Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Side 12
„Er þEtta Ekki orðið ágætt?“ 12 Fréttir 16. maí 2012 Miðvikudagur Ó lafur Ragnar Grímsson, for- seti og forsetaframbjóðandi, hóf kosningabaráttu sína um helgina. Í gær heimsótti hann CCP, á afmælisdag sinn á mánudag fór hann til Grindavíkur og um helgina var hann í viðtali við DV og fleiri miðla, þar á meðal Bylgjuna en í klukkutímalöngu viðtali við Sig- urjón Magnús Egilsson ræddi hann framboð sitt og helstu áherslur. Þar gagnrýndi hann harkalega fjölmiðla og mótframbjóðanda sinn, Þóru Arnórsdóttur, sakaði DV um að vera viðbót við kosningabaráttu hennar og sagði eiginmann henn- ar, Svavar Halldórsson, hafa fengið að misnota aðstöðu sína sem frétta- maður á fréttastofu Ríkisútvarpsins í áróðursskyni fyrir Þóru á meðan framboð hennar var í undirbúningi. Í kjölfarið reyndi blaðamaður DV að fá Ólaf Ragnar til þess að rökstyðja mál sitt en lenti í þrasi við forsetann sem var tíðrætt um sjálfhverfu fjöl- miðla: „Ég get ekki læknað þig,“ sagði hann við blaðamann auk þess sem hann sagði blaðamann og ljósmynd- ara ævintýraleg. Fyrri hluti viðtalsins var birtur í DV á mánudag en seinni hluti viðtalsins verður birtur hér á eftir. Sjónvarpið skapar stjörnur SAJ: Hefði fjölmiðlafrumvarpið getað komið í veg fyrir þessa ægilegu sjálf- hverfu fjölmiðla sem þér er tíðrætt um, eða er þetta eitthvað sem er í tíð- arandanum og óhjákvæmilegt? Forsetinn: Ég held að þessi sjálf- hverfa fjölmiðla sé ekkert séríslenskt fyrirbæri. Ég held að þetta sé ein af afleiðingum sjónvarpsvæðingarinn- ar. Áður fyrr skrifuðu menn í blöð og voru andlitslausir. Magnús Kjartans- son var einn þekktasti penni á Íslandi og ritstjóri Þjóðviljans en það var ekki fyrr en hann varð ráðherra og fór að birtast í sjónvarpi að fólk áttaði sig allt í einu á því hvernig hann leit út. Þessi sjónvarpsvæðing sem hefur átt sér stað á síðustu tuttugu, þrjá- tíu árum hefur gert það að verkum að við búum í annars konar veröld. Það hefur meðal annars haft þau áhrif að dagblöð sem áður birtu lítið af myndefni af samkvæmisvettvangi og félagsvettvangi hafa á síðustu tíu til fimmtán árum farið að birta fjölda mynda af þeim vettvangi, jafnvel í blöðum eins og Morgunblaðinu. Þessi myndvæðing fjölmiðlanna og sjónvarpið hafa gert stjörnur úr fólki sem gerir ekki annað en að lesa texta af skjá, oftast nær texta sem aðr- ir hafa samið. Það er að skapa þessa sjálfhverfu sem er viðvarandi. Sjón- varpið er auðvitað svo sterkur mið- ill að allt í einu verða menn heims- þekktir ef þeir eru á CNN, BBC eða landsþekktir ef þeir eru í Kastljósinu.“ SAJ: Þetta var líka kanallinn þinn inn í stjórnmálin. Forsetinn: „Já, og þó. Áður þurftu menn að starfa lengi innan flokk- anna og byggja sig upp á lýðræðisleg- um vettvangi, í samtökum atvinnu- lífs eða launafólks. Nú fer fólk beint af fréttastofum og inn á Alþingi. Þetta er að nokkru leyti alþjóðleg þróun. Hún hefur hins vegar sínar hættur. Við sjáum til dæmis í umræðunni í Bandaríkjum hvaða áhrif Fox-sjón- varpsstöðin hefur. Skilin á milli frétta annars vegar og umfjöllunar eða skoðana hins vegar verða sífellt óljós- ari. Við sjáum þetta hér á landi þeg- ar Ríkisútvarpið lætur fréttastofuna og Kastljós renna saman í eina heild. Eins og ég sagði við ykkur áðan er ég búinn að fylgjast lengi með fjölmiðl- um og var bannaður í bæði útvarpi og sjónvarpi á sínum tíma.“ IDK: Nú, hvað gerðir þú? Forsetinn: „Þú þekkir söguna greinilega mjög lítið. Farðu bara og lestu þér til um það,“ segir hann og hlær. „Hlustaðu bara á Bankaþátt- inn sem er á Youtube, þá getur þú séð hvernig það var. Þú verður að fletta því upp. En nú stöndum við kannski frammi fyrir fjölmiðlum sem áður þjónuðu fyrst og fremst rituðu máli og umræðu þar sem menn gerðu grein fyrir sínum rökum. Nú er þetta allt runnið saman í svona „show“. En eins og ég sagði, þá er þetta ekkert séríslenskt fyriræri. Við sjáum þetta í Bandaríkjunum, Bretlandi og víð- ar. Það er auðvitað hættulegt þegar menn halda að það eitt að hafa ver- ið í hringiðu þessarar fjölmiðlunar sé nægilegt til að geta boðið sig fram til Alþingis eða annarra ábyrgðar- starfa. Ég held að það sé séríslenskt fyrirbæri hvað menn hafa farið með greiðum hætti beint af fréttastofum inn á Alþingi.