Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2012, Page 24
24 Sport 16. maí 2012 Miðvikudagur
n Chelsea grófasta liðið en Swansea það prúðasta n Tioté spjaldakóngur
E
nsku úrvalsdeildinni lauk
með hvelli um helgina og
af því tilefni er ekki úr vegi
að líta um öxl og skoða töl
fræðina úr deildinni í vetur.
Robin van Persie varð marka
kóngur, David Silva lagði upp flest
mörkin og Leon Britton gaf flestar
heppnaðar sendingar. Ótvíræður
spjaldakóngur deildarinnar í ár
var Fílabeinsstrendingurinn Cheik
Tioté hjá Newcastle. Hann nældi
sér í ellefu gul spjöld þrátt fyrir að
hafa spilað aðeins 24 leiki í vetur.
Chelsea var hins vegar grófasta lið
deildarinnar en leikmenn liðsins
nældu sér í 74 gul spjöld og 4 rauð
spjöld. Prúðasta liðið var Swansea
en leikmenn liðsins fengu einungis
40 gul spjöld og tvö rauð. Hér að
neðan má sjá helstu tölfræðina úr
deildinni í vetur en upplýsingarn
ar eru fengnar frá tölfræðivefnum
whoscored.com.
Enska
dEildin
í tölum
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Leikjafjöldi Mörk
1 Robin van PersieArsenal 37 (1) 30
2 Wayne RooneyMan.Utd 32 (2) 27
3 Sergio AgüeroMan.City 31 (3) 23
4 YakubuBlackburn 29(1) 17
5 Emmanuel AdebayorTottenham 32(1) 17
6 Clint DempseyFulham 37 17
7 Demba BaNewcastle 32 (2) 16
8 Grant HoltNorwich 24(12) 15
9 Edin DzekoMan.City 16 (14) 14
10 Mario BalotelliMan. City 14(9) 13
Lokastaðan
1 Man. City 38 28 5 5 93:29 89
2 Man. Utd 38 28 5 5 89:33 89
3 Arsenal 38 21 7 10 74:49 70
4 Tottenham 38 20 9 9 66:41 69
5 Newcastle 38 19 8 11 56:51 65
6 Chelsea 38 18 10 10 65:46 64
7 Everton 38 15 11 12 50:40 56
8 Liverpool 38 14 10 14 47:40 52
9 Fulham 38 14 10 14 48:51 52
10 WBA 38 13 8 17 45:52 47
11 Swansea 38 12 11 15 44:51 47
12 Norwich 38 12 11 15 52:66 47
13 Sunderland 38 11 12 15 45:46 45
14 Stoke 38 11 12 15 36:53 45
15 Wigan 38 11 10 17 42:62 43
16 Aston Villa 38 7 17 14 37:53 38
17 QPR 38 10 7 21 43:66 37
18 Bolton 38 10 6 22 46:77 36
19 Blackburn 38 8 7 23 48:78 31
20 Wolves 38 5 10 23 40:82 25
Markahæstir
Leikjafjöldi Stoðs.
