Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Síða 17
Spurningin Fáránlegur spuniSumir jafnari en aðrir Margrét Tryggvadóttir um ásakanir Vigdísar Hauksdóttur um að þingmenn Hreyfingarinnar séu dýrir þjóðinni - DVJón Lárusson fyrrverandi forsetaframbjóðandi sem dró framboð sitt til baka í vikunni – DV.is Tökum upp ríkisdal „Vel, ég bý hérna. Mér finnst Reykjavík ágæt en landið sjálft frábært.“ Kevin Renskres 30 ára frá Hollandi „Mér líkar mjög vel við landið.“ Joop Renskres 58 ára frá Hollandi „Fyrir mér er Ísland land andstæðna, mér finnst það æðislegt.“ Enaka Renskres 55 ára frá Hollandi „Mér finnst það fínt. Við bjugg- umst við að það yrði kalt og ef maður býr sig vel kemur kuldinn ekki að sök.“ Audrey Owens 46 frá Virginíu í Bandaríkjunum „Ég kann vel við það. Við fórum að skoða Gullfoss og Geysi og á hestbak og það hefur verið tekið vel á móti okkur.“ Michael Owens 41 árs frá Virginíu í Bandaríkjunum How do you like Iceland? Við elskum forsetann Ó lafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, er með það á hreini að hann sé nú fórnarlamb fjölmiðla á borð við DV og Ríkisútvarpið sem umfram allt vilji að Þóra Arnórsdóttir verði þjóðhöfðingi. Þetta er auðvitað nöturlegt ef satt er. Ólafur hefur þjónað þjóð sinni lengur en allir aðrir, að með- talinni Jóhönnu Sigurðardóttur og Öss- uri Skarphéðinssyni. Þjóðin og fjölmiðl- arnir skulda Ólafi Ragnari það auðvitað að hann fái að sitja á Bessastöðum eins lengi og hann sjálfur kýs. Og það er auðvitað fáránlegt að ung kona, sem ætti að vera heima hjá sér að skipta á börnum, ýti sjálfum forsetanum út af velli hinnar pólitísku baráttu. Það er mikill sannleikur fólginn í þeim vís- dómsorðum Guðna Ágústssonar, helsta stuðningsmanns forsetans, að staður konunnar sé á bak við eldavélina. Þóra gerði best í því að draga sig í hlé og sinna börnum sínum og búi. Það er óboðlegt að kona skuli standi uppi í lokkaprúðu hári forsetans og ætla sér að fylla hans skarð. Þá er æpandi spurnin um það hvað Ari Trausti Guð- mundsson þykist vilja í embættið. Hann kemur af fjöllum. Svarthöfði hefur alltaf stutt Ólaf Ragnar í því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Þar skiptir engu máli hvort um er að ræða Frmasóknarflokkinn, Möðruvallahreyfinguna, Alþýðubanda- lagið eða sjálft forsetaembættið. Í ár- anna rás hefur Svarthöfði oftlega tárast af gleði yfir framsýni forstenas. Seint gleymist sú fallega stund á Bessastöð- um þegar Ólafur festi fálkaorðuna á Sigurð Einarsson, sannan og göfugan útrásarvíking, sem ásamt félögum sínum tryggði að íslenska banka- kerfið varð tífalt stærra en þjóðarbúi. Það var yndisleg stund og heiðrunin bar vott um framsýni Ólafs. Og muniði þegar hann hafnaði fjöl- miðlalögunum. Þá hreifst þjóðin með. Að vísu var Davíð Oddsson ekki kát- ur með forsetann þá en þar kom við sögu skítlegt eðli. Svo hafnaði hann Icesave með stæl. Við bók- staflega elskum forsetann okkar sem nú boðar að hann ætli ekki að láta traðka á út- gerðarmönnum sem um allt land óttast um líf of afkomu barna sinna vegna ofsókna ríkisstjórnarinnar. Svarthöfði tekur undir með Ást- þóri Magnús- syni: Virkjum Bessastaði enn frekar. Konurnar inn á heimilin en karl- mennin á dekk. Svarthöfði L ausnir Seðlabankans við afnám gjaldeyrishafta hafa mistek- ist vegna vantrausts fjárfesta á bankanum og áætluninni um afnám haftanna. Með núverandi fyrirkomulagi tekur áratugi að losa um höftin og finna verður aðra leið. Vandamálið er það stórt að ef gjald- eyrishöft yrðu tekin af, án lausnar á 1.000 milljarða aflandskrónuvanda- málinu, þá mundi allur gjaldeyris- sjóður Seðlabankans tæmast á svip- stundu með tilheyrandi hörmungum þ.e. aukinni verðbólgu, falli krón- unnar og gjaldþroti ríkissjóðs. Ef landsmenn vilja losna við gjaldeyr- ishöftin fljótt