Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Blaðsíða 23
Afmæli 23Mánudagur 14. maí 2012 14. maí 30 ára Jocelyn Betangcor Ragnarsson Möðrufelli 13, Reykjavík Lukasz Bach Laugavegi 67a, Reykjavík Elmar Árnason Neshaga 9, Reykjavík Kristinn A. Sörensen Eiríksson Nesgötu 29, Neskaupstað Þorsteinn Már Jónsson Hjarðarhaga 36, Reykjavík María Ágústsdóttir Smárarima 26, Reykjavík Ólafía Ágústsdóttir Vættaborgum 82, Reykjavík Kristrún Sif Kristinsdóttir Hólavangi 8, Hellu 40 ára Patrick Maurice Franzois Sulem Eskihlíð 22, Reykjavík Anna Ólöf Haraldsdóttir Hraunsholtsvegi 4, Garðabæ Íris Ívarsdóttir Dúfnahólum 2, Reykjavík Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir Skála- gerði 13, Reykjavík Arnar Gunnarsson Hrauntungu 43, Kópavogi Guðbjörg Guðmundsdóttir Kvíaholti 22, Borgarnesi Jósef Geir Gunnarsson Birkigrund 3, Selfossi Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir Steinagerði 7, Reykjavík 50 ára Hrefna Guðjónsdóttir Dalsflöt 4, Akranesi Hrönn Ásbjörnsdóttir Búlandi 8, Djúpavogi Kristín Guðmundsdóttir Sóleyjargötu 19, Reykjavík Kristín Anna Hassing Rauðási 21, Reykjavík Þorbjörg Oddgeirsdóttir Næfurási 7, Reykjavík Bjarni Hlynur Ásbjörnsson Kílhrauni, Selfossi Guðný Gústafsdóttir Þinghólsbraut 35, Kópavogi Birgir Pétursson Austurhópi 23, Grindavík Guðrún Ásmundsdóttir Njarðvíkurbraut 13, Reykjanesbæ Kristrún Hermannsdóttir Grundarhóli 1, Bolungarvík Guðrún Elín Bjarnadóttir Granaskjóli 36, Reykjavík Ágúst Jakob Ólafsson Kórsölum 5, Kópavogi Dagbjartur G Halldórsson Þórunnarstræti 89, Akureyri Birgir Viðarsson Miðvangi 6, Hafnarfirði Þóra Katla Bjarnadóttir Holtagötu 9, Súðavík Brynjar Sigurjónsson Drekavöllum 25, Hafnarfirði 60 ára Alda Hrafnkelsdóttir Brávöllum 9, Egilsstöðum Guðlaug Valgeirsdóttir Háaleitisbraut 51, Reykjavík Arnar Þorbjörnsson Dalbraut 1, Grindavík Ólöf Jóna Jensdóttir Bólstaðarhlíð 6, Reykjavík Einar Sigurjónsson Þingholtsstræti 22, Reykjavík Snædís Gunnlaugsdóttir Kaldbak, Húsavík Henný Júlía Herbertsdóttir Miklubraut 38, Reykjavík Elísabet Þórðardóttir Dalsbraut 10, Reykja- nesbæ Lóa Björg Jóhannsdóttir Garðhúsum 8, Reykjavík Hafsteinn Baldursson Gvendargeisla 19, Reykjavík Einar Marel Þórðarson Tryggvagötu 4, Reykjavík 70 ára Bjarni Magnússon Þangbakka 8, Reykjavík Eiríkur Hannesson Grænuhlíð 11, Reykjavík Árni Magnússon Skógarlundi 15, Garðabæ Óðinn Grímsson Seljalandsvegi 58, Ísafirði Vífill Friðþjófsson Túngötu 21, Seyðisfirði 75 ára Kristinn Thomsen Hólm Framnesvegi 17, Reykjanesbæ Sigurður Kristjánsson Strikinu 10, Garðabæ Rebekka Elín Guðfinnsdóttir Hlíðarvegi 72, Reykjanesbæ 80 ára Eyjólfur Sigurjónsson Árbergi 2, Reykholt í Borgarfirði Kristinn K Ólafsson Kristnibraut 31, Reykjavík Jón Jóhannesson Furugrund 11, Akranesi 85 ára Una Aradóttir Hvassaleiti 56, Reykjavík Sigurgeir Jóhannsson Fannborg 8, Kópavogi 90 ára Anna Sigurlína Friðriksdóttir Dalbæ, Dalvík Guðrún Guðnadóttir Hverahlíð 20, Hverag. 