1 David SilvaMan. City 33(3) 15
2 AntonioValenciaMan. Utd 22(5) 13
3 Juan MataChelsea 29(5) 13
4 Emmanuel AdebayorTottenham 32(1) 11
5 Alexandre SongArsenal 34 11
Stoðsendingar
Meðaltal í leik (%)
1. Arsenal 59,6
2. Man. City 57,7
3. Swansea 57,6
4. Man. Utd 57,3
5. Tottenham 56,3
6. Chelsea 55,4
7. Liverpool 55
8. Wigan 49,9
9. Fulham 48,9
10. Wolves 47,8
11. Everton 47,4
12. Newcastle 46,8
13. Norwich 46,3
14. Bolton 46,2
15. West Brom 45,3
16. QPR 44,7
17. Sunderland 44,1
18. Aston Villa 43,4
19. Blackburn 41,3
20. Stoke 39,9
Grófustu liðin
Gul spjöld Rauð spjöld
1. Chelsea 74 4
2. QPR 54 9
3. Blackburn 66 5
4. Arsenal 64 4
5. Wolves 64 4
6. Aston Villa 70 2
7. Wigan 67 3
8. Newcastle 66 2
9. Sunderland 59 4
10. Liverpool 53 5
11. Norwich 58 3
12. Stoke 60 2
13. Everton 60 2
14. Man. City 51 5
15. Bolton 50 5
16. Fulham 54 0
17. Man. Utd 51 1
18. Tottenham 43 3
19. West Brom 48 1
20. Swansea 40 2
Héldu bolt-
anum best
Leikjafjöldi % heppnaðar
sendingar
1 Leon BrittonSwansea 35(1) 93,5
2 Nigel de JongMan.City 11(10) 92,3
3 John TerryChelsea 31 91,3
4 Joe AllenSwansea 31(5) 91,2
5 Samir NasriMan.City 26 (4) 91,1
Heppnaðar
sendingar Flest gul spjöld
Leikjafjöldi Gul spjöld
1 Cheik TiotéNewcastle 24 11
2 Lee CattermoleSunderland 23 10
3 Jason LoweBlackburn 30 (2) 10
4 Alexandre SongArsenal 34 10
5 Laurent KoscielnyArsenal 33 9
6 Gary CaldwellWigan 36 9
Sigurvegarar Það var margt sem
gekk á í ensku deildinni í vetur eins og
tölfræðin sýnir. Manchester City stóð
uppi sem sigurvegari í ár. MYND REuTERS
Ferguson og
Giggs bestir
Sir Alex Ferguson og Ryan Giggs
hjá Manchester United hafa verið
heiðraðir sem besti stjóri og besti
leikmaður fyrstu 20 ára ensku úr
valsdeildarinnar. Ferguson hafði
betur í kjörinu gegn Arsene Wen
ger, Jose Mourinho og fleirum
enda erfitt að toppa 12 meistara
titla skoska snillingsins. Giggs
skákaði leikmönnum á borð við
Dennis Bergkamp, Roy Keane og
Thierry Henry. Hann hefur leikið
909 leiki fyrir United og er sigur
sælasti leikmaðurinn í sögu ensku
knattspyrnunnar. Hundruð þús
unda aðdáenda og sérfræðinga
tóku einnig þátt í kjöri á besta
markinu, markvörslunni, fagnað
arlátunum og draumaliði fyrstu 20
áranna.
Mancini
mun versla
Roberto Mancini, stjóri ný
krýndra Englandsmeistara Manc
hester City, segir að félagið verði
að styrkja sig með tveimur til
þremur leikmönnum í sumar fyrir
átökin á næsta tímabili. City hef
ur eytt gríðarlegum fjármunum í
nýja leikmenn síðan 2008 og virð
ast bara vera að byrja. „Barcelona
og Real Madrid kaupa tvo til þrjá
leikmenn á hverju ári og eyða
miklum peningum. Ég held að
City þurfi að gera annað eins. Við
þurfum að bæta okkur, við þurf
um styrk til að keppa í Meistara
deildinni og ensku úrvalsdeild
inni,“ segir Mancini sem þegar
státar af breiðasta hópi allra liða í
deildinni.
Steve Kean í
slæmum málum
Steve Kean, knattspyrnustjóri
Blackburn, er í slæmum málum
eftir að nýtt myndband af honum
birtist þar sem hann lætur gamm
inn geisa á knæpu í Kína á undir
búningstímabilinu í fyrrasumar.
Myndbandið birtist á þriðjudag
en þar fer Kean ófögrum orðum
um forvera sinn í starfi, Sam All
ardyce, sem nú stýrir West Ham
og vissi ekki að einn áhangenda
Blackburn á barnum var að taka
allt saman upp á myndband. Í
myndbandinu drullar Kean yfir
Allardyce, lofsyngur sjálfan sig
fyrir að hafa uppgötvað Phil Jones
og veðjar við stuðningsmenn
ina upp á 100 pund að Blackburn
endi í topp tíu og vinni Carling
bikarinn. Skemmst er frá þaí að
segja að hann tapaði því veðmáli
enda féll Blackburn. Myndbandið
hefur farið sem eldur í sinu um
netheima og greina breskir fjöl
miðlar frá því að Allardyce ætli
að höfða mál gegn Kean vegna
þessa.