Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Side 14
Hillary hrifin Utanríkisráðherra Bandaríkjanna horfði á og hreifst með styrk ungu kvennanna sem dönsuðu í menningarmiðstöð Kolkata á dögunum. Mynd ReuteRs 14 Erlent 16. maí 2012 Miðvikudagur Þvag sundmanna drepur fiska n Hundruð dauðra fiska í Þýskalandi valda deilum S undfólk sem pissar í hið sívin- sæla Eichbaum-stöðuvatn í norðurhluta Þýskalands er sakað um að bera hugsanlega ábyrgð á dauða 500 fiska sem fundist hafa þar um slóðir undanfarnar tvær vikur. Þörungarnir sem nýlega hafa tekið að blómstra sem faraldur í vatninu eru sagðir orsök þess að fiskarnir drápust en þörungamyndunin er rakin til efna sem komust í vatnið með hlandi ferða- manna sem fjölmenna að stöðuvatn- inu nánast allan ársins hring. „Með pissandi ferðamönnum sem synda þarna kemst fosfat í vatnið. Við áætlum að hver og einn ferðamaður sem stingur sér til sunds þarna mígi um hálfum lítra á dag í vatnið,“ segir Manfred Siedler, talsmaður stangveiði- félags Hamborgar, í samtali við Bild í Þýskalandi. Þörungarnir valda slíkum usla að að yfirvöld hafa í gegnum tíðina sturt- að 148 tonnum af bentophos í vatn- ið en það vinnur gegn fosfötunum. Kostnaðurinn vegna þessara aðgerða er þegar kominn yfir hálfa milljón evra. Stangveiðifólk og sundgestir hafa að sögn þýskra fjölmiðla barist hat- rammlega um Eichbaum-vatnið und- anfarin misseri. Og kenning Siedlers og félaga er nú ekki galnari en svo að nú er bað- og sundgestum bannað að lauga sig í vatninu meðan þörunga- plágan er jafn skæð og raun ber vitni. Ekki eru þó allir sammála hland- vísindunum því til eru þeir sem vilja kenna skautafólki um dauða fiskanna. „Fiskarnir vakna úr dvala við lætin í skautafólki. Þeir ná ekki andanum og frjósa. Þetta er alþekkt fyrirbæri,“ seg- ir talskona BSU, Kerstin Graupner, í samtali við þýska blaðið Local. Benti hún á að fiskarnir væru margir hverj- ir búnir að vera dauðir í langan tíma. BSU, sem er eins konar umhverfis- og skipulagsstofnun, hefur beðið háskól- ann í Hamborg að kanna hlandkenn- inguna. BSU segir að fyrir utan mikið magn af þörungum sé vatnið afar hreint. En Bild hefur heimildir fyrir því að niðurstöður fyrstu prófana séu ekki góðar, pH-gildi hafi mælst 8,7 og er vatnið því afar basískt. Deilan er því hvergi nærri leyst. mikael@dv.is Enginn kom til bjargar Adrian Vasquez og tveir félagar hans frá Panama voru fegnir að sjá skemmtiferðaskipið Princess sigla fram hjá eftir að þá hafði rekið um Kyrrahafið í 16 daga á vélarvana fiskibát í mars. „Við vorum í skýj- unum, við héldum að þeir væru að koma að bjarga okkur,“ segir Vas- quez í samtali við BBC. En þrátt fyrir tilraunir þeirra til að veifa skipinu með rauðum peysum og þótt minnst tveir farþega skipsins sæju þá og tilkynntu áhöfninni um strandaglópana sigli Prinsessu- skipið fram hjá án þess að bjarga þeim. Það reyndist afdrifaríkt því Vasquez komst einn lífs af og var bjargað eftir 28 daga á reki. Sam- kvæmt alþjóðalögum ber skipum að koma öðrum vélarvana til bjargar og hefur hinn 18 ára gamli Vasquez því höfðað mál gegn Princess Cruises. Styðja hjónaband samkynhneigðra Það vakti verðskuldaða athygli þegar Barack Obama Banda- ríkjaforseti lýsti yfir stuðningi við hjónabönd samkynhneigrða á dögunum og þótti yfirlýsing- in mikil tímamót. Nú hefur ný könnun CBS-fréttastofunnar og dagblaðsins The New York Times leitt í ljóst að tæplega tveir þriðju allra Bandaríkjamanna er sama sinnis. 