og koma á efnahags- legum stöðugleika er aðferðin sú að gera ríkisdal að lögeyri, samhliða gömlu krónunni með fastgengi við Bandaríkjadollar. Með nýjum ríkis- dal og fastgengisstefnu fylgja að- haldssöm ríkisfjármál og efnahags- legur stöðugleiki. Afnám gjaldeyrishafta þarf að setja með sérstökum neyðarlögum. n Tekin væri upp fastgengisstefna í stað verðbólguviðmiða. Gengi gjald- miðils yrði strax fest við gengi Banda- ríkjadollars. Stoðmynt skal vera Bandaríkjadalur og skiptihlutfall hans gagnvart ríkisdal vera einn ríkisdalur á móti einum Bandaríkjadollar. n Með nýjum ríkisdal (ISD) sem lögeyri og fastgengisstefnu fylgja að- haldssöm ríkisfjármál og efnahags- legur stöðugleiki og engin gjaldeyris- höft yrðu á nýja ríkisdalnum. n Innan árs skal vera búið að skipta öllum íslenskum krónum lands- manna, launum, lausu fé, innistæð- um, skuldum, verðbréfum, samning- um o.s.frv. yfir í ríkisdal. n Gjaldeyrishöftum yrði ekki lyft af ca. 1.000 milljörðum af aflandskrón- um, þær frystar og sérstaklega samið um losun hafta á þeim. Innlánsvext- ir á aflandskrónunum yrðu keyrðir niður í 0,0% . Þessir 1.000 milljarðar aflandskróna halda íslenska hagkerf- inu í gíslingu. n Eigendum aflandskróna yrðu t.d. boðnar tvær leiðir að losna úr viðjum gjaldeyrishaftanna; a) að skipta yfir í ríkisdal með 75% afföllum, eða b) skipti á aflandskrónugengi í 30 ára skuldabréf, gefnu út í Bandaríkjadoll- ar með 3,5% vöxtum, fyrsta afborgun á tíunda ári. n Þetta sparar tugi milljarða kr. á ári í vaxtakostnað sem skattgreiðendur eru að borga í vexti af aflandskrón- um. n Þær upphæðir af aflandskrónum sem ekki yrði skipt fyrir ríkisdalinn yrðu notaðar til uppbyggingar í ís- lensku þjóðfélagi til áratuga. Líta verð- ur á 1.000 milljarðana af gömlu krón- unum sem hafa íslenskt efnahagslíf í gíslingu sem tækifæri, snúa borðinu við og leyfa erlendum vogunarsjóðum að njóta fjárfestingartækifæra í land- inu með þátttöku sinni. n Þessari leið tæki ca. 6 til 9 mánuði að koma í verk. n Rúsínan í pylsuendanum væri sú, að auðveldlega er hægt að leggja verð- tryggingu niður með þessum aðgerð- um. Stund milli stríða Ríkisstjórnarfundur var haldinn á Egilsstöðum í síðustu viku og eftir hádegisverð tíndust ráðherrarnir svo út, hver á eftir öðrum nema Össur Skarphéðinsson. „Er ég einn eftir?“ spurði hann þegar hann áttaði sig á því að aðrir voru farnir. Hann gekk þá út þar sem hann átti stund með sjálfum sér áður en félagar hans, þeir Kristján Möller og Sigmundur Ernir Rúnarsson, komu til þess að sækja hann. MYND INgIbjörg Dögg KjartaNSDóttIr Myndin Umræða 17Miðvikudagur 16. maí 2012 1 Pabbi kvæntur tveimur Faðir leikkonunnar Reese Witherspoon er kvæntur tveimur konum. 2 Hells Angels safna upp-lýsingum um lögreglumenn Einar Ingi Marteinsson, fyrrverandi for- seti Hells Angels á Íslandi, lét meðlimi njósna um lögreglumenn. 3 Ólafur Ragnar: „Þið treystið þinginu betur en 101 Reykjavík?“ Forsetinn spurði fundargesti á framboðsfundi í Grindavík hvort þeir vildu fá að kjósa um frumvörp um stjórn fiskveiða. 4 Fyrrverandi lögreglumaður segir Zodiac-morðingjann enn á lífi Myrti fjölda manns í San Francisco á sjöunda áratugnum. 5 „Ætíð verið skrítin stelpa“ Lára Kristín Brynjólfsdóttir er einhverf en var talin með geðklofa. 6 Móðir Egils: „Gott fólk að hugsa um hann“ Ester Ásbjörns- dóttir segir vel hugsað um son sinn á Landspítalanum. 7 Ólafur Ragnar ætlaði að mynda utanþingsstjórn Forsetinn leit á það sem möguleika í búsáhaldabyltingunni. Mest lesið á DV.is Hann er kominn úr lífshættu Móðir Egils Einarssonar sem fékk heilahimnubólgu – DV.is. Kjallari Guðmundur Franklín Jónsson „Með nýjum ríkisdal og fastgengisstefnu fylgja aðhaldssöm ríkis- fjármál og efnahagslegur stöðugleiki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.