Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Qupperneq 6
Útgerðarrisi gefur
íþróttamannvirki
6 Fréttir 30. apríl 2012 Mánudagur
Tengd 450 dauðsföllum
n Lögreglumenn vilja umdeild vopn
M
ikill meirihluti lögreglu-
manna vill fá leyfi til þess að
bera rafbyssur við störf sín.
Innanríkisráðherra hyggst
skoða hvort heimila eigi aukinn
vopnaburð lögreglumanna en vill
fara varlega í að heimila slíkt. Raf-
byssur eru afar umdeild valdbeiting-
artæki. Amnesty International hefur
bent á að rekja megi 450 dauðsföll
til notkunar rafbyssa. Í ítarlegri um-
fjöllun The Guardian á dögunum
kemur fram að notkun vopnanna við
löggæslustörf í Bretlandi verði sífellt
umdeildari.
Landssamband lögreglumanna
kannaði nýlega áhuga lögreglu-
manna á því að taka rafbyssur til al-
mennrar notkunar í störfum sínum
en mikill meirihluti sagðist hlynntur
því. Þá vildi ákveðinn hluti lögreglu-
manna að settar yrðu skammbyssur
í lögreglubíla að norskri fyrirmynd.
Helstu rökin fyrir þessu munu vera
aukin harka í glæpaheimum sem
og niðurskurður á fjárheimildum til
lögreglu. RÚV fjallaði um málið um
helgina.
„Að sjálfsögðu er ég tilbúinn að
ræða þessi mál. Ég deili áhyggjum
lögreglunnar, ef hún telur sig óvarða
gagnvart vopnuðum ofbeldismönn-
um, en ég hvet engu að síður til var-
færni í þessum efnum,“ sagði Ög-
mundur í samtali við RÚV. Eins og
fyrr segir eru misjafnar skoðanir á
rafbyssum. Á meðan framleiðendur
byssanna halda því fram að þær séu
afar öruggar hafa mannréttindasam-
tök eins og Amnesty International
bent á þann mikla fjölda dauðsfalla
sem rekja má til notkunar þeirra.
Samtökin hafa þó sagt að þau styðji
notkun rafbyssa ef valið stendur á
milli þeirra og venjulegra byssa.
jonbjarki@dv.is
M
enn hafa væntingar um
að nýta húsið í meira
en bara undir fótbolta,“
segir Haukur Ingi Ein-
arsson, framkvæmda-
stjóri tækni- og umhverfissviðs hjá
sveitarfélaginu Hornafirði, um yf-
irbyggingu á gervigrasvelli sem út-
gerðar- og fiskvinnslufélagið Skin-
ney-Þinganes hf. ætlar að gefa
sveitarfélaginu í sumar. Að sögn
Aðalsteins Ingólfssonar, fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins, er um
ræða húsnæði sem nær yfir hálfan
knattspyrnuvöll. Aðspurður seg-
ist hann ekki alveg klár á fermetra-
fjöldanum en telur að um sé að
ræða 300 til 400 fermetra.
Borga og afhenda lyklana
Upphaflega stóð til að sveitarfé-
lagið tæki þátt í kostnaði við bygg-
inguna og stóðu viðræður yfir við
Skinney-Þinganes á árunum 2006
til 2007. Í kjölfar efnahagshruns-
ins voru hugmyndirnar settar á ís
og framkvæmdirnar frestuðust.
„Þangað til þráðurinn var tekinn
upp aftur en það var þá að þeim
forsendum að þeir byggja þetta al-
farið á sinn kostnað og afhenda svo
lyklana þegar verkinu er lokið.“ Að
sögn Hauks var það að frumkvæði
forsvarsmanna Skinneyjar-Þinga-
ness sem málið var tekið upp að
nýju í vetur.
Haukur segir sveitarfélagið hafa
orðið að forgangsraða á sínum
tíma. Á meðan átti eftir að sinna
viðhaldi og endurbótum á skóla-
húsnæði var knattspyrnuhús ekki
efst á forgangslistanum. Gjöfin frá
Skinney-Þinganesi er því kærkom-
in.
