöðu hluthafanna í hugsanlegu
skaðabótamáli gegn Björgólfi Thor.
n Í lögfræðiáliti er Björgólfur Thor Björgólfsson sagður hafa verið rangt skilgreindur í Lands-
bankanum n Hluthafar Landsbankans íhuga skaðabótamál n Minnisblað frá PwC sýnir
yfirlýst markmið Samsonar um að koma eignarhlut Björgólfs Thors niður fyrir 20 prósent
Björgólfur og Hersir 3. hluti
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Þegar af þeirri
ástæðu verður að
telja Björgólf Thor hafa
haft stöðu tengds aðila
gagnvart Landsbank-
anum í skilningi laga nr.
161/2002.
Sagði stefnuna að koma Björgólfi undir
20 prósent Framkvæmdastjóri Samsonar sagði
stefnuna að koma eignarhaldi Björgólfs Thors í Lands-
bankanum niður fyrir 20 prósent fyrir árslok 2005.
Í lögfræðiáliti er Björgólfur sagður hafa verið rangt
skilgreindur sem ótengdur aðili.
Endurskoðun á
aðbúnaði svína
Jón Bjarnason, sjávarútvegs og land
búnaðarráðherra hefur gefið út nýja
aðbúnaðarreglugerð vegna svínarækt
ar. Á heimasíðu sjávarútvegs og land
búnaðarráðuneytis stendur að mikil
vinna hafi farið fram á síðustu mán
uðum á vegum ráðuneytisins sem
miði að því að endurskoða fjölmarga
þætti varðandi svínarækt á Íslandi og
framtíðarmöguleika þeirrar búgreinar.
Endurskoðun á aðbúnaðarreglu
gerð svína var hluti af þeirri vinnu og
hefur ný og endurbætt reglugerð litið
dagsins ljós. Í nýrri reglugerð er miðað
við að uppfæra staðla og skilyrði fyrir
aðbúnaði svína og laga að þeim kröf
um sem gerðar eru í nágrannalönd
um okkar, bæði hvað varðar staðla
fyrir byggingar og innréttingar sem og
almennt um umgengni og hirðingu
gripanna. Ný reglugerð er unnin af
starfshópi fulltrúa ráðuneytisins, Mat
vælastofnunar og svínabænda.
Fjórir grunaðir
um líkamsárás
Fjórir menn þurftu að gista fanga
geymslur lögreglunnar á Selfossi
aðfaranótt sunnudags grunaðir um
líkamsárás. Árásin átti sér stað fyrir
utan skemmtistaðinn Hvíta húsið á
Selfossi um klukkan fjögur um nótt
ina og þurfti að flytja þann sem fyrir
árásinni varð á slysadeild Landspítal
ans í Fossvogi. Er talið að hann hafi
jafnvel úlnliðsbrotnað eftir árásina.
Ekki er vitað hvort mennirnir
fjórir, sem eru á aldrinum sautján til
tuttugu ára, hafi allir staðið að baki
árásinni. Þar sem ekki var hægt að yf
irheyra þá sökum ölvunar var ákveð
ið að láta þá gista fangageymslur
lögreglunnar. Talið er að árásin hafi
verið alvarleg en í fyrstu var farið með
hinn slasaða á heilsugæslu á Selfossi
en síðan var ákveðið að flytja hann á
slysadeild Landspítalans í Fossvogi.
Hraðakstur á
Miklubraut
Brot fimmtán ökumanna voru
mynduð á Miklubraut í Reykja
vík á föstudag. Fylgst var með
ökutækjum sem var ekið Miklu
braut í vesturátt, að Reykjahlíð.
Á þremur stundarfjórðungum,
fyrir hádegi, fóru 694 ökutæki
þessa akstursleið og því óku fá
einir ökumenn, eða tvö prósent,
of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var
72 kílómetra hraði á klukkustund
en þarna er sextíu kílómetra há
markshraði. Sá sem hraðast ók
mældist á 81 kílómetra hraða á
klukkustund.
ÍHUGA MÁLSÓKN
GEGN BJÖRGÓLFI