Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Blaðsíða 3
Lagatæknilegt álagspróf Hópur lögfræðinga mun á næstunni fara yfir tillögur stjórnlagaráðs og athuga hvort lögfræðilegir annmarkar séu á þeim.Útgerðarmenn borga gervigrasrótarherferð Fréttir 3Mánudagur 14. maí 2012 Umdeildar auglýsingar n Úr sjómannadagsviðtali í herferð gegn kvótabreytingum É g man eftir fyrsta róðrinum með pabba eins og það hefði gerst í gær,“ sagði Sigurður Sævarsson í viðtali við Sjómannadagsblað Grindavíkur árið 2009. Í viðtal- inu stiklar Sigurður á stóru og ræðir feril sinn sem sjómaður. „Ég var 15 ára gamall, óreyndur og sjóveikur svo ég hélt að ég yrði ekki eldri,“ segir hann um fyrstu sjóferðina. Fjölskyldumynd sem fyrst birtist í Sjómannadags- blaðinu árið 2009 hefur nú öðlast nýtt líf á síðum Fréttablaðsins og á net- inu. Tilefnið er auglýsingaherferð Sjó- manna- og vélstjórafélags Grindavík- ur gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. „Á þessi fjölskylda að líða fyrir það að fyrirvinnan er sjómaður?“ er spurt í heilsíðuauglýsingu sem birtist í Fréttablaðinu. Fyrirsögn auglýsing- arinnar er „Hvað höfum við eigin- lega gert ykkur?“. Auglýsingin er liður í herferð gegn því sem kallað er að- för að sjómönnum. Auglýsingin hefur ekki aðeins verið birt á síðum prent- miðla. Hún hefur vakið mikla athygli á netinu og verið dreift víð. Á Face- book flýgur nú sú saga að sjómaður- inn og fjölskylda hafi ekki vitað tilefni myndbirtingarinnar. „Ég bið fólk að fjarlægja myndina af tillitssemi við fjölskylduna,“ segir í lýsingu mynd- arinnar á Facebook og haft er eft- ir ónefndum fjölskyldumeðlimi sjó- mannafjölskyldunnar. n Útgerðarmannafélögin borga brúsann n „Tímaeyðsla“ að fara til siðanefndar auglýsingastofa um í sjálfu sér ekki skoðun á því hvort ársgreiðslan á að vera átta prósent, tíu eða tólf,“ segir hann. „Prinsippið á bak við auðlindaskattinn er mjög flott og við segjum bara: Látið vaða.“ Ekki er hægt að greina á auglýsinga- herferðinni að félagið hafi nokkra fyrirvara á andstöðu sinni við frum- vörp sjávarútvegsráðherra. Sverrir segir AFL raunar aðeins hafa athuga- semdir við annað frumvarpanna, það sé veiðistjórnunarfrumvarpið, en í því ert gert ráð fyrir breytingu á úthlutunarreglum kvótans. Aðspurður hvort hann telji sýn AFLs setta fram rétt og af sanngirni í ljósi þess að hvergi komi fram að fé- lagið sé í raun ekki mótfallið veiði- leyfagjaldinu segist hann ekki hafa séð herferðina í heild. Að leigja sér lýðinn Gervigrasrótarhreyfingar eru þekkt fyrirbæri. Raunar er ekki óalgengt að andstæðingar þeirra sjónarmiða sem koma fram í baráttu hópa tali slík sjónarmið niður með umræðu um að önnur sjónarmið eða aðrir aðilar standi að baki. Markmið gervigras- rótarhreyfinga er að gefa þá ímynd að um stóra fjöldahreyfingu sé að ræða og að baki standi venjulegt fólk um- hugað um framtíð sína. Sé hins veg- ar rýnt í innbyrðis tengsl þeirra sem að herferðinni standa kemur í ljós að greiðendur hennar eru í mörgum tilvikum atvinnurekendur eða við- skiptavinir þeirra sem taka þátt. Landið og miðin er skýrt dæmi um slíkt. Sama gildir í þeim tilvikum þar sem aðilar standa raunar báð- um megin við borðið. Þar má með- al annars nefna Gunnþór Ingvason, formann Útvegsmannafélags Aust- fjarða, sem greiðir að hluta fyrir her- ferðina en Gunnþór er um leið fram- kvæmdastjóri Síldarvinnslunnar ehf. sem einnig er skráð fyrir herferðinni. Vélaverkstæðið G. Skúlason hf. sem samkvæmt lista á vefnum er aðili að herferðinni er um leið dótturfyrir- tæki Síldarvinnslunnar. Þótt í raun sé um sömu aðila að ræða er mikið gert úr þátttöku þeirra á einn