Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Page 2
Ítrekaðar tilraunir til sátta um kvótakerfið 2 Fréttir 16. maí 2012 Miðvikudagur S átt um framtíðarskipan fisk- veiðistjórnunar á Íslandi hefur ekki náðst þrátt fyrir að að minnsta kosti fjórar auðlinda-, sátta- eða endur- skoðunarnefndir hafi starfað frá því á tíunda áratugnum. Oftar en ekki er niðurstöðu hópanna fagnað sem sátt um grundvallaratriði en án sátt- ar um tækniatriði. Deilur hagsmuna- aðila eiga því til að enda með sams konar deilum og við síðustu sátta- tilraun, það er að snúast um deil- ur um árafjölda nýtingarréttinda og hversu langt má ganga í gjaldtöku. Síðast starfaði starfshópur yfirvalda og hagsmunaaðila á árunum 2009 og 2010. Hópurinn er gjarnan kallaður sáttanefndin en markmið hópsins var að skila tillögum sem leitt gætu til sátta um fiskveiðistjórnunarkerfið, eitt helsta bitbein íslenskrar stjórn- málaumræðu. Útgerðarmenn mættu ekki Fulltrúar LÍÚ hunsuðu um tíma starf sáttanefndarinnar og sendu ekki full- trúa á fundi hennar. Þeir sögðu sig þó ekki formlega frá starfi nefndarinnar og höfðu því aðgengi að fundargerð- um og gögnum, þrátt fyrir að taka ekki þátt í starfinu. Þáverandi sjáv- arútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, lagði í nóvember árið 2009 fram frumvarp til breytinga á lögum um fiskveiðistjórnun. Sam- kvæmt frumvarpinu öðlaðist ráð- herra heimild til að ákveða aflamark í kvótabundinni tegund utan afla- marks og heimild til gjaldtöku fyrir þær heimildir. „Viðbrögð LÍÚ og Samtaka fisk- vinnslustöðva við fyrrnefndu frum- varpi setti því starf hópsins í nokk- urt uppnám um skeið og létu sumir þeirra sem sátu í starfshópnum í ljós það álit að það samræmdist illa að hópnum væri falið að fjalla um efnis- atriði fiskveiðistjórnunarlaga á sama tíma og ráðherra lagði fram stjórnar- frumvarp til breytinga á fiskveiðilög- gjöfinni,“ segir í lokaskýrslu nefnd- arinnar. Þar er einnig fjallað um opinbera umræðu um málið. „Hót- uðu meðal annars Samtök atvinnu- lífs og samtök launþega að segja upp þeim stöðugleikasáttmála sem gerð- ur var milli ríkisvaldsins, atvinnulífs- ins og samtaka launþega fyrr á árinu 2009,“ segir í lokaskýrslu sáttanefnd- ar. Samtök fiskvinnslustöðva ákváðu í mars árið 2010 að hætta að sækja fundi nefndarinnar. Samtökin sögðu sig þó ekki endanlega frá starfinu enda hefði slíkt takmarkað aðgengi samtakanna að fundargerðum og gögnum sáttarnefndarinnar. Þá gafst samtökunum færi á að skila inn bókun sinna fulltrúa með lokaniðurstöðu nefndarinnar sökum þess að fulltrúarnir sögðu sig aldrei formlega úr starfinu. Þrátt fyrir takmarkaðan vilja til þátttöku í starfi sáttanefndar gagn- rýnir Landssamband íslenskra út- gerðarmanna skort á samráði við hagsmunaaðila í umsögn sinni við frumvarp sjávarútvegsráðherra sem unnið er með hliðsjón af niðurstöðu nefndarinnar. „Frumvörpin sem hér er fjallað um hafa verið unnin án nokkurs samráðs við hagsmunaaðila og þá sem þekkja til reksturs fyrir- tækja sem stunda veiðar og vinnslu sjávarafurða,“ segir í umsögninni. Gamlar fréttir og nýjar Meirihluti sáttanefndarinnar komst að þeirri niðurstöðu að festa skyldi aflamarkskerfið í sessi og að ekki væri ástæða til að færa fiskveiðistjórnun út úr kerfi fiskveiðistjórnunar sem byggi á heildarfiskveiðikvóta með hlutfallsúthlutun í stað úthlutunar á fastri tonnatölu. Þannig má