Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.2012, Page 26
26 Fólk 30. apríl 2012 Mánudagur
Ekki hættulegra en fótbolti
n Bræðurnir Bjarki og Magnús kepptu í MMA á Englandi
B
jarki Þór Pálsson og
Magnús Ingi Ingvars-
son eru bræður sem
báðir iðka íþrótt sem
er heldur betur að ryðja sér
til rúms á Íslandi, eða MMA.
DV ræddi aðeins við Bjarka
vegna móts sem strákarnir tóku
þátt í á dögunum. „Ég byrjaði
í þessu í september 2010 og
skráði mig þá á námskeið hjá
Mjölni og bróðir minn byrjaði
að æfa stuttu seinna. Ég hef
tekið þátt í nokkrum mótum,
þar á meðal glímumótum eða
jiu-jitsu og sigraði í tveimur
svoleiðis mótum og hef tekið
þátt í boxkeppnum hérna
heima.“ Bræðurnir höfðu mik-
inn áhuga á að komast á mót
sem var haldið í Manchester á
Englandi og ákváðu
að skella sér þangað.
„Við leituðum uppi
eitthvert almennilegt
mót og það var haldið
25. mars síðastliðinn
og við flugum út 21.
mars og borguðum
allt sjálfir. Það voru
50 manns að keppa
á mótinu og hver og
einn fékk einn bar-
daga. Maður segir
frá reynslu sinni og
hversu marga bardaga
maður á að baki, aldri, þyngd
og fleira og andstæðingurinn
er valinn út frá því. Ég sigraði
í mínum bardaga en Magnús
gerði jafntefli en andstæðing-
urinn hans var sex árum eldri
en hann.“ Bjarki
telur þessa íþrótt ekki vera jafn
hættulega og fólk almennt
heldur og er hann á þeirri skoð-
un að MMA sé ekki hættulegra
en fótbolti. „Þetta er reyndar
ung íþrótt, aðeins 19 ára, og
enn hefur enginn dáið. Svo
keppir maður kannski bara
þrisvar á ári og inni á milli eru
menn bara að æfa mikið og
öruggt.“ Bjarki segir að stefn-
an sé bara að halda áfram og
komast til Bandaríkjanna til að
æfa og verða betri. „Það væri
gaman að komast í atvinnu-
mannaflokk og fá borgað fyrir
að gera það sem manni þykir
skemmtilegt.“
Hlín í
hlaupa-
skóna
Annar hver Íslendingur virð-
ist smitaður af hlaupaæði.
Fjölmiðlakonur eru þar
engin undanteking. Veður-
fréttakonurnar Soffía Sveins-
dóttir og Elísabet Margeirs-
dóttir á Stöð 2 eru miklir
hlaupagarpar og nú hefur
Karen Kjartansdóttir frétta-
kona á sömu stöð einnig tek-
ið fram hlaupaskóna þrátt
fyrir að vera enn með barn
á brjósti. Hin bleika Hlín
Einarsdóttir, kærasta fjöl-
miðlamógúlsins Björns Inga
Hrafnssonar, hefur nú bæst í
hópinn en heimildir herma
að Hlín stefni á hálfmaraþon
á næstu misserum.
Eignaðist son
Bloggarinn og rithöfund-
urinn Lára Björg Björns-
dóttir eignaðist sinn annan
son á dögunum. Barnsfaðir
og sambýlismaður Láru er
Tryggvi Tryggvason sem er
sonur Tryggva Gíslasonar
fyrrverandi skólameistara
Menntaskólans á Akur-
eyri. Lára Björg er líklega
þekktust fyrir bókina Takk,
útrásarvíkingar! en bókin sló
rækilega í gegn þegar hún
kom út.
Langar í
fleiri börn
Fjölmiðlamaðurinn og Kast-
ljós-ritstjórinn Sigmar Guð-
mundsson lýsti því yfir á
Face book-síðu sinni að
hann langaði í fleiri börn.