angann en minna á hinn, það á sérstaklega við um upplýsingar er varða hvað- an fé og stefnumótun herferðarinnar kemur. n Talsmaður herferðarinnar Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Fiskimiða og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Á landidogmidin.is Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar og formaður Útvegsmannafélags Austfjarða. Þ etta fólk er ekki með neitt um- boð til að breyta neinni pólitík eða hugmyndafræði í tillög- um stjórnlagaráðs,“ segir Val- gerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, um hlutverk hóps lögfræðinga sem á að fara yfir tillögur stjórnlagaráðs. Lög- fræðingarnir eiga að vinna greinargerð með endanlegu frumvarpi að breyttri stjórnarskrá. „Það er alveg ljóst að til- lögur stjórnlagaráðs eru þær tillögur sem verða lagðar fram. Hins vegar get- ur það verið að vegna lagatæknilegra sjónarmiða þurfi eitthvað að fínpússa og það er það sem við erum að biðja hópinn um að gera,“ segir Valgerður. Lagatæknileg álagsprófun Sex lögfræðingar munu starfa við yfir- ferðina. Samkvæmt heimildum DV eru það þau Páll Þórhallsson, lögfræð- ingur í forsætisráðuneytinu, Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmað- ur Samfylkingarinnar og rektor Há- skólans á Bifröst, Ragnhildur Helga- dóttir, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Oddný Mjöll Arnardótt- ir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og Hafsteinn Þór Hauks- son, lektor við Háskóla Íslands. Að auki hafa Guðmundur Alfreðsson þjóðréttarfræðingur og Aagot Vigdís Óskarsdóttir lögfræðingur verið ráðin til aðstoðar. Hvað með þjóðaratkvæða- greiðslu? „Við erum bara ánægðir með að þess- ar tillögur fái lögfræðilega skoðun,“ segir Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokks í stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd. „Í ljósi þess að ætlunin er að fá sérfræðinga til að fara yfir tillögur stjórnlagaráðs þá áttum við okkur ekki á því hvernig háttar með tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í haust.“ Í sama streng tekur Vigdís Hauks- dóttir, fulltrúi Framsóknarflokks. „Mér líst mjög vel á þetta vinnulag. Hins veg- ar líst mér ekkert á það sem fer fram í næstu viku. Að fara að þvæla einhverj- um spurningum í atkvæðagreiðslu í haust,“ segir Vigdís. „Að fara að henda 300 milljónum út um gluggann í ráð- gefandi skoðanakönnun sem stjórnin hefur valið er hrein peningasóun,“ segir hún. „Þingmenn Hreyfingarinn- ar eru dýrir þjóðinni. Þetta er það sem þeir setja sem skilyrði fyrir stuðningi við ríkisstjórnina.“ Hefðu leyst skuldamálin „Þetta er fáránlegur spuni,“ segir Mar- grét Tryggvadóttir, þingkona Hreyf- ingarinnar. „Hefði ég líf ríkisstjórnar- innar í höndum mér myndi ég byrja á að leiðrétta skuldavanda heimilanna,“ segir Margrét um ásakanir Vigdísar. „Allt er þetta fólk góðir sérfræðing- ar og fræðimenn. Þau eru fagmenn á afmörkuðum sviðum lögfræðinnar,“ segir Álfheiður Ingadóttir, varafor- maður nefndarinnar. Hún segir ekki um breytingu á ferlinu að ræða og að þetta hafi verið rætt áður. Starf lög- fræðinganna sé óháð þjóðaratkvæða- greiðslu í haust, sem sé hluti af úr- vinnsluferli Alþingis. Fínpússa tillögur stjórnlagaráðs n „Fáránlegur spuni,“ segir Margrét Tryggvadóttir„Við erum bara ánægðir með að þessar tillögur fái lög- fræðilega skoðun. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Tillögurnar fínpússaðar Valgerður Bjarnadóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. „Hvað höfum við gert ykkur?“ Fjölskylda Sigurðar Sævarssonar birtist í heilsíðuauglýsingum á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.