38 prósent aðspurðra vildu að samkynhneigðum pörum yrði leyft að giftast, 24 prósent vildu heimila staðfesta sambúð þeirra. Þetta gera 62 prósent sam- tals. 33 prósent sögðust alfarið á móti. Ungt fólk er mun líklegra til að styðja hjónaband samkyn- hneigðra en þeir sem eru 45 ára og eldri og þá þarf ekki að koma á óvart að stuðningurinn er meiri hjá kjósendum Demókrataflokks- ins en hjá repúblikönum. Watson handtekinn Paul Watson, forsprakki dýra- verndarsamtakanna Sea Shep- herd, var handtekinn í Frankfurt í Þýskalandi um helgina og bíður þess að vera framseldur til Kosta Ríka að því er samtökin greindu frá á mánudag. Watson bíða ákærur í Kostaríka vegna aðgerða frá árinu 2002 undan ströndum Gvatemala. Sea Shepherd lentu þá í átökum við kostarískt skip sem samtökin sökuðu um að vera við ólöglegar hákarlaveiðar. Áhöfn kostaríska skipsins Varadero sak- aði Sea Shepherd um tilraun til manndráps en samtökin segja myndbandsupptökur sanna sak- leysi þeirra. Það bendir allt til að Watson þurfi að svara til saka. Þ ær brostu út að eyrum, indversku stúlkurnar sem í síðustu viku fengu að hitta og taka í höndina á Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Kolkata. Á bak við brosin og litríkan klæðaburð- inn áttu ungu stúlkurnar það all- ar sameiginlegt að eiga hræðilegar minningar og lífreynslusögur úr undirheimum ofbeldis og kynlífs- þrælkunar í borginni. Hillary djúpt snortin Fimm stúlkur úr hópnum Kolkata Sanved fengu tækifæri til að hitta og dansa fyrir Hillary Clinton sem var í opinberri heimsókn á Indlandi í upphafi mánaðarins. Þær eru hluti af byltingarkenndri hreyfingu sem stofnuð var árið 2004 til að aðstoða stúlkur sem bjargað hefur verið úr viðjum vændis og kynlífsþrælk- unar. Clinton var djúpt snortin af kynnum sínum við stúlkurnar. Áætlað er að minnst þrjár millj- ónir kvenna séu neyddar í kyn- lífsþrælkun eða vændi á Ind- landi. Margar þeirra eru hnepptar í þrælkun á meðan aðrar eru seldar í vændi af fjölskyldum sínum af ein- skærri neyð. dans sem lækning Árið 2004 stofnaði dansfélagsfræð- ingurinn og dansaðgerðasinninn Sohini Chakraborty hreyfinguna Kolkata Sanved en hún teygir anga sína víðs vegar um veröldina. Hlut- verk Kolkata Sanved er að bjóða upp á annars konar lausnir en þær hefð- bundnu fyrir fórnarlömb ofbeldis og kynlífsþrælkunar, geðsjúkra og kvenna og barna sem smituð eru af HIV og alnæmi, til að vinna úr sín- um málum í gegnum dans. Stúlkurnar dönsuðu fyrir Clin- ton og fjölda gesta í menning- armiðstöð Kolkata og lét sýn- ing stúlknanna engan ósnortin. „Dásamlegt,“ sagði Clinton þegar hún tjáði sig að athöfninni lokinni. Fékk armband og bol Clinton fékk einnig við sama til- efni að kynnast ýmiss konar hefðbundnum og óhefðbundn- um verkefnum í baráttunni gegn vændi, mansali, ofbeldi og kynlífs- þrælkun. 19 ára gömul stúlka gaf sig á tal við Hillary Clinton og bað hana af einlægni að gera allt sem í hennar valdi stæði til að tryggja að svokölluðum „rauðum hverfum“ um alla veröld yrði útrýmt. „Ég bað hana einnig að berjast fyrir því að refsa þeim sem taka þátt í man- sali og að börn séu gefin í hjóna- band,“ sagði hin 19 ára gamla Uma Das sem einnig færði Hillary og föruneyti hennar armbönd að gjöf með áletruðum skilaboðum: „Töff karlmenn kaupa ekki kynlíf.“ Utan- ríkisráðherrann setti sitt armband umsvifalaust upp og sagði föru- neyti sínu að gera slíkt hið sama. Í skýrslu um þessi mál sem kom út í fyrra voru stjórnvöld á Ind- landi gagnrýnd fyrir að gera ekki nóg í baráttunni gegn mansali og kynlífsþrælkun. Þó var sérstaklega tekið fram að þau hefðu bætt sig mikið undanfarin ár. Sækja styrk í dansinn n Fórnarlömb mansals og kynlífsþrælkunar á Indlandi græða sár sín með dansi Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Töff karl- menn kaupa ekki kynlíf Á betri stað Stúlkurnar sem dönsuðu fyrir Hillary hafa ýmislegt fengið að reyna. Þær eru á betri stað í dag. Mynd skjÁskot aF veF Cnn Piss eða skautar Sundmenn í spreng eða hávært skautafólk er ýmist sakað um að bera ábyrgð á dauða hundraða fiska í Eichbaum-vatninu í Þýskalandi. Mynd ReuteRs/tengist eFni FRéttaR ekki beint

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.