“ Kosningabarátta en ekki markaðssetning SAJ: Þó er þetta hluti af þinni leið. Forsetinn: „Nei, vegna þess að ég starfaði fyrst hjá ungum framsókn- armönnum í langan tíma áður en ég var kosinn inn á Alþingi árið 1978. Þá hafði ég bæði starfað í þessari hreyf- ingu stjórnmálanna og kennt við Há- skóla Íslands. Ef ég hefði farið í fram- boð strax árið 1967 eða 1971 þá væri kannski hægt að segja að það sé rétt. En það er rétt að ég hafði verið í út- varpi og sjónvarpi og hef haft áhuga á þessari miðlun mjög lengi. Þess vegna sagði ég að ég tel mig alveg jafn færan um það og ykkur á DV að meta hvers lags fjölmiðlun er stunduð. IDK: Það var einmitt athyglis- vert þegar þú talaðir um það hvern- ig framkoma fólks í fjölmiðlum hefði meira vægi í dag en áður og jafnvel meira en málefnin ... Forsetinn: „Nei, ég sagði það ekki. Það var bara eitt af því sem ég ræddi í þessari löngu klukkustundarum- ræðu. Ég fjallaði ítarlega um stöðu Íslands og tækifæri. Ætli ég hafi ekki talað um þetta í svona fimm mínút- ur.“ IDK: Þú komst nú nokkrum sinn- um að þessu. Forsetinn: „Í aukasetningum. Það var lítið brot af þessum tíma.“ IDK: Einmitt, en þegar þú fórst í framboð árið 1996 þá fórst þú í heljar- innar markaðssetningu á þér og kost- aðir heilmiklu til. Forsetinn: „Ég myndi ekki tala um markaðssetningu, ég fór í kosn- ingabaráttu. Mín kosningabarátta var ekkert mikið frábrugðin kosninga- baráttu Péturs Hafsteins eða Guð- rúnar Agnarsdóttur. Hún var mjög svipuð hjá okkur öllum. Þú varst bara svo ung að þú manst ekki eftir því.“ Kvótamál til þjóðarinnar SAJ: Þú hefur talað um að fiskveiði- stjórnunarfrumvarpið væri vel til þess fallið að setja það í þjóðaratkvæða- greiðslu. Er það eitthvað sem hefur verið að brjótast um innra með þér? Forsetinn: „Nei, ég tel bara að það liggi fyrir. Það er alveg ljóst að þetta er mikilvægasta auðlind þjóðarinnar og það hvernig henni er ráðstafað og hvaða arð þjóðin fær af henni sé þess eðlis að fá mál eru jafn vel til þess fall- in að þjóðin kveði upp sinn dóm um það hvernig sú skipan eigi að vera. Eins og forystumenn núverandi rík- isstjórnar hafa sagt er ekkert eitt mál mikilvægara en þetta mál, þetta sé stærsta mál þjóðarinnar um þessar mundir og það er alveg rétt. Þetta er okkar mikilvægasta auðlind. Ég hef oft sagt að ef okkur hefði ekki tekist að byggja upp sjávarútveg á grundvelli útfærslu landhelginnar í 50 mílur og 200 mílur þá efast ég um að efnahagsstoðir lýðveldisins hefðu dugað til að halda því gangandi á fyrstu áratugum þess. Á síðustu ára- tugum hafa komið aðrar stoðir undir þetta. Þess vegna tel ég að þetta mál sé þess eðlis að fá mál séu í eðli sínu jafn vel til þess fallin að þjóðin sjálf ákveði hvernig hennar þetta fer. Ég hins vegar hef ekki tekið af- stöðu til þess hvort þessum tilteknu frumvörpum sem nú liggja fyrir verði vísað í þjóðaratkvæði, enda veit ég ekkert í hvaða mynd þau verða end- anlega. Út frá eðli málsins, almennt séð, tel ég fá mál jafn vel til þess fallin að þjóðin fái að ákveða það sjálf.