Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Side 8
8 Fréttir 30. apríl 2012 Mánudagur
Ræðst gegn Árna Finnssyni
n Kallar formann náttúruverndarsamtaka öfgamann
G
uðmundur Franklín Jóns-
son, formaður Hægri
grænna, segir Árna Finns-
son, formann Náttúru-
verndarsamtaka Íslands,
öfgaumhverfissinna. Þetta sagði
hann á Facebook-síðu sinni á
sunnudag og vísaði í frétt á mbl.is
um að alþjóðleg dýraverndunar-
samtök vildu að Íslendingar yrðu
beittir diplómatískum þrýstingi til
að láta af hvalveiðum.
„Nú hlýtur öfgaumhverfissinn-
inn Árni Finnsson formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands að fara
upp í bandaríska sendiráð, eins
og um árið og pressa á sendiherr-
ann með þetta,“ sagði Guðmundur
Franklín. Vísaði hann þar til upp-
lýsinga sem komu fram í sendi-
ráðsskjölum sem birt voru af Wiki-
leaks um að Árni hefði farið á fund
bandaríska sendiherrans á Íslandi
og beðið hann um stuðning í bar-
áttunni gegn hvalveiðum Íslend-
inga.
„Kannski er þetta að hans und-
irlagi, hver veit. Þetta gæti verið
spurning um landráð,“ velti Guð-
mundur Franklín fyrir sér en það er
ekki í fyrsta skipti sem einhver veltir
því upp að Árni verði dreginn fyrir
dómstóla vegna meintra landráða.
Hvergi hefur þó komið fram að Árni
standi að baki ályktun alþjóðlegu
samtakanna sem mbl.is vitnaði í.
Flokkur Guðmundar Franklíns,
Hægri grænir, gefa sig út fyrir, eins
og nafnið gefur til kynna, að styðja
umhverfisvernd. Hann hefur þó
áður varað við svokölluðum öf-
gaumhverfissinnum en þetta skipti
gengur hann lengra og nafngreinir
aðila sem hann telur tilheyra þeim
hópi. adalsteinn@dv.is
K
röfuhafar tveggja eignar-
haldsfélaga í eigu móður-
félags verktakafyrirtækisins
Eyktar hafa afskrifað samtals
þrjá milljarða króna af skuld-
um félaganna. Félögin tvö, Norður
íbúðir ehf., áður Eykt íbúðir ehf., og S
40 ehf., voru tekin til gjaldþrotaskipta
í lok síðasta árs og er skiptum lokið á
félögunum. Eigandi Eyktar er eignar-
haldsfélagið Holtasel en eigandi þess
er Pétur Guðmundsson. Þetta kemur
fram í Lögbirtingablaðinu.
Engar eignir fundust í búi Norður
íbúða ehf. en afskrifaðar skuldir hjá
félaginu námu 2,2 milljörðum króna.
Fyrirtækið byggði meðal annars hús
við Ferjuvað, Helluvað og Norður-
bakka. Kröfur í bú S 40 ehf. námu 774
milljónum króna og fundust engar
eignir í búinu á móti skuldunum.
Afskriftir upp á tugi milljarða
Milljarðarnir þrír bætast við afskriftir
hjá öðrum eignarhaldsfélögum sem
tengjast Eykt, meðal annars eignar-
haldsfélaginu Höfðatorgi og Bleiks-
stöðum. Í árslok í fyrra var greint frá
því að kröfuhafar Höfðatorgs, eign-
arhaldsfélagsins sem byggði og átti
turninn í Borgartúni að öllu leyti,
hefðu þurft að afskrifa um 15 millj-
arða króna af skuldum félagsins. Eft-
ir fjárhagslega endurskipulagningu
þess félags á móðurfélag Eyktar ein-
ungis 25 prósenta hlut í því á móti 75
prósenta hlut Íslandsbanka.
Þá skuldar félagið Bleiksstaðir,
sem var í meirihlutaeigu Holtasels,
rúmlega 13,5 milljarða króna mið-
að við síðasta ársreikning félagsins.
Bleiksstaðir keyptu meðal annars
Blikastaðalandið í Mosfellssveit af
Íslenskum aðalverktökum í febrúar
2008 og á Arion banki 6,6 milljarða
króna veð í landareigninni. Til stend-
ur að Arion banki leysi Blikastaða-
landið til sín vegna vanefnda Bleiks-
staða en eigið fé félagsins er neikvætt
um meira en sex milljarða króna
miðað við ársreikning frá 2010.
