Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 4
4 Fréttir 30. apríl 2012 Mánudagur
Nýkrónan til bjargar
n Lilja Mósesdóttir bregst við fátækt og landflótta
U
pptaka nýkrónu er ekki töfra-
bragð heldur nauðsynleg
varnaraðgerð til að koma í
veg fyrir aukna fátækt og stór-
felldan landflótta á næstu árum,“
skrifar Lilja Mósesdóttir, formað-
ur Samstöðu, í pistli á vefsíðu sinni
á sunnudag. Þar segir að Samstaða
vilji fara svokallaða skiptigengisleið.
Hún muni ekki brjóta í bága við eign-
arréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
Lilja segir að stöðugt sé verið að
reyna að koma skuldum einkaaðila
á skattgreiðendur. Nýjasta dæmið sé
snjóhengjan svokallaða sem saman-
stendur af aflandskrónum að and-
virði 1.000 milljarða króna. „Umbreyt-
ist snjóhengjan í snjóflóð sem ryðst út
úr hagkerfinu eins og margir forsystu-
menn sjálfstæðismanna vilja, mun
það leiða til sögulegs gengishruns,
verðbólgubáls sem hvorki heimili né
fyrirtæki munu lifa af. Hliðarráðstaf-
anir eins og frysting verðtryggingar og
matarskömmtun í götueldhúsum og
skólum mun ekki afstýra harðindum
þjóðarinnar verði þessi leið farin.“
Skiptigengisleiðin segir Lilja
að gangi út á að eigendum „snjó-
hengjunnar“ stæði til boða að fjár-
festa innanlands til mjög langs tíma
áður en eignum þeirra yrði skipt
yfir í nýkrónu. „Froðueignum á leið
út úr landi yrði hins vegar skipt yfir
í nýkrónu þannig að 10 milljónir í
gömlum krónum yrðu t.d. 2 milljón-
ir í nýkrónum. Launum fólks í land-
inu yrði breytt í nýkrónur þannig að
upphæð þeirra yrði óbreytt. Upp-
taka nýkrónu myndi þannig laga ytra
ójafnvægi hagkerfisins án þess að
lífskjör yrðu skert verulega.“
Í pistlinum segir Lilja að nú fjölgi
stöðugt í hópi eignalausra í landinu
á sama tíma og fjármagnseigend-
ur leiti logandi ljósi að fjárfestingar-
tækifærum.
Ekki töfrabragð Lilja segir upptöku
Nýkrónu nauðsynlega varnaraðgerð.
Vilja efla
öryggi í köfun
Sportkafarafélag Íslands vill að
Siglingastofnun og innanríkis-
ráðuneytið endurskoði lög og
reglugerð um köfun, svo hægt
verði að tryggja öryggi ferða-
manna sem hingað koma til að
kafa. Frá þessu var greint í kvöld-
fréttum RÚV á sunnudag. Þar kom
fram að köfunarkennari segir að
annars sé einungis tímaspursmál
hvenær næsta köfunarslys verði.
Herða þurfi eftirlit með fyrirtækj-
um sem bjóði upp á skipulagðar
köfunarferðir og setja þurfi reglur
sem kveði á um að köfunarleið-
sögumenn séu menntaðir kafarar
og geti brugðist við erfiðum að-
stæðum.
Mögulega
sviptir bótum
Um 1.500 þeirra sem verið hafa án
vinnu í meira en ár hafa ekki tekið
þátt í verkefni sem koma á þeim
aftur á vinnumarkaðinn. Verði
ekki breyting á kemur til greina
að svipta menn bótum að því er
kemur fram í frétt RÚV um málið.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, sagði í samtali við
RÚV að þegar sæjust merki um að
langtímaatvinnuleysi hefði áhrif á
vilja manna til að taka störf þegar
þau loksins byðust. Gissur sagði
jafnframt að allar hvatningarað-
gerðir gengju út á það að viðhalda
viljanum til vinnu, en samkvæmt
heimildum fréttastofu RÚV kemur
til greina að svipta þennan hóp
bótum.
Þ
að var greinilega blóð og
hún er eitthvað meidd en ég
get ekki gefið neina staðfest-
ingu á því hve mikið,“ segir
Birgir P. Hjartarson, yfirdyra-
vörður á Austri, þar sem gróf líkams-
árás var framin um klukkan tvö að-
faranótt laugardags. Þar var veist að
konu og hún slegin í andlitið með
þeim afleiðingum að hún nefbrotn-
aði. Samkvæmt heimildum DV er
árásarmaðurinn sonur þekkts manns
í undirheimunum. Birgir segist geta
staðfest að atvikið hafi átt sér stað en
hann viti ekki meir um það þar sem
konan hafi yfirgefið staðinn áður en
sjúkrabíll og lögregla komu á staðinn.