segja að nefndin hafi hafnað hugmyndum um róttæka uppstokkun eða gagngerar breytingar á þeirri fiskveiðistjórn sem ríkt hefur hér á landi allt frá því að kvótakerfið var lögbundið á níunda áratugnum. Þótt slíkt sé ekki sagt með berum orðum er ljóst að hugmyndin um afladaga eða róttækar breytingar á kerfinu til að mynda í átt að stjórnun byggða á „færeysku leiðinni“ er slegin út af borðinu sem raunhæfur mögu- leiki til sátta. Niðurstaðan frá 2010 getur þó varla talist ný sannindi eða sértök eftirgjöf af hálfu núverandi kvótahafa enda niðurstöður nefndar- innar nánast sömu og fyrri nefnda. Tvíhöfðanefndin Árið 1993 skipaði Þorsteinn Pálsson, þá sjávarútvegsráðherra tvíhöfða- nefndina, svokölluðu. Meginniður- stöður nefndarinnar voru að afla- markskerfið ætti að festa í sessi og raunar að nauðsyn væri á að útvíkka kerfið og setja kvóta á fleiri tegundir en þegar var. Þá lagði nefndin til að smábátar yrðu teknir inn í aflamarks- kerfið og að „línutvöföldun“ yrði hætt. Línutvöföldun er það sem í dag er kallað „línuívilnun“ en hún geng- ur út á að verðlauna línuveiðar með uppbót á hvert veitt tonn. Rökin eru á þá leið að veiðarnar séu allt í senn atvinnuskapandi og umhverfisvænar. Einu sinn var auðlindanefnd Alþingi kaus árið 1998 auðlinda- nefndina svokölluðu sem falið var að fjalla um auðlindir sem voru eða kynnu að verða í þjóðareign. Starf nefndarinnar var þó ekki aðeins að skoða fiskveiðiauðlindir en sérkafli er í skýrslu nefndarinnar um þær. Nið- urstaða nefndarinnar var sú að rétt væri að stefna að greiðslu fyrir afnota- og nýtingarrétt af öllum auðlindum í eigu ríkis eða þjóðar. „Annars vegar til að greiða kostnað ríkisins af stjórn og eftirliti með viðkomandi auðlind, hins vegar til að tryggja þjóðinni í heild sýnilega hlutdeild í þeim um- framarði (auðlindarentu) sem nýting hennar skapar.“ Auðlindanefndin leit til einstakra þátta fiskveiðistjórnunar og taldi til að mynda að ef óeðlileg mismunun væri talin felast í því að aflaheimildir væru einvörðungu bundnar við skip, þá væri rökréttast að heimila öllum að eiga aflahlutdeildir jafnvel þótt þær yrðu einungis nýttar á skipum. Auðlindanefnd skoðaði tvær leiðir til gjaldtöku fyrir afnot af auðlindinni. Fyrrr leiðin, fyrningarleiðin, byggð- ist á því að allar aflahlutdeildir yrðu skertar árlega um fast hlutfall sem síð- an yrði endurselt á markaði eða upp- boði. Hin leiðin er veiðigjaldsleiðin sem felst í gjaldtöku. Í skýrslu nefnd- arinnar eru leiðirnar tvær bornar saman, sem og líkleg áhrif á aflahlut- deildir og tekjur ríkissjóðs af hvorri leið fyrir sig. Nefndin skiptist í afstöðu til þess hvora leiðina ætti að velja en hluti nefndarinnar lýsti sig algjörlega andvígan fyrningarleið. Endurskoðunarnefndin 1999 tók endurskoðunarnefndin svo- kallaða til starfa en hún var skipuð af sjávarútvegsráðherra og var falið að vinna tillögur að breytingum á lög- um um stjórn fiskveiða. Sérstakt til- lit átti þá að taka til hagsmuna sjáv- arútvegs, byggða og almennings. Niðurstöðum skilaði nefndin fjórklof- in, meirihlutaáliti og þremur minni- hlutaálitum. Meðal þess sem nefndin skoðaði var sú leið að gerðir yrðu nýt- ingarsamningar við handhafa kvóta- úthlutana. Þá skoðaði nefndin einnig veiðigjald og fyrningarleiðina svoköll- uðu. Meirihluti nefndarinnar vildi að mörkuð yrði stefna um greiðslu fyrir afnotarétt af fiskveiðiauðlind- um. Nefndin