15. maí 30 ára Árni Guðmundsson Duggugerði 10, Kópaskeri Ólafur Björgvin Hilmarsson Kveldúlfsgötu 17, Borgarnesi Ragnar Már Stefánsson Stigahlíð 39, Reykjavík Pálína Ósk Lárusdóttir Bárugötu 4, Dalvík Magnús Kristjánsson Öldubakka 11, Hvolsvelli Ásgeir Þór Kristinsson Mávahlíð 33, Reykjavík Baldvin Þór Magnússon Barónsstíg 27, Reykjavík Snævar Már Jónsson Marteinslaug 16, Reykjavík Valdís María Össurardóttir Ánanaustum 15, Reykjavík Marý Karlsdóttir Neðri-Hjarðardal 2, Þingeyri Áslaug Eiríksdóttir Álfatúni 13, Kópavogi Iwona Zofia Lempicka Hátúni 6, Reykjavík Agnieszka Zofia Loll Tjarnargötu 3, Sandgerði Daði Þór Halldórsson Engimýri 8, Garðabæ Viðar Örn Victorsson Heiðarholti 44a, Reykjanesbæ Leó Rúnar Alexandersson Skógarbraut 1107, Reykjanesbæ 40 ára Lien Thi Nguyen Furugerði 23, RVK Catherine Dominique Marie Mercy Sól- heimum 25, RVK Pálmi Bernhardsson Linn Bollatanga 18, Mosfellsbæ Lipei Wang -, Reykjanesbæ Davíð Halldórsson Klébergi 7, Þorlákshöfn Halla Björg Björnsdóttir Álfheimum 32, RVK Magnús Freyr Valsson Strandvegi 14, Garðabæ Sigrún Vöggsdóttir Svöluhöfða 4, Mosfellsbæ Guðrún Hrafnkelsdóttir Goðaborgum 3, RVK Alexander Magnússon Gauksási 35, Hafnarfirði Elín Margrét Gunnarsdóttir Torfufelli 14, RVK Dofri Jónsson Þinghólsbraut 22, Kópavogi 50 ára Hrefna Hlín Karlsdóttir Grundarhúsum 42, RVK Rakel Guðbjörnsdóttir Laugateigi 30, RVK Helga Hrönn Þorleifsdóttir Ekru, Mosfellsbæ Ævar Rafn Kjartansson Hverfisgötu 54, Hafnarfirði Jóhann Sigurður Gestsson Laugalandi, Hellu Mjöll Flosadóttir Traðarbergi 15, Hafnarfirði Sjöfn Karlsdóttir Ölduslóð 15, Hafnarfirði Sveinn Ævarsson Háholti 25, Reykjanesbæ Guðmundur B Ólafsson Brekkutúni 7, Sauðárkróki Gunnlaugur Oddsson Norðurtúni 11, Siglufirði Stefanía Hauksdóttir Heiðarlundi 1b, Akureyri Ólafur Johnson Neshaga 8, RVK Heimir Ríkarðsson Jónsgeisla 59, RVK Dariusz Boguslaw Lusiak Flókagötu 6, Hafnarfirði Hjördís Henriksen Öldugötu 17, Dalvík Ásdís Arthúrsdóttir Ægisgrund 10, Garðabæ Eyþór Þorbergsson Grundargerði 1c, Akureyri Hólmfríður Björk Marinósdóttir Sóleyj- arima 11, RVK Unnar Garðarsson Lambalæk, Hvolsvelli Karl Bryngeir Karlsson Áshamri 29, Vest- mannaeyjum Stefanía Jörgensdóttir Fífumýri 1, Garðabæ Hans Vilberg Guðmundsson Árbraut 19, Blönduósi 60 ára Gunnlaugur F Lúthersson Sæborg, Grenivík Gestur Kristjánsson Heiðarhjalla 29, Kópavogi Hallfríður Jónasdóttir Skeiðarvogi 149, RVK Anna Sigrún Böðvarsdóttir Ásakór 5, Kópavogi Þórhallur Ólafsson Ólafsgeisla 51, RVK 70 ára Guðrún Ingunn Magnúsdóttir Hraunbæ 109, RVK Sigrún Jóhannsdóttir Hólmvaði 8, RVK Þóra Kristjánsdóttir Sléttuvegi 21, RVK Bjarni Guðmundsson Garðsstöðum 8, RVK Unnur Jónsdóttir Hjallalundi 17c, Akureyri Guðmundur Guðnason Skeggjagötu 19, RVK Árni V Þórsson Kristnibraut 10, RVK Helga Karlsdóttir Lækjartúni 16, Akureyri Gréta S Jónsdóttir Kirkjuvegi 12, Reykjanesbæ 75 ára Ragnhildur Gunnarsdóttir Bláskógum 9, RVK Bjarni Dagbjartsson Hlaðhömrum 2, Mos- fellsbæ Guðrún Árnadóttir Logasölum 5, Kópavogi Anna Jóhannesdóttir Mánabraut 13, Þor- lákshöfn Ragnheiður A Friðriksdóttir Álfh. 33, RVK Unnur Gunnarsdóttir Hraunbæ 130, RVK Anna Magga Sigurðardóttir Sléttuv. 