Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Síða 17
Spurningin
Ég var fullur
af streitu
Ég mun vera
heimavinnandi
Þröstur Árnason fékk hjartaáfall árið 2006. – DVSvavar Halldórsson hættir á RÚV ef Þóra verður forseti. – DV
R
eynir Traustason skrifaði athygl-
isverðan og umdeildan leið-
ara í DV síðasta föstudag undir
yfirskriftinni „Fyrirgefningin“. Í
pistlinum segir hann að við verðum að
sætta okkur við það að í einhverjum til-
fellum, jafnvel flestum, muni okkur ekki
takast að koma lögum yfir þá sem flestir
telja bera mesta ábyrgð á hruninu – og
við þurfum að sætta okkur við það og
fyrirgefa hinum svokölluðu útrásar-
víkingum. Við þurfum að kalla fólk til
verka sem hafi „vit og þekkingu“ sem
nýtist við endurreisn landsins.
Nú má gera alvarlegar athugasemdir
við þá hugmynd að útrásarvíkingarnir
okkar búi yfir sérstöku viti eða þekk-
ingu en látum það liggja milli hluta.
Spurningin um það hvenær nóg er
komið, hvenær við verðum að loka á
fortíðina og horfa fram á veginn stend-
ur hins vegar eftir.
Höggið
Ég vona að enginn móðgist þótt ég lýsi
Hruninu og afleiðingum þess fyrir ís-
lensku þjóðina við áfall, sorg og sorgar-
ferli. Þannig upplifði ég það að minnsta
kosti. Þótt ýmsar blikur hafi verið á lofti
þá kom það sem reiðarslag. Allt sem við
höfðum tekið sem gefnu reyndist byggt
á lygi. Allir sem við treystum til að gæta
hags okkar virðast hafa brugðist. En
einhvern tímann verðum við að setja
punkt og horfa fram á veginn.
Sorgarferlið
Þótt engir tveir bregðist nákvæmlega
eins við sorg eða áfalli hefur sorgar-
ferlið verið skilgreint og framvinda
þess virðist svipuð hjá flestum. Fyrst
kemur lost eða vantrú – maður á erfitt
með að trúa því að þetta hafi í raun
og veru gerst. Næst kemur viðbragðs-
stig þar sem fólk neyðist til að horfast í
augu við raunveruleikann og reyna að
skilja hann. Þriðja stigið er úrvinnsla
og það fjórða skilningur. Hvort tveggja
lýsir ágætlega þeirri vinnu sem unnin
var með skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis og umræðum í kjölfarið sem
og vinnu sérstaks saksóknara sem við
sjáum enn ekki fyrir endann á. Fimmta
stigið er svo sátt. Og stóra spurningin
er: Hvernig og hvenær komumst við
þangað?
Aldrei aftur 2007
Lífið verður aldrei aftur eins og það
var 2007 og persónulega hef ég engan
áhuga á að endurreisa það yfirborðs-
kennda efnishyggjusamfélag þar sem
fólk gaf sér ekki tíma til að fara með
veik börn til læknis nema um kvöld
og helgar. En eins og Reynir bendir á
er blóðtakan úr samfélaginu okkar frá
hruni gífurleg. Þar finnst mér hins veg-
ar muna mestu um alla þá dugmiklu
og/eða vel menntuðu einstaklinga sem
hafa gefist upp og flúið land. Allt heil-
brigðisstarfsfólkið sem samfélagið hef-
ur kostað miklu til að mennta en þjónar
nú norskum eða sænskum ríkisborg-
urum, alla smiðina okkar, leikskóla-
kennarana, kokkana og hárgreiðslu-
meistarana.
En spurningin er brýn: Hvenær og
hvernig getum við fyrirgefið? Og er
yfirhöfuð hægt að fyrirgefa fólki sem
notar hvert tækifæri til að afneita sín-
um þætti í því sem gerðist? Og er hægt
að ná sátt án réttlætis? Er mögulegt
fyrir meðaljóninn sem situr uppi með
stökkbreyttar skuldir (en er vissulega
flatskjáseigandi og tók jafn vel lán fyrir
nýjum jeppa) að fyrirgefa þeim sem
settu Ísland á hausinn, hafa fengið
milljarða afskrifaða en halda þó öllu
sínu? Einhvern veginn efast ég um það.
Reiðasta fólk landsins
„Nei. Þær eru ógeðslega lengi.“
Sæþór Pétur Kjartansson
19 ára nemi
„Nei. Ég labba þangað sem ég
þarf að fara.“
Kjartan Birgir Kjartansson
20 ára starfsmaður í Hagkaup Garðabæ
„Já, ég nota strætó á hverjum
degi.“
Nanna Hinriksdóttir
17 ára hársnyrtinemi
„Já, ágætlega mikið.“
Katrín Ósk Kjellsdóttir
24 ára nemi
Notar þú
almennings-
samgöngur?
Í ró og næði Það var fallegt við Meðalfellsvatn þegar þessi veiðimaður renndi þar fyrir fiski í vorveðrinu í síðustu viku.
Mynd Eyþór ÁrnASonMyndin
Umræða 17Mánudagur 30. apríl 2012
1 Bubbi spilar alltaf frítt í jarðarförum
Bubbi Morthens í helgarviðtali í DV.