lagði til að innheimt yrði veiðigjald en að jafnframt yrðu önnur gjöld á útgerðina lögð niður. Endur- skoðunarnefndin lagði til að veiði- gjald yrði tvískipt. Annars vegar fastur hluti sem tæki mið af kostnaði ríkis- ins vegna stjórnunar fiskveiða og hins vegar breytilegur hluti sem réðist af afkomu greinarinnar. Landsbyggðaskattur „Við erum þeirrar skoðunar að ekki beri að innheimta auðlindagjald vegna nýtingar náttúruauðlinda,“ segir í umsögn Landssambands ís- lenskra útgerðarmanna um frumvarp um veiðigjöld sem lagt var fyrir þing- ið árið 2002. LÍÚ lýsti þó yfir að sam- tökin væru tilbúin að greiða „… hóf- legt auðlindagjald, enda verði það til þess að skapa stöðugleika í greininni.“ Með löggjöfinni var 9,5 prósenta magn- og afkomutengt veiðigjald á íslenska útgerð. „Er gjaldið fundið út með því að draga helstu kostnaðar- liði útgerðarinnar, olíu, laun og ann- an rekstrarkostnað ákveðins tíma- bils, frá aflaverðmæti sama tímabils,“ segir í framsögu Árna M. Mathiesen, þáverandi sjávarútvegsráðherra, um gjaldheimtuna. Með breytingunni var sérstök gjaldtaka á útgerð stór- aukin en í umsögn LÍÚ kemur fram að íslenskar útgerðir hafi á árinu 2001 greitt um 230 milljónir í veiði- eftirlitsgjalds auk 600 milljóna króna sérstaks og tímabundins gjalds til Þróunarsjóðs sjávarútvegs vegna kostnaðar við smíði hafrannsóknar- skips. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir að um tveir milljarðar verði innheimtir af útgerðinni. „Það er alkunna að yfirgnæf- andi hluti sjávarútvegsfyrirtæka er á landsbyggðinni. Því mun auðlinda- gjald á sjávarútveginn fyrst og fremst leggjast á fyrirtæki á landsbyggð- inni,“ segir í umsögn LÍÚ sem bæt- ir þó um betur og bendir á að eignir landsmanna muni líklega rýrna við innheimtu gjaldsins. „Meginniður- staða Hagfræðistofnunar er sú að neikvæð áhrif auðlindagjalds á eign- ir landsmanna og þá einkum lands- framleiðslu geta leitt til þess að tekju- aukning hins opinbera af álagningu auðlindagjalds verði engin eða jafn- vel neikvæð.“ Sami tónn og áður Óneitanlegt er að hér slær við kunn- uglegan tón í umsögnum Lands- sambands útgerðarmanna við aukn- um álögum á rekstur umbjóðenda sambandsins. „Frumvörpin ógna tilveru fyrirtækja sem tengjast og byggja á rekstri sjávarútvegsfyrir- tækja, setja hag og framtíð starfs- manna fyrirtækja í uppnám og skapa mikla óvissu um hagsmuni margra byggðarlaga. Augljóst er að stóraukin skattlagning á sjávarútvegsfyrirtæk- in mun hafa alvarleg áhrif á lands- byggðina enda eru sjávarútvegs- fyrirtækin burðarásar í fjölmörgum samfélögum á landsbyggðinni,“ segir LÍÚ í umsögn um breytingar á fisk- veiðistjórnunarkerfinu sem Alþingi hefur nú til umfjöllunar. n n LÍÚ mætti illa í sáttanefndir n Útgerðarmenn kvarta yfir samráðsleysi Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is „Því mun auðlinda- gjald á sjávarút- veginn fyrst og fremst leggjast á fyrirtæki á landsbyggðinni. LÍÚ um veiðigjald árið 2002„Augljóst er að stór- aukin skattlagning á sjávarútvegsfyrirtækin mun hafa alvarleg áhrif á landsbyggðina. LÍÚ um veiðigjald árið 2012 Upphrópanir ógna sátt Sátta- og endur- skoðunarnefndir um sjávarútveg hafa ítrekað skilað sömu niðurstöðu um meginlínur. Þrátt fyrir það virðast upphrópanir og dómsdags- spár ávallt vera fylgifiskur hugmynda um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.