31, RVK 80 ára Guðmundur H Sigurðsson Rauðagerði 33, RVK Hilda Fanney Nissen Skúlagötu 40a, RVK Ragnheiður Kristófersdóttir Gilsbakka 2, Reykholt í Borgarfirði Elísabet Ohl Flókagötu 14, RVK 85 ára Páll M Aðalsteinsson Austurbergi 30, RVK Eyþór Jónsson Miðleiti 5, RVK Sverrir Haraldsson Selsundi, Hellu 95 ára Páll Sigurðsson Torfnesi Hlíf 2, Ísafirði Afmælisbörn Til hamingju! F ramleiðendur Oreo-kex- ins fagna á þessu ári 100 ára afmæli Oreo en það er örugglega eitt vinsæl- asta kex í heimi. Það er ótrú- lega gott með ískaldri mjólk og það er líka æðislegt að mylja það út á ís. Svo er hægt að baka alls kyns góðgæti úr því líka. Ostakaka með Oreo-kexi er hnossgæti sem vekur lukku sem eftirréttur eða á kökuborði í veislum. Hún er alveg ein- staklega góð og ekki síst girni- leg. Oreo-ostakaka 1 bolli flórsykur 200 grömm rjómaostur 1 bolli nýmjólk 1 pakki Royal-vanillubúðingur 1 tsk. vanilludropar 1 peli rjómi 24 stk. Oreo-kexkökur Aðferð: Byrjið á því að hræra saman 1 bolla flórsykri og 200 gr rjómaosti, passið að blanda vel saman og það er gott að rjómaosturinn sé ekki alveg nýkominn úr ísskápnum. Takið síðan aðra skál og hrærið í henni 1 bolla nýmjólk, 1 pakka Royal-vanillubúðing og 1 tsk. af vanilludropum, hrærið þetta mjög vel saman líka. Þeytið einn pela af rjóma í enn annarri skál og bland- ið svo bæði flórsykursblönd- unni og búðingnum saman við rjómann og hrærið varlega saman. Myljið 24 Oreo-kexkök- ur mjög vel, alveg í duft. Mjög gott að setja kexið í plastpoka, viskastykki utan um pokann og lemja með buffhamri. Skiptist svo á að setja í form hvítt mauk og kexduftið. Byrj- ið á því hvíta og endið á því dökka. Svo er flott að skreyta kökuna með Oreo-kexinu. Verði ykkur að góðu. É g er fæddur og uppalinn á Húsatóftum á Skeið- um. Við systkinin feng- um mikið frjálsræði í uppvextinum en það fylgdu því líka skyldur sem við urðum að klára okkur af. Það var því mjög glaðvær systkina- hópur sem ólst upp þarna á Skeiðunum,“ segir Unnar þar sem hann er að koma úr ævin- týraferð með íslenskt ferðafólk sem er að upplifa Ísland alveg upp á nýtt. Hann er alinn upp við mikla íþróttaiðkun sem sett hefur mark sitt á lífið frá ungaaldri. „Á æskuheimilinu var allt til fyrir kastíþróttir, kúla, spjót og kringla. Það fór mikill tími af æskunni í að glíma við að koma þessu sem lengst frá sér. Þeg- ar ég var 10 ára keppti ég fyrst á frjálsíþróttamóti og keppti stöðugt vel fram yfir þrítugt. Mér gekk ótrúlega vel í kast- greinunum og veit ekki hvað ég hef unnið mörg gull en þau eru nokkuð mörg,“ segir þessi lítilláti keppnismaður stoltur af árangrinum. Unnar var fjöl- hæfur kastari og keppti í þess- um þremur greinum en var þó einungis í landsliðinu í spjót- og kringlukasti. Strax lítil pjakkur einsetti hann sér að verða íþróttamað- ur og mikill hluti æskunnar fór í að gera þann draum að veru- leika. En draumurinn rætt- ist. „Eftir að ég sagði skilið við frjálsíþróttirnar tók við ótrúlega skemmtilegt tímabil þegar ég sneri mér að aflraunum. Þarna voru svo skemmtilegir strák- ar og mikill húmor. Meira að segja montið var hlaðið húm- or. Þarna voru menn sko ekki að taka sjálfa sig alvarlega þó auðvitað allir stefndu á sigur. Ég hef stundum velt fyrir mér hvers vegna bara skemmtilegt fólk tekur þátt í þessari grein en kann enga skýringu á því.