Notaði hnúajárn
Samkvæmt heimildum hafði kon-
an aðeins verið skamma stund inni
á staðnum þegar ráðist var að henni.
Hún stóð á spjalli við fólk þegar hún
fékk högg úr hægri átt og í andlitið.
Konan féll í gólfið við höggið sem var
afar þungt og talið er að árásarmað-
urinn hafi notað hnúajárn við verkn-
aðinn. Hún mun ekki hafa séð árás-
armanninn en vitni sáu hver var að
verki áður en hann hvarf af vettvangi
nánast jafn skjótt og hann hafði látið
ríða til höggs.
Vitni lýsa því sem svo að sést hafi í
bein í nefi konunnar og hún hafi ver-
ið öll í blóði. Konan nefbrotnaði illa
og hlaut djúpan skurð. Lýtalæknir
mun hafa saumað 20–30 spor í and-
lit hennar til þess að gera að sárum
hennar. Hún mun einnig vera mjög
bólgin og marin hægra megin í and-
liti og auk þess með glóðarauga, þeim
megin sem höggið kom.
Tengist illindum
í undirheimunum
Grunaður árásamaður er sonur
þekkts manns í undirheimunum og
talið er að ástæða árásarinnar teng-
ist illdeilum í undirheimunum. Kon-
an er fyrrverandi kærasta manns sem
samkvæmt heimildum mun hafa átt
í deilum við föður árásarmannsins
sem er sagður háttsettur í undirheim-
unum. Hún mun þó ekki þekkja árás-
armanninn persónulega.
Dyraverðir á staðnum sáu ekki
árásarmanninn en komu að konunni
þar sem hún var með vinkonum sín-
um stuttu eftir að árásin átti sér stað
en þá var árásarmaðurinn á bak og
burt. „Það var enginn dyravörður sem
sá hvað gerðist og hún vildi ekki segja
hvað gerðist,“ segir Birgir um árásina
og tekur fram að hún hljóti að hafa
gerst afar hratt. „Því miður geta svona
hlutir gerst á sekúndubroti. Ég er með
mjög góða menn þarna niður frá og
yfirleitt eru um 90 prósent staðarins
undir eftirliti hverju sinni.“
Minntust Geira fyrr um kvöldið
Nokkurt uppnám varð á staðnum í
kjölfar árásarinnar sem átti sér stað
á háannatíma á skemmtistaðnum
enda var talsvert mikið blóð á vett-
vangi og fór það ekki á milli mála hjá
þeim sem sáu konuna að hún var
mikið slösuð að sögn vitna. Fyrr um
kvöldið höfðu nokkrir félagar Ásgeirs
Þórs Davíðssonar, Geira á Goldfin-
ger eins og hann var gjarnan kall-
aður, ákveðið að hittast á staðnum
til að heiðra minningu hans en hann
var jarðsunginn fyrr um daginn. Jón
H. Hallgrímsson, Jón stóri, stóð fyrir
hittingnum og mun hann hafa ver-
ið vel sóttur. Grunaður árásarmað-
ur er talinn hafa verið á staðnum í
tengslum við hittinginn.
Leggur fram kæru
Farið var afsíðis með konuna að sögn
Birgis þar sem hlúð var að henni en
hún fór áður en sjúkrabíll kom á stað-
inn og mun vinur hennar hafa keyrt
hana upp á spítala. Þar fékk hún að-
hlynningu og um klukkustund eftir
að hún kom þangað kom lögreglan á
staðinn og tók af henni skýrslu.
Málið er í rannsókn samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu. Á Austri
eru eftirlitsmyndavélar þannig að
líklegt er að atvikið hafi náðst á upp-
töku. Heimildir DV herma að fórnar-
lambið muni í dag, mánudag, leggja
fram formlega kæru ásamt áverka-
vottorði á hendur manninum.
Konu misþyrmt
með hnúajárni
n Gróf líkamsárás á Austri n Árásarmaðurinn á alræmdan föður„Það var enginn
dyravörður sem sá
hvað gerðist og hún vildi
ekki segja hvað gerðist.
Árásarstaðurinn Árásin átti
sér stað á skemmtistaðnum
Austri aðfaranótt laugardags.