Miðað við stöðu þessara fjögurra
félaga sem tengjast Eykt ættu af-
skriftir vegna þeirra að nema vel á
þriðja tug milljarða króna.
Höfðatorg stærsta verkefnið
Verktakafyrirtækið Eykt var mjög
umsvifamikið í fasteignabyggingum
á árunum fyrir hrunið 2008. Lang-
stærsta verkefni fyrirtækisins var
bygging Höfðatorgs, 75 þúsund fer-
metra húsnæðis í Borgartúni, sem
í dag hýsir skrifstofur þekktra fyrir-
tækja og stofnana eins og Olís, Sam-
herja og Fjármálaeftirlitsins. Turn-
bygging Höfðatorgs er orðin eitt af
einkennistáknum borgarinnar – og
hruns fjármálakerfisins 2008.
Í mars 2008 skrifuðu Eykt og
Reykjavíkurborg undir 25 ára leigu-
samning vegna leigu borgarinnar á
7.000 fermetrum í húsinu á Höfða-
torgi. Öll starfsemi framkvæmdasviðs,
skipulags- og byggingarsviðs og um-
hverfissviðs var færð yfir í húsið.
AfskrifA milljArðA
hjá eigAndA eyktAr
n Afskriftir tengdar Eykt nema á þriðja tug milljarða króna„Miðað við stöðu
þessara fjögurra
félaga sem tengjast Eykt
ættu afskriftir vegna
þeirra að nema vel á
þriðja tug milljarða króna.
15 milljarðar afskrifaðir 15 milljarðar
króna voru afskrifaðir af skuldum eignar-
haldsfélagsins Höfðatorgs fyrr á árinu en
félagið byggði og átti samnefnda byggingu
í Borgartúni.
Samningur undirritaður Forsvarsmenn
Eyktar og Reykjavíkurborgar í mars 2007. Vil-
hjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri sést hér ásamt
forsvarsmönnum Eyktar, meðal annars Pétri
Guðmundssyni, aðaleiganda fyrirtækisins.
•Trjáklippingar
•Felli tré
•Garðyrkja
Sími: 846 8643 • 8997679
www.gardyrkjumeistari.is
Jóhannes garðyrkjumeistari
40 ára reynsla
Kolfinna ver föður sinn:
Ásakanir
hugarórar
systur
„Það er alkunna, að reiði hins
sjúka eftir nauðungarvistun bein-
ist fyrst og fremst að hans eða
hennar nánustu. Þannig höf-
um við öll mátt þola haturs- og
hefndarhug fyrir vikið. Það hefur
tekið á sig ýmsar birtingarmynd-
ir í tímans rás,“ skrifar Kolfinna
Baldvinsdóttir sem kemur föður
sínum Jóni Baldvini Hannibals-
syni til varnar í opinni grein sem
birtist á Facebook-síðu hennar um
helgina. Í greininni, sem ber yfir-
skriftina „Fjölskylduböl í fjölmiðl-
um: Hvers vegna allt þetta hatur?“
segir Kolfinna að allar ásakanir
um kynferðislega misnotkun á
hendur föður hennar megi á einn
eða annan hátt rekja til geðrænna
vandkvæða systur hennar. Kol-
finna segir að þessi reiði systur
sinnar hafi brotist fram í hugarór-
um um kynferðislega misnotkun
af einu eða öðru tagi.
Þetta segir Kolfinna að hafi
bitnað á föður hennar með því
að dóttir hans hafi spunnið upp
sögur um „… að hann hafi mis-
notað hana unga, og að við yngri
systur hennar höfum mátt þola
slíkt slíkt hið sama. Samkvæmt
þessum sjúklegu hugarórum hefur
faðir hennar átt mök við því sem
næst allar kvenpersónur innan
fjölskyldunnar, lífs
sem liðnar,
barnungar
jafnt sem
eiginkon-
ur annarra
fjölskyldu-
meðlima,
fyrir utan vin-
konur hennar
og skólasystur.“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hægri grænir Guðmundur Franklín er
formaður Hægri grænna, sem hefur um-
hverfisvernd á stefnuskrá sinni.