“ Kominn í ævintýraferðir Nú er Unnar hættur keppnis- ferðum og kominn í ævintýra- ferðir þar sem hann selur fólki ferðir um forvitnilegar slóð- ir á fjórhjólum. Hann stofnaði fyrirtækið Óbyggðaferðir sem sérhæfir sig í að sýna ferðafólki forvitnilega staði og segja sögur af löngu liðinni tíð og því sem gerist í núinu. „Við erum nýbúin að flytja fyrirtækið hingað í Fljótshlíð- ina því hér eru hrein ókjör af ævintýralegum stöðum fyrir fólk að skoða. Saga og sagn- ir fylgja hverjum stað fyrir þá sem hafa áhuga á slíku og fólk verður að átta sig á því að þær sögur eru alls ekki þurr og leið- inleg upptalning. Það voru líka húmoristar í Fljótshlíðinni við upphaf byggðar. Frægast- ur er Gunnar á Hlíðarenda en hann var þekktasti spjótkast- ari landsins á sinni tíð og nú gantast fólk hérna með að nú sé kominn Unnar á Hlíðar- enda þó ég sé hérna á Lamba- læk, næsta bæ við sjálfan Hlíð- arendann,“ segir hann og hlær ásamt því að dásama Fljóts- hlíðina. „Ég segi eins og Gunnar um árið að hér vil ég vera. Hér er fallegt og hér eru tækifæri til að gleðja ferðafólk. Það er svo gaman að miðla þessum mikla fróðleik til ferðafólks, hvort sem það er íslenskt eða frá öðr- um löndum. Þetta er allt ein dásemd hérna, bæði landið og fólkið,“ segir þessi glaðværi keppnismaður sem ætlar að bjóða bestu ferðirnar á vit æv- intýranna. Er alltaf eins og barn Unnar tekur því fagnandi að verða svona gamall og finnst hann aldrei hafa verið betri. Það eina sem hafi breyst frá því hann var unglingur er að nú þurfi hann að vanda sig aðeins við að stökkva ofan af háum klettum. „Ég sá þetta öðruvísi fyrir mér þegar ég var þrítugur, þá fannst manni fimmtugt vera orðin hálfgerð endastöð en svo er maður bara eins og barn. Það eina sem hefur breyst er að maður gerir minna af mis- tökum eða öllu heldur, maður hættir að gera sömu mistök- in aftur og aftur. Maður hefur þrátt fyrir allt lært eitthvað á lífsleiðinni,“ segir hann hlæj- andi. Hann er enn ekki búinn að ákveða hvernig afmælisdegin- um verður varið. „Kannski fer ég á fjórhjóli með tjald og leyfi kærustunni að koma með ef hún verður stillt.“ Hér er gripið fram í: „Hahaha, við skulum sjá til hver stjórnar því,“ og glað- vær hlátur Solveigar, unnustu Unnars, gellur við. Stórafmæli Unnar og Gunnar glaðir með Fljótshlíðina Unnar Garðarsson óbyggðaferðamaður 50 ára 15. maí Fjölskylda Unnars n Foreldrar: Elín Ingvarsdóttir húsfreyja f. 1933 og Garðar Vigfússon frjótæknir f. 1927, d. 2007 n Kærasta: Solveig Pálmadóttir BS í viðskiptalögfræði og hárgreiðslu- meistari f. 1966 n Börn: Sigurður Þráinn f. 1986, Sandra f. 1987, Pálmi f. 1988, Hannes f. 1994, Garðar f. 1997 og Hrafn f. 2001 n Systkin: Helga Garðarsdóttir fjallakona f. 1955, Hugrún Val- garðsdóttir viðskiptafræðingur f. 1954, Ingvar Garðarsson kjöt- iðnaðarmaður f. 1958, Vigfús Garðarsson bifvélavirki f. 1959, Sigríður Garðarsdóttir verslunar- kona f. 1963, Davíð Garðarsson bifvélavirki f. 1965 Gómsæt Oreo-ostakaka n Himneskur eftirréttur með kexi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.