Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Blaðsíða 13
Fréttir 13Mánudagur 30. apríl 2012 BERJUMST! 1. MAÍ 2012 Í REYKJAVÍK VINNA ER VELFERÐ ASÍ BSRB BHM KÍ Safnast saman á horni Snorrabrautar og Laugavegs kl. 13.00. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika nokkur lög. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Gengið niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Ræðumenn flytja örræður meðan gangan stendur yfir. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10. Útifundi lýkur kl. 15.00. Barnið ekki nógu fatlað n Líf 12 ára stúlku breyttist til hins betra eftir að hún greindist með ódæmigerða einhverfu H ún fékk ekki þá þjónustu sem hún þurfti á að halda því hún var ekki nógu fötl- uð. Ég var búin að berjast í kerfinu eins og geðsjúkling- ur og ég upplifði mig þannig að kerf- ið væri að refsa mér fyrir að eiga ekki nógu fatlað barn,“ segir móðir tólf ára stúlku sem var greind með ódæmi- gerða einhverfu í nóvember. DV greindi frá máli stúlkunnar í síðustu viku, en þar til fyrir um einu og hálfu ári mátti hún þola mikið ein- elti af hálfu skólafélaga sinna. Tekið var á eineltisvandanum með fræðslu og árangurinn fór fram úr björtustu vonum, að sögn móður hennar. Eftir stóð hins vegar að stúlkan, sem greind hafði verið með ADHD, þroskafrávik og er með lága greind- arvísitölu, var ekki talin nógu fötluð til að eiga rétt á úrræðum til að efla hana félagslega. Falla á milli í kerfinu Móðir stúlkunnar bendir á að kerfið á Íslandi sé mjög ófullkomið. Mörg börn sem hvorki séu heilbrigð né mikið fötluð falli á milli í kerfinu og verði út undan. Þannig var það í til- felli stúlkunnar. Það var ekki fyrr en eftir að hún fékk greiningu í nóvem- ber að hjólin fóru að snúast og hún fór að geta nýtt sér ýmis úrræði sem efla hana félagslega. Móðir stúlk- unnar segir líf dóttur sinnar hafa gjörbreyst í kjölfarið og henni líði nú miklu betur. „Eineltið hvarf fyrir rúmu ári og svo bara löguðust hlutirnir ennþá meira eftir einhverfugreininguna. Þetta er búinn að vera erfiður tími, skólagangan hjá greyinu, en núna er ekkert mál að fara í skólann.“ Ekki næg þekking meðal kenn- ara Móðurinni finnst kennarar oft ekki hafa næga þekkingu á fötlun og finnst það sérkennilegt þar sem það geti komið fyrir að mörg börn með ýmsar gerðir fötlunar lendi í sama bekk. „Það er einn skóli fyrir alla og þú getur lent í því að helmingurinn í bekknum sé með einhverfu því ein- hverfa er að aukast svo rosalega mik- ið.“ Þetta geri það að verkum að kenn- arar hafi almennt enga þekkingu á því hvernig eigi að kenna börnum með einhverfu, fyrir utan kennara í sérdeildum. „Mér finnst það fárán- legt því það eru ekkert öll börn með einhverfu sem komast inn í þessar deildir. Stelpan mín er með ódæmi- gerða einhverfu en til að komast inn í þessar sérdeildir þarf barnið helst að vera með dæmigerða einhverfu.“ Hún bendir á að dóttir hennar geti alveg átt jafn erfitt og börn með dæmigerða einhverfu en hafi hins vegar ekki fengið nógu góða þjón- ustu því hún teljist ekki nógu fötluð. „Eineltið hvarf fyrir rúmu ári síðan og svo bara lögðust hlutirnir ennþá meira eftir ein- hverfugreininguna“ Fékk greiningu Hjólin fóru ekki að snúast fyrr en stúlkan fékk greiningu í nóvember. Þá gat hún farið að nýta sér úrræði til að efla hana félagslega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.