Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Blaðsíða 14
14 Erlent 30. apríl 2012 Mánudagur
Ekki fleiri dópferðalög
n Útlendingum verður bannað að kaupa marijúana á hollenskum kaffihúsum
D
ómstóll í Hollandi staðfesti á
föstudag úrskurð þess efnis
að erlendir ríkisborgarar gætu
ekki lengur keypt marijúana
á kaffihúsum í landinu. Undanfarna
áratugi hefur kaffihúsum verið heim-
ilt að selja viðskiptavinum sínum
marijúana og hafa fjölmargir útlend-
ingar ferðast til Hollands gagngert til
að kaupa og reykja marijúana. Með
lagabreytingunni mun þessi tegund
ferðaþjónustu væntanlega líða undir
lok.
Fjöldi kaffihúsa í Suður-Hollandi
fór fram á að yfirvöld breyttu lög-
unum eftir að fíkniefnatengdum
glæpum tók að fjölga. Og samkvæmt
ákvörðun dómstóla mega kaffihús í
suðurhluta landsins ekki selja mari-
júana til erlendra ríkisborgara eft-
ir 1. maí. Hollenskir ríkisborgarar,
sem vilja kaupa marijúana með lög-
legum leiðum á kaffihúsum lands-
ins, geta fengið sérstakan „gras-
passa“ sem þeir framvísa þegar þeir
kaupa kannabisefni. Lagabreyting-
in mun svo taka gildi í Amsterdam á
næsta ári en þar eru starfrækt nokk-
ur hundruð kaffihús með leyfi til að
selja kannabisefni.
Þó svo að frumkvæðið að breyting-
unni hafi komið frá kaffihúsum í suð-
urhluta Hollands eru forsvarsmenn
kaffihúsa í öðrum landshlutum, til
dæmis Amsterdam, sáttir. „Þetta er
slæm ákvörðun, ekki einungis fyr-
ir ferðamenn sem koma til landsins,
heldur einnig fyrir ímynd Hollands í
öðrum ríkjum. Við erum ekki lengur
frjálst ríki,“ segir Maurice Veldman,
lögmaður þeirra kaffihúsa eigenda
sem eru ósáttir við breytinguna.
Kannabis Erlendir ferðamenn hafa hingað til getað reykt marijúana á kaffihúsum í Hol-
landi. Brátt verður það ekki lengur á boðstólum.
C
han Guangcheng, blindum
kínverskum aðgerðasinna sem
hefur verið í stofufangelsi í
Shandong-héraði í Kína, tókst
á ótrúlegan hátt að sleppa úr
haldi á dögunum. Mál Chens, sem er
sjálfmenntaður lögfræðingur, hefur
vakið alþjóðlega athygli en hann var
handtekinn árið 2006 og dæmdur í
fjögurra ára og þriggja mánaða fang-
elsi fyrir að berjast gegn þvinguðum
fóstureyðingum í Linyi-héraði. Neyða
átti þúsundir kvenna í fóstureyðingu
og ófrjósemisaðgerð árið 2005, en að-
gerðin var hluti af átaki yfirvalda til að
framfylgja lögum um fæðingarkvóta í
landinu.
Chan barðist gegn þessari aðgerð
og var dæmdur í fangelsi fyrir baráttu
sína. Þegar hann hafði setið í fangelsi
rúm fjögur ár var hann settur í stofu-
fangelsi þar sem hann hefur verið allt
þar til fyrir rúmri viku að hann slapp
úr haldi.
Snéri á öryggisverði
Stuðningsmenn Chens segja í sam-
tali við fjölmiðla að hann sé við
góða heilsu. Honum tókst að snúa
á verði sem gættu hans með því að
laumast út af heimili sínu og klifra
yfir vegg fyrir utan húsið. Fyrir utan
beið kunningi Chens sem ók á brott.
Breska blaðið The Telegraph greindi
frá því á föstudag að Chen hefði und-
irbúið flóttann í nokkrar vikur áður
en hann lét til skarar skríða. Það
gerði hann meðal annars með því að
þykjast sofa löngum stundum. Þetta
gerði Chen til að það myndi ekki
vekja grunsemdir hjá öryggisvörðum
ef hann sæist ekki á hreyfingu í hús-
inu tímunum saman.
Í myndbandi sem birtist á vef
YouTube eftir að Chen flúði úr haldi
sagði hann að flóttinn hefði ver-
ið „erfiður“. Hann kallaði líka eftir
því við forsætisráðherra Kína, Wen
Jiabao, að þeim fangavörðum sem
beittu hann ofbeldi í fangelsi yrði
refsað.
Alþjóðlegur stuðningur
Í frétt mannréttindasamtakanna Am-
nesty International um mál Chens frá
því í fyrra kemur fram að Chen hafi
sætt illri meðferð meðan hann sat í
fangelsi og verið neitað um nauðsyn-
lega læknisaðstoð. Leit Amnesty á
hann sem samviskufanga og krafðist
þess að honum yrði sleppt úr haldi.