Skoða hreyfanleg gólf
Sveitarfélagið hefur þegar látið byggja
gervigrasvöll og verður byggt yfir
hann. Vonast er til að með yfirbygg-
ingunni verði til fjölnota íþrótta-
mannvirki. „Það er orðin svo rosa-
lega mikil framför í svona gólfum sem
hægt er að setja niður og taka upp
með einföldum hætti. Jafnvel rúlla
út og því um líkt. Það er eitthvað sem
menn hafa verið að skoða samhliða
þessu,“ segir Haukur sem er líkt og
aðrir íbúar á Höfn í Hornafirði him-
inlifandi yfir áformunum. Nýja bygg-
ingin mun koma til með að breyta
aðstöðunni mikið og skýla íþróttaiðk-
endum fyrir veðri og vindum.
Tekið í notkun í haust
Aðalsteinn segir að ráðist verði í
framkvæmdir við yfirbygginguna í
sumar og vonast hann til að hægt
verði að taka húsnæðið í notkun
næsta haust. Nú er unnið að breyttu
skipulagi þannig að undirbúnings-
vinnan er langt komin. Aðalsteinn
vill ekki gefa upp hvað áætlað er að
verkið komi til með að kosta, enda sé
það ekki alveg ljóst ennþá.
Skinney-Þinganes er fjölskyldufyr-
irtæki Halldórs Ásgrímssonar, fyrrver-
andi forsætisráðherra og formanns
Framsóknarflokksins. Nánir ættingjar
hans eiga um fjórðung alls hlutafjár í
félaginu auk þess sem hann sjálfur á
um 2,37 prósenta hlut.
„Menn hafa
væntingar
um að nýta húsið
í meiraen bara
undir fótbolta
n Hornafjörður fær yfirbyggingu á gervigrasvöll að gjöf í sumar
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Fjölskyldufyrirtæki Skinney-Þinganes
er fjölskyldufyrirtæki Halldórs Ásgríms-
sonar, fyrrverandi forsætisráðherra.
Fá nýtt íþróttamannvirki
Íbúar í sveitarfélaginu Hornafirði
koma til með að fá veglega gjöf frá
fyrirtækinu Skinney-Þinganesi í
haust. Í sumar mun fyrirtækið kosta
yfirbyggingu á gervigrasvöll.
Vilja rafbyssur Meirihluti lögreglumanna
vill bera rafbyssur.
Piparúðaárás
á Hressó
Gestir Hressingarskálans urðu
fyrir piparúðaárás aðfaranótt
sunnudags, að því er fram kemur
í tilkynningu frá lögreglu. Ekki er
vitað hver úðaði eða hvar hann
komst yfir piparúðann en á Íslandi
er lögreglumönnum einum heim-
ilt að beita slíkum úða. Hress-
ingarskálinn er við Austurstræti í
miðbæ Reykjavíkur en fjölmargir
gestir staðarins hlupu á dyr eftir
að úðanum var beitt þar inni. Í til-
kynningunni segir að úðinn hafi
farið illa í gesti staðarins en þeir
hafi þó snúið til baka eftir að hann
var loftræstur.
Arnarhreiður
rústað
Skemmdir sem talið er öruggt að
séu af mannavöldum voru unnar
á hreiðri hafarnarhjóna í eyju á
sunnanverðum Breiðafirði í síð-
ustu viku. Ernirnir hurfu í síð-
ustu viku eftir að hafa undirbúið
varp og byggt hreiður af miklum
móð vikurnar þar á undan. Full-
trúar Náttúrustofu Vesturlands
og Fuglaverndar fóru á vettvang
til að skoða nánar ummerki og
var aðkoman víst ljót. Rótað var
í hreiðrinu og hluta þess kastað
fram af klettum og niður í fjöru.
Eggin voru horfin. Bannað er með
lögum að hrófla við hreiðrum og
hreiðurstæðum arna og hafa haf-
ernir verið friðaðir í hátt í hálfa
öld. Málið var kært til lögreglu.
Óskráð rúta
skíðlogaði
Lögregla og slökkvilið var kall-
að út aðfaranótt sunnudags þar
sem tilkynnt var um rútubif-
reið sem stóð í ljósum logum
við Óseyrarbraut í Hafnarfirði.
Ekki liggur ljóst fyrir hver upp-
tök eldsins voru en rútan, sem
reyndist óskráð farartæki, var
stórskemmd eftir eldsvoðann.
Lögreglan rannsakar málið.