“ Óeining óhjákvæmileg SAJ: Það verður ekki hjá því kom- ist stundum að þú beitir þínu pers- ónulega mati en málskotsrétturinn sem kallaður hefur verið, þessi grein stjórnarskrárinnar sem gefur forset- anum færi á að undirrita lög eða ekki, er þetta eitthvað sem ætti að koma einhverju formi á? Ég spyr vegna þess að þú ert eini forsetinn sem þú hefur beitt þessu og það er auðvitað allt- af umdeilt mál. Það verður eiginlega ekki hjá því komist að þegar þessu er beitt þá sé fólk komið í skotgrafirnar. Forsetinn: „Ég skil alveg spurn- inguna. Það er þrennt um þetta að segja. Í fyrsta lagi er það með skýr- um vilja sem lýðveldisstjórnarskrá- in var mótuð þannig að þjóðin hefði síðasta orðið um hvaða lög giltu í landinu. Það væri ekki Alþingi held- ur þjóðin sem ætti að hafa síðasta orðið um það. Þessi hugsun var að hluta til arfleifð frá sjálfstæðisbarátt- unni, þar sem þjóðin og vilji hennar voru drifkrafturinn og Svanur Krist- jánsson hefur skrifað ágætar ritgerð- ir um þetta. Forsetinn er einfaldlega sá aðili sem þjóðin getur snúið sér til ef hún vill nýta sér þann rétt sem hún hefur samkvæmt stjórnarskrárfrum- varpinu. Í öðru lagi þá liggur það í eðli málsins að málskotsrétturinn verður alltaf deilumál því annars væri þjóðin ekki að kalla til sín mál sem Alþingi er að afgreiða. Því er málskotsrétt- ur í stjórnarskránni orðaður þannig að stjórnarskráin sjálf geri ráð fyrir ágreiningi á milli forseta og Alþing- is, því ella væri engin þörf fyrir mál- skotsréttinn. Í þriðja lagi þá er það auðvitað vandasamt mat hjá forseta hverju sinni. Það er ekki bara í minni tíð sem þjóðin hefur óskað eftir því að fá mál til sín. Ég tel þó að ég hafi farið var- lega hvað þetta varðar sem sést best á því að í öllum þessum þremur til- vikum hefur niðurstaðan stutt það að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Þegar ég beitti þessu gagnvart fjölmiðla- frumvarpinu ákvað Alþingi að draga frumvarpið til baka og hætta við laga- setningu og þar með játa að þetta var rétt ákvörðun. Nú, við fyrsta Icesave- samninginn voru rúmlega 90 prósent kjósenda á sömu skoðun og það er sterkari þjóðarvilji en við höfum séð í nokkru vestrænu landi á undanförn- um áratugum. Að því leyti má segja að ákvörðun forseta hafi sameinað þjóðina með þessum hætti. Varðandi seinni Icesave-samninginn þá felldi yfirgnæfandi meirihluti hann einnig. Þannig að í þessum þremur tilvikum hefur ákvörðun mín ætíð verið í sam- ræmi við meirihluta þjóðarinnar. Hins vegar, svo ég ljúki þessu hef ég lengi verið þeirrar skoðunar, með- al annars áður en ég varð forseti, að ákveðinn hluti þjóðarinnar ætti að hafa stjórnarskrárvarinn rétt til að geta með ákveðnum hætti óskað eft- ir þjóðaratkvæði. Það væri ekki far- sælt til lengdar að þetta vald væri hjá einum manni. Hins vegar er stjórn- arskráin bara enn þannig og verður þannig allavega á næstu misserum og árum. Og enginn veit hvort því verður breytt eða ekki.“ SAJ: Það getur nú orðið óeining um manninn sem tekur þessa ákvörð- un. Forsetinn: „Það verður alltaf. Al- veg eins og þegar Vigdís hafnaði því að setja EES-samninginn í þjóðarat- kvæðagreiðslu. Þegar hún neitaði því að beita málskotsréttinum skapaði það líka óeiningu eins og hún lýsti ágætlega í sjálfsævisögu sinni. Slíkur var fjandskapurinn gagnvart henni frá mörgum þeim sem vildu þjóð- aratkvæði að þeir hættu að heilsa henni. Vinir hennar og aðrir gengu fram hjá henni úti á götu án þess að heilsa henni. Það getur líka skapað fjandskap að beita honum ekki.“ Kjölfesta þjóðarinnar IDK: Af hverju langar þig að vera í þessu hlutverki? Forsetinn: „Ég myndi ekki orða það þannig að mig langi til að gera það. Það sem varð til þess að ég bauð mig aftur fram var að rúmlega 30 þúsund Íslendingar óskuðu eftir því að ég stæði þessa vakt áfram á þess- um óvissutímum þegar málum er þannig háttað að stórmál þjóðar- innar eru enn í óvissu, þar á meðal stjórnarskrármálið, samskiptin við Evrópusambandið, Icesave-málið og mikið vantraust er á Alþingi og stjórnmálaflokkum. Enginn veit hvað kemur út úr næstu þingkosn- ingum og á slíkum óvissutímum var n Ólafur Ragnar Grímsson segir að forsetinn geti ráðið örlögum þjóðarinnar n Ætlar að standa vaktina n „Einhvers staðar verður að vera ákveðin kjölfesta“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari sigtryggur@dv.is „Þú varst bara svo ung að þú manst ekki eftir því

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.