Yfirvöld ýmissa ríkja á Vesturlöndum
sýndu Chen stuðning, meðal annars
Hillary Clinton, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna. Þá gerði bandaríski
stórleikarinn Christian Bale tilraun
til að heimsækja Chen ekki alls fyrir
löngu en hann var yfirbugaður af ör-
yggisvörðum og rekinn á brott.
Óttast um fjölskylduna
Bob Fu, forseti mannréttindasam-
takanna ChinaAid, hefur átt sam-
skipti við Chen síðan hann slapp úr
haldi. Hann segir að hann sé í örugg-
um höndum en ekki liggur fyrir hvort
Chen hafi tekist að flýja frá Kína eða
sé enn í landinu. „Hann er búinn að
ferðast um langan veg síðan hann
slapp, en hann er öruggur,“ segir
hann. Fu segir að eiginkona hans,
dóttir og móðir séu enn í húsinu þar
sem Chen var í stofufangelsi. „Það
var öllum mjög brugðið, bæði þorps-
búum og fulltrúum yfirvalda, þegar
kom í ljós að Chen væri farinn. Annar
andófsmaður sem starfað hefur með
Chen, He Peirong, segir í samtali við
Reuters að Chen sé við þokkalega
heilsu en hafi áhyggjur af fjölskyldu
sinni. „Hann hefur áhyggjur af fjöl-
skyldunni nú þegar hann er laus úr
haldi. Hann óttast að öryggisverðir
muni hefna sín á þeim. Þeir hafa þeg-
ar lamið móður hans og beinbrotið
eiginkonu hans,“ segir hann.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Hann hefur
áhyggjur af fjöl-
skyldu sinni nú þegar
hann er laus úr haldi.
Handtekinn Bandaríski leikarinn Christian Bale hefur vakið athygli á máli Chens. Hann
gerði tilraun til að heimsækja hann fyrir skemmstu en hafði ekki erindi sem erfiði.
Blindur
aðgerða-
sinni slapp úr
stofufangelsi
Í öruggum
höndum Chen var
fangelsaður fyrir bar-
áttu sína fyrir mann-
réttindum í Kína.
n Chen Guangcheng tókst að snúa á öryggisverði sem gættu hans
Tóku myndir
upp undir
pils kvenna
Starfsmenn þýsku matvöruversl-
anakeðjunnar Aldi Süd eru sakað-
ir um að hafa tekið ótal ósmekkleg
myndbönd af kvenkyns viðskipta-
vinum verslananna úr launsátri
og deilt þeim á milli sín. Þýska
blaðið Der Spiegel greinir frá
þessu en þar segir að starfsmenn-
irnir hafi vísvitandi tekið myndir
upp undir pils kvenna sem voru
að beygja sig við innkaupin sem
og niður um blússur þeirra ef þær
voru í flegnum toppum. Afrakstri
þessa perraskapar í verslunum í
Frankfurt, Dieburg og víðar deildu
starfsmennirnir síðan sín á milli.
Talsmenn Aldi Süd vilja sem
minnst um málið segja. Líklegt
er talið að starfsmennirnir hafi
notað myndavélar verslananna til
að taka myndböndin. Í Aldi Süd
er að finna fjölmargar færanlegar
örmyndavélar sem eru reyndar
umdeildar í Þýskalandi og kunna
að brjóta í bága við lög.
Harmleikur eftir
hafnaboltaleik
Einn maður lét lífið og hundrað
slösuðust, þar af fimm alvarlega,
þegar stormur skall skyndilega á
bjórtjaldi sem sett hafði verið upp
eftir leik bandaríska hafnaboltal-
iðsins St. Louis Cardinals á laug-
ardag. 200 manns höfðu komið
saman í tjaldinu sem sett hafði
verið upp við sportbar í St. Louis.
Barstólar og þungur bassamagn-
ari voru meðal þess sem tókust
á loft og á nokkrum sekúndum
var tjaldið rústir einar og slasaðir
gestir um alla götuna. Talið er að
elding sem laust niður í tjaldið
hafi banað manninum sem lést en
varað hafði verið við að allra veðra
væri von.
Bannað að
kyrkja hvolpa
Dómstóll í Berlín í Þýskalandi
úrskurðaði í síðustu viku að
sviðslistamanni þar í borg væri
óheimilt að drepa tvo hvolpa
sem hluta af listgjörningi.
Listamaðurinn bar því við að
hann vildi, með því að kyrkja
hvolpa á sviði, benda á erfiðar
aðstæður sleðahunda í Alaska
og veiðihunda á Spáni. Þeir
hundar eiga það sameiginlegt
að vera drepnir með þessum
hætti þegar þeir hætta að geta
unnið. Dómstólnum fannst
þetta ekki nógu góð ástæða til
að drepa hvolpa.