Sigmar fær misjöfn viðbrögð
við færslunni frá vinum
sínum en einn þeirra, Árni
Snævarr, fyrrverandi frétta-
maður Stöðvar 2 og Brussel-
búi, er fljótur að koma með
skemmtilega lausn: „Simmi,
þetta var bara grín með Þóru
og Svavar og Ástþór – þú
getur alveg ættleitt hann,“
skrifar Árni en mynd af Þóru
og fjölskyldu með forseta-
frambjóðandann Ástþór
Magnússon innklipptan hef-
ur farið eins og eldur í sinu
um netheima.
H
ann var mjög
skemmtilegur en ég
lék eina af kærust-
unum hans, sem mér
fannst mjög skondið
miðað við aldurinn á mannin-
um,“ segir nýjasti Lottó-kynn-
irinn, Sigríður Hrönn Guð-
mundsdóttir, um indverska
leikarann Amitabh Bachan.
Sigríður Hrönn lék á móti
Bachchan í Bollywood-kvik-
mynd þegar hún bjó og starf-
aði sem fyrirsæta á Indlandi
fyrir nokkrum árum. Bachan
er einn sá þekktasti í heima-
landi sínu en Sigríður Hrönn
vill ekki gera mikið úr kvik-
myndaleikreynslu sinni.
„Þetta var pínulítið hlut-
verk en í frekar stórri mynd.
Bachchan er tengdapabbi
Aishwarya Rai sem er fyrr-
verandi ungfrú heimur og
frægasta Bollywood-leik-
kona veraldar. Hún lék til
dæmis í einni Pink Panther-
kvikmynd. Öll fjölskyldan er
sem sagt í þessum bransa. Í
myndinni átti hann að leika
mikinn glaumgosa og það
var mjög skemmtilegt að
vinna með honum. Hann
var alltaf í karakter,“ segir
Sigríður Hrönn sem einnig
lék eitt af aðalhlutverkunum
í svokallaðri „cross over“
kvikmynd. „Sú mynd er svo
hræðileg að meira að segja
kærastinn minn hefur ekki
fengið að sjá hana. Þarna
voru margir fínir leikarar,
bæði breskir og indverskir
og nokkrir úr Eastenders
og Dr. Who, og þau voru öll
sammála um að með þessari
mynd væri ferlinum lokið,“
segir hún hlæjandi og tekur
ekki í mál að nefna titilinn á
myndinni.
Aðspurð segir hún leik-
list þó ekki heilla sig. „Það var
rosalega skemmtilegt að prófa
þetta en ég held að hæfileikar
mínir liggi á öðrum sviðum,“
segir hún en Sigríður rekur
eigið fyrirtæki sem kallast
Minicards auk þess sem hún
kynnir Lottóið einu sinni til
tvisvar í mánuði.
Hún viðurkennir að
reynslan sem árin í fyrirsætu-
bransanum hafi veitt henni
komi að góðum notum í Lott-
óinu. „Mér líkar þetta vel en
ég viðurkenni alveg að ég
var lúmskt stressuð að vera
svona í beinni útsendingu. Ég
er nefnilega nokkuð feimin
að eðlisfari. Það hjálpar að
vera vön að vera fyrir framan
myndavélarnar. Við erum
fjögur sem skiptum þessu á
milli okkar og því mun ég taka
vaktina einu sinni til tvisvar í
mánuði. Kannski verður þetta
því alltaf jafn stressandi. Ef ég
fengi að gera þetta í heila viku
myndi ég kannski venjast.“
indiana@dv.is
Lék á móti frægasta
leikara Bollywood
n Lottókynnirinn Sigríður Hrönn lék kærustu þekktasta leikara Indlands
Indland Sigríður Hrönn
bjó lengi á Indlandi þar sem
hún starfaði sem fyrirsæta.
Með fjölskyldunni Sigríður og kærastinn hennar, handboltakappinn
Sigurður Eggertsson, eiga saman eitt barn.
DV1204277985
DV1204275263
Bjarki og Magnús Bjarki sigraði í sínum bardaga.