2 Húsið lagt í rúst: „Ég stóð bara úti á plani og grét“
Hjón á Suðurnesjum sjá fram á gjald-
þrot eftir að leigjendur þeirra hættu að
greiða leigu og lögðu húsið í rúst.
3 Segir Sigmund Davíð ljúgaIllugi Jökulsson svarar fullyrðingu for-
manns Framsóknar um stöðu Íslands
eftir hrun.
4 Piparúðaárás á HressóGestir á Hressingarskálanum urðu fyrir
piparúðaárás aðfaranótt sunnudags.
5 „Ég var mjög reiður“Geir Hilmar Haarde tjáir sig um við-
brögð sín eftir dómsuppsögu í lands-
dómi þar sem hann var sakfelldur.
6 Myrti dóttur sína og faldi sig í byrgi
Pauls Keller er grunaður um að hafa
myrt eiginkonu sína og dóttur.
7 Heimspressan gleypti við líkriðlum
Heimspressan var göbbuð upp úr
skónum þegar hún flutti fréttir af
egypskum náriðlum.
Mest lesið á DV.is
Ég er í
raun frjáls
Mamiko Dís Ragnarsdóttir var greind með Asperger-heilkenni stuttu fyrir jól. – DV
Margir hafa reiðst eftir bankahrunið, en sumir skara fram úr. Hér eru þeir sem mest hafa fyllst heilagri reiði eftir hrun.
1 Björn Mikkaelsson Hann rústaði húsið sitt á Álftanesi með stórvirkum
vinnuvélum, eftir að gengistryggða lánið
hans hækkaði. Síðar féll gengislánadómurinn,
sem gerði þannig lán hagstæðari en önnur.
Nú hefur hann verið dæmdur í átján mánaða
fangelsi. Það kom í ljós að hann hafði svikið 18
milljónir af hjónum, sem vildu eignast heimili,
og tók milljónir út af reikningum fyrirtækis
síns. Dómurinn taldi hann ekki eiga sér neinar
málsbætur.
2 Geir Haarde Geir er annálaður fyrir að vera rólyndismaður. Hann var
svo rólegur að ný sögn í íslensku máli var
nefnd eftir honum: Að „haardera“, sem þýðir
að fresta hlutunum, slugsa eða vanrækja
verkefni.
Eftir að hann var dæmdur fyrir brot á
lögum um ráðherraábyrgð umbreyttist hann
hins vegar. Áður sagðist hann treysta lands-
dómi, en nú segist hann hafa misst trúna á
honum og segir dóminn fáránlegan, rugl og
sprenghlægilegan. Hann vill meðal annars að
stjórnmálamenn segi af sér vegna málsins.
Sjálfur neitaði hann hins vegar að segja af
sér, þegar efnahagslífið var hrunið. Þrátt fyrir
reiðina og dóminn sagðist hann vera „sigur-
vegari“ í málinu.
3 Bræðurnir við Hótel Borg Ólafur Klemensson, hagfræðingur
Seðlabankans, reiddist mótmælendum og
reiddi hnefann til höggs við Hótel Borg þegar
Kryddsíld Stöðvar 2 var mótmælt á gamlárs-
dag 2008. Hann ýtti meðal annars konu.
Bróðir hans, svæfingalæknirinn Guðmundur,
var minna ógnandi, en kallaði til mótmæl-
anda: „Kommúnistadrullusokkur!“
4 Sturla Jónsson Reiði Sturlu Jóns-sonar vörubílstjóra spannar lengra
tímabil en annarra á listanum, og hún hófst
reyndar töluvert fyrir hrun. Hann komst í
umræðuna sem talsmaður vörubílstjóra sem
mótmæltu hækkandi bensínverði og hefur allt
frá þeim tíma mótmælt með hávaða við flest
tilefni. Hann var meðal annars ein af aðal-
persónunum í heimildamyndinni Guð blessi Ís-
land, um fórnarlömb efnahagshrunsins. Síðar
kom í ljós að skuldir Sturlu mátti meðal annars
rekja til kaupa á glæsilegum lúxusvörubíl og
rifjuð voru upp ummæli hans: „Það er fullt
af fólki hérna sem á Porsche og Hummer og
svoleiðis drasl, en enginn sem á svona.“
Á dögunum kom í ljós að hann héldi húsinu
sínu eftir samninga við bankann.
Svarthöfði
Aðrir ofsa-
lega reiðir
Ástþór Magnússon, því fólk
fattar ekki að hann ætlar að
verða forseti, sama hvað!
Sigmundur davíð
Gunnlaugsson,
vegna þess að
skuldirnar eru ekki
horfnar. Bjarni
Benediktsson, vegna
„helsjúkrar umræðu“
um viðskiptaævintýri
hans fyrir hrun.
Jóhanna Sigurðar-
dóttir, vegna sam-
særis hægrimanna,
útgerðarmanna og makríls.
Álfheiður Ingadóttir
í VG, því bankahrun
gerir vinstri-græna
milljónamæringa
alveg gaga. davíð
oddsson, vegna þess
að ríkisstjórnin er að
klúðra arfleifð hans.
þór Saari, vegna
yfirburðarvitneskju
hans og samsvarandi
skilningsleysis
annarra. Husky-
hundar, því kisur
og hænur eru svo
djöfulli pirrandi!!
Hvenær getum við hætt að vera reið?
Kjallari
Margrét
Tryggvadóttir